Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 16

Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 Forspil og eftirspil Vegna fréttar um flutning á Orgelkonsert Jóns Leifs eftir Ragnar Björnsson í Morgunblaðinu þriðjudaginn 8. desember segir Hjálmar Ragnars- son frá flutningi á Oreglkonsert Jóns Leifs í Stokkhólmi í janúar. Segir Hjálmar í fréttinni „að fyrir tilstilli hans sjálfs og Ahléns taki Fílharmóníuhljómsveitin verkið til flutnings". Anægjuleg frétt það þótt forleikurinn að flutningnum í janúar sé e.t.v. lengri en Hjálmar nefnir. Árið 1983 skrifaði ég Henrik „En eins og fyrr segir, skiptir ekki nokkru máli hvorum okkar Hjálmari er að þakka að konsertinn verður fluttur nú, kannski er það líka hvorugum okk- ar að þakka.“ Janssson, þá dómorganista í Gauta- borg, um Orgelkonsert Jóns Leifs, sem ég þá hafði verið að æfa og hrifist mjög af. Jansson sagði þá- verandi framkvæmdastjóra Fílharmóníunnar í Stokkhólmi frá þessu og í mars 1984 skrifaði fram- kvæmdastjórinn, Engström, bréf, þar sem hann biður um að ég sendi honum hljómsveitarskrána af kon- sertinum, hvað ég og gerði. Eg segi ekki frá þessu vegna þess að nokkru máli skipti fyrir hvors til- stilli konsertinn verður fluttur í janúar, aðalatriðið er að hann verð- ur fluttur. En undirrituðum finnst kannski einhveiju máli skipta að aðdragandinn sé eitthvað nákvæm- ari upptalinn en er gert í frásögn Ragnar Björnsson Hjálmars. Það tekur tíma fyrir for- ráðamenn hljómsveitar að ákveða flutning á nýjum verkum, sérstak- MAZDA 626 Coupe GTi Sedan GLX . ■ _ Frá því aö MAZDA 626 kom fyrst á markaðinn hefur hann verið langvinsælasti bíllinn í sínum flokki hérlendis. Nú er 3. kynslóð af þessum geysivinsæla bíl komin á markaðinn nýr frá grunni, stærri, aflmeiri og glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Hatchback 4WS '' :• MAZDA 626 kostar nú frá aðeins 658 þúsund krónum. (1.8L Sedan 5 gíra m/vökvastýri) Sýningarbílar á staðnum. Opið laugardaga frá kl. 1—5. (stgr. - gengisskr. ai.88) BILABORG HF. FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99. lega þegar um erlend verk er að ræða, og ég beið því rólegur. _ í janúar 1986 var ég ásamt Áma Kristjánssyni í ákveðnum erinda- gjörðum í Stokkhólmi og fór þá á fund Engströms. Þá hafði ekkert gerst varðandi flutning. En í lok samtalsins lét Engström leita uppi hljómsveitarskrána, lagði hana á skrifborðið fyrir framan sig og lof- aði að setja þetta í „vinnu“, og þá áætlað að ég léki einleikshlutverkið, ef af flutningi yrði. Nokkrum mán- uðum eftir þetta viðtal hættir Engström sem forstjóri hljómsveit- arinnar og Áke Holmquist tekur við. Án þess að hafa mig nokkuð í frammi beið ég eftir bréfi frá Holm- quist, beið reyndar einnig eftir tækifæri til að hitta hann í Stokk- hólmi. í júnímánuði 1987 fæ ég bréf, ekki frá Holmquist, heldur frá Jansson. Hann segist hafa séð á efnisskrá Fílharmóníuhljómsveitar- innar fyrir veturinn 1987—88 að Orgelkonsert Jóns Leifs verði flutt- ur með sænskum organleikara og spyr mig hvers vegna ég spili hann ekki. Jafnframt segist hann hafa hitt Göran Bergendal í lok árs '86, og Bergendal hafl þá sagt að vitan- lega muni Ragnar spila konsertinn. Bergendal þessi hefur oft komið til íslands, þekkir íslenskt tónlistarlíf vel og hefur kynnt það í sænska útvarpið. Jansson segist í bréfinu hafa hringt til Engström, sem ekki gat gefið önnur svör en þau að hann hafi afhent eftirmanni sínum öll gögn sem tilheyrðu hljómsveit- inni. Fúslega skal viðurkennt að ég varð svolítið sleginn yfir að fá ekki að spila konsertinn en gladdist þó innilega yfir að hann skyldi fluttur, því þessi tónsmíð hefur hrifið mig mjög og má ekki lengur liggja óheyrð. Eii eins og fyrr segir, skiptir ekki nokkru máli hvorum okkar Hjálmari er að þakka að konsertinn verður fluttur nú, kannski er það líka hvorugum okkar að þakka. Eitt er þó víst, Hjálmar var ekki kominn í spilið þegar Engström setti hljómsveitarskrána á borðið hjá sér og hét því að koma konsert- inum í „vinnu“. Hafi Hjálmar haft einhver áhrif á flutning konserts- ins, hefur það gerst eftir að Holmquist tók við. Ég held að mér sé óhætt að fullýrða að Hjálmar hafi þá vitað að ég var búinn að æfa konsertinn og þar sem fyrir „hans tilstilli" skyldi konsertinn fluttur, þykist ég vita að hann hafi bent á mig sem flytjanda orgel- hlutverksins, sem auðsjáanlega hefur ekki nægt mér, þrátt fyrir meistaragráðuritgerð sína um Jón Leifs. Já, mikljr menn erum við Hjálmar minn. Ég hef reyndar aldr- ei skrifað meistaragráðuritgerð, nema ef vera skyldi að ég hafí kom- ist nálægt því í afmælisgrein um Pál ísólfsson, en þar leitaðist ég við að færa sönnur á þau mistök skaparans að láta Pál ekki fæðast Húnvetning. En ég hef æft þennan erfiða konsert Jóns Leifs og vonast til að fá einhvers staðar tækifæri til þess að taka þátt í flutningi hans. Ég vona svo, Hjálmar, að við hittumst í Stokkhólmi 20. janúar og getum báðir glaðst yfir flutningi konsertsins. Og hver á heiðurinn? — Jón Leifs. Höfundur er orgelleikari. rEIKNW&AJJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.