Morgunblaðið - 19.12.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
„Hvers vegna er maður
að breyta heiminum?“
Rætt við Brynjólf Bjarnason heimspeking og stjórn-
málamann um bókina Samræður um heimspeki þar
sem greint er frá viðræðum hans, Páls Skúlasonar
og Halldórs Guðjónssonar um heimspekileg málefni
ÚT ER komin nýlega bókin
Samræður um heimspeki, þar
sem Brynjólfur Bjarnason,
fyrrverandi menntamálaráð-
herra, Páll Skúlason, prófessor
í heimspeki við Háskóla ís-
lands, og Halldór Guðjónsson,
kennslustjóri háskólans, rœða
ýmsar heimspekilegar gátur
veruleikans, bæði þekkingar-
fræði- og siðferðilegar, fyrst
og fremst í tengslum við þau
svör sem Brynjólfur hefur gef-
ið við þessum spurningum í
ýmsum bókum sinum.
Af þessu tiiefni átti ég viðtal
við Brynjólf. Áður en hann sneri
sér að heimspekinni var hann einn
helsti forustumaður Kommúnista-
flokks íslands og síðar arftaka
hans, Sameiningarfiokks alþýðu,
Sósíalistaflokksins. Ég hjó eftir
því þegar ég las Samraaðumar að
Brynjólfiir segist líta á stjóm-
málastarfíð sem þegnskyldu-
vinnu, hugur hans hafí ávallt
staðið til heimspekinnar. Ég
spurði hann því fyrst um viðhorf
hans til tíundu tesunar um Feu-
erbach, sem Brynjólfur raunar
þýddi á íslensku, þar sem Marx
segir „Heimspekingamir hafa
aðeins skýrt heiminn á ýmsa vegu.
Það sem máli skiptir er að breyta
honum."
h
Taldi mig ekki til
forustu fallinn
»Ég sneri mér ekki að heim-
spekinni fyrr en ég hafði fengið
fH frá stjómmálunum eða hafði
verið leystur undan þegnskyldu-
vinnunni, eins og ég orða það í
Samræðunum," segir Brynjólfur.
„Það er ekki svo að skilja að ég
sé ekki sammála Marx. Ég taldi
mig hins vegar ekki vera til for-
ustu fallinn og vildi helst vera
óbreyttur liðsmaður. Það tókst
ekki og ég taldi það skyldu mína
að taka að mér þau störf, sem
mér vora falin og trúað fyrir. Þar
á meðal vora ýmis þýðingarmikil
störf, eins og embaetti formanns
í kommúnistaflokknum. Það er
ólíku saman að jafna og því sem
við eigum að venjast nú um stund-
ir, þegar menn beijast um for-
ustuhlutverk í flokkum, sem þeir
halda greinilega sjálfír að séu ein-
hveijar vegtyllur. Heimpekilegar
spurningar hafa ieitað á mig alit
frá upphafí og ég spurði mig eink-
um einnar spumingar; Hvers
vegna er maður að breyta heimin-
um? Ég orða það nú svona vegna
þess að þú vitnaðir til þessarar
setningar eftir Marx. Ég hef kom-
ist að bráðabirgðaniðurstöðu og
það kemur meðal annar fram í
bókinni Lögmál og frelsi í svari
við spumingu um lífsskoðun."
— Og hvert er bráðabirgða-
svarið?
„Staðreyndin er sú að maður
lifír og í lífí sínu gengur maður
að vissum verðmætum vísum.
Þetta hverfur í ekki neitt ef
mannlífíð sjálft er einskis virði,
svo þetta er í raun og vera áiykt-
un út frá þeim veraleika sem
maður lifír f. Maður lifír eins og
lífíð sé einhvers virði. Það gera
flestir ómeðvitað án þess að hugsa
um þessa hluti. Ef maður hugsar
þetta til enda þá er spumingin
sú hvort maður velur lífíð eins og
það er og þær skyldur sem það
leggur manni á herðar. Og geri
maður það, þá hefur maður þegar
játað frumhæfíngunni um gildi
mannlífsins.
