Morgunblaðið - 19.12.1987, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
Verslunarsaga Vest
ur-Skaftfellinga
Ráðherranefnd EFTA-landanna:
Tillögu um fijálsa
fiskverslun inn-
an EFTA frestað
eftir Kjartan
Olafsson
Vestur-Skaftafellssýsla hefur
gefið út fyrra bindi Verslunar-
sögu Vestur-Skaftfellinga eftir
Kjartan Ólafsson, fv. ritstjóra, í
tilefni þess að eitt hundrað ár
eru liðin frá því að verslun flutt-
ist inn í héraðið.
í fréttatilkynningu segin „Vest-
ur-Skaftafellssýsla var um aldir sú
Ríkisútvarpið;
Gunnarí
stað Boga
GUNNAR E. Kvaran fréttamað-
ur hjá Ríkissjónvarpinu tekur um
áramót við starfi aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Ríkisútvarpsins,
Hljóðvarps, af Boga Ágústssyni.
Bogi hefur verið ráðinn til að
gegna starfi blaðafulltrúa Flug-
leiða frá 1. febrúar næstkom-
andi.
Starfið var ekki auglýst laust til
umsóknar heldur var Gunnar ráðinn
í það til eins árs. Hann hefur á
meðan fengið leyfí frá störfum
sínum á fréttastofu Ríkissjónvarps-
ins.
Gunnar E. Kvaran er fæddur
árið 1953. Hann lauk stúdentsprófí
frá MH 1976 og prófí frá norska
Blaðamannaháskólanum 1981.
Hann hefur starfaðð við blaða- og
fréttamennsku hjá Alþýðublaðinu
og Tímanum en hjá Rikisútvarpinu
frá 1981, fyrst hjá Hljóðvarpi en á
fréttastofu Sjónvarps frá 1. ágúst
1986.
íslensk byggð þar sem samgöngur
voru hvað erfíðastar enda er hérað-
ið sundurslitið af straumhörðum
jökulvötnum og eyðisöndum, auk
þess sem strandlengjan er bæði
hafnlaus og brimasöm. Hvergi á
landinu voru kaupstaðarferðir
lengri og erfíðari, hvort heldur sem
farið var austur á Papós eða vestur
á Eyrarbakka til að sækja brýnustu
lífsnauðsynjar. Sumir týndu lífínu
í glímunni við ámar en aðrir misstu
hesta sína eða vaming í beljandi
flauminn. Það olli því ekki litlum
þáttaskilum í lífí Skaftfellinga þeg-
ar uppskipun á vörum hófst í Vík
í Mýrdal og verslun og þjónusta
færðist inn í héraðið. Nú er rétt öld
liðin sfðan Vík varð löggiltur versl-
unarstaður, en það varð 2. desem-
ber 1887. Þá má segja að nýtt
tímabil hefjist í sögu sýslunnar og
þar sé upphaf framfara í átt til
nútfma lífshátta.
Þegar líða tók að hundrað ára
afmæli þessa sögulega atburðar,
þótti sýslunefnd Vestur-Skafta-
fellssýslu einsýnt að láta rita
verslunarsögu byggðarinnar og fól
hún ritnefnd Dynskóga, héraðs-
sögurits sýslunnar, að sjá um
framkvæmd verksins. Ritnefndin
réði til þess Kjartan Ólafsson, fv.
ritstjóra, að rita söguna. Hefur
hann dregið fram í dagsljósið fjölda
merkra heimilda og átt viðtöl við
Skaftfellinga sem enn mundu upp-
skipun við hafnlausa strönd og
verslunarhætti í upphafí aldarinnar,
en sumir þeirra eru horfnir af sjón-
arsviðinu, nú þegar þetta rit kemur
út. Kjartan ritar um efnið af mik-
illi þekkingu, á fjörlegan og ljósan
hátt.
í fyrra bindi Verslunarsögu Vest-
ur-Skaftfellinga er fjallað um
söguna frá síðari hluta 18. aldar
K.IARTAN ÓLAKSSON
og fram undir fyrri heimsstyrjöld.
Nokkrir meginþættir þess eru: Eyr-
arbakkaferðir Skaftfellinga —
tilraunir til að fá verslun við Dyr-
hólaey síðast á 18. öld — verslun í
Landeyjum í Móðuharðindum og við
Vestmannaeyjar — Papósverslun
og viðskipti Skaftfellinga þar —
undanfari og upphaf verslunar í
Vík í Mýrdal — hallæri og sauða-
sala — fyrstu tilraunir til félaga-
samtaka um verslun, en síðan er
fjallað ítarlega um tvö meginfyrir-
tæki á sviði verslunar í Vík um
aldamót og fram á þessa öld, Hall-
dórsverslun og Bryðesverslun.
