Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 TOLLSKJOL BREYTING í TOLLAMÁLUM KALLAR Á NÝJA MEÐFERÐ TOLLSKJALA í tilefni breytinga í tollamálum mun Stjórnunarféiag íslands halda námskeið um nýja meðferð tollskjala. Námskeiðin verða í tveimur hlutum: A og B. A-HLUTI: Kynningarnámskeið (yfirlitsnámskeið) í nýjungum tollamála. Fjallað er um tollalög, tollverð og tollverðsákvörðun, EUR-reglur, nýjar aðflutningsskýrslur, nýja tollskrá (H:S) o.fl. Mestur tími fer í fræðslu um nýja aðflutningsskýrslu. ÞÁTTAKENDUR: Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem þekkja til tollamála og vinna við tollskýrslugerð. LEIÐBEINENDUR: Guðrún Ásta Sigurðardóttir, lögfræðingur, KarlGarðarsson, viðskiptafræðingur og Sveinbjörn Guðmundsson, deildarstjóri. TÍMIOG STAÐUR: Námskeiðið verður haldið tvisvar: 9. og 10. des. kl. 8.30-12.30 og 9. og 10. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15. 9.12. n B-HLUTI: 16.12. 4 framhaldsnámskeið, sem skipt er niður eftir vöruflokkum. Nánar verður farið í einstaka flokka nýrrar tollskrár og H:S númerakerfið. B 1 MATVÖRUR OG KEMÍSK EFNI. LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson og Páll Franzson. TÍMI OG STAÐUR: 16. og 17. des. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15. B2 TEXTÍL, SKÓFATNAÐUR OG HÖFUÐFATNAÐUR. LEIÐBEINANDI: Sveinbjörn Guðmundsson. TÍMIOG STAÐUR: 16. des. kl. 14.00-18.00 aðÁnanaustum 15. B3 VÉLAR OG TÆKl. LEIÐBEINENDUR: Reynir Haraldsson og Kristján Halldórs- son. TlMI OG STAÐUR: 18. og 19. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15. , B4 ÝMSAR VÖRUR. LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson, ) Páll Franzson og Sveinbjörn Guðmundsson. TlMI OG STAÐUR: 18. og 19. des. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15. { . ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ. Stjórnunarfélag íslands =H1§Í^ Ánanaustum 15 Símj: 62 10 66 F Minning: ErlendurPáll Gríms- son bifvélavirki Fæddur 12. aprU 1944 Dáinn 12. nóvember 1987 Að kvöldi fímmtudags 12. nóv- ember lést á Landakoti kær vinur okkar, Erlendur Páll Grímsson, langt um aldur fram eftir að hafa í nokkur ár barist svo hetjulega við sjúkdóm þann er að lokum lagði hann að veili að við sem á horfðum skildum vart það þrek og þann kraft er honum var gefínn. Palli var fæddur í Reykjavík 12. apríl 1944 og ólst upp hjá foreldrum sfnum, þeim Helgu Valtýsdóttur og Grími Pálssyni ásamt yngri bróður sínum Valtý. Pjölskyldan var mjög samhent en hefur nú misst svo mikið. En góðar minningar eru huggun þeim er eftir standa. Palli kvæntist ungur Marít Dav- íðsdóttur og eignuðust þau son, Grím Helga, fæddan 7. desember 1967, hann stundar nú nám í við- skiptafræði við Háskólann. Palli og Marít slitu samvistum en góður vin- skapur var ávallt á milli þeirra og mikið samband milli þeirra feðga. Síðustu misseri bjó Palli í Grindavík ásamt sambýliskonu sinni, Kolbrúnu Einarsdóttur. Hún hefur staðið sem klettur við hlið hans í gegnum þessi erfíðu veik- indi. Palli lærði bifvélavirkjun hjá Heklu og vann þar nánast allan sinn starfsaldur. Það var mjög gam- an að sjá Palla vinna. Snyrti- mennska og skipulagshæfíleiki var honum í blóð borin, við kynntumst því vel er við byggðum saman lítið fjölbýlishús í Seljahverfí. Það var stórkostlegt að sjá þegar hann var að vinna við byggingu íbúðar sinnar, þar sást ekki ryk, ekki drasl, þar var engu ofaukið. Það er erfitt að trúa því að Palli svo ungur sé ekki lengur á meðal okk- ar. En hann var vinur sem alltaf var hægt að leita til og vildi allt fyrir okkur gera. Hann var kátur í góðra vina hópi en seintekinn og ekki fyrir að flíka tilfínningum sínum. Aldrei heyrðum við hann kvarta, þó oft hafí verið ástæða til. Hann var mjög bamgóður og gaf sér alltaf tíma tii að tala við dreng- ina okkar og alltaf kom hann á aðfangadag með pakka til þeirra. Þetta fínnst okkur lýsa vel hvaða mann Palli