Ódauðleiki dauðans
Sú röksemd að þó einstakling-
urinn deyi, þá sé lífíð eigi að síður
varanlegt óg þáð sé skyídan við
það, sem við eigum að rækja, er
ekki nægileg. Ut af fyrir sig get-
ur þetta komið heim við mínar
hugmyndir, en er engu að síður
ekki næg röksemd fyrir því að
það skipti ekki máli hvort maður
lifír eftir dauðann eða ekki. Við
föram miklu nánar út í þetta í
samræðunum og ég reyni að svara
þessu í erindinu, sem ég minntist
á áðan. í Samræðunum segi ég:
„Þessi tómhyggja þenur sig líka
út yfír það svið, sem við eram að
tala um. Svið mannlegra gilda og
verðmæta. Til dæmis þegar menn
þykjast leysa vandamál dauðans
með því að benda á, að menn lifí
áfram f afkomendum sfnum. Þetta
kalla ég að gæða sértök lffí sér
Bryiyólfur
Bjarnason
Morgunblaðið/Sverrir
Þeir sem þátt tóku í Samræðunum: Páll Skúlason, Brynjólfur Bjamason og Halldór Guðjónsson.
til sjáifsfróunar og til þess að vísa
frá sér grandvallarvanda mann-
legs lífs. Um þetta segir í Gátunni
miklu á bls. 57: „Það er mjög
ódfalektískt sjónarmið að líta á
einstaklinginn einangraðan frá
heildinni og hitt ekki síður að
skoða heildina sem sjálfstæða
verand utan og ofan við einstakl-
ingana, sem hana mynda. Eins
og einstaklingurinn á sér aðeins
tilvist í tengslum sfnum við heild-
ina, eins verður heiidin án ein-
staklinganna að dauðu sértaki án
raunveralegs inntaks. Ef ekki era
til nein mannleg verðmæti fyrir
einstaklinginn, þá era þau heldur
ekki til fyrir tegundina. Ef lff
hvers einstaklings er einskis virði
þá gildir hið sama um heildina.
Það sem gildir um hvem ein-
stakan gildir einnig um tegund-
ina. Ef líf mitt glatar gildi sínu,
þá öðlast athafnir mfnar ekki gildi
fyrir aðra, hvorki í nútfð eða
framtið, því að allir era undir
sömu sökina seldir. Ef hver ein-
staklingur er dauðlegur í þeim
skiiningi, að hann eigi að afmást
úr tilveranni, þá er tegundin einn-
ig dauðleg f sama skilningi,
jafnvel þótt hún líði aldrei undir
lok frekar en efnið. Það væri sams
konar „ódauðleiki" og „ódauðleiki
efnisins", „ódauðleiki dauðans".
Slík framtíð, sem vitund mannsins
er að eilífu slitin úr tengslum við,
er honum óviðkomandi.““
Lífshvötin nauðsynleg
samkvæmt líffræðinni
— í framhaldi af þessu lang-
ar mig til að spyija hvert þessi
verðmæti eigi rætur sínar að
rekja?
„Um það spyr ég ekki vegna
þess að ég get ekki svarað því.
Verðmætin era staðreynd og
ályktunin er aðeins dregin af því.
Þetta er spuming, sem maður
hlýtur vissulega að spyija sig."
— Stórá spurningin ef til
vill?
„Ætli það ekki.“
— Nú hafa ýmsir heimspek-
ingar reynt að skýra verðmætin
eða hvað það er sem gefur
lifinu gildi. Aðrir hafa jafnvel
reynt að skýra þetta í burtu.
Nú, sumir finna svarið í trúar-
brögðunum?
„Jú, jú, það er fyrst og fremst
í trúarbrögðunum sem menn hafa
fundið svarið. Nú líffræðin skýrir
þetta í burtu. Hún hefur vissa
skýringu, en heimspekilega er hún
ekki nóg. Lfffræðin segir að vissar
samskiptareglur séu nauðsynleg-
ar fyrir sérhvert samfélag lífs.
Samkvæmt því er hér um að ræða
meðvitaða eðlisávísun og það er
hægt að skýra eðlishvötina nátt-
úrafræðilega. En eftir stendur
bara spumingin: Til hvers er allt
þetta? Líffræðin segir að lífshvöt-
in sé nauðsynleg til þess að lífíð
geti þróast, því annars myndi það
deyja út. En eftir stendur spum-
ingin um það hvaða gildi lífíð
hefur í sjálfíi sér. Það er hin heim-
spekilega spuming."
Svör trúarbragð-
anna ekki nóg
„Svör trúarbragðanna full-
nægja mér ekki, því svör þeirra
byggjast ekki á neinu nema því
sem þau telja sjálf að sé opin-
beran og stendur í heljgum ritum.
