Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 39
Skagaströnd:
Byg-ging íbúðarhús-
næðis að aukast
Ný parhús á Skagaströnd. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Skagaströnd.
AÐEINS eitt íbúðarhús hefur
verið byggt á Skagaströnd und-
anfarin 5—6 ár og hafa einstakl-
ingar verið hikandi við að fara
út í byggingar á ibúðarhúsnæði.
Mikil breyting varð á þessu nú í
sumar.
Eðvarð Hallgrímsson byggingar-
meistari hefur í sumar byggt
fjögurra íbúða parhús hér og mun
þetta vera í fyrsta sinn sem bygg-
ingarmeistari á Skagaströnd fer út
í húsbyggingar án þess að vera
búinn að selja íbúðirnar áður en
framkvæmdir hefjast.
íbúðirnar seldust allar fljótlega
eftir að framkvæmdir hófust og
varð raunin sú að fleiri vildu kaupa
en fengu.
Eðvarð afhenti eigendum húsin
fokheld nú hinn 20. nóvember.
Hver íbúð er tvær hæðir þar sem
efri hæðin er undir risi og grunn-
flatarmálið um 80 fm. Auk þess
fylgir 37 fm bílageymsla hverri
íbúð.
Vegna þess hve vel gekk að selja
þessi hús stefnir Eðvarð að bygg-
ingu annarrar parhúsalengju næsta
sumar.
Fyrir utan þessar fjórar íbúðir í
parhúsalengjunni hafa tvö einbýlis-
hús verið gerð fokheld í sumar og
haust og eru þau bæði einingarhús
úr timbri. Söluverð parhúsanna fok-
heldra var um 2 milljónir og 850
þúsund krónur en það verð er mjög
sambærilegt við einingahúsin á
sama stigi.
- ÓB.
Bangsi Bestaskinn
„Halló ! Ég heiti BANGSI
BESTASKINN. Eggettalað,
sungið og sagt fullt af
kemmtilegum sögum, þar sem
ú kynnist vinum mínum, þeim
Gormi, Bárði, Fjólu, Lubba,
Hnoðra og öllum hinum..."
Jólatilboð 4.900,-|
Já, hann Bangsi Bestaskinn er
búinn að læra íslensku og er
tilbúinn að segja skemmtileg
ævintýri... hvenær, sem er
Þegar Bangsi talar, hreyfir
hann munninn og augun.
Bangsi Bestaskinn,
besti vinur allra bama.
5iEfl
SKIPHOLT119
SÍMI29800