Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
Lát konunnar
við Klapparstíg:
Eiginmað-
urinní
gæslutil
3. febrúar
Eiginmaður konunnar, sem
fannst látin í ibúð þeirra hjóna
við Klapparstíg 11 á sunnudag,
var í gær úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 3. febrúar. Hann
kærði úrskurðinn til Hæstarétt-
ar.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Rannsóknarlögregla ríkisins veitti í
gær, er enn á huldu hver dánaror-
sök konunnar var, en hún var með
áverka á hálsi og höfði. Enginn er
til frásagnar um atburði nema eig-
inmaður konunnar og krafðist
rannsóknarlögreglan gæsluvarð-
halds yfir honum á mánudag.
Síðdegis í gær var beiðnin tekin
fyrir í Sakadómi Reykjavíkur og
maðurínn úrskurðaður í gæslu til
3. febrúar, en hann kærði þann
úrskurð til Hæstaréttar.
MorgunbIaðið/Ól.K.M.
70 tonna hús fer á flakk
Hús nr. 11 við Tjarnargötu, sem flytja á suður í gamla Tívolí
við Skerjafjörðinn vegna byggingar ráðhúss við Tjörnina, var
tekið af grunninum i gær. Að sögn Harðar Runólfssonar verk-
taka er húsið trúlega 60 tU 70 tonn að þyngd eða svipað og
Kleppshúsið sem flutt var í Arbæ. Húsið verður væntanlega flutt
í nótt á tveimur samhliða vögnum og vegna flutningsins þarf
t.d. að taka niður umferðaryós við Hótel Sögu, rifa niður girðing-
una við flugvöllinn að hluta og taka niður umferðarskUti.
Afkoma borgarsjóðs
betri 1987 en 1986
AFKOMA borgarsjóðs var betri 1987 en 1986 og staða borgarinnar
gagnvart viðskiptabanka sinum, Landsbanka íslands, var töluvert
hagstæðari nú én áramótin þar á undan. Var staða borgarinnar og
fyrirtækja hennar jákvæð gagnvart Landsbankanum um áramótin.
Einnig hafa útistandandi skuldir borgarinnar, miðað við útistand-
andi kröfur, verið hagstæðari en áður.
„Almennt má segja að fjárhags-
afkoma borgarinnar hafi batnað og
var hún þó allgóð fyrir,“ sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri. „Þetta þýðir
að vaxtagreiðslur og aðrar greiðslur
verða hagstæðari en áður og auðvit-
að skapar þetta borginni betri
skilyrði til að setja saman sína fjár-
hagsáætlun. Borgin og fyrirtæki
hennar hafa á undanfömum ámm
greitt niður lán sem tekin höfðu
verið til framkvæmda. Hafa engin
lán verið tekin, nema þau sem bund-
in hafa verið fasteignakaupum
borgarinnar, svo sem vegna kaupa
á leiguíbúðum, og öðmm lánum,
það er að segja eftirstöðvum, sem
jafnan em á slíkum lánum. Borgin
hefur hins vegar ekki tekið venjuleg
eriend rekstrarlán, sem vom tekin
á ámm áður, og fyrirtæki borgar-
innar em nær öll að greiða alfarið
niður sínar erlendu skuldir. Raf-
magnsveitan er búin að því, Hita-
veitan er langt komin og sömuleiðis
Reykjavíkurhöfn," sagði borgar-
stjóri. "
Sjómannadeilan á
Patreksfirði leyst
SAMIÐ var í deilu sjómanna á
bátunum Patreki og Vestra við
útgerðarmenn á Patreksfirði í
gær, en deilan hefur staðið síðan
Tryggvi Pálsson:
Fer ekkí í bankastjóraval gegn
vilja fuUtrúa sjáJfstæðismanna
18. desember og bátarnir legið
bundnir við bryggju þann tíma.
Að sögn Hjörleifs Guðmundsson-
ar, formanns Verkalýðsfélags
Patreks^arðar, náðist samkomulag
sem báðir deiluaðilar gátu unað við
á fundi þeirra síðdegis í gær. Bát-
amir em nú tilbúnir til róðra, nema
hvað spáð er stormi á miðunum,
en þeir munu leggja afiann upp hjá
saltfiskverkun útgerðarfélagsins
Odda hf. Hraðfrystihús Patreks-
fjarðar er enn iokað vegna vanskila
þess við Orkubú Vestfjarða.
