Morgunblaðið - 19.12.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
35
Daniel arap Moi, foreseti Kenýu:
Úgandamenn undírbúa
sig undir stríð við Kenýu
Aðflutningsleiðir til Úganda lokaðar
í kjölfar bardaga á landamærum
Kampala. Reuter.
DANIEL arap Moi, forseti Kenýu, sagði að Úgandamenn byggju sig
nú undir strið á hendur Kenýu. Var stjórnarerindrekum Úganda
gefin sólarhrings frestur til að koma sér úr landi og jafnframt var
líbýskum sendifulltrúum vísað úr landi og sendiráði Líbýu í Nairobí
lokað. Moi sakaði Líbýumenn um að hafa aðstoðað Úgandamenn i
deilunum við Kenýu undanfarið og sendiráð þeirra verið gróflega
misnotað til þess að hafa afskipti af kenýskum innanrikismálum.
Til átaka hefur komið á landa-
.mærum Úganda og Kenýu nær
daglega frá því á laugardaginn var,
milli kenýskra landamæralögreglu
og stjómarhermanna í Úganda. Af
þessum sökum hafa aðflutningsleiðir
Úganda frá Kenýu lokast. Af þeim
sökum var gripið til benzínskömmt-
unar í Úganda í fyrradag,
Hlé var á bardögum á þriðjudag
en þeir brutust aftur út á miðviku-
dag. Hafa landamærin verið lokuð
frá því á mánudag en þá lenti stjóm-
arhermönnum frá Úganda saman
við kenýzka lögreglu við landamæra-
borgina Busia.
Þúsundir manna hafa flúið úr
Busia. Til átaka kom á um 50 kíló-
metra kafla og sakaði hvor aðilinn
hinn um að hafa átt upptökin.
Kenýumenn sögðu hermenn Úganda
hafa farið fimm árásarferðir allt að
10 kílómetra inn fyrir kenýzku
landamærin. Bæði ríkin hafa stór-
eflt viðbúnað í landamærahéruðun-
um í kjölfar átakanna, að sögn
sjónvarvotta.
Úgandamenn segja að þrír her-
menn og einn óbreyttur borgari hafi
fallið í átökunum. Blaðið Munno í'
Kampala, sem jafnan er talið vera
áreiðanlegt, sagði hins vegar að um
20 Úgandamenn, flestir þeirra
óbreyttir borgarar, hefðu fallið.
Kenýumenn hafa ekki skýrt frá
manntjóni en vitað er að lögreglu-
menn og óbreyttir borgarar særðust.
Úgandamenn fá sín aðföng gegn-
um Kenýu, venjulega fara þau um
hafnarborgina Mombasa.
Orkuráðherra Úganda ákvað að
skammturinn á hveija fólksbifreið
skyldi vera 20 lítrar en 60 lítrar olíu
á hvem díselbfl.
Samningnr um langdræg-
ar flaugar nær tilbúinn
- segir aðstoðarutanríkisráðherra Sovétríkjanna
Aþenu, Reuter.
VADÍM Logínov aðstoðarutanríkisráðherra Sovétríkjanna sagði í gær
á blaðamannafundi i' Aþenu að samkomulag milli risaveldanna um
helmingsfækkun langdrægra kjarnorkuflauga væri nærri þvi í höfn.
Slíkt samkomulag „getur ekki
talist §arlægt því texti þess er nær
tilbúinn og tekist hefur að semja
um mörg atriði," sagði Logínov við
blaðamenn í gær. Hann er nú stadd-
ur í Grikklandi til að greina
frammámönnum þar í landi frá nið-
urstöðum fundar leiðtoga risaveld-
anna í Washington. Logínov sagði
að sú tilhögun eftirlits með sam-
komulaginu um útrýmingu meðal-
og skammdrægra eldflauga sem
samið var um í Washington gæti
nýst í samningi um langdrægar
flaugar.
Logínov vék einnig að veru sov-
éska hersins í Afganistan og sagði
að nú þegar hefði hann dregið sig
til baka úr tólf héruðum landsins.
Hann sagði að samkomulag hefði
tekist milli Najibullahs forseta Afg-
anistan og stjómvalda í Moskvu um
að sovéskt herlið yfírgæfi Afganist-
an innan árs. „Við erum ekki
ánægðir meða að hafa heri okkar í
Afganistan," bætti Logínov við.
Morgunblaðið/Þorkell
Viktor Pavlovitsj Starodúbov kveður Þorstein Pálsson forsætisráð-
herra að afloknum viðræðum þeirra í Stjórnarráðinu í gærmorgun.
ers-fréttastofunni þess efnis að
Vadim Logimov, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, hefði sagt
í Grikklandi á fímmtudagskvöld að
samkomulag þar að lútandi væri
svo gott sem í höfn. „Enn er mikið
verk óunnið," sagði Starodúbov.
Kvaðst hann einkum vilja nefna tvö
ágreingsefni sem hann sagði að
þyrfti að leysa varðandi fækkun
þess háttar vopna.
í fyrsta lagi þyrfti að finna lausn
á ágreiningi risaveldanna varðandi
túlkun ABM-sáttmálans frá árinu
1972 um takmarkanir gagneld-
flaugakerfa og nefndi að stórveldin
væru ekki á eitt sátt um hversu
lengf bæri að virða ákvæði samn-
ingsins. Sagði hann einkum nauð-
synlegt að fá Bandaríkjamenn til
að falla frá svonefndri „rýmri túlk-
un“ samningsins sem þeir telja að
heimili tilraunir með geimvamir
gegn kjamorkuvopnum. „Við skilj-
um lokaályktun leiðtogafundarins í
Washington á þann hátt að Banda-
ríkjamenn hafí skuldbundið sig til
að virða „þrengri túlkun“ sáttmál-
ans,“ bætti Starodúbov við.
Einnig nefndi hann að fínna yrði
lausn á ágreiningi varðandi fjölda
stýriflauga á hafi og svonefnd und-
irmörk, sem tiltaka hvemig sam-
setningu kjamorkuheraflans megi
vera verði semji risaveldin um
fækkun langdrægra kjamorku-
vopna. Sagðist hann að lokum telja
að með vilja beggja stórveldanna
yrði unnt að fínna viðunandi lausn
á þessum deilumálum.
IVÍyndlist er góð gjöf. Eiguleg gjöf sem ber
þiggjanda sem gefanda vitni um góðan smekk.
ÍComið við á jólasölunni í Gallerí Borg.
Njótið listar, - skoðið, á tveimur stöðum.
XJrvalið er gífurlegt og eitthvað við allra hæfi.
Gjafakortin okkar leysa oft vandann.
í salnum í Austurstræti 10 (Penninn) er mikið úrval af grafík og keramiki.
í Pósthússtræti 9, að auki, vatnslitamyndir, teikningar og ýmis verk
eldri sem yngri meistara.
íslenskir listmunir, eign og gjöf sein gleður lengi.
.vic
i*
Gallerí á tveimur stöðum
Pósthússtræti 9 og Austurstræti 10.
Sími (91) 24211,101 Reykjavík.