Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
27
Bangsímon í
nýrri útgáfu
með litmyndum
——
QM...
blóm og gjafir
Melanóra við Eiðistorg
VAKA-Helgafell hefur nú endur-
útgáfu á sðgum breska rithðf-
undarins A.A. Milne um
Bangsímon og félaga hans Jak-
ob, Kaninku, Grislinginn og
Asnann. Bœkurnar eru i stóru
broti og í fyrsta sinn gefnar út
með litmyndum hér á landi. Bœk-
uraar hafa nú verið ófáanlegar
um langt skeið. Fyrsta bókin sem
kemur út nefnist Bangsímon f
klípu, en fleiri bækur munu
fylgja í kjðlfarið.
Sögumar af Bangsímon komu
fyrst út á frummálinu á þriðja ára-
tug aldarinnar og vöktu strax
athygli. Þegar var ljóst að hér vom
á ferðinni sögur sem skemmta
myndu bömum um ókomna framtíð,
vandaðari og frjórri en gerist og
gengur um bamasögur. Það hefur
orðið raunin að Bangsfmon hefur
notið stöðugra vinsælda hjá hverri
kynslóð á eftir annarri.
Á íslandi birtust þessar sögur í
þýðingu Huldu Valtýsdóttur með
íjóðaþýðingum Freysteins Gunnars-
sonar. Á sjötta áratugnum lásu
Hulda og systir hennar, Helga, sög-
umar upp í útvarp við almennar
vinsældir og eflaust muna margir
enn eftir að hafa notið þeirra stunda
sem böm.
Sú sérstaka kímnigáfa sem ein-
kennir sögumar og þau óvenjulegu
sjónarhom sem þar birtast em rót-
in að vinsældum Bangsímons.
Höfundurinn lét sér ekki nægja að
matreiða sögur fyrir böm eins og
þau væm aðeins óþroskað fullorðið
fólk, heldur reyndi hann að nálgast
sjálfur hugarheim bamanna og
hugsunarhátt þeirra. Þannig skap-
aði hann sögur sem eiga það fylli-
lega skilið að nefnast barnabók-
menntir, bókmenntir fyrir böm.
Bangsímon kemst í klípu er með
litprentuðum myndum breska lista-
mannsins E.H. Shephard. Bókin er
prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar í Kópavogi, en bundin f
Bókfelli hf.
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
Nálin
bókaútsáfa
Sögurnar eru eftir vestur-þýska höfundinn Angelu Sommer-Bodenburg
og hafa hlotiö fádæma góðar viðtökur þar sem þær hafa komið út, en
þær hafa til þessa verið gefnar út í Brasilíu, Danmörku, Frakklandi,
Finnlandi, Grikklandi, Hollandi, Indónesíu, Japan, Noregi, Svíþjóð,
Vestur-Þýskalandi og á Englandi og Spáni.
LITLA VAMPÍRAN er fyrsta bókin af sjö sjálfstæðum sögum sem fjalla
um uppátæki og ævintýri þeirra félaga Runólfs Hrollberg, sem er lítil
vampíra og Antons Túliníuss.
Næst. AuglýSingastofa