Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 29
Ccntecd
TcmU
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVlK -S. 28133
■
!1 m
"
. \ a
* -
t ' ' -
Eins og undanfarin ár
býður Ferðamiðstöðin
ógleymanlega ferð til
Amsterdam um áramótin.
AUKUM SAM-
SKIPTIOKKAR VIÐ
FINNSKU ÞJÓÐINA
eftir Benedikt
Gröndal
í fléstum löndum er þjóðhátíð
haldin í sól og sumri. En ekki í
Finnlandi. Þar er sjálfstæðis
minnst í rökkri og vetrarveðri 6.
desember og í dag er minnst 70
ára afmælis Iýðveldisstofnunar.
Þessi dagur er að jafnaði frekar
alvarlega hátíðlegur. Þá blaktir
bláhvíti fáninn um allt landið.
Útisamkomur eru haldnar með
ræðuhöldum og stundum hersýn-
ingum. í Helsinki eru hátíðatón-
leikar og stúdentar fara blysför
til forsetahallarinnar. Forseti
landsins býður til fagnaðar í höll-
inni, 1600 gestir mæta prúðbúnir
og fagna með dansi. Þama er
boðið fólki víða að og gamlir bar-
áttumenn blanda geði við ungu
kynslóðina.
Það er sterkur svipur yfir þess-
ari vetrarhátíð og hún geislar af
samhug og samstöðu finnsku
þjóðarinnar, þegar minnst er ótrú-
legra erfíðleika, sem hún hefur
þurft að sigrast á í sjö áratugi.
En allt hefur farið vel. Finnska
þjóðin lifír alftjáls lýðræðislegu
lífí, efnahagurinn hefur stórbatn-
að og lífskjörin, menningarlífíð
er sem fagur blómagarður. Finnar
standa nú jafnfætis hinum norr-
ænu þjóðum að öllu því, sem
umheimurinn telur Norðurlöndun-
um til ágætis.
Finnar voru lengi hluti af
sænsku konungsríkinu, en síðustu
öldina stórfurstadæmi undir Rús-
sakeisara. Þeir brutust til frelsis
um sama leyti og byltingin gekk
yfír Rússland og átökin í því mikla
landi hófust. Byltingin hófst í
Leningrad, spölkom frá fínnsku
landamærunum. Það var því ekki
að undra, þótt þetta fyrrverandi
stórfurstadæmið þyrfti að ganga
í gegnum blóðuga borgarastyijöld
sjálft, en i Finnlandi urðu bylting-
aröflin að lúta í lægra haldi.
Það var erfítt og langdregið að
græða þessi sár. En landafræðin,
sem enginn getur breytt, átti eft-
ir að verða Finnum dýr í skauti.
Sovétríkjunum þótti fínnsku
landamærin of nærri Leningrad
og 1939 fyrirskipaði Stalín innr-
ásina í Finnland. Þá var griðasátt-
máli milli Hitlers og Stalíns, en
þegar ófriður blossaði þeirra í
milli, drógust Finnar aftur inn í
ófrið við hlið Þjóðverja — fram-
haldsstríðið svonefnda. Síðar
sneru þeir blaðinu við og ráku
þýskar hersveitir úr landinu, en
ekki án átaka og eyðileggingar.
Þetta em hrikaleg örlög fyrir
smáþjóð, sem engum vill gera
mein og einskis krafðist af ná-
grönnum sínum, nema að fá að
lifa í friði. Þessi saga á síðustu
70 ámm hefur óhjákvæmilega
mótað fínnsku þjóðina.
Finnland var skert, bæir í
rústum og 700.000 manns flúðu
þau landsvæði, sem Sovétríkin
tóku. Þessum vandamálum stóð
fínnska þjóðin andspænis fyrir 40
ámm, þegar við íslendingar vor-
um að eyða stríðsgróðanum
okkar.
Endurbyggingin gekk fram af
miklum þrótti og kjör þjóðarinnar
bötnuðu smám saman. Mesta
vandamálið var þó að móta sam-
búð Finnlands við hinn mikla
nágranna og skapa þá stöðu, er
tryggði þjóðinni frelsi og frið.
Finnum tókst að fá hlutleysi
landsins viðurkennt og þeir ák-
váðu að sýna sterkan samkomu-
lagsvilja í garð Sovétríkjanna,
gera ekkert þeim fjandsamlegt.
Um þessa stefnu hefur skapast
þjóðarsátt (consensus) í Finnl-
andi, og er enginn munur milli
stjómmálaflokka eða einstakra
leiðtoga hvað hana snertir. Þessi
stefna hefur borið góðan árangur.
Að sjálfsögðu færa Finnar nokkr-
ar fórnir fyrir hana, en þær em
ekki miklar miðað við þann árang-
ur, sem þeir hafa náð. Fyrir
20—25 ámm var algengt að vitn-
að væri til þess, að Finnar yrðu
að hlýða boði og banni Sovétríkj-
anna, en síðustu ár heyrast slíkar
raddir aldrei. Það segir sína sögu.
