Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 59

Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 59 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR 47 prósent sóknamýting Sóknarnýtnig íslenska liðsins í gœrkvöldi var 46 prósent. Átti liðið 47 sóknir, en skoraði úr þeim 22 mörk. Þorgils Óttar Matthiesen var með 80 pró- sent skotanýtingu, skoraði 4 mörk úr 5 tilraunum og glataði knettinum aldrei. Fiskaði auk þess eitt vítakast. Einn íslensku leikmannanna var reyndar með 100 prósent nýt- ingu, Guðmundur Guðmundsson sem fékk eitt færi og nýtti það. Alfreð Gfslason, sem lék svo vel í fýrri hálfleik var með 61 prósent heildamýtingu skota, átti 13 skot, þar af tvö vítaskot, og skoraði 8 mörk, þar af eitt víti. Pjögur skota hans voru varin, þar af annað 'víta- kastanna. Þá átti hann eitt stangar- skot og var einu sinni rekinn af leikvelli. Jakob Sigurðsson var með 66 prósent með tvö mörk úr þremur skotum. Þrír leikmenn voru með 50 prósent nýtingu, Kristján Arason, Páll Ól- afsson og Karl Þrainsson . Kristján skaut átta sinnum, skoraði 4 mörk. Þijú voru varin og eitt fór í stöng. Kristján glataði knetti einu sinni og átti eina línusendingu sem gaf mark. Páll skaut fjórum sinnum og skoraði 2 mörk. Eitt skot var varið og eitt fór í stöng. Palli glataði knetti fjórum sinnum. Karl Þráins- son skaut líka fjórum sinnum og skoraði tvívegis. Hann var með eitt varið og annað í stöng. Morgunblaöið/Júlíus Krlstján Arason er hér kominn í gegnum pólsku vömina og skorar eitt af fjórum mörkum sfnum f leiknum. Morgunblaðið/Bjarni AlfreA í ham Alfreð Gíslason lék mjög vel í fyrri hálfleik og skoraði þá 7 mörk af 13 mörkum íslands. Hann hefur sjaldan verið í betri æfingu en um þessar mundir. Hvað sögðu þeir? PállÓlafsson „Pólverjar vom sterkari en í fyrri leiknum og við vomm slakari. Það vantaði alla einbeitingu. Það hefur verið okkar veikleiki að ná upp ein- beitingu eftir sigurleik. Leikurinn var erfiður og við gerðum okkur seka um slæm mistök bæði í vöm og sókn. Pólvetjar komu nú meira út á móti okkur og áttu við því erfíðara með að komat áleiðis gegn þeim.“ Sigur&ur Gunnarsson „Pólveijar spiluðu tvisvar sinnum betur en í fyrra kvöld. Þeir sýndu meiri baráttu en okkur skorti ein- beitingu. Eftir svo stóran sigur eins og fyrri leiknum þá er alltaf erfitt á ná upp 100 prósent einbeitingu. Þetta er veikleiki hjá okkur sem við þurfum að yfirvinna." Atll Hllmarsson „Pólveijar spiluðu allt annan hand- bolta en í fyrri leiknum. Vöm þeirra var mun sterkari. Þeir vom ákveðn- ir og gáfu aldrei þumlung eftir. Bogdan Wenta náði sér vel á strik og lék mjög vel. Fyrri leikurinn var allt of auðveldur þá gekk allt upp hjá íslenska liðinu," sagði Atli. Hann lék ekki með í gærkvöldi vegna lasleika. Hann sagðist þó vera farin að halda mat niðri og það kæmi í ljós í dag hvort hann færi með liðinu til Akureyrar. Ísland-Pólland 22 : 25 Laugardalshöll, landsleikur í hand- knattleik, fimmtudaginn 19. nóvember 1987. Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:4, 4:4, 5:5, 7:5, 9:7, 10:9, 11:9, 11:11, 13:12, 13:13, 13:14, 15:16, 16:16, 16:18, 17:18, 17:20, 18:21, 21:21, 21:24, 22:24, 22:25. Áhorfendur: 1200. Mörk Íslands: Alfreð Glslason 8/2, Þorgils Óttar Mathisen 4, Kristján Arason 4, Páll Ólafsson, Karl Þráinsson og Jakob Sigurðsson 2 mörk hver. Varin skot: Einar Þorvarðarson 8 skot, Guðmundur Hrafnkelsson 4 skot. Mörk Póllands: Bogdan Wenta 9, Leszek Sadowy 5, Jrztsztif 4, Marek Kordowiecki 2, Zbigniew Plechoc 2, Ryszard Masion, Tomas Lebiedzinski og Grzegorz Subocl eitt mark hver. Varin skot: Wieslaw Goliat 10/1, Wasilewski Robert 2. Dómarar: Öjvind Bolstad og Teije Anthonsen og dæmdu þeir vel. Alfreðfrábær í fyrri hálfleik PÓLVERJAR voru ákveðnir f hefna ófaranna eftir tapið í fyrra kvöld. Þeir náðu að stöðva stórskyttur íslands f seinni hálfleik eftir jafnan fyrri hálfleik og stóðu uppi sem sig- urvegar. Islenska liðið var ekki eins sannfærandi og ffyrri leiknum og þvf fór sem fór. Fyrri hálfleikur var mjög jáfti allan tímann. Þá var um al- gjört einvígi milli Alfreðs Gfslasonar og Bogdan Wenta. Alfreð fór á kostum og gerði sjö mörk og Wenta gerði enn betur og skoraði 8 mörk í hálfleiknum. Leikurinn hélst í jafnvægi í upphafi seinni hálfleiks allt þar til staðan var 16:16 er 10 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Þá skoruðu Pólveij- ar fjögur mörk á móti einu marki íslendinga. íslendlngar jafna íslendingar náðu að jafna 21:21 þegar 9 mínútur voru til leiksloka. vaur lónatansson skrifar Pólveijar skoruðu 22. markið og Alfreð var síðan óheppninn að jafna ekki þegar hann átti þrumuskot í stöng. Pólveijar gengu á lagið og gerðu næstu tvö mörk áður en Kristjáni tókst að minnka muninn. í tvö mörk, 22:24, þegartæpar þijár mínútur voru til leiksloka. Pólveijar áttu svo sfðasta orðið. Alfreð átti misheppnað vítakast þegar ein mínúta var til leiksloka. AHreð hóH uppl lelk llðslns Fyrri hálfleikur var betri að hálfu íslands eða réttara sagt Alfreðs, en hann hélt þá uppi leik liðsins. Pólveijar náðu síðan að stöðva hann í seinni hálfleik. Þeir komu þá vel út á móti og trufluðu sóknarleikinn sem var þá oft mjög fálmkenndur. Vömin var einnig veik og fékk Wenta oft að leika lausum hala. Alfreð var besti leikmaður íslands eins og áður segir. Páll og Þorgils Óttar byijuðu vel en döluðu eins og reyndar allt liðið í seinni hálf- leik. Kristján var ekki eins ógnandi og hans er von og vísa. Jakob Sig- urðsson kom inná fyrir Guðmund Guðmundsson í seinni hálfleik og stóð sig vel. Karl og Geir vom tölu- vert frá sínu besta. Sigurður Sveinsson og Júlfus fengu aðeins einu sinni að koma inná og gerðu mistök og fengu ekki tækifæri eftir það. Guðmundur Hrafnkelsson kom í markið f upphafí seinni hálfleiks, en skipti útaf um hann miðjan. Pólska liöió alH annað og betra Pólska liðið lék allt annan hand- knattleik en í fyrri leiknum. Þar munaði mest um stórleik Bogdan Wenta og eins var vamarleikurinn ákveðnari. Leslaw Dziuba var einn- ig sterkur í seinni hálfleik. Eins vom markverðimir betri en í fyrri leiknum. íslenska liðið skoraði 5 mörk fyrir utan, 5 mörk með gegnumbrotum, 5 mörk úr hraðaupphlaupum, 4 mörk af lfnu, 1 mark úr vfti og 1 mark úr hominu. Pólska liðið skoraði 8 mörk fyrir utan, 6 mörk með gegnumbrotum, 6 mörk úr hraðaupphlaupum og 5 mörk af línu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.