Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
f
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Staðgreiðsla skatta
Hér fara á eftir spurningar lesenda Morgunblaðsins um stað-
greiðslu opinberra gjalda og svör embættis ríkisskattstjóra
við þeim.
Stefán Guðmundsson spyr:
Ég er með dóttur í framhalds-
skóla óg er hún í íhlaupavinnu
hjá nokkrum aðilum. Hvernig á
ég að snúa mér með hennar
skattkort svo persónuafsláttur
hennar nýtist sem best?
Svar: Sá sem vinnur hjá fleir-
um en einum launagreiðanda
getur sótt um og fengið auka-
skattkort útgefið hjá skattstjór-
um eða ríkisskattstjóra. Ef skipt
er um vinnu ber mönnum að
leggja skattkort sitt inn hjá hin-
um nýja launagreiðanda svo tillit
verði tekið til persónuafsláttar
við afdrátt staðgreiðslu.
Listamenn
Björn Th. Björnsson spyr:
Hvemig snýr nýja skattakerfið
að listamanni sem ekki hefur nein-
ar tekjur aðrar en þær er hann
hefur af sýningu, sem hann vinn-
ur að, og aflar honum ekki tekna
fyrr en í lok næsta árs eða síðar.
Hvemig á viðkomandi listamaður
að telja fram og hvemig á hann
að nota skattakort sitt.
Þá er spuming um sölu lista-'
verka. Hingað til hafa listamenn
gert rekstrarreikning og getað
dregið frá ýmsan kostnað. Hvem-
ig á að haga þessu núna?
Svar: Almenna reglan er sú að
listamaður fellur undir sömu
skattalega meðferð og sá maður
sem stundar sjálfstæðan atvinnu-
rekstur. Telst listamaður því vera
Iaunagreiðandi í skilningi stað-
greiðslulaga enda þótt hann greiði
ekki öðrum laun. Honum ber að
tilkynna sig til launagreiðenda-
skrár ríkisskattstjóra á eyðublöð-
um sem fást hjá skattyfirvöidum.
Um leið og búið er að færa lista-
manninn á launagreiðendaskrána
ber honum að reikna sér endur-
gjald eftir viðmiðunarreglum sem
gefnar verða út af ríkisskatt-
stjóra. Þær reglur verða birtar á
næstu dögum.
Um listamenn sem hafa breyti-
legar tekjur gilda sérstakar
reglur. Samkvæmt þeim geta
menn dreift tekjum sínum á fleiri
en eitt ár ef skattstjóri heimilar.
Svar við síðari spumingu
Bjöms kemur fram í svarinu hér
að framan enda er sjálfstæðum
rekstraraðilum almennt heimilt
að draga rekstrarkostnað við öfl-
un tekna, sem sannaður er með
jögskipuðu bókhaldi, frá skatt-
skyldum tekjum.
Aukaskattkort
Lovísa Jóhannsdóttir spyr:
Ég er ellilífeyrisþegi og vinn
hlutastörf hjá tveimur aðilum. Á
ég að skila skattkorti til beggja
þessara aðila?
Svar: Já, ef persónuafsláttur
nýtist ekki að fullu hjá Trygginga-
stofnun og hjá öðmm launagreið-
andanum, þarftu að fá útgefin
fleiri aukaskattkort hjá skatt-
stjóra eða ríkisskattstjóra.
Húsnæðisreikníngar
Þórður Jónsson spyr:
Hvað verður -um húsnæðis-
spamaðarreikninga nú þegar
staðgreiðslukerfíð hefur verið tek-
ið upp? Fæst skattafrádráttur
vegna þeirra áfram?
Svar: Já, að uppfylltum vissum
skilyrðum er frádráttur möguieg-
ur. Ólíklegt er þó að almennum
launamanni nýtist slíkur frádrátt-
ur vegna sérstakrar niðurfellingar
á innheimtu álagðra gjalda 1988.
A1-.X
/ ’O'VA'.
i ''ór//
tSM
Skilyrði fyrir
samsköttun
Asta Eyjólfsdóttir spyr:
Ég vinn úti tvo til þijá mánuði
á ári en er tekjulaus þess á milli.
