Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 76

Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 76
 ^uglýsinga- síminn er 2 24 80 Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA anaa # SUZUKI LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. JL-byggingavömr og Völundur sameinast Markmiðið meiri hagræðing í rekstri •>* REKSTUR JL-byggingavara sf. mun sameinast Timburversl- uninni Völundi hf. þann 1. janúar næstkomandi samkvæmt ákvörðun eigenda fyrirtækjanna. Fyrirtækið verður í framtíð- inni rekið í húsakynnum JL-bygjjingavara á Stórhöfða og við Hringbraut, en til bráðabirgða verður einnig rekstur hjá Spáð í jólagjafir Akureyri: Sjálfseigiiarstofnun reki stúdentagarða Völundi í Skeifunm 19. Brauð hf. keypti nýlega Völund og var Þorsteinn Guðnason ráðinn forstjóri. Áður en samruni JL og Völundar var ákveðinn keypti Þor- steinn hlutabréf Brauðs hf. í Völundi. Framkvæmdastjórar JL- byggingavara sf. eru Þórarinn Jónsson og Kristján Eiríksson. ÓFORMLEGAR viðræður um kjarasamninga hafa átt sér stað að undanfömu í þröngum hóp forystumanna Dagsbrúnar og Vinnuveitendasambandsins. Þar hafa verið ræddar ýmsar hugmyndir að kjarasamningi sem hefði það að markmiði að tryggja kaupmáttinn án þess að það yrði til þess að verð- bólguholskefla riði yfir. Þessar hugmyndir verða kynntar á framkvæmdastjómarfundi í fréttatilkynningu frá fyrir- tælq'unum um samrunann segir að markmið nýja fyrirtækisins verði að reka alhliða bygginga- vöruverslun á höfuðborgarsvæð- inu og ná enn meiri hagræðingu í rekstri. Með sameiningu minnki rekstrarkostnaður. Verkamannasambandsins, sem haldinn verður á morgun sunnudag. Með öllu er óvist hvort framhald verður á þess- um viðræðum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er annars vegar rætt um leiðréttingar til handa hinum lægstiaunuðu og hins vegar um almenna lága prósentuhækkun. Gildistími slíks samnings er óá- kveðinn, sem og kauptiygging- arákvæði. Það gætir ekki mikillar BIRGIR ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra hefur skrif- bjartsýni um að þessi tilraun skili árangri. Eitt helsta ljónið í vegin- um eru kjarabætur til handa fiskverkafólki, þar sem staða fisk- vinnslunar er mjög erfíð. Verkamannasambandið hvatti aðildarfélög sín til viðræðna við viðsemjendur sína, þegar slitnaði upp úr samningum í nóvember. í viðræðum Dagsbrúnar við VSÍ urðu umræður ítarlegri og var staða kjaramála rædd á víðari grundvelli. að Húsnæðisstofnun rfkisins bréf þess efnis, að ráðuneytið hafi mikinn áhuga á að stofnunin veiti lán til kaupa á húsnæði við Glerár- götu 26 á Akureyri til að innrétta þar ibúðir fyrir námsmenn. Birgir ísleifur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þetta mál væri ekki á vegum ráðuneytisins, en að hópur manna á Akureyri sem hug hefur á að stofna sjálfseignarfé- lag í líkingu við Félagsstofnun stúdenta í Reykjavík hafí verið að beita sér fyrir stúdentaíbúðum á Akureyri. Ráðherra sagðist hafa skrifað bréf þess efnis að honum lítist vel á hugmyndina án nokkurra skuldbindinga ráðuneytisins. í bréfi ráðherra til Húsnæðisstofn- unar segir m.a.: „Menntamálaráðu- neytinu hafa nú verið kynntar hugmyndir um möguleika á því að innréttaðar verði íbúðir fyrir náms- menn á allt að fjórum hæðum í húsinu nr. 26 við Glerárgötu. Virðist mögulegt að gera 15-20 íbúðir fyrir hjón og um 35 herbergi fyrir ein- staklinga. Hótelrekstur er möguleg- ur á sumrin. Ef hugmynd þessi getur orðið að veruleika er fyrirhugað að koma á fót sjálfseignarstofnun á Akureyri í líkingu við Félagsstofnun stúdenta." Sjá frétt á Akureyrarsíðu bls. 42. DAGAR TIL JÓLA Óformlegar viðræð- ur um lgarasamninga Gengistryggðir innlánsreikning- ar eftir áramót REGLUGERÐ um gengis- bundna innlánsreikninga í Leifsstöð: Farþegarbiðu í myrkrinu RAFMAGN fór af Flugstöð Leifs Eiríkssonar um kl. 19.30 i gærkvöldi, þar sem rofi sló út vegna of mikils álags. Vara- stöð í flugstöðinni fór strax i gang, en engin lýsing var i bið- sal farþega næsta hálftimann. í fyrrakvöld var spenna hækkuð í nýrri spennustöð, sem þjónar flugstöðinni og efri hluta Keflavíkur. Að sögn Jóhanns Lindal, rekstrarstjóra hjá Hita- veitu Suðumesja, varð álagið of mikið, enda standa allir Keflavík- urbúar við smákökubakstur þessa dagana. Þegar rafmagnið fór tók um hálftíma að koma öllu í samt lag, en á meðan sátu farþegar í Leifsstöð í myrkri, því engin vara- lýsing er í biðsalnum. I bönkum og sparisjóðum var I í gær staðfest af Jóni Sigurðs- syni viðskiptaráðherra. Reglugerðin, sem tekur gildi 1. janúar nk., heimilar bönk- um og sparisjóðum að taka við innlánum sem tengd verða reikningseiningu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (SDR) eða Evrópureikningseiningu (ECU) og mim innistæðan breytast eftir því sem gengi íslensku krónunnar gagnvart þessum gjaldmiðlum breytist. Samkvæmt reglugerðinni er bönkum og sparisjóðum einnig heimilt að lána út fé af gengis- tryggðum reikningum með samskonar gengistryggingu og innlánin hafa. Þá er í reglugerð- inni .grein sem heimilar bönkum og sparisjóðum að hafna móttöku §ár á gengistryggða innláns- reikninga ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Kveðið er á um að innistæður reikninganna verði aðeins lausar tii útborgunar til- tekna tvo mánuði á tólf mánaða tímabili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.