Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
9
n Jeep
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202
HÚ^SnPFT 0 A\TP\ FERÐASKRI FSTOFA
nUl REYKJAVÍKUR
Fegurðardrottning
íslands 1988
TIL SÖLU
JEEP WAGONEER LIMITED árg. 1987, ekinn
6.500 km, 6 cyl, sjálfskiptur selec-trac, rafm. rúð-
urog læsingar, fjarstýrðir
hurðaopnarar, velti- og vökvastýri, topplúga, lúxus
innrétting, álfelgur, útvarp/segulband o.fl. Verð
kr. 1.760.000.
JEEP CHEROKEE PIONEER árg. 1987, ekinn
8.000 km. 6 cyl, sjálfskiptur selec-trac, rafm. rúð-
urog læsingar, útvarp/segulband, veltistýri,
ál felgur, toppgrind. Verð kr. 1.420.000.
Ath: Bílar þessir eru fluttir inn nýir af
umboðinu og eru í ábyrgð.
verður krýnd í Hótel Island 23. maí nk.
Forkeppnir fara fram á eftirtöldum stöðum:
Þeir, sem vilja koma á framfæri þátttöku, eru beðnir
að hafa samband við Gróu Ásgeirsdóttur á Hótel Borg,
sími 11440, sem jafnfi-amt veitir allar upplýsingar.
25. febr. Akureyri: Sjallinn.
26. febr. Vestfirðir: Uppsalir, Isafirði.
27. febr. Austurland: Egilsbúð, Neskaupstað.
5. mars Suðurland: Hótel Örk, Ilveragerði.
10. mars Reykjavík: Hótel Borg.
11. mars Vesturland: Hótel Stykkishólmur.
12. mars Suðurnes: Glaumberg, Keflavík.
„Virkar að-
gerðir“
„Virkar aðgerðir" Sov-
étmanna, sem um er
fjallað í skýrslunni um
skipulagða upplýsinga-
folsun þeirra, felast ekki
í njósnum né gagnryósn-
um — eða hefðbundinni
starfsemi sovézkra
sendiráðsmanna, sem
fara fjölmennir um hinn
vestræna heim. Markmið
„virkra aðgerða" er að
koma á framfæri skoða-
namyndandi „upplýsing-
um“, sem oftlega eru
hreinar falsanir.
í skýrslunni eru nefnd
ýmis samtök, sem eru
vettvangur áróðurs af
þessu tagi. Þar ber hæst
svokallað „Heimsfriðar-
ráð“, sem hefur aðsetur
í Helsinki. 1 ráðinu sitja
að nafninu til fulltrúar
frá 142 þjóðtun, en fjár-
mögnun og starfsstýring
er frá Sovétrflqunum.
Gegn um þennan „miðil'*
dreifa Sovétmenn áróðri,
sem „gengur i takt“ við
innrásarher þeirra í Afg-
anistan — eða hitt þó
heldur.
Nýjar áróð-
ursleiðir
í skýrslunni er þvi
haldið fram að Sovét-
menn leiti nú nýrra leiða
til að koma áróðri sinum
á framfæri. „Heimsfrið-
arráðið" nýtur ekki
nægjanlegs trúnaðar al-
mennings, enda lýðum
löngu ljóst, að Sovét-
menn hafa þar tögl og
hagldir.
Þar segir og að ýmis
trúarleg samtök séu orð-
in vettvangur „virkra
aðgerða" Sovétmanna.
Þeir nýti í þessu efni
samskipti rússnesku rétt-
trúnaðarkirlgunnar við
umheiminn og „sam-
kvæmt skýrslunni gætir
áhrifa Sovétmanna ekki
síður innan Alkirkjuráðs-
ins“, eins og komizt er
að orði í fréttaramm-
AF ERLENDUM VETTVANGI |
Skýrsla bandaríska utanríkisráðnneytisins:
| Gorbatsjov og Shultz
á hatrömmum fundi
kur á lif (vur nyadir. Ekki l>«-U viö þrjó hefóbundin
xUrkk* uUnrtkúriöuncytiö gaf mrgínhiejrfiöfl þróurur slþjóða-
■ árMur og UM>lý»ÍB*»f»ú»«ir mAU (nUUlaUrlki. krmukotn-
IrsUn v»r kynnt 4 bUöwaaaa- múnUmann og þróunartönd) kM
I Maokvu þonn ZS. októbrr.
QovétUiðtoginn var okkl aér-
Odeilu ánmgóur moð þoð »wn
I »kýi»hinni Wendur og h»n»
tfaprragi k»ld»«trið»hug»rf»r».
1 Dagbiaðið Noir Yerk Timm hofiir
— Við áttum hatramm-
Uigðu átt vvt hrtmtbyHmguna.
