Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
Afvopnunarviðræðurnar í Genf:
Samið verði um hömlur
á geimvamaáætlunina
Genf, Moskvu, Reuter.
ALEXEJ Obúkhov, samninga-
maður Sovétríkjanna í afvopnun-
armálum, sagði í gœr að
stórveldin verði &ð komast að
samkomulagi um hömlur á geim-
vamaáætlun Bandarikjamanna
áður en samið verði um helm-
ingsfækkun langdrægra kjarn-
orkuflugskeyta.
Obúkhov sagði á blaðamanna-
fundi, þegar hann kom til Genf í
gær, að forsenda þess að samið
verði um helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuflugskeyta stór-
veldanna sé að þau virði samningin
um gagneldflaugakerfi, sem gerður
var árið 1972. Fulltrúar stórveld-
anna hefja viðræður í Genf á
fímmtudag og Obukhov sagði að
þeirra biði erfítt verkefni. Hann
sagði að stuttur tími væri til stefnu
en hann bætti við að nýr samningur
ætti að geta verið tilbúinn þegar
fundur leiðtoga stórveldanna hefjist
í júní.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að Júlí
Vorontsov muni leiða samninga-
nefnd Sovétmanna, en fréttaskýr-
endur höfðu talið, að það félli í
skaut Obúkhovs.
Bagaza skipað að
yfirgefa Belgíu
Brussel, Reuter.
FYRRUM forseta Burundi, Je-
an-Babtiste Bagaza, sem vikið
var úr embætti í september, hef-
ur verið gefinn átta daga frestur
til að yfirgefa Belgíu, að því er
talsmaður belgiska dómsmála-
ráðuneytisins sagði í gær. Hann
sagði ennfremur að Bagaza, sem
hefur dvalið í Belgíu síðan i nóv-
ember, hefði ekki leitað hælis
sem pólitiskur flóttamaður og að
timabundið vegabréf hans væri
ekki lengur í gildi.
Bagaza vill snúa aftur til Bur-
undi, en núverandi valdhafar hafa
hvað eftir annað komið í veg fyrir
að hann komist þangað. Starfs-
menn belgíska flugfélagsins Sabena
leyfðu honum ekki að fara með flug-
vél til Burundi á föstudag þar sem
hann hefði áður reynt að fara þang-
að með annarri flugvél, en þarlend
yfírvöld hefðu neitað að veita vél-
inni lendingarleyfi.
Talsmaður belgísku stjómarinn-
ar sagði að Frakkland hefði boðið
Bagaza hæli sem pólítískum flótta-
manni og auk þess að fá þar íbúð
og framfærslustyrk. Því hefur
Bagaza svarað á þá leið að Frakkar
hafí ekki boðið sér neitt opinberlega
og þeir hafí samið um þetta við
valdhafana í Burundi. Hann kvaðst
ennfremur aðeins vilja fá að lifa f
friði í Burundi, þar sem eignir hans
og skyldmenni séu.
Ryzhkov í Svíþjóð;
Brottvísun Zaire-búa mótmælt
Svissneskir lögreglumenn draga hér unga konu
sem reyndi ásamt 150 öðrum að loka leiðinni frá
vegabréfaeftirliti flugvallarins í Zilrich til að
mótmæla því að Mathew Musey, flóttamaður frá
Zaire, yrði fluttur úr landi. Musey leitaði hælis
sem pólitfskur flóttamaður eftir að hafa verið
skipað að yfirgefa Sviss árið 1983, þar sem hann
hefur búið í 17 ár. Hann hafði verið í felum f
11 mánuði þegar lögreglan fann hann á bóndabæ
nokkrum og sendi hann með einkaflugvél til
Zaire f gær. Svissneskir embættismenn segja að
hann hafi lagt fram fölsuð skilrfki. Að sögn tals-
manns Sameinuðu þjóðanna er Musey hætta
búin í Zaire og að það væri brot á alþjóðlegum
reglum að senda hann þangað með valdi.
Barentshafið innifalið í afvopn-
unarviðræðum á Norðurhöfum
Bauð Norðurlandaþjóðum að senda fulltrúa á heræfingar Rauða flotans
^ Stokkhólmi, Reuter.
Á MÁNUDAG lagði Níkolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, fram ný tilboð um afvopnunarviðræður milli Sovétríkjanna
og Norðurlanda, sem tækju til heija á Norðurhöfum, þar með töldu
Barentshafi, en á slíkt hafa Sovétmenn ekki minnst áður. Tilboð
þetta kann ef til vill að slá nokkuð á ótta Norðurlandabúa við risann
í austri, en líklega mun það valda Atlantshafsbandalaginu nokkrum
erfiðleikiun. „Þetta er f fyrsta skipti, sem Sovétmenn sting upp á
takmörkunum á eigin flotaumsvifum," sagði Richard Fieldhouse,
hemaðarsérfræðingur við Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnunina f
Stokkhólmi (SIPRI).
ERLENT
. „Gorbatsjov ræddi um flotatak-
markanir í norðri, á Grænlands- og
Noregshafí, en minntist ekki á Bar-
entshaf, sem er svo að segja
heimasvæði Rauða flotans," sagði
Fieldhouse. Vísaði haon þar til
ræðu, sem Míkhafl Gorbatsjov, Sov-
étleiðtogi, hélt í Múrmansk síðast-
liðinn október.