Jafnframt greinargóðri frásögn um
upphaf og þróun verslunarinnar er
varpað ljósi á mannlíf og atvinnu-
hætti og þá menn sem voru í
fararbroddi í sókn til framfara og
bættra lífskjara. Bókin er rúmar
400 bls. að stærð, í stóru broti, og
hana prýða um 400 myndir sem
fæstar hafa birst áður og varpa ljósi
á löngu horfna lífshætti og mannlíf
í harðbýlu héraði. Hún er ómissandi
fyrir alla þá sem hafa áhuga á
íslenskri atvinnu- og menningar-
sögu.
Verslunarsaga Vestur-Skaftfell-
inga, fyrra bindi, fæst á áskriftar-
verði, hjá Björgvin Salómonssyni,
Skeiðarvogi 29.
FRESTAÐ var á fundi ráðherra-
nefndar EFTA að afgreiða til-
lögu um fullt frelsi i viðskiptum
með fisk innan bandalagsins inn-
an 4-5 ára. Hinsvegar var því
lýst yfir að vinna bæri að auknu
frelsi í viðskiptum með fisk.
Steingrímur Hermannsson ut-
anrikisráðherra sat fund ráð-
herranefndarinnar fyrir tslands
hönd og segist hann vera sáttur
við þá niðurstöðu, í ljósi þess að
Svíar voru mjög andsnúnir þess-
ari tillögu. Segir Steingrímur að
taka verði þetta mál upp innan
Norðurlandaráðs og ræða það
sérstaklega við Svia fyrir næsta
fund ráðherranefndarinnar í
júni nk.
Steingrímur Hermannsson sagði
við Morgunblaðið að bæði íslend-
ingar og Norðmenn hefðu stutt
þessa tillögu frá þingmannanefnd
EFTA um fullt frelsi í viðskiptum
með físk sem næðist á 4-5 árum.
Svíar lýstu hinsvegar yfir andstöðu
við tillöguna og vildu ekki afgreiða
hana. Að lokum varð samkomulag
um að lýsa því yfír að stefna beri
að auknu frelsi með físk og málið
yrði tekið fyrir á næsta ráðherra-
nefndarfundi í byijun júní.
Steingrímur sagðist vilja taka það
fram að afstaða Svía ráðist ekki
af andstöðu við fisksölu frá íslandi
heldur fyrst og fremst af ótta við
að ef Norðmenn fái fullt frelsi til
að selja físk í Svíþjóð muni það ríða
að fullu þeim litla sjávarútvegi sem
er í Suður-Svíþjóð.
Steingrímur sagði að slík fríversl-
un með fisk innan EFTA-landanna
væri í sjálfu sér ekki svo þýðingar-
mikil fyrir íslendinga þar sem þeir
seldu lítið til þeirra landa. En
EFTA-löndin væru að búa sig und-
ir viðræður við Evrópubandalagið
og þá gæti slík samþykkt verið
þýðingarmikil. „Við höfum að vísu
að mörgu leyti ágæta samninga við
EB-löndin og margt er þar nánast
fijálst en okkur vantar þó aukna
kvóta fyrir saltfisk og fleira, þannig
að ef við fengjum þetta inn í EFTA
stæðum við betur að vígi gagnvart
Evrópubandalaginu," sagði
Steingrímur.
Hjónin Einar og
Beverly Gíslason:
Mót fyrir böm-
in á Hjalteyri
HJÓNIN Einar og Beverly Gísla-
son verða með opið hús á
Flókagötu 6 i Reykjavík laugar-
daginn 26. desember frá klukkan
16 fyrir þá sem dvalist hafa á
barnaheimili þeirra á Hjalteyri.
Þau hjónin langar til að viðkom-
andi hafí samband við þau í síma
91-23313.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
CNÍ
ELDHUSUNDRIB
FRAAEG
Margra tœkja maki
á makalausu verði!
KM 21 fráAEG er sannkallað eldhúsundur enda er
fjölhœfnin undraverð.
Bara að nefnaþað, KM 21 gerir það: Hrœrir, þeytir,
hnoðar, rífur, hakkar, blandar, hristir, brytjar, sker...
Eldhúsundrið frá AEG er margra tœkja maki en á
makalausu verði, aðeins kr. 6.903.-
Vestur-þýsk gœði’ á' jfessU verðíj^ engin spurning!
A E G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 9, sími: 38820
AEG
ALVEG
EINSTOK
GÆÐI