Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 7
9. NÓVEMBER ’38. - Eitt af
bænahúsum gyðinga í Berlín
verður eldinum að bráð.
endurbyggja eitt af samkunduhús-
um gyðinga í Austur-Berlín, sem
var brennt á hinni svokölluðu krist-
alsnótt, 9. nóvember 1938.
Ríkisstjómin hefur gefíð til
kynna að hún vilji aukin og bætt
samskipti við hina ýmsu söfnuði og
trúmálahópa í Austur-Þýzkalandi
og su viðleitni ætti ekki sízt að
koma gyðingum til góða því að
þeir eru mjög fámennur söftiuður.
Þegar nasistar komust til valda í
Þýzkalandi bjuggu um 172.000
gyðingar í Berlín en í stríðslok voru
aðeins 2.000 gyðingar þar sem
Austur-Berlín er nú.
Breytt afstaða og opinber stuðn-
AUSTUR-BERLÍN
Hinir hund-
eltu þykjast
sjá fram
ábetridaga
Igömiu úthverfí Austur-Berlínar
er gyðingakirkjugarður, einn
átakanlegasti minnisvarðinn um
nasistatímabilið. Bergfléttur og
annar gróður hefur fyrir löngu vax-
ið yfír legsteinana og ljóst er að
enginn hefur vitjað um gröf eða
verið jarðaður þama í rúm fjörutíu
ár. Afkomendur þeirra, sem þama
hvíla, hafa ýmist horfíð á brott í
snatri eða verið smalað saman í
útrýmingarbúðir þaðan sem þeir
áttu aldrei afturkvæmt. Nú er garð-
urinn yfírgefínn og yfír honum
hvílir þögn og alvömblær.
Nokkrir gyðingar í ’Austur-
Þýzkalandi reyna nú að fínna rætur
sínar og fortíð, sem nasistar van-
helguðu og ætluðu að uppræta.
Sumir ætla, að takist þessi tilraun
ekki muni gyðingar hverfa og deyja
út í Austur-Þýzkalandi. Kommún-
istastjómin í landinu styður viðleitni
þeirra en margir fulltrúar hennar
áttu um sárt að binda á tímum
nasista og vom í fangelsum og út-
rýmingarbúðum ásamt gyðingum.
Ríkisstjómin hefur ráðstafað fé
sem veija á næstu fímm árin til að
SÁTT OG SAMLYNDI
11.000 ára
þumalingnr
Vísindamenn, sem grófu nýlega
úr jörðu líkamsleifar dvergs,
þær elstu, sem enn hafa fundist,
segjast nú vissir um, að sú skoðun
að mönnum beri að annast um fatl-
aða meðbræður sína, sé að minnsta
kosti 11.000 ámm eldri en velferð-
arríkið.
Dvergurinn, ítalskur unglingur,
sem var uppi á fomsteinöld, var
aðeins þriggja feta hár og hefur
hlotið nafnið Romito meðal vísinda-
manna. Tilheyrði hann ættflokki
veiðimanna og safnara, sem héldu
til í fjöllunum á Suður-Ítalíu. Af
beinagrindinni má sjá, að þrátt fyr-
ir fötlunina og óblíð kjör hafí honum
tekist að ná 17 ára aldri.
Það ásamt því hve hann hlaut
virðulega greftmn bendir til, að
fólkið hans hafí hugsað vel um
hann. Segir frá þessu í grein, sem
birtist nýlega í vísindatímaritinu
„Nature".
Af líkamsleifum Romitos má
ráða, að hann hafí þjáðst af arf-
gengum dvergvexti. Líklega hefur
hann haft óskerta grein en stuttir
fætumir og vanskapaðir handlegg-
imir, hann gat ekki rétt fyllilega
úr þeim, sýna, að hann hefur átt
erfitt með að fylgja ættflokknum
eftir, hvað þá að veiða sér til matar.
Þegar hann lést var hann grafínn
með sérstakri viðhöfn. Gröfín, sem
er í Riparo del Romito, í dal á milli
Tyrrenska hafsins og Jónahafs, er
á stað sem var mjög mikilvægur
fyrir þetta fólk í trúarlegu og sam-
félagslegu tilliti. Var aðeins fáum
sýndur sá heiður að vera grafnir
þar en þó hefur ekkert komið fram,
sem bendir til að drengurinn hafí
verið talinn guðlegur á einhvem
hátt.
Segja vísindamennimir, að virð-
ingin sem Romito var sýnd, sé til
marks um, að hann hafí verið „við-
urkenndur af ættflokknum þrátt
fyrir fötlunina og þótt hann hafi
lítið getað lagt af mörkunum fyrir
samfélagið".
Menn hafa áður fundið í fomum
gröfum líkamsleifar dverga en
Romito er rúmlega 5000 ámm eldri.
