Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 36
36________ ____MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988_
Fagnaðarerindi — skírn
eftir Gunnar
Þorsteinsson
í nóvember síðastliðnum gat að
líta grein í Morgunblaðinu, sem dr.
Einar Sigurbjömsson ritar um
skímarskilning íslensku Þjóðkirkj-
unnar. I grein þeirri greindi margra
grasa og langar mig til að fjalla í
stuttu máli um örfá atriði sem þar
komu fram.
Er skírn sakramenti?
í grein sinni leggur dr. Einar
_ Sigurbjömsson áherslu á að bama-
'skímin sé sakramenti og vitnar í
Lúter í Fræðunum minni, en þar
segir: „Skímin veldur fyrirgefningu
syndanna, frelsar frá dauðanum og
djöflinum og gefur eilífa sáluhjálp
öllum, sem trúa því eins og orð
Guðs og fyrirheiti hljóða."
í framhaldi af þessu er farið inn
í fyrirvarana og reynt er að draga
úr áhersluþunga og merkingu þess-
arar fullyrðingar Lúters. Þar er
farið inn á ýmsar blindgötur, sem
ég treysti mér ekki til að þræða.
Kjami þessarar deilu hlýtur þó
að vera sú spuming hvort að skímin
Sýnir
á Mokka
ÞESSA dagana sýnir þýskur lista-
maður, Christoph von ThUngen,
oiiumálverk á Mokka.
Christoph von Thúngen kom hing-
að til lands í fyrsta skipti síðastliðið
^sumar og eru málverkin sem hann
sýnir á Mokka máluð undir áhrifum
af dvöl hans þá. Áður hafði hann
lengi haft áhuga á íslandi. Uppruna-
lega kviknaði þessi áhugi á landinu
út frá kynnum Christophs af íslensk-
um hestum.
Christoph von Thúngen er fæddur
1953 in Gemúnden am Main I Vest-
ur-Þýskalandi, nam fijálsa myndlist
við „Fachhochschule fúr Kunst und
Design" í Köln undir handleiðslu pró-
fessors K. Marz á árunum 1971 tii
1978. Hann hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum
í heimalandi sínu frá 1974. Sýningin
á Mokka er fyrsta sýning Christophs
von Thúngen utan Þýskalands og
stendur hún til 1. febrúar.
(Fréttatilkynning)
sé í raun forsenda sáluhjálpar. Geta
menn öðlast fyrirgefningu synd-
anna, frelsast frá dauðanum og
djöflinum og höndlað eilífa sálu-
hjálp án þess að skímin komi þar
við sögu?
Án þess að draga úr gildi hinnar
Biblíulegu skímar vil ég halda því
fram að svo sé. Ég er þar ekki einn
á báti, heldur er ég í góðum félags-
skap postula og guðspjallamanna.
Greinargott svar þjóðkirkju-
manna, án fyrirvara, væri vel þegið
innlegg í þessa umræðu.
Afturábak
Ég hef áður bent á að í skírnar-
skipun Jesú Krists í Matt. 28:19
segir Drottinn að það eigi að vinna
LÆRISVEINA af öllum þjóðum og
skíra ÞÁ. Hér hafa þjóðkirkjumenn
sett í bakkgrírinn í gegnum þetta
vers og vilja endilega skíra fólk
áður en það er gert að lærisveinum.
Slíkt er algerlega forsendulaust og
er hvergi heimilað í orði Guðs.
Títus skrifar um laug endurfæð-
ingarinnar í þriðja kaflanum í bréfi
sínu og vilja þjóðkirkjumenn gera
því skóna að hér sé um vatn að
ræða og þar með sé kominn fótur
undir kenninguna um bamaskím.
Ef menn gefa sér tíma til að lesa
í hvaða samhengi textinn er, þá
kemur annað í ljós. Títus segir í
versunum þijú til fimm: „Því að
þeir vom tímamir, að vér vomm
einnig óskynsamir, óhlýðnir, villu-
ráfandi, í ánauð hvers konar fysna
og lostasemda. Vér ólum aldur vom
í illsku og öfund, vomm andstyggi-
legir, hötuðum hver annan. En
gæska Guðs frelsara vors birtist og
elska hans til mannanna, þá frels-
aði hann oss, ekki vegna réttlætis-
verkanna, sem vér höfðum unnið,
heldur samkvæmt miskunn sinni í
þeirri laug, þar sem vér endurfæð-
umst og heilagur andi gjörir oss
nýja.“
Hér verður ekki fundin réttlæting
bamaskímarinnar. Sú laug endur-
fæðingarinnar, sem Títus er að tala
um er að sjálfsögðu heilagt og dýr-
mætt blóð Drottins, en ekki vatn.
