Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Frá Eþíópíu. Með fríðun frá beit vex aftur upp náttúrlegur skógur. Þessar fjallshlíðar hafa notið fríðunar i 9 ár. Er ísland vanþró- að land að því er skógrækt varðar? Eitthvað á þessa leið hljóðaði fyrirsögn erindis sem sænski skógfræðing- urinn Márten Bendz flutti á skógræktarþingi sem Skógræktarfélag Islands, Skógrækt ríkisins og Landbúnaðarráðuneytið efndu til í apríl síðastliðn- um. Márten Bendz er þekkt- ur vísindamaður á skóg- ræktarsviðinu sem oft hefur komið til íslands og er gerkunnugur staðhátt- um hér. Hann hefur undanfarin ár unnið að skógræktarmálum á al- þjóðlegum vettvangi og rekur nú sjálfstæða ráð- gjafarstofnun á því sviði með verkefni frá sænsku þróunarhjálpinni. Aður var hann um árabil rektor sænska skógræktarhá- skólans, vann um tíma að skógræktarverkef num hjá FAO í Róm og var í sex ár aðalforstjóri Sænska skógareigendafé- lagsins í Suður-Svíþjóð sem telur um 20 þúsund meðlimi. Hann var sérstakur gestur skógræktarþings- ins fyrrnefnda og vakti erindi hans verðskuldaða athygli þinggesta, enda haf a þessi mál ekki áður verið rædd hér á landi út frá þessum sjónarhól. Erindi hans birtist í Ársriti Skóg- ræktarfélags íslands 1987 sem út kemur um þessar mundir í þýðingu Sigurðar Blöndal skógræktarstjóra. Hér fara á eftir nokkrar glefsur úr erindinu. Márten Bendz hóf mál sitt með því að segja að yfírskrift erindisis gæti bent til þess að ísland teldist í flokki vanþróaðra þjóða að því er þessi mál varðar en svo væri ekki að hans mati í hefðbundnum skiln- ingi þess orðs. Hins vegar sagði hann reynslu af skógræktarstarfí í vanþróuðum löndum geta komið íslenskri skógrækt að gagni, eins og sú reynsla hefði líka gagnast vel á hinum Norðurlöndunum. Ástæðumar væru einkum tvær: í fyrsta lagi hefði samskonar þróun átt sér stað á árum áður í Skand- inavíu og nú er að gerast meðal hinna vanþróuðu og fátæku þjóða. I öðru lagi gæti margt af því sem lærist af vinnu með vanþróuðum þjóðum komið þeim að gagni sem lengra eru komnir — ekki síst að því er varðar hina félagslegu, efna- hagslegu og pólitísku þætti. Márten Bendz varpar fram þeirri spumingu hvaða merking felist í hugtakinu „vanþróað land“? Hann bendir á að þá verði okkur hugsað til fátækra Afríkuríkja þar sem ólæsi er mikið, meðalaldur lágur, sjúkdómar skæðir, landbúnaður frumstæður og iðnvæðing skammt á veg komin. Þar verði oft hungurs- neyð og náttúruhamfarir tíðar. í ljósi þessa séu íslendingar að sjálf- sögðu ekki í flokki vanþróaðra þjóða. „En vanþróuðu löndin eiga oft verðmætar auðlindir,“ segir hann, „sem þau geta ekki nýtt.“ Kína segir hann t.d. hafa talist vanþróað land að þessu leyti þar til ráðamenn gerðu sér grein fyrir þeirri miklu auðlegð sem fælist í mannfjöldan- um — þessum 6.000 milljónum Kínveija. Mannfjöldinn væri ekki vandamál heldur auðlind. Fýrir 150 ámm flokkaðist Svíþjóð undir það sem við gætum kallað vanþróað land. Auðlindir landsins voru vannýttar eða ofnýtt- ar og rangnýttar og af þessu leiddi hungur og fátækt. Þegar horft er á málið frá þeim sjónarhól má vera að ísland geti talist vanþróað land. í landinu er til auðlind sem menn hafa annað hvort ekki komið auga á eða ekki