Annar hemaðarsérfræðingur,
sem ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að Noregur og Danmörk, sem
eru í Atlantshafsbandalaginu,
myndu hafa áhyggjur af þýðingu
þessa fyrir vamarbandalagið og að
hvaða leyti slíkar viðræður þyrftu
að vera gagnkvæmar. Munu Banda-
ríkjamenn sérstaklega gjalda
slíkum hugmyndum varhug.
Ryzhkov lét ekki þar við sitja og
bauð Norðurlöndum að senda full-
trúa sína á flotaæfingu Rauða
flotans, sem fram á að fara í ár.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt
einhliða boð berst öðmm ríkjum en
aðildarríkjum Varsjárbandalagsins.
„Við vonum að slíkar einhliða að-
gerðir, sem ætlaðar eru til þess að
Pólland:
Sænskum sendi-
manni vísað úr landi
Varsjá, Reuter.
PÓLVERJAR hafa ákveðið að
vísa sænskum stjórnarerindreka
úr landi og er talið að með þvf
sé verið að svara brottvísum
pólsks sendimanns frá Svíþjóð á
sfðasta ári. Sá var sakaður um
njósnir.
Jan Ammberg, 2. sendiráðsritari
í menningar- og upplýsingadeild
sænska sendiráðsins í Varsjá, var
lýstur óæskilegur á pólskri grundu,
en talsmaður sendiráðsins sagði að
engin ákveðin ástæða hefði verið
gefín fyrir þessari ákvörðun. Amm-
berg fékk nokkrár vikur til þess að
ganga frá sínum málum áður en
hann hélt heim á leið.
í desember á síðasta ári var
pólskum stjómarerindreka í Málm-
haugum vísað frá Svíþjóð vegna
þess, sem sænsk stjómvöld nefnu
„ólöglega njósnastarfsemi".
Svíar líta á brottvísun Ammbergs
sem beint svar við þeim brottrekstri.
Bandaríkin:
efla traust þjóða á milli, verði metn-
ar að verðleikum af bandamönnum
okkar og að þær verði gagnkvæm-
ar,“ sagði Ryzhkov.
Finnar tóku vel í þessar tillögur
Ryzhkovs og sögðu þær vel til þess
fallnar að efla traust á milli þjóða.
Norðmenn voru hins vegar varari
um sig og sagði Per Paust, talsmað-
ur utanríkisráðuneytisins að enda
þótt þróun mála væri jákvæð þyrftu
Norðmenn að sjá ákveðnari og skýr-
ari tillögur áður en þeir gætu tjáð
sig frekar um málið.
Ryzhkov heldur til Noregs á
morgun og telja fréttaskýrendur að
hann kunni að hafa fleira í poka-
hominu.
Reuter
Richard Truly aðmfráll og yfirmaður geimferjuáætlunarinnar skýr-
ir frá því, að geimferju verði skotið á loft í júlí nk.
Geimferja á loft í júlí
Washington. Reuter.
LÍKLEGT þykir, að bandarisk
geimfeija hefji sig upp í Ioftin
blá á sumri komanda, f júlf mán-
uði ef allt fer eftir áætlun. Vegna
Challengersslyssins hafa geim-
feijuferðir legið niðri f næstum
tvö ár.
James Fletcher, yfírmaður
bandarísku geimferðastofnunarinn-
ar, skýrði frá þessu í gær og bar
jafnframt á móti því, að stjóm-
málalegar ástæður lægju að baki
ákvörðuninni. „Næsta geimfeiju-
ferð ræðst aðeins af einu: Við förum
þegar við erum tilbúnir," sagði
Fletcher.
Richard Truly aðmíráll og yfír-
maður geimferðaáætlunarinnar
sagði, að líklega yrði allt til reiðu
í ágúst nk. Miklar athuganir og til-
raunir hafa farið fram á ferjunni
til að tryggja öryggi hennar en í
desember sl. var ákveðið að fresta
fyrirhugaðri ferð í júní nk. vegna
galla, sem fram komu.
Truly sagði, að í geimfeijuferð-
inni í júlí yrði komið á braut
gervihnetti, eftirlitshnetti líkum
þeim, sem eyðilagðist með Challen-
ger.
Skákmótið í
aan Zee:
Wijk
Anders-
son tekur
forystuna
SVÍINN Ulf Andersson tók
f gær forystu á skákmótinu
f Wijk aan Zee er fjórða
umferð var tefld. Á mánu-
dag vann Georgiev biðskák
sfna við Sosonko úr fyrstu
umferð.
Úrslitin úr fjórðu umferð
urðu þessi:
Hansen - Sosonko V2 - V2
Ljubojevic - Van der Wiel V2 - V2
Hiibner - Tal 0-1
Farago - Georgiev V2-V2
Andersson - Piket 1-0
Karpov - Van der Sterren 1-0
Nikolic - Agdestein 0 -1
Eins og fyrr segir er Anders-
son efstur eftir fjórar umferðir
með 3V2 vinning. í 2.-5. sæti
eru Georgiev, Hubner, Karpov
og Ljubojevic með 2V2 vinning.