„Fyrir utan að vera elsta dæmið
um dvergvöxt í inönnum er beina-
grindin vitnisburður um umburðar-
lyndi og umönnum fyrir fötluðum
einstaklingi," segir dr. David Fray-
er við háskólann í Kansas, og
bandarískir og ítalskir samstarfs-
menn hans taka undir með honum.
- ANDREW VEITCH
„Vegna þessa stórslyss lá
við að innrásinni í Normandí
yrði frestað .. “ sjá: blóðtaka
ingur }rfirvalda hefur þegar birzt í
)ví, að gyðingasöfnuðurinn hefur
fengið sinn fyrsta rabbí á rúmum
tuttugu ámm. Hann heitir Isaac
Neumann og komst lífs af úr útrým-
ingarbúðunum Auschwitz og varð
yfírmaður safnaðarins í september
síðastliðnum. Hann er staðráðinn í
að tryggja, að gyðingar verði áfram
í Austur-Þýzkalandi.
Ungir gyðingar, önnur kynslóð
frá helreiðinni miklu, em mjög
umfram um að fínna uppmna sinn.
Rabbí' Isaac Neumann ætlar að
hamra jámið meðan það er heitt
og margt ungt fólk hefur sótt fyrir-
lestra um trúarbrögð og sögu
gyðinga að undanfömu.
í lok október vom haldnir hinir
árlegu tónleikar til að minnast krist-
alsnæturinnar. Þessa tónleika sóttu
rúmlega 400 manns. Nýlega var svo
afhjúpaður minnisvarði um fóm-
arlömb nasista og vom um 200
manns viðstaddir þá athöfn.
Irene Runge er ein af þeim sem
reynt hefur að halda uppi merki
gyðingdóms í Austur-Þýzkalandi.
Hún segir að fyrir tveimur ámm
hefðu menn þótzt heppnir að fá
tylft manna til athafna af þessu
tagi og fyrir fímm ámm hefðu
menn ekki einu sinni látið sig
dreyma um eins mikla þátttöku og
raun varð á núna.
Gyðingahatur er ekki lengur
pólitískt mál í Austur-Berlín. Eigi
að síður hafa margir gyðingar
kvartað opinberlega yfir hleypidóm-
um og þekkingarskorti á menningu
þeirra og segja að hún sé oft og
tíðum algerlega misskilin.
„Stundum reyni ég ósjálfrátt að
fela Davíðsstjömuna í hálsfestinni
minni,“ segir gyðingakona á sex-
tugsaldri. „Ég held að það sé
einfaldlega vegna þess að ég er
ekki nógu hugrökk og sterk til að
útskýra fyrir öðmm, að ég sé ekki
bara að reyna að vekja á mér at-
hygli.“
Þrátt fyrir þessi sjónarmið hefur
viljastyrkur, hugrekki og dugnaður
kvenna á borð við Irene Runge
vakið athygli og aðdáun. Hún seg-
ir: „Eftir allt það sem átti sér stað
hefði verið ógemingur að láta kyrrt
liggja. Gyðingar verða að vera
áfram hér í Berlín, þó ekki væri
nema til að segja fólki að hér hafí
eitt sinn verið stórt gyðingasam-
félag.“
-CATHERINE FIELD
Sendiboðar
dauðans
Fyrir skömmu tókst lögreglunni
í Beirút naumlega að afstýra
stórslysum af völdum aðgerða
hryðjuverkamanna, þegar hún fann
sprengjur í tveimur plastpokum.
Annar var við bensínstöð en hinn
við verzlunargötu í hverfí kristinna
manna.
Samkvæmt heimildum innihélt
önnur sprengjan 33 pund af
dínamíti en hin átta. í þeirri, sem
öflugri var, vom einnig naglar.
Sprengjumar áttu að springa nær
samtímis.
Fyrir skömmu sprakk cprengja á
Alþjóðlega flugvellinum í Beirút,
sem hefur verið á valdi Sýrlendinga
frá því í febrúar. Tilræðismennirnir
fengu unga stúlku til að bera
sprengjuna í ferðatösku inn á flug-
völlinn og hún sprakk inn í miðjum
móttökusalnum. Stúlkan dó sam-
stundis. Skömmu síðar sprakk
önnur í sjúkrahús bandaríska há-
skólans í Beirút og þótti aðdragand-
fór með inn á sjúkrahúsið og sprakk
nánast í höndum hennar.
Enginn hefur enn lýst þessum
tilræðum á hendur sér en lögreglan
er þess fullviss að sami aðili hafí
verið að verki. Talið er að konumar
hafí báðar verið undir áhrifum lyfja
Og ekki haft hugmynd um hvað þær
vom að gera. Þá hefur komið í ljós
að í báðum tilvikum var sprengiefn-
ið af gerðinni C4, sem er plast-
sprengiefni sem er auðvelt að hnoða
og hægt er að fela nánast hvar sem
er.