Get ég afhent sambýlismanni
mínum 30 prósent af persónuaf-
slætti mínum og haldið sjálf
tuttugu prósentum?
Svar: Ef þið fullnægið skilyrð-
um til samsköttunar á tekjur og
eignir getur sambýlismaður þinn
nýtt 80% af þeim persónuafslætti
sem þér nýtist ekki sjálfri. Ef þér
t.d. nýtist 20% af persónuafslætt-
inum fær sambýlismaðurinn 80%
af afganginum. Það samsvarar
64% af mánaðarlegum persónu-
afslætti yðar.
Skilyrði fyrir samsköttun eru
eftirfarandi:
a. Sameiginlegt lögheimili.
b. Að sambýlisfólkið eigi bam
saman, að konan sé þunguð
eða að sambúðin hafi varað
samfleytt í a.m.k. tvö ár, auk
þess að;
c. bæði sæki skriflega um sam-
sköttun til skattstjóra.
Stórkostleg ítölsk hönnun, sem hittir þá kröfuhörðustu
beint í hjartastað.
Kjörgripirtil gjafa - eða bara til þess að gleðja sjálfan sig og
fjölskylduna.
Sérverslun með
listræna húsmuni
Borgartúni 29
Sími 20640
Morgunblaðið/Emilía
Verslunin Taktur í Ármúla 17. Á myndinni eru talið frá vinstri:
Eirikur Guðmundsson, Hörður Haraldsson, Ómar Magnússon verslun-
arstjóri og Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri.
Verslunin Takt-
ur flutt í Armúla
TAKTUR hf. - hljómdeild Fálk-
ans — hefur flutt starfsemi sína
í Ármúla 17 þar sem ný verslun
hefur verið opnuð.
Nýja verslunin sérhæfir sig í sölu
hljómtækja frá Kenwood, Nad, ar
og Wharfedale ásamt sölu sjón-
varpstækja frá Loewe. Einnig
nerður verslunin með úrval geisla-
diska.
Taktur hf. hóf starfsemi sína 1.
nóvember 1986 eftir að hafa keypt
hljómplötu- og hljómtækjadeild
Fálkans hf.
Hönnuðir nýju verslunarinnar
eru Haraldur V. Haraldsson og
Ellen Valgeirsdóttir arkitektar.
Taktur hf. rekur áfram hljóm-
plötuverslunina á Laugavegi 24.
Framkvæmdastjóri Takts hf. er
Óiafur Haraldsson.
Hjálpræðisherinn:
Aðventusamkomur í
Reykjavík og á Akureyri
VÐVENTUSAMKOMUR verða
íaldnar í Hjálpræðishemum í
teykjavík og á Akureyri sunnu-
laginn 20. desember.
A aðventusamkomunum verður
lagskrá sem yngri kynslóðin sér
ið mestu leyti um. Einnig verður
jöldasöngur.
í Reykjavík verður samkoman
að Kirkjustræti 2 og sýna böm á
aldrinum 5-10 ára helgileik og nýi
sönghópurinn syngur jólalög.
Brigader Ingibjörg Jónsdóttir flytur
ávarp og í lok samkomu verður
boðið upp á kaffisopa.
Á Akureyri verður samkoman á
Hvannavöllum 10 og sýna þar yngri
liðsmenn helgileik. Æskulýðskórinn
undir stjóm Oskars Einarssonar og
nýstofnaða lúðrasveitin undir stjóm
Normans H. Dennis sjá um sérsöng
og tónlist. Níels Jakob Erlingsson
hermannaleiðtogi flytur ávarp.
Leiðrétting
í frétt um sýningu leikhóps frá
Þjálfunarskólanum Stjömugróf í
Morgunblaðinu í fyrradag, misrit-
aðist nafn eins þátttakanda, sem
hins vegar var rétt í myndatexta.
Rétt nafn er Gunnar Gunnbjörns-
son.Þetta leiðréttist hér með.