Morgunblaðið - 19.12.1987, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
Kvikmyndarýn-
endur í New York:
„Broadcast
News“ bezta
myndiníár
New York. Reuter.
Kvikmyndin „Broadcast
News“, eða Sjónvarpsmynd-
in, hlaut fjögur verðlaun hjá
svonefndum New York Film
Critics Circle, eða kvik-
myndagagnrýndendum í
New York, í gœr. Verðlaun
þessi eru eftirsótt og þylqa
ganga næst óskarsverðlaun-
um kvikmyndaakademíunnar
í Hollywood að mikilvægi.
Myndin er rómantísk gaman-
mynd, sem á að gerast í fréttadeild
sjónvarpsstöðvar í Washington.
Gagnrýnendumir völdu hana
mynd ársins, en hún fékk einnig
verðlaun fyrir leikstjóm og hand-
rit. Heiðurinn af hvom tveggja á
James Brooks, sem fékk óskars-
verðlaun árið 1983 fyrir myndina
„Terms of Endearment" eða
...Holly Hunter var sæmd verð-
launum sem bezta leikkona ársins
fyrir leik sinni í Sjónvarpsmynd-
inni, en þar leikur hún vinnuhest
mikinn. Jack Nicholson var sæmd-
ur verðlaunum sem bezti leikarinn
árið 1987. Hann fer með hlutverk
fréttastjóra í Sjónvarpsmyndin, en
lék einnig kvikindi í „The Witches
of Eastwick", eða Nomimar í
Wastwick, og útigangsmann í „Ir-
onweed".
Sænska myndin „My life as a
Dog“ eða Hundalíf var verðlaunuð
sem bezta erlenda myndin og
ítalski leikstjórinn Bemardo Ber-
tolucci fékk verðlaun fyrir kvika-
töku fyrir mynd sína „The Last
Emperor" eða Hinzti keisarinn.
Reuter
Pravda birtí mynd þessa á fimmtudag af hreyfanlegri SS-20 eldflaug og mun þetta vera í fyrsta skipti sem hún kemur fyrir sjónir almenn-
ings eystra. Flaugin er meðaldræg og tekur afvopnunarsáttmáli risaveldanna þvi til hennar.
Sovétríkin:
Efasemdir um gildi af-
vopnunarsáttmálans
Moskvu, Reuter.
PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, birti
á fimmtudag skoðanakönnun þar sem fram kemur að
aðeins 37 prósent aðspurðra telja að samkomulag risa-
veldanna um upprætingu meðal- og skammdrægra
kj amorkuflauga muni treysta öryggi Sovétríkjanna.
Blaðið birti einnig grein þar Um hug og hafí þeir raunar átt
sem segir að ráðamenn Rauða hlut að máli f samningaviðræðum
hersins styðji samninginn af heil- við bandaríska embættismenn. Er
Suður-Kórea:
Lögregla beitir hörku
gegn mótmælendum
Seoul, Reuter.
LÖGREGLA f Suður-Kóreu beitti
valdi f gær tíl að hafa hemil á
mönnum sem mótmæltu niður-
stöðum forsetakosninga f
landinu og sökuðu stjórnvöld um
kosningasvik. Chun Doo Hwan
forseti fráfarandi forseti lands-
ins sór að gefa hvergi eftir uns
Roh Tae Woo tekur við völdum
í febrúar.
Óeirðalögregla réðst f gær inn í
Kuro-kosningamiðstöðina í suður-
hiuta Seoul og hrakti á brott tvö
þúsund námsmenn og borgara sem
sest höfðu þar að og sögðust hafa
sannanir fyrir því að stjómin hefði
faisað niðurstöður kosninganna á
miðvikudag. Um það bil þúsund
mótmælendur vom handteknir að
sögn lögreglu. Um kvöldið barðist
lögregla við þúsundir manna
víðsvegar um borgina. Vitni sögðu
að lögregla hefði beitt mun harka-
legri aðgerðum í gær heldur en á
miðvikudag þegar hún horfði f
fígnum fíngur sér við andófsmenn.
yfírlýsingu frá forsetanum segir
„Við ættum öll að gleyma kosninga-
æsingnum og snúa okkur að þarf-
legri verkefnum". Seint í gær voru
birtar endanlegar niðurstöður kosn-
inganna. Samkvæmt þeim fékk Roh
Tae Woo 36,6% atkvæða. Kim Yo-
ung Sam var í öðru sæti með 28%
atkvæða og Kim Dae Jung fékk
27% atkvæða.
litið svo á að með birtingu greinar-
innar vilji ráðamenn fullvissa
almenning um gildi sáttmálans
fyrir Sovétríkin.