Það hefur verið Finnum ómet-
anleg hjálp á þessum ámm, að
þeir gengu í Norðurlandaráð og
hafa tekið virkan þátt í samstarfi
hinnar norrænu ríkjafjölskyldu.
Einmitt það að vera ein, sterk
heild, sem nýtur virðingar alls
mannkyns, er sterkari þáttur hins
norræna samstarfs. Auk Finna
hafa íslendingar notið þess ríku-
lega og hin norræna héild hefur
treyst og styrkt frelsi okkar, ekki
síður en þeirra, þótt íslendingum
gangi illa að skilja þá staðreynd.
Það er sjálfsagt mál, að þessi
samfléttuðu norrænu ríki verða
að hafa náið samband, sérstak-
lega á æðsta stjómarsviði. Þess
vegna hafa þau öll sendiráð hvert
hjá öðm, nema hvað íslendingar
hafa enn ekki sendiráð í Finnl-
andi. Þetta em mistök í norrænu
samstarfi, sem í raun em móðgun
við Finna, og verður að leiðrétta
sem allra fyrst.
Finnar hafa síðustu ár gert sér
„efnahagsundur". Þeir hafa stýrt
málum sínum vel í erfiðum ámm
og sigla nú hraðbyri til aukinnar
velmegunar. Em þeir nú efna-
hagslega jafningjar hinna norr-
ænu þjóðanna að flestu leyti, sem
þeir varla vom fyrr á ámm. Menn-
ingarlega em þeir stórveldi, til
dæmis í tónlist, byggingarlist,
hönnun og fleim.
Samskipti íslendinga og Finna
fara hægt en stöðugt vaxandi.
Það kom snemma í ljós á norræn-
um vettvangi, að Finnum og
íslendingum kemur frábærlega
vel saman og þeir eiga oftast skap
saman. Það er margt líkt í lífsbar-
áttu þessara þjóða, þótt náttúra
og umhverfi geti vart verið ólík-
ara. Nokkur hópur íslendinga er
nú búsettur í Finnlandi, til dæmis
námsmenn og norrænir starfs-
menn. Viðskipti þjóðanna em
veruleg og jafnari en gagnvart
hinum Norðurlöndunum frá okkar
bæjardymm séð.
Islendingar ættu að leggja
áherslu á að auka samskipti við
fínnsku þjóðina. Auk áherslu á
viðskiptin ættum víð að auka
ferðamennsku austur þangað, en
það er spennandi að sigla á feijun-
um miklu um skeijagarða Eystra-
salts, skoða borgir landsins,
rússnesk byggingaáhrif og nútí-
maleg fínnsk meistaraverk; heill-
andi að aka um skógana og sigla
á vötnunum. Helst að fara djúpt
inn í skóga Austur-Finnlands og
kynnast Kyijálum. Það er hægt
að hlýða á ópem í heimsklassa í
gömlum kastala — ef menn panta
miða í tíma. Raunar em tónlistar-
hátíðir víða um Finnland á sumrin.
Allt er þetta miklu meira spenn-
andi en að fara til sólarlanda ár
eftir ár.
Kynni af fínnsku þjóðinni vekja
fyrst forvitni og síðan aðdáun.
Mesta virðingu hlýtur íslending-
urinn að fá fyrir hinu sterka
þjóðemi og þjóðarvilja, sem er
undirstaða þeirrar samheldni, sem
Finnar sýna í meginatriðum
lífsbaráttunnar.
Snilld þeirra í sköpun, hvort
sem er í tónum eða tré, gefur
þjóðfélagi þeirra lit og fegurð.
Þeim miðar ört fram um veg.
Við sendum þeim hamingjuó-
skir á afmæli lýðveldisins.
/jblbreytt skemmtiatriði eru flutt af heimsþckktum
dans-ogskemmtikröftum. Dansaðtil kl. 03.00.
Lýðveldið Finnland 70 ára:
Þinghusið í Fmnlandi.
f\ nýársdagerboðið upp á „brunch" sem ergirnilegt
og gómsætt hlaðborð, sambland af morgun- og hádegis-
verði.
^cssi einstaka áramótaferð )
til Amsterdám kostaraðeins: » ?• a :L-í*
Verð pr. m. i tvíbýli/m.v. gengi 20. nóvember'87.
/arið er frá Keflavík 30. des. og dvalið í 4 eða 6 daga
á hinu frábæra GRAND HOTEL KRASNAPOLSKY.
Heimferó er 2. eða 4. janúar.
f\ ramótafagnaðurinn erhaldinn i hinu.m glæsilega sal
.Wintertuin". barer boðió upp á veisluborð með eftir-
•éttoggóöumdrvkkium.