Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 41
ÞROUN
AFVOPNUNARMÁLA
EFTIR
LEIÐTOGAFUNDINN
í REYKJAVÍK
sig til að segja ABM samningnum
ekki upp einhliða.
Fyrsta atriðið mundi tryggja að
þær geimvopnatilraunir sem
Bandaríkjamenn undirbúa núna
yrðu gerðar samkvæmt núverandi
túlkun Bandaríkjastjórnar á ABM
samningnum. Annað atriði mundi
halda opnum þeim miiguleika að
tilraunir með geimvarnavopn hæf-
ust On jafnframt torvelda Banda-
ríkjamönnum að hefja þær án
samráðs við Sovétríkin. Þriðja atrið-
ið mundi tryggja Sovétmenn fyrir
því að Bandai’íkjamenn segðu
samningnum upp cinhliða til að
setja upp geimvarnir.
Röksemdin fyrir því að Sovét-
menn kunni að gera þær tilslakanir
sem þyrfti er einfaldlega sú að ein-
hverskonar rannsóknir og tilraunii'
á sviði geimvarna muni óhjákvæmi-
lega halda áfram í Bandaríkjunum
auk þess sem Sovétmenn stundi
eigin rannsóknir á þessu sviði.
Helsta röksemdin fyrir því að
Bandaríkjastjórn fallist á þessa eða
álíka málamiðlun er sú að geim-
vörnum sem máli skipti verði hvoit
eð er aldrei komið upp nema með
einhverskonar samvinnu eða sam-
ráði við Sovétríkin. Að öðrum kosti
muni Sovétmenn ætíð geta yfirbug-
að varnirnar bæði með fjölgun
kjarnorkuvopna og með þróun
geimvopna sem gætu ráðist á
bandaríska geimvarnakerfið.
Enn er ekkert sem bendir til að
samkomulag náist á leiðtogafundin-
um í Washington. Bandarískir
Geimvarnavopn: Tillögnr risaveldanna fyrir leið-
togafundinn í Washington
Bandaríkin:
ABM samn. haldinn í 7 ár; geim-
vörnum ekki komið upp á þeim tíma
gegn því að strategískum kjarna-
oddum verði fækkað í 6000 með
viðeigandi undirmörkum; ákvæði
ABM samningsins ekki hert og þró-
un geimvopna leyfileg enda í
samræmi við ABM samninginn;
hvorum aðila ftjálst að heíja upp-
setningu geimvarna eftir 1994
nema aðilar verði ásáttir um annað;
hvorum aðila fijálst að segja upp
samningnum hvenær sem er vegna
þjóðaröryggis eða samningsbrota
hins.
Sovétríkin:
ABM samningurinn haldinn í 10
ár þannig að þróun geimvarna-
vopna sé bönnuð; aðilar komi sér
saman um hvaða tækjabúnað megi
ekki senda út í geiminn; allan ann-
an búnað má senda út í geiminn
en aðrar rannsóknir sem tengjast
geimvarnakerfum fari fram í rann-
sóknastofum ájiirðu niðri; ekki
getur orðið af samningum um
fækkun strategískra vopna nema
samkomulag takist um geimvopn;
virði annar aðila ekki ABM samn-
inginn til hlítar getur hinn sagt upp
samningi um fækkun stratcgískra
vopna; áðuren 10 ára tímabilinu
lýkur hefjist viðræður um fram-
haldið.
embættismenn segja að Reagan
hafi einungis fallist á að ræða geim-
varnamálið á fundinum og það þýði
ekki að forsetinn sé reiðubúinn til
að fallast á tillögur Sovétmanna eða
neitt það sem hindri geimvarna-
áætlunina. Þá hefur forsetinn
sjálfur nýlega lýst yfir að ekki komi
til greina að skipt verði á geim-
varnaáætluninni og samningi um
fækkun strategískra vopna. Hann
sé hins vegar reiðubúinn til að ræða
við Gorbatsjov um uppsetningu
geimvarna. Þetta er sama afstaða
og kom fram hjá Reagan á
Reykjavíkurfundinum þegar hann
var reiðubúinn til að skuldbinda
Bandaríkin til að setja ekki upp
geimvamir í 100 ár eða til ársloka
1996, en vildi ekki fallast á neinar
takmarkanir á 'rannsóknir eða til-
raunir. Núna tala Bandaríkjamenn
um 7 ár í stað 10 ára.
Enn sem komið er virðist Sovét-
stjórnin þó jafn hörð í afstöðu sinni
og áður. Yfirmaður sovéska her-
ráðsins hefur nýlega ítrekað að
ekki komi til greina að semja um
fækkun strategískra vopna nema
Bandaríkjamenn fallist á þær
skorður við geimvarnaáætlunina -
sem Sovétmenn hafa lagt til. Hann
sagði ennfremur að ef strategískum
kjarnaoddum yrði fækkað í 6000
ykjust fræðilegar líkur á að unnt
yrði að koma upp geimvörnum sem
máli skiptu og að ljóst væri að geim-
varnaáætlunin væri vísvitandi
tilraun Bandaríkjastjórnar til að ná
yfirburðum.
/ söludeildum Pósts og síma býðst pér gott úrval af
vönduðum símtœkjum auk alhliða símaþjónustu
Söludeildir Pósts og síma um land allt bjóða eingöngu viðurkenndan
úrvalsbúnað og örugga viðgerðar- og viðhaldsþjónustu.
Hjá okkur færðu gott úrval af allskyns símtækjum og aukabúnaði á góðum
greiðslukjörum.
SÍMTÆKI Póstur og sími
selur einungis vönduð og
viðurkennd símtæki. í
söludeildum Pósts og
síma er að finna fjöl-
breytt úrval allskyns sím-
tækja, sem henta bæði einstaklingum
og fyrirtækjum. Þú getur fengið síma með minni og
endurvali á síðasta númeri, jiráðlausa síma, síma
með hátalara og hljóðnema sem bjóða upp á hand-
frjálsa notkun og svona mætti lengi halda áfram. Hjá
okkur finnurðu örugglega símann, sem þig vantar.
•' ÞJÓNUSTA Söludeildir Pósts og
0síma bjóða upp á ódýra viðhalds-
og viðgerðarþjónustu. Þar get-
urðu einnig pantað eða fengið
flutning á síma, látið loka eða opna
síma, sett síma í geymslu og svo færðu góð greiðslu-
kjör á öllum símtækjum.
PÓSTUR OG SÍMI
ANNAR BÚNAÐUR
Við bjóðum upp á ýms-
ar gerðir Nefax niynd-
senditækja í söludeild-
um Pósts og síma. Með
myndsenditækjum geturðu sent afrit af bréfum,
skýrslum og myndum milli landa eða landshluta á
aðeins örfáum sekúndum. Þetta sparar þér bæði
tíma og fyrirhöfn. í söludeildunum færðu einnig
margs konar símakerfi fyrir heimilið og fyrirtækið.
Þú gctur valið um fjölda bæjarlína og símtækja sem
hægt er að tengja við, allt eftir þínum þörfúm.
Söludeildir Pósts og síma eru í Kringlunni, Kirkjustræti og á Akureyri.
Einnig á póst- og símstöðvum um land allt.