TRYGGVI Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbankans
hefur, samkvæmt heimildum Morgunblaðsms, tilkynnt formanni
Sjálfstæðisflokksins og bankaráðsmönnum Landsbankans að hann
viyi ekki taka þátt í vali um bankastjóra Landsbankans verði báðir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bankaráðinu andvígir ráðningu hans.
Hvorki Jón Þorgilsson, sem kemur nú í bankaráðið í stað Ama Vil-
hjálmssonar prófessors, né Árdís Þórðardóttir sem er varamaður
sjálfstæðismanna í ráðinu, vildu í gær upplýsa Morgunblaðið um
hvort þau styddu Tryggva eða Sverri Hermannsson sem forysta
Sjálfstæðisflokksins styður til embættisins. Jón sagði i þvi sambandi
að hann vissi ekki hvort hann stæði frammi fyrir því að þurfa að
velja milli Tryggva Pálssonar eða Sverris Hermannssonar og meðan
svo væri ætti hann erfitt með að segja til um hvorn hann ætli að styðja.
Tryggvi Pálsson vildi í gær ekk-
ert segja um þetta mál við Morgun-
blaðið. Eyjólfur K. Siguijónsson
fulltrúi Alþýðuflokksins í bankaráð-
inu, sem lýst hefur yfir stuðningi
við Tiyggva í stöðu bankastjóra,
vildi heldur ekkert segja um stöðu
málsins eftir að Ámi hafði sagt af
sér, og sagðist aðspurður ekki hafa
íhugað hvort hann taki upp tillögu
um Tryggva sem Ámi lagði fram
Siglufjörður:
Saumastofan
Salína lokar
LÍKUR eru á að Saumastofan
Salína á Siglufirði muni loka
vegna verkefnaskorts í næstu
viku. Að sögn Hannesar Bald-
vinssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra, hefur rekstur
saumastofunnar gengið þokka-
lega, en Álafoss hf. hefur ekki
látið stofuna fá nein verkefni að
undanfömu. Um 10 manns vinna
nú við saumastofuna.
Hannes sagði að undanfarin ár
hefði Salína tekið að sér verkefni
fyrir Álafoss, sem hefðu verið
90-95% af verkefnum saumastof-
unnar, og einnig fyrir Sambandið.
Við sameiningu Alafoss og ullariðn-
aðardeildar Sambandsins í haust
hefði framleiðslan orðið skryklqott,
þangað til nú, að algjör verkefna-
skortur blasir við. Hannes sagði að
erfíðlega hefði gengið að ná í for-
svarsmenn Álafoss hf. til að ræða
málin við þá.
á bankaráðsfundi 29. desember.
Eyjólfur sagðist hinsvegar harma
það að Ámi hefði sagt sig úr ráðinu
og sagði það áfall fyrir bankann
að missa svona hæfan og traustan
mann úr bankaráðinu.
Kristinn Finnbogason varafor-
maður bankaráðsins sagði Morgun-
blaðinu að fundur hefði verið
boðaður í ráðinu á fimmtudaginn
hl. 15.30. Hann sagði ekki ljóst
hvort bankastjóraráðning yrði þá á
dagskrá en ef menn væru tilbúnir
til að afgreiða hana væri ekkert því
til fyrirstöðu. Hann sagðist þó vilja
vekja athygli á að þessi banka-
stjóraráðning hefði varla verið
tímabær fram að þessu þar sem
Jónas Haralz hefði ekki ákveðið enn
hvenær hann lætur af störfum í
sumar. Kristinn sagðist síðan vilja
benda á að um langt árabil hefði
ekki orðið eining um ráðningu
bankastjóra að Landsbankanum og
þannig hefðu t.d. allir þeir banka-
stjórar sem nú væru við störf verið
ráðnir með atkvæðum 3 af 5 fulltrú-
um.
Fyrir bankaráðinu liggja tillögur
um yölgun aðstoðarbankastjóra.
Þegar Morgunblaðið spurði
Tryggva Pálsson hvort hann myndi
taka við slíkri stöðu svaraði hann
að þær stöður yrðu væntanlega
auglýstar og hann myndi taka af-
stöðu til þess hvort hann sækti um
þegar að'því kæmi.
Fulltrúar í bankaráð rfkisbank-
anna eru kosnir af þingflokkum á
Alþingi en Ólafur G. Einarsson
formaður þingfiokks Sjálfstæðis-
flokksins sagði að afsögn Áma
Vilhjálmssonar hefði ekki verið
rædd á þeim vettvangi. Ólafur sagði
að sér hefði að sjálfsögðu verið
kunnugt um afsögnina sem þing-
flokksformanni en hann hefði ekki
talið það tilefni til sérstaks fundar.
