Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
31
AKUREYRK
Reynum að semja víð bankana
ef SIS neitar ábyrgðunum
segir Guðmundur Þórisson í Hléskógum
ENGIN afstaða var tekin á fundi
stjórnar SÍS sl. mánudag til beiðni
ábyrgðarmannanna átta sem
gengust i ábyrgðir fyrir Kaup-
félag Svalbarðseyrar á sínum
tíma. „Mér sýnist stjórnin vera að
velta málinu áfram á undan sér
enda hlýtur ákvörðun i máli sem
þessu að vera erfið. Við erum
fyrst og fremst óánægðir með að
ekki skuli vera tekin ákveðin af-
staða til beiðninnar svo við getum
farið að gera viðeigandi ráðstaf-
anir. Ef svo fer að Sambandið
neitar að taka yfir ábyrgðirnar,
munum við líklegast reyna að
komast að samkomulagi við bank-
ana um lengri greiðslufrest f stað
þess að horfa upp á uppboð á eign-
um okkar,“ sagði Guðmundur
Þórisson i Hléskógum i samtali
við Morgunblaðið f gær sem jafn-
framt er einn af ábyrgðarmönn-
Alls nema kröfur á hendur bænd-
unum nú um 40 milljónum króna að
viðbættum vöxtum og verðbótum,
að sögn Guðmundar. Þar af eru kröf-
ur Samvinnubankans um 20 milljónir
og kröfur Iðnaðarbankans annað
eins. Iðnaðarbankinn hefur gert
kröfu um fjámám hjá þeim sjö mönn-
um er gengust í ábyrgðir hjá
bankanum fyrir hönd KSÞ, en upp-
boð á eignum þeirra hefur ekki verið
auglýst. Samvinnubankinn á nú
flestar eignir KSÞ á Svalbarðseyri
og er að reyna að selja þær á fijáls-
um markaði sem ekki hefur enn
tekist. Samningaþóf mun hafa staðið
yfír um nokkurt skeið á milli Sam-
vinnubankans og Kaupfélags Eyfírð-
inga um kaup KEA á eignunum og
komu forsvarsmenn Samvinnubank-
ans norður rétt fyrir jól til funda við
þá KEA-menn. Upp úr mun hinsveg-
ar hafa slitnað vegna ágreinings um
verð og greiðslulqör. Samvinnubank-
inn mun ætla að falla frá kröfum á
hendur ábyrgðarmönnunum takist
að selja eignir sínar á Svalbarðseyri.
Guðmundur sagðist hafa þá trú
að menn væru að losa sig víða úr
ábyrgðum fyrir kaupfélögin og jafn-
vel hjá sterkustu kaupfélögum
landsins. „Ef menn hætta að gang-
ast í ábyrgðir fyrir kaupfélögin,
hljóta þau að þurfa að draga saman
seglin eða jafnvel stöðva rekstur sinn
vegna ónógrar bankafyrirgreiðslu.
Sambandið hlýtur þá sjálft að þurfa
að afskrifa skuldir félaganna mikið
til upp á eigin spýtur." Guðmundur
sagði að það muni hafa tíðkast mjög
viða að stjómarmenn félaganna
gengust í persónulegar ábyrgðir fyr-
ir hönd kaupfélaga sinna, þó stjóm-
armenn KEA fullyrða að sú hefði
aldrei verið raunin hjá KEA.
„Við höfum engin tromp á okkar
hendi til að útvega okkur fjármagn,
en við hljótum að reyna að semja
við kröfuhafa ef illa fer þannig að
við fengjum að halda okkar eignum
gegn lengri greiðslufresti. Báðir aðil-
ar munu eflaust tapa meira á
uppboði. Persónulega er ég ákaflega
svartsýnn á að Sambandið ætli sér
að hjálpa upp á okkur eitthvað. Þetta
,er vont mál fyrir SÍS. Það er ekki
vinsæl ákvörðun að neita okkur um
aðstoð og hinsvegar er það dýr
ákvörðun fyrir SÍS að yfírtaka
ábyrgðir okkar. Stjómarmennimir
eiga eflaust erfítt með að meta hvor
kosturinn sé verri og það er álit
margra að frestur sé af illu bestur,"
sagði Guðmundur að lokum.
Eldur í slippnum
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var
kvatt að Slippstöðinni. Eldur
hafði komið upp í einangrun á
milli þilja í káetu í Sæþóri EA
frá Arskógsandi. Eldsupptök
eru ókunn.
Ekki var verið að vinna í bátn-
um er eldurinn kom upp kl. 15.20.
Slökkvistarf gekk fljótt fyrir sig,
en mikill reykur var í káetunni
svo reykkafarar fóm á undan.
A slökkviliðsstöðinni stóð yfír
fundur með flestöllum slökkviliðs-
mönnum bæjarins er útkallið kom
og héldu þeir allir á vettvang.
Ekki kom þó til að gjömýta þyrfti
allt liðið þar sem eldur var minni-
háttar.
Morgunblaflifl/GSV
Reykkafarar fóru á undan nið-
ur í káetu með útblásturstæki.
Báru rúm 18 þúsund
tonn að landi að verð-
mæti 405 millj. kr.