skilið að er fýrir hendi. . . þ.e. sá möguleiki sem landið býður upp á í skógrækt til viðarframleiðslu. Er hægt að nýta þann möguleika? Það er ekki sjálfgefíð. Verið gæti að annar og betri kostur væri á því að nýta það land til annars sem hins vegar best væri fallið til nytjaskógræktar. Þá verður líka að taka tillit til kostnaðarins og hag- kvæmninnar. Til þess að skýra það dæmi betur mætti nefna að sjálf- sagt væri lafhægt að rækta grænmeti í Sahara-eyðimörkinni með því að bera á nægan áburð og vökva. Þetta hvort tveggja væri þó of dýrt. Merking hugtaksins „van- þróun“ getur því verið margs konar. Eftirfarandi lýsing mundi þó eiga vel við ástand í vanþróuðu ríki sam- kvæmt okkar skilningi: „Næstu aldir voru myrkar og ollu því margir örlagaríkir atburðir. Drepsóttir herjuðu á árunum 1306, 1347-48, 1510-12, 1555, 1616 og 1707. Síðasttalda fárið varð um það bil þriðjungi þjóðarinnar að bana. Margs kyns óáran bættist við. Verst var ástandið á árunum 1602—1787. Hungursneyð ríkti, 53% nautpenings fórst vegna nátt- úruhamfara, 70% hrossa, 82% sauðfjár. Loks var ástandið orðið svo slæmt að stjómvöldum datt það ráð í hug að flytja þá sem eftir lifðu úr landi og bjóða þeim búsetu ... en það kom þó aldrei til fram- kværnda." Hér er lýst mjög svipuðu ástandi og því sem okkur berast annað slag- ið í fréttum frá Afríku, sjúkdómum, hungursneyð, náttúruhamförum og þjóðflutningum. Þessi lýsing er hins vegar ekki frá Eþíópíu eða Súdan. Hún á við um Island fyrr á öldum. (Tilvitnanir færðar svolítið í stílinn úr skýrslu sem nefnist „Yfirlit yfír landbúnað á íslandi“ eftir Guðmund Jónsson, skólastjóra á Hvanneyri (1952).) Svipaða lýsingu má fínna um skandinavísku löndin. Þar ríkti fá- tækt og neyð meðal almennings fýrir 100—200 árum. Nú er hins vegar svo komið að hin þróuðu iðnríki reyna að koma þeim bág- stöddu til hjálpar — flýta fyrir jákvæðri þróun m.a. með leiðbein- ingarstarfi í skógrækt. Sérstök áhersla er lögð á skóg- rækt meðal þessara þjóða sem skammt eru komnar í iðnvæðing- unni, ekki síst vegna þess hve eyðing skóga er ör í heiminum í dag, og þá hröðust í vanþróuðum ríkjum. Eyðing skóganna hefur margskonar afleiðingar í för með sér. Jarðvegur rýmar og með hon- um jarðrakinn, jafnvægi í náttúr- unni fer úr skorðum með eyðingu skóganna og takmarkar stórum alla möguleika á nýtingu landsins. „Eyðing skóga á íslandi heyrir sögunni til,“ segir hann, „því nú eru varla nokkrir náttúrlegir skógar eftir. Sennilega hafa á undanföm- um öldum eyðst um 30.000 ferkfló- metrar skóglendis eða 3 milljónir hektara." Mynd 1 sýnir hvaða orsakir liggja að baki eyðingarinnar en landnýting er eðlilega lögð þar til grundvallar. Meðal vanþróaðra þjóða nútím- ans er algengast að skógar eyðist þegar land er brotið til akuryrkju eða beitar. Búskaparhættir eru frumstæðir og fólkinu fjölgar. Fátækt er líka örlagaríkur þátt- ur. Fátækt fólk á ekki annars úrkosta en að mergsjúga náttúm- auðlindimar og búsmalanum er ofbeitt á landið. Þar sem loftslag er þurrt leiðir ofnýtingin fljótt til uppblásturs. Þess vegna eru nú víða eyðimerkur þar sem áður voru grænir skógar. Nauðsynlegt er að snúa slíkri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.