Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 54

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 „ ég þuse v/cnjulega- upp <x af~ rnaeli$cla,q)nn hennar." HÖGNI HREKKVÍSI Tjörnin og andmælendur Til Velvakanda. Á meðal okkar þrífst lítill en harðskeyttur hópur atvinnumót- mælenda sem rýkur upp til handa og fóta ef eitthvað á að gera, sem þeim er ekki að skapi. Þá er stofn- að til mikils gauragangs og óspart spilað á tilfínningalíf hins almenna borgara. Þetta fólk er yfírleitt vinstrisinnað en samt hið mesta afturhald, því framfarir og breyt- ingar eru sem eitur í beinum þess. Ef þeir menn sem valdir hafa verið til að stjóma málum okkar hefðu látið undan þeim þrýstingi sem hópnum hefur tekist að skapa með mótmælunum, væri engin Borgarfjarðarbrú, því talið var að gerð hennar gæti kannske drepið marflær. Engin brú yfír Elliðaámar því gerð hennar styggði laxinn. (Þó var mjög góð veiði í ánum sumarið sem brúargerðarmenn vora að sulla í þeim.) Ennþá þyrftu húsmæður að fara í sérstakar búðir til að fá keyptar mjólkurvörar, því ekki gekk lítið á þegar matvöraverslanir áttu að fá að selja mjólkurvörar. Þetta era aðeins nokkur nærtæk dæmi. Hins vegar varð hópnum að ósk sinni fyrir norðan. Því miður, fyrir hann. Við Eyjafjörð stóð til að byggja álver. Það mátti ekki því það gæti traflað fískigengd inn fjörðinn sem aldrei hafði bragðist. Hvort sem það varð vegna aðgerða mótmælendanna eða ekki, hefur ekkert orðið úr byggingu álverk- smiðjunnar ennþá. En um sama leyti og mest gekk á hjá mótmælendum, hvarf allur fískur úr Eyjafírði og hefur hans varla orðið vart síðan. Þetta var nú verri sagan, því gott hefði verið að geta bent á stóreflis álverk- smiðju og geta sagt sem svo: „Hvað sögðum við? Þama er sökudólgur- inn.“ Nú er það blessuð Tjömin okkar í Reykjavík. Hefur nokkur hugleitt hvemig hún eða umhverfí hennar liti út í dag ef hliðstæður hópur hefði ráðið ferðinni um það leyti sem núverandi byggingar risu við Tjömina? Þegar æsingahópar era í essinu sínu og setja á svið uppákom- ur sem ríkisfjölmiðlamir gera góð skil, fer oft lítið fyrir hinum þögla meirihluta sem veit að óhætt er að treysta þeim mönnum sem hann hefur trúað fyrir stjóm borgarmál- anna, enda hafa þeir sýnt í verki að þeir era vel starfi sínu vaxnir. Eg er einn þeirra fjölmörgu Reykvíkinga sem þykir vænt um Tjömina og fuglalíf hennar, og vil alls ekki að það sé skert, en ég læt engan telja mér trú um að þótt yfírborð hennar skerðist um 1—2%, sé verið að útrýma öllu fuglalífi Tjamarinnar. Ef mótmælendur gætu hins vegar sýnt fram á að lífsskilyrði fuglanna þyldu ná- kvæmlega enga skerðingu á vatns- fletinum, gætu borgaryfirvöld eflaust látið grafa jafnstóra holu við suðurenda hennar. Þá mundi Tjömin ekkert minnka, aðeins fær- ast! Þegar moldviðri uppákomufólks- ins léttir, og venjulegt fólk áttar sig á að lífríki Tjamarinnar skaðast ekkert, mun það sjá að ráðhúsið verður mikil borgarprýði og kemur til með að veita bæði íbúum og gestum Reykjavfkur mikilvæga þjónustu í framtíðinni. Trúlega er upphlaup alþýðu- bandalagsfólksins sprottið af kvíða yfír tilhugsuninni um að þurfa um aldur og ævi að horfa upp á þetta fallega ráðhús við Ijömina, og í hvert skipti kemur það til með að minna á Davfð. En minnismerki vinstri stjómar Reykjavíkur, staur- amir sem reknir vora niður í norðurenda Tjamarinnar era fyrir löngu horfnir. Reykvíkingar! Til hamingju með ráðhúsið. Andavinur