Þingmönnum flokksins hefði þó
verið gerð grein fyrir stöðu málsins
á mánudagskvöld.
Ólafur sagði aðspurður að það
væri ekki umræðuefni á þingflokks-
fundum Sjálfstæðisflokksins hver
eigi að vera bankastjóri í Lands-
bankanum og þar.hefði aldrei verið
gerð samþykkt um að sjálfstæðis-
menn í bankaráðum skuli styðja
þennan eða hinn. Hins vegar hefði
forysta flokksins, ráðherrar og
fleiri, skoðanir á því og í þessu til-
felli hefðu Áma Vilhjálmssyni verið
þær skoðanir kunnar en hann ekki
fellt sig við þær.
Þegar Ólafur var spurður hvort
samkomulag hefði verið gert við
sijómarmyndun milli ríkisstjómar-
flokkanna um bankastjórastóla
Landsbankans og Búnaðarbankans
visaði Ólafur á formenn flokkanna
en sagði að slíkt hefði ekki verið á
dagskrá í þeim eiginlegu stjómar-
myndunarviðræðum sem hann tók
þátt í.
Bankastjóramál Landsbankans
urðu tilefiii umræðna á stjómar-
fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík. Sveinn Skúlason
formaður ráðsins sagði við Morgun-
blaðið að engar samþykktir hefðu
verið gerðar í stjóm fulltrúaráðsins
en málin hefðu verið rædd á fundin-
um. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins lýstu ýmsir yfir
áhyggjum sínum vegna þeirrar
stefnu sem málið hefði tekið.
Spurningar
og svör um
staðgreiðslu
STAÐGREIÐSLA skatta hófst
1. janúar sfðastliðinn og f til-
efni af því gefur Morgunblaðið
lesendum sínum kost á að fá
svarað á sfðum blaðsins spurn-
ingum sem kunna að vakna
varðandi staðgreiðslukerfið.
Morgunblaðið kemur þeim
spumingum sem berast á fram-
færi við embætti ríkisskattstjóra.
Spumingamar og svör við þeim
birtast síðan í blaðinu.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins, 691100, kl.
10-12 árdegis mánudaga til föstu-
daga og borið fram spumingar
sínar.
Yfirlýsingar kaupmanna um
nauðsyn óbreyttrar krónuálagningar:
Jaðrar við ólöglegt sam-
ráð um verðlagningu
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að yfirlýsingar forvígis-
manna eða starfsmanna samtaka kaupmanna um að þeir þurfi
óbreytta krónutöluálagningu þótt tollar og vörugjald lækki, jaðri
við samráð um verðlagningu sem sé ekki í samræmi við lög. Við-
skiptaráðherra hefur skrifað Verðlagsstofnun bréf þar sem ítrekuð
eru tilmæli um að fylgjast vel með verðlagningu i kjölfar sölu-
skatts- og tollabreytinga og er þeim tilmælum beint til stofnunarinnar
að hún beiti öllum þeim tækjum sem verðlagslögin leyfa, þar á
meðal tímabundinni bindingu álagningarhlutfalls eftir því sem þörf
krefur.
Mál þetta var m.a. til umræðu á
ríkisstjómarfundi í gærmorgun og
kynnti viðskiptaráðherra þar bréfið
sem hann sendi Verðlagsstofnun.
Jón Sigurðsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að í bréfinu hefði
hann minnt á beiðni sína frá í des-
ember sl. um að fylgjast með að
þær verðlækkanir sem hljótast ættu
af lækkun tolla og vörugjalda
gengju eftir, og gæta þess að hækk-
un verðs vegna söluskattsbreytinga
verði ekki of mikil.
Jón sagðist ekki vilja halda því
fram að kaupmenn hafi hagnýtt sér
þessar breytingar sér til hagsbóta.
Því væri að vísu haldið fram af
ýmsum en hann teldi of fljótt að
dæma um það. Jón bendi jafnframt
á dæmi um að kaupmenn hefðu
lækkað verð fyrr en birgðastaðan
byði. „Ég vil því treysta á mátt
samkeppni og upplýsinga um verð
en ég vil að það sé morgunljóst að
ríkisstjómin teQi ekki Verðlags-
stofnum í því að beita þeim tækjum
sem lögin leyfa þeim,“ sagði Jón
Sigurðsson.
Starfsmenn Verðlagsstofnunar
sátu á fundum í allan gærdag til
að fara yfir með hvaða hætti væri
best að framfylgja tilmælum stjóm-
valda.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 22.