43 prósent þeirra 500
Moskvubúa sem þátt tóku í skoð-
anakönnuninni kváðust „gera ráð
fyrir" að afvopnunarsáttmálinn,
hinn fyrsti frá upphafí kjamorku-
aldar, myndi ekki verða til þess
að veikja vamir Sovétríkjanna en
átta prósent sögðust afdráttalaust
telja að samningurinn þjónaði ekki
öryggishagsmunum Sovétmanna.
Hins vegar lýsti mikill meirihluti
aðspurðra sig ánægðan með nið-
urstöður leiðtogafundarins í
Washington.
Nokkurrar óánægju hefur gætt
í Sovétrílgunum vegna þess að
Sovétmenn þurfa að eyðileggja
fleiri eldflaugar en Bandaríkja-
menn samkvæmt ákvæðum
sáttmálans sem þeir Ronald Reag-
an Bandarfkjaforseti og Mfkhaíl
S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi undir-
rituðu í Washington í síðustu viku.
Hafa birst lesendabréf í blöðum
um þetta efiii og hafa margir lýst
áhyggjum sínum vegna þess að
samningurinn kunni að raska
vígbúnaðaijafnvæginu.
Bretland:
Reuter
Óeirðalögregla i Seoul skýtur táragassprengjum inn í Kuro-kosninga-
miðstöðina þar sem tvö þúsund manns höfðust við i gær til að
mótmæla meintum kosningasvikum stjómarinnar.
Karl Breta-
prins tapar
fúlgnm á
markaðnum
Lundúnum, Reuter.
BRESKIR fjármálasérfræðingar
telja að Karl Bretaprins hafí tap-
að allt að sjö milljónum Sterlings-
punda (um 460 miHjónum fsl.
kr.) í verðbréfahruninu í október
síðastliðnum.
Krónprinsinn ýjaði sjálfur að
þessu í ræðu, sem hann hélt í kaup-
höllinni f Lundúnum á fímmtudag
og varð það til þess að menn fóru
að velta þessum máium fyrir sér.
Karl fer þó ekki á sveitina vegna
þessa, því talið er að eignir hans
nemi um 120 milljónum punda (um
átta milljarðar króna).
Ósló:
Gjald fyrir
akstur inn-
an borgar-
markanna
Osló, Reuter.
BORGARSTJÓRN Osló-
borgar hefur ákveðið að frá
og með næsta vori verði sér-
hveijum ökumanni sem
ekur inn fyrir borgarmörk-
in gert að greiða sérstakan
vegatoll sem mun nema 10
norskum krónum (um 57 kr.
ísl). Ástæðan fyrir vegatoU-
inum er sú að yfirvöld hafa
neitað að auka fjárframlög
til vegamála í borginni sem
þykja f ólestri.
Með þessari ákvörðun verð-
ur Osló fyrst allra borga í
Evrópu til að krefja menn um
gjald sem þetta. Vegatollurinn
mun taka jafnt til einkabif-
reiða sem vöru- og flutninga-
bifreiða og verður skylt að
greiða hann í hvert skipti sem
ekið er inn fyrir borgarmörkin.
„Ríkisstjómin hefur gert
heyrinkunnugt að ekki verði
veitt meiri flármunum til vega-
mála en borgin þarf á þessum
tekjum að halda," sagði Ivar
Torvik, samgönguráðherra
norsku ríkisstjómarinnar. Göt-
ur f Osló þykja í fremur
dapurlegu ásigkomulagi og
skapast oft umferðarhnútar
vegna viðgerða auk þess sem
skortur er á bflastæðum.
Vegatollur er vfða innheimt-
ur f Noregi og 100 prósent
innflutningsgjöld em á bifreið-
um. „Almenningur mun
tæpast fagna þessari ákvörðun
en gjaldið mun engu að sfður
verða greitt," sagði Ivar Tor-
vik.