Víkverji skrifar Frábær frammistaða Önnu Margrétar Jónsdóttur í keppn- inni Ungfrú Heimur á dögunum vakti almenna gleði hér á landi. í annað sinn gátu Islendingar fylgst með þessari keppni í beinni útsend- ingu fyrir atbeina Stöðvar 2. í fyrra vakti útsendingin ekki eins mikla athygli og nú því þá komst ísland ekki í úrslitin. En að þessu sinni sátu Islendingar límdir við skjáinn og fylgdust með sínum fulltrúa. Ríkissjónvarpinu bauðst í mörg ár að sýna þessa keppni beint fyrir viðráðanlegt verð, m.a. árið sem Hólmfríður Karlsdóttir sigraði, en á þeim bæ var áhugi ekki fyrir hendi. En á þessu sviði sem öðrum hefur Stöð 2 farið inn á nýjar braut- ir og fært sjónvarpsáhorfendum efni sem þeir höfðu ekki tækifæri til að sjá áður. Gott dæmi um já- kvæða samkeppni. XXX var jafnvel farinn að gera sér vonir um fyrsta sætið á tímabili. Sú von rættist ekki en þriðja sætið er stór- kostlegur árangur. Eftir keppnina ræddu erlendir blaðamenn um það sfn á milli að ísland hefði tekið við af Svíþjóð sem land fegurðarinnar. Þessi ummmæli koma ekki á óvart þegar árangur íslenzkra stúlkna í keppninni undanfarin ár er skoðað- ur. Þegar Anna Margrét var valin Fegurðardrottning íslands sl. sum- ar urðu ýmsir til að gagnrýna það val eins og gengur. En Víkvetja er kunnugt um að val dómnefndar á þeim tíma var einróma og að nefnd- in taldi að Anna Margrét væri prýdd þeirri fegurð og þeim glæsileika sem dygði til góðs árangurs í al- þjóðlegri keppni. Þetta mat reyndist hárrétt hjá dómnefndinni. XXX algjörlega fyrir hann. Það gengur ekki að einstaka hópar í þjóðfélag- inu geti keypt bjór en aðrir ekki. Víkveiji var að koma frá útlönd- um fyrir skömmu og varð vitni að samtali sem sýndi eina mótsögnina í núverandi ástandi. Maður frá Akureyri var að koma frá útlöndum og keypti Thule-bjór. Hann spurði þeirrar eðlilegu spumingar hvort hann gæti ekki borgað bjórinn í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og tekið með sér kvittunina norður og tekið bjórinn út hjá Sana á Akur- eyri, sem framleiðir hann. Svarið var nei. Maðurinn varð að taka bjór- inn í Keflavík og ferðast með hann þvert yfír landið! Bjórdósimar sem maðurinn keypti höfðu sem sagt verið fluttar frá Akureyri til Keflavíkur og aftur til baka þegar þeirra var loks neytt! XXX En þetta var aðeins útúrdúr. Frammistaða Önnu Margrétar í keppninni er það sem uppúr stend- ur. I útsendingunni á dögunum var hún taugaóstyrk til að byija með en þegar á keppnina leið óx henni ásmegin og framganga hennar varð glæsileg og óaðfinnanleg. Það var engum vafa undirorpið að Anna Margrét var í hópi glæsilegustu stúlknanna í keppninni og Víkveiji Svo virðist sem bjórmálið ætli að fara í sama farveg og fyrr í þinginu. Enn er máiið til 1. um- ræðu í neðri deild og sömu menn taka til máls aftur og aftur. Víkveiji neitar að trúa öðra en þingmenn gegni þeirri þingræðislegu skyldu sinni að taka ákvörðun í málinu af eða á. Ef bjórinn verður samþykkt- ur kemur hann næsta haust en ef hann verður felldur þarf að skrúfa Tveir menn heita Bobby Harri- son og Tony Sandy. Þeir reka fyrirtæki sem heita Töff, Split og Top Class. Þessi fyrirtæki hafa haldið hljómleika m.a. með Meat Loaf og Á-Ha. Nú kann einhver að halda að þessi starfsemi fari fram erlendis en svo er ekki. Hún fer fram á Islandi. Það eina sem bend- ir til þess er að hljómleikamir vora haldnir í Reiðhöllinni!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.