Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
Forspil og eftirspil
Vegna fréttar um flutning á Orgelkonsert Jóns Leifs
eftir Ragnar
Björnsson
í Morgunblaðinu þriðjudaginn 8.
desember segir Hjálmar Ragnars-
son frá flutningi á Oreglkonsert
Jóns Leifs í Stokkhólmi í janúar.
Segir Hjálmar í fréttinni „að fyrir
tilstilli hans sjálfs og Ahléns taki
Fílharmóníuhljómsveitin verkið til
flutnings". Anægjuleg frétt það
þótt forleikurinn að flutningnum í
janúar sé e.t.v. lengri en Hjálmar
nefnir.
Árið 1983 skrifaði ég Henrik
„En eins og fyrr segir,
skiptir ekki nokkru
máli hvorum okkar
Hjálmari er að þakka
að konsertinn verður
fluttur nú, kannski er
það líka hvorugum okk-
ar að þakka.“
Janssson, þá dómorganista í Gauta-
borg, um Orgelkonsert Jóns Leifs,
sem ég þá hafði verið að æfa og
hrifist mjög af. Jansson sagði þá-
verandi framkvæmdastjóra
Fílharmóníunnar í Stokkhólmi frá
þessu og í mars 1984 skrifaði fram-
kvæmdastjórinn, Engström, bréf,
þar sem hann biður um að ég sendi
honum hljómsveitarskrána af kon-
sertinum, hvað ég og gerði. Eg
segi ekki frá þessu vegna þess að
nokkru máli skipti fyrir hvors til-
stilli konsertinn verður fluttur í
janúar, aðalatriðið er að hann verð-
ur fluttur. En undirrituðum finnst
kannski einhveiju máli skipta að
aðdragandinn sé eitthvað nákvæm-
ari upptalinn en er gert í frásögn
Ragnar Björnsson
Hjálmars. Það tekur tíma fyrir for-
ráðamenn hljómsveitar að ákveða
flutning á nýjum verkum, sérstak-
MAZDA 626
Coupe GTi
Sedan GLX
.
■
_
Frá því aö MAZDA 626 kom fyrst á
markaðinn hefur hann verið
langvinsælasti bíllinn í sínum flokki
hérlendis.
Nú er 3. kynslóð af þessum
geysivinsæla bíl komin á markaðinn
nýr frá grunni, stærri, aflmeiri og
glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Hatchback
4WS
'' :•
MAZDA 626 kostar nú frá aðeins
658 þúsund krónum.
(1.8L Sedan 5 gíra m/vökvastýri)
Sýningarbílar á staðnum.
Opið laugardaga frá kl. 1—5.
(stgr. - gengisskr. ai.88)
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99.
lega þegar um erlend verk er að
ræða, og ég beið því rólegur. _
í janúar 1986 var ég ásamt Áma
Kristjánssyni í ákveðnum erinda-
gjörðum í Stokkhólmi og fór þá á
fund Engströms. Þá hafði ekkert
gerst varðandi flutning. En í lok
samtalsins lét Engström leita uppi
hljómsveitarskrána, lagði hana á
skrifborðið fyrir framan sig og lof-
aði að setja þetta í „vinnu“, og þá
áætlað að ég léki einleikshlutverkið,
ef af flutningi yrði. Nokkrum mán-
uðum eftir þetta viðtal hættir
Engström sem forstjóri hljómsveit-
arinnar og Áke Holmquist tekur við.
Án þess að hafa mig nokkuð í
frammi beið ég eftir bréfi frá Holm-
quist, beið reyndar einnig eftir
tækifæri til að hitta hann í Stokk-
hólmi. í júnímánuði 1987 fæ ég
bréf, ekki frá Holmquist, heldur frá
Jansson. Hann segist hafa séð á
efnisskrá Fílharmóníuhljómsveitar-
innar fyrir veturinn 1987—88 að
Orgelkonsert Jóns Leifs verði flutt-
ur með sænskum organleikara og
spyr mig hvers vegna ég spili hann
ekki. Jafnframt segist hann hafa
hitt Göran Bergendal í lok árs '86,
og Bergendal hafl þá sagt að vitan-
lega muni Ragnar spila konsertinn.
Bergendal þessi hefur oft komið til
íslands, þekkir íslenskt tónlistarlíf
vel og hefur kynnt það í sænska
útvarpið. Jansson segist í bréfinu
hafa hringt til Engström, sem ekki
gat gefið önnur svör en þau að
hann hafi afhent eftirmanni sínum
öll gögn sem tilheyrðu hljómsveit-
inni.
Fúslega skal viðurkennt að ég
varð svolítið sleginn yfir að fá ekki
að spila konsertinn en gladdist þó
innilega yfir að hann skyldi fluttur,
því þessi tónsmíð hefur hrifið mig
mjög og má ekki lengur liggja
óheyrð.
Eii eins og fyrr segir, skiptir
ekki nokkru máli hvorum okkar
Hjálmari er að þakka að konsertinn
verður fluttur nú, kannski er það
líka hvorugum okkar að þakka.
Eitt er þó víst, Hjálmar var ekki
kominn í spilið þegar Engström
setti hljómsveitarskrána á borðið
hjá sér og hét því að koma konsert-
inum í „vinnu“. Hafi Hjálmar haft
einhver áhrif á flutning konserts-
ins, hefur það gerst eftir að
Holmquist tók við. Ég held að mér
sé óhætt að fullýrða að Hjálmar
hafi þá vitað að ég var búinn að
æfa konsertinn og þar sem fyrir
„hans tilstilli" skyldi konsertinn
fluttur, þykist ég vita að hann hafi
bent á mig sem flytjanda orgel-
hlutverksins, sem auðsjáanlega
hefur ekki nægt mér, þrátt fyrir
meistaragráðuritgerð sína um Jón
Leifs. Já, mikljr menn erum við
Hjálmar minn. Ég hef reyndar aldr-
ei skrifað meistaragráðuritgerð,
nema ef vera skyldi að ég hafí kom-
ist nálægt því í afmælisgrein um
Pál ísólfsson, en þar leitaðist ég
við að færa sönnur á þau mistök
skaparans að láta Pál ekki fæðast
Húnvetning. En ég hef æft þennan
erfiða konsert Jóns Leifs og vonast
til að fá einhvers staðar tækifæri
til þess að taka þátt í flutningi hans.
Ég vona svo, Hjálmar, að við
hittumst í Stokkhólmi 20. janúar
og getum báðir glaðst yfir flutningi
konsertsins. Og hver á heiðurinn?
— Jón Leifs.
Höfundur er orgelleikari.
rEIKNW&AJJ.