TOGARAR Útgerðarfélags Ak-
ureyringa öfluðu á árinu 1987
rúmlega 18.252 tonn, heldur
minna en á árinu 1986, en þá
báru togarar ÚA rúmlega 19.816
tonn að landi. Aflaverðmæti árs-
ins 1987 nemur brúttó 405,6
milljónum króna, en nam á árinu
1986 377,7 milljónum kr. Fryst
var um borð hjá ÚA í fyrsta
skipti i lok síðasta árs þegar
Sléttbakur EA 304 hélt á veiðar
eftir að honum hafði verið breytt
í frystiskip. Hann bar úr býtum
á árinu 379,6 tonn eftir 52 út-
haldsdaga, en á árinu 1986 kom
Sléttbakur að landi með tæplega
3.524 tonn eftir 282 veiðidaga.
Til eigin vinnslu Útgerðarfélags-
ins fóm á síðasta ári 17.556,5 tonn
og til annarra fóm 316 tonn. 1986
fóm 19.219,5 tonn til eigin vinnslu
og um það bil 596 tonn til annarra.
Veiðiferðir togaranna vom alls 112
í fyrra á móti 104 árið 1986. Meðal-
afli á veiðidag var 1,1 tonni minni
á árinu 1987 en árið 1986, eða
15,8 tonn á móti 14,7.
Vilhelm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekki vilja tjá
sig um afkomu fyrirtækisins, en
hann sagði að nýju fiskveiðilögin
yrðu ömgglega ekki til þess að
auka aflabrögðin þar sem þau gerðu
ráð fyrir samdrætti í þorsk- og
karfaveiðum. „Talað er um að
skerða þorskkvótann um 10% og
hlýtur öll aflaminnkun að koma
niður á okkur sem og öðmm aðilum
í sjávarútvegi. Af heildarafla ÚA
nemur þorskur 41,6%, karfi 26,7%,
grálúða 16,6% og ufsi 7,9%. Sam-
tals gera þessar tegundir 92,8% og
munu því 7,2% af heildaraflanum
skiptast niður á aðrar físktegundir.“
Togarar ÚA em nú sex talsins.
Á árinu 1987 aflaði Kaldbakur EA
301 4.779 tonn eftir 346 úthalds-
daga, Svalbakur EA 302 aflaði
4.982,3 tonn eftir 365 daga, Harð-
bakur EA 303 aflaði 4.965,6 tonn
eftir 340 úthaldsdaga og Hrímbak-
ur EA 306 aflaði 3.060 tonn eftir
326 úthaldsdaga. Sólbakur EA 305,
Hótel KEA:
22 ný her-
bergi tekin
í notkun
1» / /
.jum
VIÐBYGGINGU Hótels KEA
miðar vel áfram að sögn hótel-
stjórans Gunnars Karlssonar,
enda hefur tíðarfarið fyrir ára-
mót hjálpað mikið til.
í viðbyggingunni em 22 tveggja
manna herbergi og mun því hótelið
hafa yfir að ráða alls 72 herbergjum
þegar framkvæmdum lýkur.
Gunnar sagði að meiningin væri
að opna nýju herbergin þann 1.
júní nk., en endanlegur kostnaður
vegna framkvæmdanna liggur ekki
fyrir.
Togarar Útgerðarfélags Akureyringa:
sem áður hét Dagstjarnan og keypt
var frá Keflavík seint á árinu, bar
rúmlega 85 tonn að landi eftir 25
úthaldsdaga og Sléttbakur kom
með 379 tonn að landi eftir 52
daga úti, eins og að framan greinir.
Alls vom úthaldsdagar togar-
anna 1.454 á árinu miðað við 1.648
árið 1986. Veiðidagar vom 1.153
miðað við 1.347 árið áður. Fjöldi
veiðidaga var 112 á móti 134 árið
1986 og meðalverð á hvert kg. nem-
ur 22,22 krónum árið 1987, en var
19,06 árið áður.
Alls vom hraðfryst 6.424 tonn
af flökum. Skreið nemur tuttugu
tonnum, en vom sjö árið 1986.
Saltfiskur nemur 683 tonnum á
árinu, en var 923 tonn í hitteð-
fyrra. Þurrkaðir vom 205 tonn af
hausum miðað við 149 árið áður
og Sléttbakur frysti um borð 180
tonn.
Vilhelm sagði að Útgerðarfélagið
væri þessa dagana að leita fyrir sér
með nýsmíði erlendis. „Þeim skipa-
smíðatöðvum, sem árið 1983 gerðu
tilboð í smíði gamla Sólbaks, var
sent bréf seint á síðasta ári til að
kanna áhuga þeirra á nýsmíði fyrir
okkur. Bann var sett á smíðar nýrra
skipa þegar við ætluðum að fara út
í þær framkvæmdir á sínum tíma,
en nú höfum við keypt Sólbak gagn-
gert til að skipta út fyrir nýjan
togara. Skipasmíðastöðvar þessar
em allar erlendar, á Norðurlöndun-
um, í Þýskalandi, Bretlandi, á Spáni
Sléttbakur var I breytingum nær allt síðasta ár, en náði að afla fyrir 24,4 milljónir króna eftir 40 veiði-
daga. Hér er verið að landa afla úr fyrstu veiðiferðinni.
Kaupfélag Svalbarðseyrar:
og í Japan og hafa þær allflestar
sýnt okkur jákvæð viðbrögð." Vil-
helm sagði óvíst hvenær útboð færi
fram, en bjóst þó við að það væm
einhverjar vikur þar til að því kæmi.
Vilhelm Þorsteinsson
Morgunblaðið/GSV