Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Bandaríkin Húsmóðurstörfin Ný gamanmynd frá Bill Forsyth Walker og Burchill leika systurnar í myndinni. Það var svosem nógu sakleysis- legt upphaf á þessu öllu. Skoski kvikmyndaleikstjórinn Bill Forsyth var staddur í New York að taka á móti verðlaunum gagnrýnenda í borginni fyrir myndina sína „Local Hero“ þegar vinkona hans mælti með að hann læsi skáldsöguna „Housekeeping" eftir Marilynne Robinson. „En hún var leikkona," sagði hann um vinkonu sína. „Kannski vissi hún hverjar afleið- ingarnar yrðu.“ Það sem gerðist var að eftir að hafa lesið skáldsög- una nokkrum sinnum varð Forsyth ástfanginn. „Svo margar myndir settust að í huga mér og ég fór að finna fyrir þörfinni fyrir að eiga þær á filmu," sagði hann. Afkvæmi bókaástarinnar er nýj- asta mynd Bill Forsyth, „House- keeping" („Húsmóðurstörfin") en hún var frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir nokkru og er með Christine Lahti í aðalhlutverkinu. Hinn fer- tugi Forsyth, frægastur fyrir myndirnar „Gregory's Girl" og „Local Hero", skrifaði handritið og leikstýrði en myndin gerist á önd- verðum sjötta áratugnum í hinum skáldaða bæ Fingerbone sem á að vera í Washington-fylki. Sögu- maðurinn er Ruthie, hljóðlát, dreymin unglingsstúlka, svo vön missinum aö hún getur ekki ímyn- dað sér neitt varanlegt. Hún og systir hennar Lucille voru yfirgefin af foreldrum sínum snemma í lífinu en voru aldar upp hjá hverjum ættingjanum á fætur öðrum þar til móðursystir þeirra, hin sérvisku- lega Sylvie (Christine Lathi) „bjarg- ar“ þeim. Systurnar eru leiknar af Sara Walker og Andrea Burdhill. „Ég yrði bara tilgeröarlegur ef ég ætlaði að segja frá því hvað þessi mynd þýðir fyrir mig per- sónulega," sagði Forsyth. Þeir þættir sögunnar sem höfðuðu fyrst og fremst til hans eru þeir sem erfiðast er að færa á filmu; skáldskapurinn í sögunni, draum- arnir, fortíðarsýnir. „Þetta er saga sem gerðist eiginlega á augnabliki í höfðinu á Ruthie. Svo aðalbarátt- an við gerð handritsins var að skilja söguna við skáldskapinn." Þegar hann gerði handritið ák- vað Forsyth ásamt öðru að bæla niður egó sitt sem kvikmyndaleik- stjóri. „Ég reyndi ekki að koma neinum nýjum hugmyndum í sög- una. Það sem Marilynne hafði ákveðið í bókinni var það sem ég vildi hafa í myndinni." Það gekk ekki átakalaust fyrir sig að koma verkinu úr handrits- formi yfir á filmu. Forsyth þurfti að berjast til að halda handritinu óbreyttu. „Einhver hjá Cannon sagði: Gerir þú þér grein fyrir að það er ekki gert ráð fyrir svertingj- um í myndinni. Ég reyndi að útskýra að það vekti sjálfsagt miklu meiri athygli ef það væri aðeins einn svertingi í bænum." Og fleira var það í þessum dúr. Sex vikum áður en tökur hófust hætti aðalleikkonan við að leika í myndinni. Lahti var nefniiega ekki fyrst fyrir valinu í aðalhlutverkið heldur Diane Keaton. Stórstjarnan hætti við á síðustu stundu, sem var mjög slæmt því Forsyth hafði fengið Cannon til að leggja fé í myndina út á hennar nafn. Þegar hún hætti við, hætti Cannon við og Forsyth stóð aftur með handri- tið eitt í höndunum. Þá kom David Puttnam til bjarg- ar, nýorðinn stjórnarformaður hjá Columbia Pictures. „Án hans hefði þessi mynd aldrei orðið til,“ sagði leikstjórinn. Puttnam kom með þá uppástungu að Lahti yrði boðið hlutverk Keatons og það reyndist heppilegt val. Forsyth var hæst- ánægður með hana og gagnrýn- endur líka. Og hver ætli sé næsta mynd Forsyth? Hún heitir „Dætur Re- bekku" og mun vera gerð eftir handriti sem Dylan Thomas reit árið 1948. Sögusviðið er Wales á 19. öldinni en leikstjórinn hyggst hefja tökur í Cumbernauld í Skot- landi nk. febrúar. C 71 Nýtt — IXIýtt Jólavörurnar eru komnar. Pils, blússur, peysur, jakkar. Glugginn, Laugavegi 40 (Kúnsthúsinu). Citroen BX16 TRS, árg. 1984, 5 gíra, rafdrifnar rúður, central læsingar. Blásans- eraður, ekinn 70.000 km. Bfll í mjög góðu ástandi. VerA 430.000.- Til sýnis og sölu hjá: Gbbusi Lágmúla 5, Reykjavík, sími 681555. :Jarl Einlitir og köflóttir ullarjakkar. Stærðir 36-46. iSS^SíltSSfíSk v/Laugalæk. Sími 3375
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.