Umskurnin
Þegar ritað er og rætt um bama-
skímina er oft vikið að umskum
hins gamla sáttmála og verður hún
oft heistu rök bamaskírenda.
Guðfræðiprófessorinn spyr: „Því
skyldu ekki böm skírð þegar skímin
er sáttmálstákn hliðstætt umskurn-
inni, eins og böm meðal Gyðinga
voru umskorin?“
Umskum var sáttmálatákn Guðs
við Israelsþjóðina, en hún var sú
þjóð sem Guð hafði gert sáttmála
við og útvalið til að vera sín eigin-
leg eign umfram aðrar þjóðir. Þessu
til staðfestu er umskumin gefin.
Israelsmenn gengu þegar í sátt-
mála Guðs, en staðfestu það síðan
í þeirri blóðugu athöfn er hold var
numið í burt með hnífi helgidóms-
ins.
Undir hinum nýja sáttmála tengj-
ast menn Guði fyrir trúna með sama
hætti og ísraelsþjóðin gerði vegna
útvalningar. Fyrr en það sáttmála-
samband er komið á er ástæðulaust
að staðfesta það.
Eftir að menn eru orðnir eiginleg
eign Guðs fyrir trú á friðþægingar-
verk Jesú Krists er kominn tími til
að staðfesta það með skíminni, fyrr
ekki.
• I öðrum kafla Kólossubréfsins
gerir Páll postuli grein fyrir þessu,
en þar segir: „í honum eruð þér
einnig umskomir þeirri umskum,
sem ekki er með höndum gjörð,
heldur með umskum Krists, við að
afklæðast hinum synduga líkama,
þegar þér voruð greftraðir með
Kristi í skíminni. I skíminni voruð
þér einnig með honum uppvaktir
fyrir trúna á mátt Guðs, er vakti
hann upp frá dauðum."
Blessuð börnin
Dr. Einar Sigurbjömsson lætur
liggja að því að þeir sem ástunda
skím trúaðra séu með því að „und-
anskilja bömin úr samfélagi eining-
ar og sáttargjörðar".
Jesús sagði um börnin í tíunda
kaflanum í Markúsi: „Leyfið böm-
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
stendur nú yfir sýning vestur-
þyska myndhöggvarans Ger-
hards Ámmann. Ber hún
yfirskriftina „Ulan Bator“ og
stendur til 24. janúar. Sýningin
er opin daglega frá 16 til 20 og
um helgar frá klukkan 14 til 20.
Gerhard er fæddur í V-Þýska-
landi árið 1954 og stundaði nám
við Akademie der bildenden
Kúunste í Múunchen. í vetur hefur
hann kennt við Myndlista- og handí-
ðaskóla íslands en starfar auk þess
Gunnar Þorsteinsson
„Geta menn öðlast fyr-
irgefningn syndanna,
frelsast frá dauðanum
og djöflinum og höndl-
að eilífa sáluhjálp án
þess að skírhin komi
þar við sögu?“
unum að koma til mín, vamið þeim
eigi, því að slíkra er Guðs ríki.“
Það er óþarfi að taka það fram
að þessi böm, sem Drottinn er að
tala um, vom óskírð, enda em þessi
orð töluð áður en menn fundu upp
bamaskímina.
Getur það verið að skímarskiln-
á Korpúlfsstöðum í boði Mynd-
höggvarafélags íslands. Flest
verkin á sýningunni em unnin í
jám og stein og er hún styrkt af
Goethe stofnuninni og v-þýska
sendiráðinu.
Gerhard Ammann á sýningu
sinni, „Ulan Bator" í Nýlistasafn-
inu sem lýkur þann 24. janúar.
ingur þjóðkirkjunnar sé slíkur að
öll böm, sem óskírð em, séu ekki
handhafar náðar Guðs og þeirra
hlutskipti sé gaddurinn einn?
Fagnaðarerindi —
Skírn
Páll segir í fyrra bréfí sínu til
Korintumanna að hann sé ekki
sendur til að skíra, heldur til að
boða fagnaðarerindið.
Það er ljós vísbending um í hvaða
röð hann vann sín verk. Hann byij-
aði á því að boða mönnum fagnað-
arerindið, þ.e. að Jesús hafí dáið
fyrir syndir þeirra og frelsun og
eilífa lausn væri að fínna í trú á
hann. Að því loknu, eftir að menn
höfðu tekið á móti sannleika fagn-
aðarerindisins í trú, var vegur
skímarinnar þeim opinn.
Þetta er að sjálfsögðu ekki hægt
þegar ómálga böm eiga í hlut.
Ég fæ ekki séð hvemig mönnum
getur blandast hugur um hver sé
vilji Guðs í þessu tilliti. Orðið er
ljóst og dæmin em skír, en eitthvað
hefur farið úrskeiðis.
