Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
37
Jómfrúræða Birgis Dýrfjörð:
Við erum ekki öðru-
vísi en aðrar þjóðir
Hér fer á eftir jómfrúræða Birgis
Dyrfjörð (A.-Nv.) sem flutt var á
Alþingi 5. nóvember sl. í umræð-
um um bjórfrumvarpið.
Herra forseti. Enn þá einu sinni
er komið til umfjöllunar á hinu háa
Alþingi frv. til laga um breytingu á
áfengislögum eða bjórfrumvarp eins
og það _er almennt nefnt manna á
meðal. í grg. með frv. segir m.a.
um tilgang flm. að hann sé að draga
úr hinni miklu neyslu sterkra
drykkja, að breyta drykkjusiðum
þjóðarinnar til batnaðar.
Með þessum markmiðum hafa
flm. skipað sér í raðir þeirra sem
styðja áfengisstefnu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar en hún
heldur því fram á grundvelli rann-
sókna að aukin neysla áfengis sé
ávísun á aukið heilsufarslegt, efna-
hagslegt og félagslegt tjón. Og
stofnunin leggur til við þjóðir heims
að þær marki sér áfengisstefnu sem
minnki þetta óumdeilda tjón, þ.e.
minnki áfengisneyslu þegnanna.
Kunnug eru viðbrögð stórveldanna
sem hafa hert mjög áfengislöggjöf
sína og gert aðgengi að áfengi miklu
torveldara en áður var.
Ég dreg ekki í efa að flm. gangi
gott eitt til með frv. þessu og þann
tilgang þeirra styð ég af heilum
hug, að breyta drykkjusiðum þjóðar-
innar og draga úr neyslu sterkra
drykkja.
Hér er mikið í húfi og því mann-
leg skylda okkar að fara með þetta
mál af alvöru og gætni. Því áð ef
sala áfengs öls á Islandi næði ekki
þeim tilgangi flm. að breyta drykkju-
siðum þjóðarinnar til batnaðar
heldur snerist í ranghverfu sína, þá
yrði hún samkvæmt alþjóðarann-
sóknum ávísun á aukið heilsufars-
legt, efnahagslegt og félagslegt tjón.
Og þá höfum við tekið tappann úr
þeim legg sem hýsir þá plágu sem
við öll óttumst og enginn getur
bætt. Það er nú svo þegar áfengi
er annars vegar að það er oft auð-
velt að taka tappann úr en erfiðara
að setja hann í aftur.
Ekkert okkar vill valda aukinni
drykkju. En við höfum ekki reynslu
af ftjálsu áfengu öli. Okkur ber því
að afla gagna hjá þeim sem þá
reynslu hafa. Og ef reynsla annarra
þjóða býður okkur ótvírætt að hafna
áfengu öli þá má ekkert okkar vera
svo lítilmótlegt að láta persónulegar
tilhneigingar ráða afstöðu sinni. Ég
trúi því að hver og einn þm. hafi
nægan manndóm til að ráða við
slíkar tilhneigingar jafnvel þó áleitn-
ar verði.
Herra forseti. Ég mun hér á eftir
vitna til staðreynda af reynslu ann-
arra og okkur menningarlega
skyldra þjóða af áfengu öli — og ég
endurtek staðreynd, herra forseti,
ekki kenninga.
Þó vil ég að vísu fyrst vitna í
íslenska stofnun. Þjóðhagsstofnun
hefur gert áætlun um hver áfengis-
neyslan verði ef bjórstefnan verður
ofan á. Niðurstaðan er 33% aukning
vegna áfenga ölsins. Og þá spyr
maður: Er ekki líklegt að 33% aukn-
ing á áfengisneyslu færi okkur frá
tilgangi frv. um að breyta drykkju-
siðum þjóðarinnar til batnaðar? Við
getum þó huggað okkur við að þetta
er aðeins útreikningur og það frá
Þjóðhagsstofnun sem ýmsir hv. þm.
gera að vísu lítið með. I stað útreikn-
inga skulum við því leita staðreynda
sem ekki þarf um að deila.
