Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 58
58
vsfir SHffMHRría mi fninAajuonA.T rrraAaffvfTTnanM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
JÓN DAN
1919 - ÁRIÐ EFDR SPÖNSKU VEIKINA
BÓKAÚTGÁFAN KEILIR
Saga byggð á raunveru-
legum atburðum.
„Þar sem tekið er á heldur óvanalegu
söguefni af kunnáttusemi. Hann
(höf.) hefur hér auðgað skáldsagna-
gerð okkar, með verki sem beitt er
nýstárlegu söguviðhorfi...
-esig.“ Tíminn 2.12.87.
Saga sem hittir lesandann beint í
hjartastaÖ.
Kaffivél með hitakönnu. Kaffivél 1 -10 bolla. Tískuútlit,
Verð frá kr. 3.940,- Kr. 2.590,-
Pela- og barnamatshitari.
Litir: Rauður/blár. Kr. 1.650,-
Vöflujarn með hitastilli.
Kr.
Vöflujárn WA612.
Einar Farestvéit&Co.hf.
Eggsjóðari. Kr. 1.660,-
Kraftmiklir 1000 watta
hárblásarar.
Verð kr. 1.315,-
Krullujárn með blæstri.
3 gerðir.
Verðfrá kr.2.195,-
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆQ BÍLASTÆÐI
Kveðjuorð:
Óla Óladóttir
Óla Óladóttir var fædd á Eski-
fírði þann 26. september 1931. Hún
var dóttir hjónanna Óla Þorleifsson-
ar og Láru Guðjónsdóttur Vopn-
flörð. Óla var yngst af átta
systkinum. Missti hún föður sinn
rétt 2 vikna gömul.
Eftir fráfall hans flutti Lára
ásamt börnum sínum suður til
Reykjavíkur, og ólust þau upp í
Reykjavík hjá móðuj sinni, sem
giftist aftur nokkrum árum síðar
Óskari Jóhannssyni og áttu þau
saman eina dóttur. Ekki er ætlunin
að rekja einkalíf Ólu föðursystur
okkar hér, heldur að minnast henn-
ar eins og hún var. Ber þess þá að
geta að síðastliðin ár bjó hún ásamt
eiginmanni sínum Gunnari Ragn-
arssyni að Bústaðavegi 63 í
Reykjavík. Áttu þau yndislegt
heimili. Hún Óla frænka var mjög
gestrisin kona, og ekki hitti maður
svo þann sem farið hafði í heimsókn
til Ólu og Gunnars að ekki væri
minnst á hve sérstaklega væri gott
að koma þar. Var hún natin við það
sem hún tók sér fyrir hendur, má
gleggst merki þess sjá á huggulegu
heimili þeirra hjóna. Það lýsir einn-
ig mikilli sálarhreysti Ólu að á
meðan hún gat verið heima á Bú-
staðavegi, tók hún ávallt brosandi
og glöð á móti þeim er hana sóttu
heim.
Heita einnig huga og máis,
hjarta gulls og vilji stáls,
ljósið trúar, ljósið vona
iífs þíns minning yfir brenni.
Þú, sem unnir ei til hálfs
auðnu landsins dætra og sona
blómasveig kærleiks bjart um enni
berðu hátt. Nú ertu frjáls.
Dyggð og tryggð þitt dæmi kenni.
Dána! Þú varst íslensk kona.
(Einar Benediktsson)
Við vottum Gunnari, eiginmanni
Ólu, vinum hennar og ættingjum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Já, kæri Gunnar, sem vaktir yfir
henni jafnt daga og nætur undir
það síðasta. Guð styrki þig í missi
þínum á ástkærri frænku okkar.
Björg og Lára Óskarsdætur
NILFISK
DÖNSK GÆÐI
Framtíðarryksugan sem þolir allan samanburð.
Síung og spræk, löngu eftir að aðrar hafa gefist
upp.
GJOFIN
SEM KEMUR
EIGINMANNINUM
ÁÓVART
NILFISK GS 90 /FQniX
engin venjuleg ryksuga hatúni-6a simioi)2442o