Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
27'
Jean-Marie Le Pen vígreifur
á flokksfundi:
„Fékk það hlutverk
að bjarga Frakk-
landi frá úrkyniun“
Mivva I? mitnv4
Nízza. Reuter.
ÞRIGGJA daga flokksráðstefnu
Þjóðemisfylkingar Jean-Marie Le
Pen lauk á sunnudag en í lok henn-
ar kynnti Le Pen eigin uppskrift,
svokölluð 10 boðorð, að því hvern-
ig snúa megi málum til betri vegar
í Frakklandi og „forða landinu frá
algerri úrkyiyun," eins og hann
orðaði það.
Le Pen hlaut mikið klapp er hann
tilkynnti fundarmönnum, sem voru
3.000, að boðorðin 10 yrðu grund-
völlur „orrustunnar um Frakkland“
ef hann sigraði í forsetakosningunum
í vor.
Fyrsta boðorðið er um að snúa
straumi innflytjenda við, en útlend-
ingar eru mikill þymir í augum Le
Pens. Annað boðorðið er um að halda
þurfi lög og reglu mun ákveðnar en
gert væri og í því sambandi bæri að
leiða morðingja og fíkniefnasala und-
ir fallöxina.
„Frakkar verða að gera sér grein
fyrir því að kosningamar em líkleg-
ast síðasta tækifærið, sem þeir hafa
til að koma í veg fyrir að land þeirra
úrkynjist, verði undirgefninni að
bráð, glatist," sagði Le Pen í lokaá-
varpi sínu.
„Það er tími til kominn að Frakk-
ar ráði sínu landi, en ekki útlending-
ar,“ sagði Le Pen, sem vill koma í
veg fyrir að útlendingar fái að setj-
ast að í Frakklandi. Hann vill einnig
að bameignum Frakka fjölgi „í stað
þess að flytja inn heilu flugvélafarm-
ana af útlendingum."
Gerðar hafa verið skoðanakannan-
ir um fylgi líklegustu frambjóðenda,
og samkvæmt þeim nýtur Le Pen
um 10% fylgis.
Le Pen sagðist hafa fengið það
„sögulega hlutverk“ að afstýra úr-
kynjun frönsku þjóðarinnar. Ekki
væm nema 12 ár til aldamóta en svo
gæti farið að hið volduga Frakkland,
sem vérið hefði við lýði á annað þús-
Reuter
Jean-Marie Le Pen gengur til
lands að afloknu sjávarbaði við
Nizza á suðurströnd Frakklands
á laugardag.
und ár, heyrði sögunni til árið 2000
Hann sagðist vilja uppræta atvinnu-
leysi, breyta menntakerfinu, draga
úr ríkisútgjöldum, lækka skatta á
fyrirtæki og byggja upp velferðaríki,
sem „þjónar frönskum Frökkum en
ekki innfluttu útlendu vinnuafli."
Le Pen sagðist á fundinum hafa
verið ofsóttur af fjölmiðlum, sem lagt
hefðu sig fram um að rangtúlka orð
hans og yfírlýsingar. Fundinn átti
upphaflega að halda í október, en
var frestað vegna yfirlýsinga Le
Pens um gyðingaofsóknir nazista í
seinni heimsstyijöldinni. Le Pen
sagði að þær væm smámál og hlaut
fyrir það mikla gagnrýni, heimafyrir
og um heim allan.
Reuter
Noboru Takeshita, forsætisráðherra Japans, ásamt konu sinni, Na-
oko, þegar þau héldu upp í Bandaríkjaförina.
Bandaríkin:
Takeshita með
fögair fyrirheit
Lofar líklega að opna Japansmarkað
Washington. Reuter.
NOBORU Takeshita, forsætisráð-
herra Japans, kom i gær til
Washington og var hermt, að hann
hefði með i farangrinum boð um
að opna japanska markaðinn bet-
ur fyrir bandarískum fyrirtæly-
um.
Viðræður Takeshita við Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og full-
trúa þingsins eiga sér stað á sama
tíma og viðskiptahallinn í Banda-
ríkjunum er meiri en nokkm sinni
fyrr og þingið krefst þess, að Japan-
ir opni sinn lokaða heimamarkað eða
verði látnir sæta refsiaðgerðum ella.
Takeshita, sem tók við af Yasu-
hiro Nakasone í nóvember sl., er nú
í sinni fyrstu Bandaríkjaheimsókn
og er talið, að hann muni reyna að
ná trúnaði Reagans á sama hátt og
Nakasone. S því á hann þó undir
högg að sækja enda er þriðjungur
viðskiptahallans í Bandaríkjunum
eingöngu vegna viðskiptanna við
Japani. Bandarískir embættismenn
hafa einnig varað við hugsanlegum
yfirlýsingum Takeshita og segja, að
japanskir ráðamenn séu vanir að lofa
öllu fögm en standa við fátt.
Rtilips SJÓIWÖIP
20” með þráðlausri
fjarstýringu
,tal)
2S°nS 2tÆ»uSl«ngum, ofl- «*
ytir. Svart og grátt.
VERÐ AÐEINS KR
20” án fjarstýringar
S.'stSÍdigital) skráning á skjá á
öllum stillingum, ofl. ofl.
Litir. Hnota og grátt.
__i/n
VERÐ AÐEINS KR
16” ferðasjónvarp an
fjarstýringar
Frábaer myndogtónrTlOstöðva minni. Stunga
fyrir heyrnartól. Innbyggt loftnet, ofl. o .
Litir: svart og grátt.
VERÐ AOEINS KR
^aS^ullartstaainn
Tengist með straumbreyti stöðva
ofl. Litur: svart og grátt.
VERÐ AÐEINS KR
með spennubreyti AÐEINS kr.
verð eru miðuð VK> STAÐGRETOSLU
29.900.-
* ■ • hf
INI*:6915