hafði að geyma. Fyrir langa og góða vináttu er margt að þakka og minningin um góðan dreng mun lifa. Við sendum Kol- brúnu, Grími Helga, Helgu, Grími, Valtý og öðrum vandamönnum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Bára og Eyþór í dag verður kvaddur vinur okkar Erlendur Páll Grímsson. Við kynnt- umst Palla fyrir nokkrum árum er hann kom inn í fjölskyldu okkar með Kollu. Margar ánægjustundir áttum við saman, alltaf var Palli hress og kátur og tilbúinn að gera öðrum greiða. Þrátt fyrir sín miklu veik- indi undanfama mánuði stóð hann sig eins og hetja. Kvartaði aldrei, ef spurt var hvað segir þú? Þá var svarið, „allt þetta fína“. Elsku Kolla, þú fékkst að njóta hans alltof stutt, þið sem áttuð svo margt sameiginlegt. En minningin um góðan dreng yljar okkur öllum. Við sendum Kollu, syni hans, for- eldrum, bróður og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Br.) Ella og Gaui Að kvöldi hins 12. nóvember sl. lést í Landakotsspítala Erlendur Páll Grímsson eftir langa og ákaf- lega harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Baráttu, sem fyrir löngu var séð að endað gat á aðeins einn veg. En þótt úrslita hafí lengi mátt vænta svo að segja á hverri stundu kemur dauðinn sjálfur ævinlega eins og á óvart, jafnvel okkur eldra fólkinu, sem þó höfum flest horft á eftir fjölda ástvina og samferða- manna, og ættum að vera farin að þekkja þetta lögmál. Páll fæddist í Reykjavík hinn 12. apríl 1944, sonur hjónanna Helgu Valtýsdóttur frá Seli í Austur- Landeyjum og Gríms Pálssonar frá Hjálmsstöðum í Laugardal. Þessi fallegi drengur ólst svo upp í for- eldrahúsum ásamt yngri bróður sínum, Valtý, sem er þremur árum yngri. Urðu böm þeirra hjóna ekki fleiri. Ungur lærði Páll bifvélavirlq'un hjá Heklu hér í borg, og starfaði þar síðan svo til óslitið, eða nokkuð á þriðja áratug. Þar naut hann að makleikum trausts og vináttu jafnt Oskar Kortsson vélvirki — Minning Fæddur 2. október 1907 Dáinn 11. nóvember 1987 Góður vinur og félagi okkar, Óskar Kortsson, vélvirki, lést í Sjúkrahúsi Akraness eftir harða baráttu við illvígan krabbameins- sjúkdóm. Ljóst var á síðustu vikum að hveiju dró, og þó_ ekki hafí veri um talað veit ég að Óskar gerði sér grein fyrir því. Það eitt er víst að undan dauða verður ekki vikist, og honum fylgir tregi. Ættir Óskars verða ekki raktar hér, en hann var fæddur á Selja- landi í Rangárvallasýslu. Hann fór ungur til Vestmannaeyja, stundaði sjómennsku á þeim árum þegar harka og dugnaður varð að vera einkenni þeirra sem þessa atvinnu- grein stunda. Ekki er ólíklegt að skapferli manna geti mótast af skiptum við náttúraöflin og svo hafi verið um Óskar. Við sem hann þekktum vissum að líkingar má sækja í snarpt sjólag með hvítfyss- andi öldum og einnig í mjúka milda báruna við blikandi sólargeisla sem leikur við hafflöt. Þannig þekktum við þennan félaga sem við minn- umst nú. Ævi Óskars var storma- söm og átakamikil í ólgusjó lífsins og ótrúlegt að margur hafí meira reynt en hann, það vita þeir sem þekkja. Við félagamir viljum minnast samstarfsins úr Sementsverksmiðj- unni um 25 ára skeið, þar sem Óskar var lengst af við rennismíði, við það sem hans hagleiks naut best við. Við getum flestir okkar minnst góðra ráða hans, bæði við bekkinn, við suðutækin og hvemig verk skal unnið svo smíði geti tal- ist. Þessi ráð vora gefín með natni og umhyggju þess er reynsluna hafði og kunni að miðla. Glens og gamansögur hafði Óskar á reiðum höndum og á góðri stund var unun að hlusta á lýsingar og hnyttinyrði sem komu fram í skemmtilegum frásagnarstfl sem þeim einum er lagið er búa yfír eig- inleikum sem þessum. Öllum má ljóst vera að í sam- starfi sem hér er getið getur að sjálfsögðu eitthvað kastast í kekki, en enginn var sá ásteytingur að hann sé ekki löngu horfínn, og upp- úr stendur minning um vin og 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.