Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 50
50 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Verkamenn
Viljum ráða nú þegar nokkra duglega menn
til starfa. Æskilegur aldur 20-35 ára. Byrjun-
arlaun 60 þús. pr. mán.
Umsóknir er greini aldur, fyrri störf o.s.frv.
skilist til auglýsingadeildar Mþl. fyrir 8. des-
ember merktar: „V - 6146“.
Tollverðir
Hjá Tollgæslunni í Reykjavík eru lausar til
umsóknar nokkrar stöður tollvarða. Ráðning-
arskilyrði eru 20 til 30 ára aldur og að hafa
lokið námi ífjölbrautaskóla, menntaskóla eða
sérskóla, sem veitir sambærilega menntun.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 12. des.
nk. á þar til gerðum eyðublöðum, sem eru
til afhendingar hjá embættinu.
Reykjavík, 12. nóv. 1987.
Tollgæslustjóri.
Starfsmaður
- félagasamtök
Félagasamtök vilja ráða starfskraft til að
annast öll almenn skrifstofustörf, t.d. rit-
vinnsla/færsla, bókhald/vélritun, innheimta/
fundargerðir. Þetta er eini starfskraftur á
skrifstofu auk framkvæmdastjóra. Gerð er
krafa um reynslu í slíkum störfum, auk tungu-
málakunnáttu og mikið lagt upp úr traustri
og öruggri framkomu ásamt sjálfstæði og
frumkvæði. Góð laun í boði.
Starfið er laust í janúar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
12. des. nk.
QjðntTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN I NCARf )ÓN L1STA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Fóstrur athugið
Langar ykkur að vinna frá áramótum á litlu
og notalegu barnaheimili sem stendur við
Kleppsveginn?
Um er að ræða 100% starf á deild með 8-9
börnum á aldrinum 2ja-3ja ára.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 688816.
Afgreiðslu- og
lagerstarf
Óskum eftir manni í véladeild.
Skriflegar umsóknir er greini menntun og
fyrri störf berist skrifstofu okkar fyrir fimmtu-
daginn 10. desember nk.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8, 128 Reykja vík.
Kerfisfræðingur
Stórt vátryggingarfyrirtæki óskar eftir að
ráða kerfisfræðing til starfa.
Starfið felst aðallega í hönnun og gangsetn-
ingu nýrra verkefna og gerir því miklar kröfur
um samskiptahæfileika og markviss vinnu-
brögð.
Við leitum að manni með góða menntun
og/eða reynslu í kerfissetningu og forritun,
sem vill vinna hjá traustu fyrirtæki og getur
tekist á við krefjandi verkefni og skilað
árangri í starfi.
Við bjóðum í staðinn góða starfsaðstöðu,
námsmöguleika eftir þörfum og góð laun.
Ef þú vilt afla frekari upplýsinga um starfið
skaltu leggja bréf inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 11. des. merkt: „Kerfisfræðingur -
3519“ með upplýsingum um þig, og við
munum hafa samband í framhaldi af því.
Markaðsstjóri
Matvælaframleiðslufyrirtæki óskar að ráða
markaðsstjóra, með aðsetur hérlendis eða
erlendis, til að stjórna sölu á vörum fyrirtæk-
isins í Evrópu. Hér er um mjög viðamikið
ábyrgðarstarf að ræða sem krefst góðrar
menntunar, málakunnáttu, dugnaðar auk
góðrar framkomu.
Umsóknir sendist auglýsingadeild blaðsins
merktar: „Fyrir nk. áramót - 4595“.
Uppeldisfulltrúa
vantar að Uppeldis- og meðferðarheimilinu
Sólheimum 7. Háskólamenntun í uppeldis-,
félags-, sálar- og kennslufræði áskilin.
Vegna kynjaskiptingar á heimilinu erum við
að leita að karlmanni.
Umsóknarfrestur er til 15. desember og
umsóknir skilist í Sólheima 7,104 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 82686.
Deildarstjóri.
Eldey hf.
