Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 32

Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 32 Sparískírteini ríkissjóðs: Venjulegur dagur - segir Arndís Steinþórsdóttir í fjár- málaráðuneytinu ALLT gekk eðlilega fyrir sig í Seðlabankanum á mánudag þrátt fyrir að ekki hafi verið hægt að gefa út ný spariskírteini ríkissjóðs, að sögn Amdísar Steinþórsdóttur deildarviðskiptafræðings hjá fjár- málaráðuneytinu. Ríkissjóður hefur ekki getað gef- ið út ný spariskírteini vegna þess að lánsQárlög hafa enn ekki verið afgreidd frá Alþingi og fær fólk því afhendar kvittanir á ný skírteini þegar það kemur með gömul skírteini til innlausnar. Arndís sagði að áður hefði komið fyrir að ekki hefði verið hægt að afhenda ný spariskírteini, en það var vegna verkfalls í Finnlandi þar sem skírteinin voru prentuð. „Þessi dagur er ekkert öðruvísi' en aðrir dagar. Margir eiga spari- skírteini sem voru innleysanleg í gær og í dag. En fólk þarf ekki nauðsynlega að leysa þau inn strax og dagurinn var ósköp venjulegur," sagði Amdís. Áfengi og tóbak hækka um 5,7% ÁFENGI og tóbak hækkaði í verði í gær. Hækkunin nam um 5,7% að meðaltali og nú kostar pakki af Winston-vindlingum 136 krón- ur í stað 130 króna og Royale- vindlingar hækka úr 114 í 126 krónur. Þá kostar flaska af Ball- Tölvuvædd burð- arvirkja NÁMSKEIÐ á vegum _ Verk- fræðistofnunar Háskóla Islands í notkun tölvu við greiningu burðarvirkja verður haldið dag- ana 18.-22. janúar nk. kl. 15.00- 18.00. VHÍ hélt slíkt námskeið í júní sl. og var það fullskipað. Á nám- skeiðinu verður kennd notkun COSMOS/M-hugbúnaðar sem byggir á einingaaðferðinni og nýt- ir einkatölvur og aðrar samhæfðar tölvur. Gert er ráð fyrir að þátttakend- ur hafi þekkingu á burðarþols- fræði, en námskeiðið felst aðallega í því að láta þátttakendur leysa töluleg verkefni og öðlast þannig leikni í notkun forritsins. antine’s-viskýi 1.620 krónur i stað 1.550 króna og verð á Smirnoff- vodka hækkaði úr 1.320 i 1.370 krónur. 10 stykkja pakki af London Docks-vindlum hækkar um 10,5% — úr 190 krónum i 210 krónur. 25 stykkja pakki af Caminante-vindlum hækkar úr 1.150 í 1.275 krónur. St. Emillion-rauðvín hækkaði um 8,8% úr 680 krónum í 740 krónur. Rauðvín hækkaði að jafnaði um 8-10 %, hvítvín um 10-12%, sterkt áfengi um 4-5%. Vindlingar hækkuðu um 4,5-10,5%, bandarískir minnst en franskir mest. Að sögn Höskuldar Jónssonar for- stjóra ATVR er helsta ástæða hækkananna sú að samkvæmt fjár- lögum er gert ráð fyrir að ÁTVR skili ríkissjóði 4275 milljónum króna ári á yfírstandandi ári. Það er þriðj- ungi meira en í fyrra en þá skilaði stofnunin ríkissjóði 3200 milljónum króna. Einnig hefur það áhrif að margir framleiðendur hækka verð framleiðslu sinnar um áramót og einnig er um talsverða uppsafnaða erlenda verðhækkun að ræða vegna þróunar Evrópumyntar en langmest er keypt hingað af áfengi frá ríkjum Evrópu. Lækkanimar sem orðið hafa á bandaríkjadal að undanfömu hafa hins vegar haft áhrif til að halda í lágmarki hækkunum á þeim tegund- um sem fluttar eru inn þaðan. Morgunblaðið/BAR Afmælií Álftaborg Bamaheimilið Álftaborg við Safamýri átti 20 ára afmæli í gær. Héldu bömin og fótstmmar upp á daginn eins og vera bar. Reykingabann New York-búa óraunhæft - segir Ingimar Sigurðsson í heilbrigðisráðuneytinu BANN við reykingum var undirritað í New York á fimmtudag í síðustu viku og er það nokkru strangara en það bann sem er í gildi hérlendis. íslensk lög um tóbaksvarnir, sem tóku gildi árið 1985, voru á margan hátt einstæð í heiminum, að sögn Ingimars Sigurðs- sonar deildarstjóra I heilbrigðisráðuneytinu. Telur hann aðgerðir New York-búa vart raunhæfar, því séu lögin of ströng, sé verr af stað farið en heima setið. í reykingabanni New York-borg- ar er lagt blátt bann við reykingum í almenningi Ieikhúsa, stórra