Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 60
60 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Tóuleikar Boney M í Háskólabíói
SÖNGSVEITIN Boney M er
væntanleg til landsins og mun
halda jólatónleika i Háskólabiói
sunnudaginn 13. desember næst-
komandi klukkan 15.00. Auk
Boney M munu koma fram á tón-
leikunum islenskir listamenn sem
standa að jólaplötunni „Jóla-
stund“, sem gefin er út á vegum
Steina hf.
Hljómsveitin Boney M var á
sínum tíma ein vinsælasta hljóm-
sveit heims, þegar „diskóbylgjan“
gekk yfir á síðasta áratug og enn
nýtur hún mikilla vinsælda víða um
heim. Hljómsveitin hefur selt hljóm-
plötur í milljónum eintaka og hefur
hlotið 42 gullplötur auk þess sem
sveitin hefur komið fram í kvik-
myndum og sjónvarpi á liðnum
árum. Söluhæsta plata þeirra er
jólaplatan, sem út kom árið 1981,
en hún hefur verið í stöðugri sölu
síðan og er ein vinsælasta jólaplata
sem gefin hefur verið út frá upp-
hafi. A þeirri plötu eru meðal annars
lögin „Oh Come All Ye Faithful",
„Mary’s Boy Child“, „The First
Noel“ og „Hark The Herald Angel
Sing“, sem eru einkum þekkt í
flutningi Boney M og auk þess eru
á plötunni hefðbundin jólalög svo
sem „Silent Night", „White
Christmas" og „Jingle Bells", svo
nokkur séu nefnd. Ef að líkum læt-
ur munu Boney M taka þessi lög
og fleiri á jólatónleikum sínum í
Háskólabíói.
Af þeim íslensku listamönnum,
sem fram koma á tónleikunum má
nefna Bjartmar Guðlaugsson, Ey-
jólf Kristjánsson, Stuðkompaníið,
Sniglabandið, Helgu Möller og
fleiri, sem eiga það sameiginlegt
að koma fram á jólaplötunni „Jóla-
stund". Undirleik hjá íslensku
listamönnunum annast hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
(Ur fréttatilkynningu.)
Söngsveitin Boney M. hefur áður komið hingað til lands og skemmti
þá í veitingahúsinu Evrópu, þar sem þessi mynd var tekin.
Eg þoli ekki mánudaga
eftir Martin Elmer
KOMIN er út hjá Iðunni ný ungl-
ingabók sem heitir: Ég þoli ekki
mánudaga og er eftir danskan
höfund, Martin Elmer að nafni.
Bók þessi hlaut alþjóðleg verð-
laun sem besta unglingabókin
1987.
Hér er á ferðinni óvenjuleg saga
af grunnskólanemandanum Daníel,
Sjóréttar-
félagið með
hádegis-
verðarfund
HIÐ íslenska sjóréttarfélag efnir
til hádegisverðarfundar á Hótel
Loftleiðum þriðjudaginn 8. des-
ember. Fundurinn hefst kl. 12.00.
Ragnhildur Hjaltadóttir deildar-
stjóri flytur erindi sem hún nefnir:
„Lögskráningarlögin nýju“.
Ragnhildur Hjaltadóttir er lög-
fræðingur að mennt og starfar sem
deildarstjóri í samgönguráðuneyti.
Starfar hún þar einkum að yfir-
stjóm siglingamálefna. Að loknu
erindi verða fyrirspumir og umræð-
ur.
Fundurinn er öllum opinn.
sem býr einn með pabba sínum.
Hann segir raunar sjálfur frá lífi
sínu og upplifunum, sem á köflum
nálgast hið ótrúlega. Skrýtnir hlut-
ir gerast í kringum hann, hlutir
hverfa af heimilinu, hver skyldi búa
í kjallaranum; saklaus hálsbólga
snýst upp í harðsoðið verkfall í skól-
anum og ýmislegt fleira fylgir í
kjölfarið án þess að hann fái rönd
við reist. Mannlegum samskiptum
em gerð góð skil í þessari bók,
samskiptum unglinganna og full-
orðinna; það er ekki auðhlaupið
framhjá Aka og górillunum hans
eða að hafa hömlur á uppreisnarhug
Emmulínu, svo ekki sé nú minnst
á Móses og son hans — eða var það
dóttir? En þótt mánudagamir séu
M A R T I N E L M E R
dæmdir til óhappa verður þó ýmis-
legt til þess að Daníel endurskoðar
þá afstöðu sína... og hver veit
nema ástin fari jafnvel að blómstra
líka. Þórgunnur Skúladóttir þýddi.
(Fréttatilkynning)
Herrafataverslun
á Ártúnshöfða
NÝ herrafataverslun, Herra- Eigendur Herraheims em Grét-
heimur, var opnuð fyrir stuttu ar Ágústsson og Hafdís Gísladótt-
að Funahöfða 1 í Reykjavík. ir. Mest áhersla er lögð á vönduð
Herraheimur er alveg ný versl- jakkaföt á góðu verði, að sögn
un sem verður með allan almenn- eigenda. Verslunin verður opin
an herrafatnað á boðstólum en fyrst um sinn frá 13-18 frá mánu-
flestar vömmar em frá Þýska- degi til föstudags og frá 10-16 á
landi og Bretlandi. laugardögum.
ALLT HRIINT
FYRIR JOLIN
Nú er rétti tíminn að koma með allan
jólaþvott til okkar. Jóladúka, skyrtur,
gardínur og allt annað sem þarf að vera
hreint um jólin.
Láttu okkur létta undir með þér og sjá
um þvottinn.
FÖNN VILL HAFA ALLT Á
HREINU!
Skeifunni 11
Simar: 82220, 82221 og 34045
Bladió semþúvaknarvió!
SPARH) YKKUR SP0RIN
Gyllnm seðlaveskin tiljólagjafa ámeðan beðið er
Seðlaveski miklu úrvali_________________
Töskur, buddur og smáleðurvara ._________________
Framleiðum matseðla og vínlistamöppur eftir pöntunum
Viðgerðir á leðurfatnaði __
Sérstökkjör fyrir fyrirtæki sem panta leðurvörur til jóla-
gjafa með merki fyrirtækis og nafni viðtakanda.
Sendum í póstkröfu.
Leður
PYNGJAN
Hverfisgata 52, 2. hæð, sími 21454.