Ekki hafa enn verið borin kennsl
á konuna sem fór með sprengjuna
inn á spítalinn en lögreglan segir
að hún hafi verið klædd á svipaðan
hátt og sú, sem bar sprengjuna inn
á flugvöllinn, og að þær hafí jafn-
vel verið áþekkar í útliti.
Þess em áður dæmi að konur
undir áhrifum lyfja hafí verið notað-
ar til sprengjuburðar í Vestur-
Beirút. Arið 1982, þegar ísraels-
menn sátu um borgina, var ung
kona fengin til að leggja bíl, hlöðn-
um sprengiefni, í neðanjarðarbíla-
geymslu undir upplýsingaráðuneyt-
inu. Dauðagildran fannst þó í tíma
og var gerð óvirk.
- JULIE FLINT.
HEIMTIR ÚR HELJU — Þessi sögulega mynd sýnir nokkra þeirra
sem Iifðu af hina örlagaríku innrásaræfingu.
DAGLEGT BRAUÐ - Starfs-
menn Rauða krossins fjarlægja
rétt eitt fórnarlambið í hinu
stríðshrjáða landi.
inn mjög svipaður hinum fyrri. Að
þessu sinni var sprengjunni komið
fyrir í konfektkassa sem ung stúlka
BLÓÐTAKA
Harmleikurinn sem varð
hernaðar leyndarmál
Fyrir skömmu var haldin mjög
áhrifarík minningarathöfn á
ströndinni í Devon á Englandi. Sá,
sem stjómaði henni, tók þannig til
orða, að nú loksins væri búið að
bæta fyrir ranglætið, sem hefði verið
látið viðgangast í 43 ár. Rúmlega
400 manns fylgdust með afhjúpun
granítsteinsins, minnisvarða um 749
bandaríska hermenn, sem létust í
einhverjum mestu og leynilegustu
óförum bandamanna á dögum síðari
heimsstyijaldar.
Mennimir, sem þama var minnst,
voru fómarlömb fádæma klúðurs og
óhappa og í allan þennan tíma hefur
verið þagað þunnu hljóði um örlög
þeirra. Þeir voru ungir að árum og
lítt þjálfaðir og voru að æfa fyrir
innrásina í Normandí. Þessi eina
æfíng kostaði fleiri mannslíf en sjálf
innrásin.
Mennimir létust í árás þriggja
þýskra tundurskeytabáta, féllu fyrir
skothríð eigin manna og vegna þess
hve þeir voru óreyndir komu þeir
bjargbeltunum fyrir um mittið en
ekki undir höndunum. Þegar land-
gönguprammamir voru sokknir
fundust mörg hundmð menn fljót-
andi öfugir í sjónum.
Vegna þessa stórslyss lá við, að
innrásinni í Normandí yrði frestað.
Það varð á Slapton-söndum, milli
Dartmouth og Torcross, en frá þessu
svæði höfðu næstum allir íbúamir
verið fluttir. Þótti ströndin ákjósan-
legur æfíngastaður vegna þess hve
henni svipar til strandarinnar í Nor-
mandí.
Dauði ungu mannanna þótti svo
mikið áfall, að þeir ibúanna, sem
vissu um atburðinn, voru fengnir til
að þegja um hann. Það gerðu þeir
og aðrir í rúm 20 ár eða þar til Ken
Small fluttist til Devon og fór að
dunda sér við fjöruskoðun.
„Ég fann ósprungin skothylki,
byssukúlur, sprengjubrot, hnappa af
einkennisbúningum og innsiglis-
hringi úr g^ulli," segir Ken. „Það fór
ekki á milli mála, að þama hafði
eitthvað mikið gerst." Árið 1971
drógu kafarar, sem Ken hafði fengið
til liðs við sig, heilan Sherman-skrið-
dreka upp úr sjónum.
Fyrir þremur ámm braut einn íbú-
inn, kona að nafni Dorothy Seekings,
þagnareiðinn, sem hún hafði svarið
á stríðsámnum. Sagði hún frá stór-
um valköstum manna í bandarískum
einkennisbúningum, sem vom dregn-
ir upp á ströndina og fluttir burt til
greftmnar. Manny Rubin, sem nú
er 64 ára gamall, er einn þeirra, sem
komst lffs af úr æfingunni. Sagði
hann, að æfíngin hefði verið klúður
og mistök, sem menn hefðu reynt
að gleyma þegar frá leið.
„Ég er enn dálítið bitur og á er-
fitt með að sætta mig við, að þetta
mál skuli hafa verið falið í svona
langan tíma,“ sagði Stella Rouggly
frá Missouri í Bandaríkjunum, en
bróðir hennar, Howard, var einn
þeirra, sem létu lífíð á þessari örlag-
aríku æfíngu.
— JOHN EZARD