veit- ingahúsa, verslana, sjúkrahúsa, skóla og flestra vinnustaða í borg- inni. Hérlendis er reykingabannið ekki eins strangt, óheimilt er að reykja í verslunum, almenningi stofnana, almertningsvögnum og lyftum. Víða öm reykingar tak- markaðar eða háðar ákvörðunum yfirmanna þeirra staða er um ræð- ir. Áhersla er lögð á að ekki sé reykt á stöðum ætluðum bömum og unglingum og þeim stöðum er þau eigi aðgang að. Einnig að þeir sem ekki reyki verði ekki fyrir óþægindum af völdum tóbaksreyks. En þegar kemur að því að fram- fylgja lögunum telur Ingimar að pottur sé brotinn. „Það hefur sýnt sig að það þarf að taka miklu strangar á eftirlitsþættinum hér. Mér sýnist hafa slaknað á eftirlitinu og það ekki vera nægilegt, því mið- ur. Það þjónar engum tilgangi að setja lög sem ekki er framfylgt. Við verðum að koma á öflugu eftir- liti með lögunum eins og þau eru og síðan að fylgjast með hvernig þessu reiðir af í New York.“ Ingimar segir að ýmsir þættir í lagasetningu New York-búa hafi verið taldir óraunhæfir af þeim sem stóðu að setningu íslensku tóbaks- varnarlaganna fyrir þremur árum. „Við reyndum að fara raunhæfar leiðir við þá lagasetningu, segir hann. „Mér sýnist þetta bann þeirra ganga mjög langt, þar má nefna blátt bann við reykingum í sam- komuhúsum, t.d. almenningi í kvikmyndahúsum. Ég vona að vel takist til, en ég hef áhyggjur af því að þétta verði mjög erfitt í fram- kvæmd því þetta er svo stórt stökk í einu." piv wm | 11 ***+ !§ ”... • Morgunblaðið/Sverrir Heilbrigðisfrömuðir íheilsurækt HEILSUVERND í Kringlunni hófst formlega í gær er gerðar voru teygjuæfingar að hætti Kínverja. Ólafur Ólafsson, landlæknir og Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra sýndu gott fordæmi og stóðu fremstir í flokki er leikfimin hófst. Auk æfinganna verða sérstök „heilsutorg“ í Kringl- unni þar sem fólk getur leitað ráða um mataræði og heilsuvernd. Heilsuverndarátakið stendur út þennan mánuð. Verðfall á hörpudiski: Versnandi afkoma, en næg atvinna enn - segir Sturla Böðvarsson, bæjar- stjóri á Stykkishólmi „SEM BETUR fer er ekkert neyð- arástand hér; hér er næg atvinna eins og stendur, og ekki horfur á að það breytist í nánustu framtíð" sagði Sturla Böðvarsson, bæjar- stjóri í Stykkishólmi, þegar Morgunblaðið spurði hann um afleiðingar verðfallsins á hörpu- diski. Afleiðinganna væri þó farið að gæta í minnkandi tekjum hjá sjómönnum, og versnandi afkomu útgerðar, vinnslu, og bæjarsjóðs. Sturla sagði að það væri vafasamt að hætta veiðum á hörpudiski, þrátt fyrir verðfallið, þar sem það gæti haft slæm áhrif á markað- inn. Nú eru tvær af þremur hörpudisk- vinnslum á Stykkishólmi starfandi, og 6-7 bátar á veiðum. Sturla sagði að verð á hörpudiski hefði farið lækkandi allt síðasta ár og menn hefðu verið að undirbúa sig fyrir erfíða tíma. Vinnslumar á Stykkis- hólmi hefðu leitað annarra markaða en í Bandaríkjunum, og hefðu til dæmis reynt að komast inn á Frakk- landsmarkað. Hins vegar hefði góð grásleppuveiði bætt hag sjómanna í fyrra, en horfurnar í ár væru ekki eins góðar hvað það snerti. Aðspurður um viðbrögð við verð- fallinu sagði Sturla afi reynt yrði að auka aðra veiði en hörpudiskveiði á meðan verð á honum væri í lægð, en hættulegt væri að hætta veiðum, eins og stungið hefði verið upp á, þvl erfitt gæti reynst að komast aft- ur inn á markaði sem væru alveg lokaðir um stundarsakir. Um 40% af vinnandi mönnum í Stykkishólmi vinna nú við sjávarútveg, en þó að það sé lægra hlutfall en víða annars staðar, þá er mikilvægi hörpudis- kveiða hvergi meira en í Stykkis- hólmi, því hörpudiskurinn er um helmingur af verðmæti sjávarafla sem þar berst á land. „Sennilega er enginn bær í Evrópu er eins háður hörpudiskinum og Stykkishólmur" sagði Sturla Böðvarsson, bæjar- stjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.