- Suðurnesjum
Framkvæmdastjóri
Útgerðarfélagið Eldey hf. á Suðurnesjum,
nýstofnað almenningshlutafélag, auglýsir
stöðu framkvæmdastjóra lausa til umsóknar.
Óskað er eftir kraftmiklum og áhugasömum
aðila. Háskólamenntun ekki áskilin.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 1987.
Nánari upplýsingar veita stjórnarmennirnir:
Jón Norðfjörð í símum 92-13577 og
92-37614 og Eiríkur Tómasson í símum
92-68090 og 92-68395.
Umsóknir sendist í pósthólf 174, 230
Keflavík.
Útgerðarfélagið Eldey hf.
Erik FferlÖe
SVÖRTU
AUGUN
(''lMjMúuUliKMi,
Eva SU-en
TÍNA
3KUGOSJÁ
SKUQGSJÁ
SVÖRTU AUGUN TÍNA
Erik Nerlöe Eva Steen
GÓÐI HIRÐIRINN
Else-Marie Nohr
ANGELA
Theresa Charles
ÁST OG HAMINGJA
Barbara Cartland
Hin svörtu augu unga sígaun-
ans vöktu þrá hennar eftir
frelsi — frelsi sem hún hafði
lítið kynnst áður. Og ljúfir
tónar fiðlu hans ollu því, að
hún ákvað að flýja burtu með
honum. En vissi hún hvert
hún var að fiýja? Nei, hún var
of ung og reynslulítil til að
vita það. Hún skildi ekki að
blind ást hennar leiddi hana
aðeins út í ófyrirsjáanlegar
hættur.
Hún er ung og fögur og hefur
kynnst manni sem hún elskar.
Framtíðin blasir við þeim,
en örlögin verða til þess að
skilja þau. Hún sér sig
nauðbeygða til að hverfa úr
Iffi hans. Með fegurð sinni og
miklum hæfileikum sínum
á listskautum nær hún langt,
en þegar best gengur upp-
götvast að hún er haldin
banvænum sjúkdómi. Einmitt
þá kemur maðurinn sem hún
elskar aftur inn í líf hennar.
Hún hvarf og ekkert fréttist af
henni. Loks var hún talin af
og álitin dáin. Dag einn birtist
hún í sendiráði íThailandi,
aðframkomin og þungt haldin
af hitasótt, og mundi ekki
hvað hún hét. Með góðri
læknishjálp nær hún sér fijótt,
og nokkru seinna er hún á
leið heim. Hún er full af lífs-
þrótti og hlakkar til að sjá
aftur manninn, sem hún
elskar og hún hafði gifst stuttu
áður en hún varð fyrir áfall-
inu. Eh Qögur ár eru langur
tími, og maður hennar hafði
fyrir löngu talið hana af.
Angela Smith sækir um
læknisstarf í bænum Whey-
stone. Þar ætlar hún einnig að
reyna að jafna sig eftir slys,
sem hún lenti í, í hreinu
sveitalofti og kyrrlátu um-
•hverfi. Hún fær starfið, en
henni er vantreyst sem lækni
og litin hornauga sem persóna
í fyrstu. En smátt og smátt
vinnur hún traust og álit
fólks. Angela missti mann
sinn og dóttur í bílslysi og líf
hennar hefur verið tómlegt
síðan slysið varð. En er hún
kynnist Mikael Traymond, ró-
legum og yfirveguðum lækni,
vakna tilfinningar hennar á
ný.
Aðeins tvær persónur bjargast
í land, þegar skipið brotnar í
klettunum við strönd Ferrara,
ævintýramaðurinn Sir Harvey
Drake og hin fagra Paolina
Mansfield. Þau voru bæði á
leið til Feneyja og faðir
Paolinu fórst með skipinu. Sir
Harvey Drake stingur upp á
því við hana, að hún ferðist
með honum sem systir hans
áfram til Feneyja. Þar segist
hann auðveldlega munu geta
fundið ríkan eiginmann
handa henni — og um leið
ætlar hann að tryggja sína
eigin framtíð. Paolina fellst á
hugmyndina, og framundan
er ævintýralegt og viðburða-
ríkt ferðalag.
SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SE
PRISMA