Alnæmisveiran upp-
ninnin ý b&ndarífikri
Kirkjan er vettvangur
govésks áródura „ffiSEBSSSSS
I akýniunni rr þvl haidið fram að koma Aorði á'Bandaríkjamenn
•ð Sovétmmn Mi nd nýrra toð» m nrfnd 1 akýnhi bandarUka
tii »ð koma áráðri alnum á fr»m- utanrikiaráðunrytaina. I oktöbcr
t>'<—«-**.-*** «* »ð bvl tnð IMS hrundu SovKmmn »f
Áróður og
upplýsingafölsun
í Morgunblaðinu í gær er fréttarammi um
árlega skýrslu utanríkisráðuneytis Banda-
ríkjanna, sem fjallar um áróður og upplýsinga-
fölsun Sovétmanna víðs vegar um heim.
Staksteinar staldra við þennan fréttaramma
í dag.
anum:
„Dæmi er tekið af því
að ályktun um tafar-
lausan brottflutning
sovézks herliðs frá Afg-
anistan var fefld á þingi
ráðsins í Vancouver i
Kanada árið 1983 á þeirri
forsendu að þá myndi
sendinefndum Sovét-
manna og A-Evrópu-
þjóða ekki framar vera
leyft að sækja samkund-
ur Alkirkjuráðsins."
Dæmi um sér-
stæðan Sov-
étáróður
Vitnað til þess vinnu-
lags, að koma tilbúnum
fréttum á framfæri við
blöð í þriðja heiminum,
sem siun hver „eru fús
til að birta hvaða fréttir
sem er fyrir greiðslu í
reiðufé". Síðan taka
fréttastofumar Tass og
Novosti við og dreifa
þessum sömu fréttum um
heimsbyggðina með til-
vitnunum í þessar keyptu
„heimildir". Nokkur sér-
stæð og óskammfeilin
dæmi eru nefnd um
fréttafölsun af þessu
tagi.
I fyrsta lagi er minnt
á umfangsmikla áróðurs-
herferð Sovétmanna,
sem fól í sér fullyrðingu
um það „að alnæmisveir-
an væri upprunnin á
tilraunastofum banda-
rískra erfðaverkfræð-
inga. Til að gæða þessa
furðulegu staðhæfingu
sannleiksblæ var vitnað i
skýrslu austur-þýzks
lífeðlisfræðings, prófess-
ors Segals."
í annan stað er vikið
að áróðursherferð, sem
Sovétmenn hafa stundað
í ýmsum þróunarrflqum
undanfarin tvö ár. í Afr-
íkulöndum er þvi haldið
fram að Bandaríkjamenn
stundi rannsóknir á nýju
efnavopni sem grandi
einungis svertingjum. í
Miðausturlöndum er þvi
á hinn bóginn haldið
fram að Bandaríkjamenn
aðstoði ísraela við þróun
efnavoptia sem hríni ein-
ungis á Aröbum. Fjöl-
mörg hliðstæð dæmi eru
nefnd í skýrslunni um
fáránlegar fullyrðingar,
sem þjóni skoðanamynd-
andi tilgangi.
Áróður af þessu tagi
hljómar að visu ankanna-
lega meðal upplýstra
þjóða, sem hafa aðgang
að alhliða fréttum. Hann
er hinsvegar áhrifarflmr
og skoðanamyndandi hjá
þeim þjóðum, sem hafa
takmarkaðan fréttaað-
gang og takmarkaða
almenna þekkingu á
framvindu mála í um-
heiminum.
Ranghug-
myndir
í tflvitnuðum frétta-
ramma segir:
„Sérstök deild innan
KGB sér um skipulagn-
ingu „virkra aðgerða" f
samráði við alþjóðadefld
miðstjómar Kommúni-
staflokksins og utanrflds-
ráðuneytið. Einnig er
gert ráð fyrir að starfslið
sovézkra sendiráða sé til
reiðu til að útbreiða
ranghugmyndir meðal
manna, i áróðursskyni."
Vissulega eru vonir
bundnar við það að Mik-
hail Gorbatsjov, formað-
ur miðstjómar
Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna, færi sitt hvað
til betri vegar i þessu
viðfeðma alræðisrfld.
Alltént hefur hann aðra
ásýnd en forverar hans
á valdastóli. En vestur-
bros hans er engu að
síður án marktækrar
hlýju meðan hann stýrir
enn innrásarher í Afgan-
istan og ber sjálft gúlagið
— og allt sem það stendur
fyrir — á herðum sinum
inn í framtíðina.
EFTIRLAUNASJÓÐIR VIB:
11 - 11,5%
ávöxtun unifrani verðbólgu
Nýtt ár með nýjum og góðum venjum!
□ Eftirlaunasjóðir VIB eru verðbréf í eigu einstaklinga skráð á
verðbréfareikning á nafn hvers eiganda.
□ Eftirlaunasjóðir VIB eru alveg óbundnir en jreir ent ávaxtaðir
eins vel og frekast er unnt án þess að taka of mikla áhættu.
□ Flestir greiða mánaðarlega í eftirlaunasjóð sinn. VIB sér um að
senda gíróseðla eða minna á reglulegar greiðslur með öðrum hætti.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður
B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30