Lúter var í mörgu yfírburðamað-
ur og það verk sem hann vann í
víngarði Drottins skyggir á allt
annað sem unnið hefur verið á þessu
sviði á síðari öldum, en er ekki rétt
að halda því verki áfram og leið-
rétta stefnuna þegar hið sannara
fínnst?
Einhverra hluta vegna leiðrétti
Lúter ekki erfíkenninguna frá kaþ-
ólsku kirkjunni um skím ómálga
bama og er þar miður.
Væri ekki fremur í anda Lúters
að halda áfram að fægja áfall ald-
anna af silfri sannleikans, í stað
þess að krýna Lúter með hinum
vafasama heiðri óskeikulleikans?
Höfundur er forstöðumaður
Krossins íKópavogi.
Gerhard Ammann sýn-
ir í Nýlistasafninu
raðauglýsingar — radauglýsingar — radauglýsingar
Hefur þú áhuga á
húsnæðismálum?
Það veröur tekiö á þeim í málefnastarfi ungs sjálfstæöisfólks í vet-
ur. Þar verður meðal annars fjallaö um:
• Lánakerfi
• Niðurgreiðslu vaxta og styrki í gegnum skattakerfið
• Breytt hlutverk húsnæöisstofnunar
• Ráðgjafaþjónustu
• Fasteignamarkað
• Skjalafærslur viö fasteignaviöskipti
• Þáttöku lifeyrissjóða í húsnæðiskerfinu
Sendið inn svarbréf eða skráið ykkur til þátttöku í síma 82900 eða
686216 fyrir 15. janúar.
Hafið áhrif á
málefnastarfið!
Málefnastarf Sambands ungra sjálfstæðismanna er nú í fullum
gangi. Fyrirkomulag málefnastarfsins í vetur verður með nýju sniöi.
I stað þess að þurfa að setjast inn á fund í aðalstöðvum sambands-
ins, geta nú allir haft sín áhrif á málefnastarfið á sínu heimili og nýtt
til þess þann tíma sem hentar mönnum best.
Fyrirkomulag er eftirfarandi: I hverjum málefnaflokki er starfandi
verkefnisstjórn, skipuð 4-7 mönnum. Flún vinnur uppkast að vinnu-
markmiðum í hverjum málaflokki og sendir það til þeirra, sem áhuga
hafa á að vinna að viðkomandi málum. Verkefnisstjórnin og „áskrif-
andinn“ skiptast síðan á bréfum nokkrum sinnum og menn geta
þannig sett hugmyndir sínar, athugasemdir og tillögur á blað og
sent til frekari úrvinnslu.
Öllum ungum sjálfstæðismönnum, sem til hefur náðst, hefur nú
verið sent bréf, þar sem þeim er boðið upp á að taka þátt i málefna-
starfinu. Viðkomandi er bent á að setja svarbréfiö í póst fyrir 15.
janúar. Þeir, sem einhverra hluta vegna hefur ekki náðst til, eru
eindregið hvattir til að hafa samband við skrifstofu SUS í síma 82900
eöa 686216, ef þeiræskja þátttöku. Fiafið samband fyrir 15. janúar.
Unnið er i eftirtöldum málaflokkum:
Umhverfismál, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga, dagvistunarmál,
áhrif kristinnar trúar á sjálfstæðisstefnuna, sjávarútvegsmál, íslensk-
ur fjármáiamarkaður, neytendamál, landbúnaðarmál, samgöngumál,
húsnæöismál, námslánakerfi, útanrlkismál, fjármál SUS, hugmynda-
banki SUS, almenningstengsl SUS.
Stjórn SUS.
Hefur þú áhuga á
umhverfismálum?
Ein af verkefnisstjórnum ungra sjálfstæöismanna hyggst taka á
nokkrum þáttum umhverfismála i vetur, þar á meöal:
• Stjórnskipulegu fyrirkomulagi umhverfismála
• Endurvinnslu á úrgangi, einkum einnota umbúðum og brotajárni
• Blýlausu bensíni
• Frárennsli frá byggð eða atvinnurekstri
• Gróðurvernd - landgræðslu - náttúruvernd
Hafið samband i síma 82900 eða 686216 og skráið ykkur til þátttöku
í málefnastarf inu, eða sendið inn svarbréf, ef ykkur hefur borist slikt.
Stjórn SUS.
Viðtalstími
Halldór Blöndal, alþingismaður verður með
viðtalstima fimmtudaginn 14. janúar kl.
10.00-12.00 í skrifstofu Sjálfstæöisflokks-
ins i Kaupangi. Simi skrifstofunnar er:
96-21504
Sjálfstæðisfélögin Akureyri.