Ég vil ekki fullyrða neitt í þessum
éfnum, en fyrir mig bjóða trúar-
brögðin upp á gervilausnir. Menn
geta haft mismunandi skoðanir á
trúarreynslu. Ég hef engar skoð-
anir á henni. vecna bess að éc
veit ekki hvað um er að ræða og
ég hef alltaf reynt að hafa það
fyrir lífsreglu, að fullyrða ekki um
það sem ég ekki veit.
Sjálfsagt hefur mér ekki tekist
í Samræðunum að gera fullnægj-
andi grein fyrir afstöðu minni til
trúarbragðanna og girða þannig
fyrir ýmiss konar misskilning og
rangtúlkun. Það er til dæmis eitt
sjónarmið í sambandi við trúar-
brögðin, sem er talsvert algengt
óg þar kom til tals og þá var vitn-
að í Pascal, Sigurð Nordal og
William James. Þetta er hið prag-
matíska sjónarmið og er í stuttu
máii á þá leið að trúarhugmyndir,
svo sem trú á guð og annað líf,
séu alltaf mjög mikilsverðar fyrir
þetta líf og skipti því í rauninni
ekki máli hvort okkur skjátlast
eða ekki. Er þetta trú eða ekki?
Það mætti alveg eins halda því
fram að þetta væri veraldlegt
heilræði. Svo barst talið að því
hvort þettaeða eitthvað þessu líkt
veícti fyrir mér, en því fer fjarri.
Þetta kemur líklega ekki nógu
skýrt fram í Samræðunum og
hefði þurft að skýra það betur."
Ferðin sem aldrei .
var farin
„Þessari hugsun er best lýst í
dæmisögu Sigurðar Nordals í Lífi
og dauða, en þar segir keisarinn
svallsömum vini sínum að hann
hafí fyrirhugað honum afar mikil-
vægan erindrekstur og til þess
að búa sig undir þessa ferð verði
hann að gerbreyta lífí sínu. Vinur-
inn fór að ráðum hans, lifði
grandvöra lífí eftir þetta og var
hinn nýtasti maður. Ferðin var
aldrei farin. En blekkingin náði
tilgangi sínum.
Þessi dæmisaga á að sanna að
það sé undir öllum kringumstæð-
um betra að trúa á líf eftir
dauðann, hvort sem það er til eða
ekki, því það sé farsælla fyrir
þetta líf, hvað sem öðra líður. En
þetta er víðsfjarri mínum rök-
semdum. Frá mínu sjónarmiði er
samanburðurinn alrangur. Trúin
á ferðina sem aldrei var farin
náði tilgangi sínum, vegna þess
að hér er gengið að því vísu að
mannlífíð sé einhvers virði, enda
þótt það sé ekki annað en þessi
svipstund sem við lifum á jörð-
inni. En samkvæmt minni hugsun
verður lífíð einkis virði ef tortím-
ingin er vís, hvort sem við trúum
á hana eða ekki. Það hefði sem
sagt mátt einu gilda hvort vinur
keisarans lifði í sukki og svalli eða
gerðist nýtur maður og góður
þegn, því líf hans hefði hvort sem
er orðið einskis virði, ef sú ferð
sem Sigurður hefur í huga hefði
aldrei verið farin. Það er ferðin
af einu tilverastigi á annað eða
með öðram orðum: Ef iífsleiðin
endaði með aigerri útþurrkun úr
tilveranni?"
— Nú er það algeng skoðun,
að sú iðja heimspekinga þjóni
litlum tilgangi, að spyrja spurn-
inga sem sumir segja að
vonlaust sé að fá svar við. Hvað
vilt þú segja um þetta?
„Venjulegt fólk spyr sig ekki
heimspekilegra spuminga, en það
hefur tvímælalaust gildi að leitað
sé svara við þeim. Til dæmis þeg-
ar trúin hverfur, þá standa menn
úti í tóminu og þá er níhilisminn
á næsta leiti."
— Finnst þér að tómhyggjan
sé í uppgangi?
„Mér finnst það og hún sé sífellt
að ná sér á strik. Það sýnir sig í
ýmsum myndum, en maður verður
að vona að þeirri þróun verði snú-
-ið við. Maður verður að halda í
vonina, því annars gefst maður
upp.“
— Er það rétt að íslendingar
séu tómlátir um heimspeki?
„Maður varð lítið var við heim-
spekiáhuga, þegar ég var að
skrifa mínar bækur. En nú síðustu
árin virðist hann hafa glæðst
mjög. Ég þakka það framar öllu
Páii Skúiasyni, starfí hans og
áhrifum. Það var mikið happ að
fá hann að háskólanum."
- HJ