Það er oft vitnað í Danmörku sem
fyrirmyndarland um áfengisneyslu,
en þar drekka menn aðallega öl og
veik vín. Þó jókst drykkja þar á árun-
um 1966—1982 um 98% á sama tíma
og á bjórlausu íslandi um 34,7%.
Finnar aftur á móti leyfðu á þessum
árum sölu á áfengu öli sams konar
og lagt er til í okkar frv. og hjá
þeim jókst neyslan um 146,2%. Þetta
eru óhrekjandi staðreyndir sem okk-
ur er skylt að skoða og spyija í
framhaldi af því: Erum við örugg
um að það sama gerist ekki hér og
ef við erum ekki örugg, er áfenga
ölið þá áhættunnar virði?
Á árunum 1958—1978 fjórfald-
aðist drykkja í Danmörku og niður-
stöður rannsókna sýna nú að
alvarlegustu fylgisjúkdómar
drykkju, þ.e. skorpulifur og briskirt-
ilsbólga, fjórfölduðust einnig, en
dánarlíkur af þessum sjúkdómum
eru svipaðar og gerist um flestar
tegundir krabbameins.. Þetta eru
ekki kenningar, hv. þm., heldur stað-
reyndir sannaðar með mannslífum.
Gleymum því ekki. Við hljótum að
spyija: Gæti þetta einnig gerst hér
eða er það öruggt að við séum öðruví-
si en aðrar þjóðir?
f skýrslu tryggingastofnunar
danska ríkisins fyrir 1980 kemur
fram að 52% þeirra karla sem eru
öryrkjar í Kaupmannahöfn eru það
eingöngu vegna drykkjuskapar.
Gæti það gerst hér eða erum við
örugg um að verða öðruvísi?
Afengisneysla kvenna hefur auk-
ist gífurlega og nú er svo komið
fyrir Dönum að áfengisneysla móður
á meðgöngutíma er orðin jafnalgeng
orsök fávitaháttar eða algengari en
mongólismi hefur nokkurn tíma ver-
ið. Gæti það gerst hér eða erum við
öðruvísi?
Danir eru sú þjóð sem hefur hvað
flest sjúkrarúm. á hveija þúsund
íbúa, en í meira en helmingi sjúkra-
rúma í Kaupmannahöfn er fólk með
mein vegna áfengisneyslu. Ég end-
urtek: Meira en helmingur sjúkra-
rúma í Danmörku fer undir
alkóhóltengda sjúkdóma. Gæti það
gerst hér eða erum við kannski
örðuvísi en Danir?
Við getum svo sannarlega margt
lært af Dönum og staðreyndum
þeirra um öldrykkju. í Danmörku
er öldrykkja ekki aðeins vandamál
á flölda vinnustaða. Ofneysla bjórs
er algeng meðal bama þar í landi
og ofdrykkja skólabarna stórfellt
vandamál. Við rannsókn sem dansk-
ir geðlæknar stóðu fyrir kom í Ijós
að ölkær skólaböm 14 ára drekka
nú meira en nokkru sinni fyrr. Sér-
fræðingar þessir gera af þessum
ástæðum ráð fyrir að 10% úr hveij-
um aldursflokki muni verða fyrir
alvarlegum heilaskemmdum af þess-
ari ölneyslu. Tíundi hver unglingur
í þessum aldursflokki mun verða
fyrir alvarlegum heilaskemmdum af
þessari ölneyslu.
Það er augljós staðreynd að
áfengt öl bætir ekki drykkjusiði
þessa eyðilagða unga fólks. Hvað
íslensku æskufólki viðkemur spyr
ég: Er öruggt að það sé öðruvísi en
danskir unglingar? Er áfenga ölið
áhættunnar virði? Er ósanngjamt
að óska eftir því að þau okkar sem
í ölið langar greiði atkvæði gegn
löngun sinni ef það mætti verða til
þess að einhver hluti íslenskrar æsku
hljóti ekki þessi voðaörlög og ástvin-
ir komist hjá þeirri þjáningu, kvöl
og sorg sem fylgir?
En við skulum skoða staðreyndir
víðar en frá Danmörku.Á ýmsum
vinnustöðum í Þýskalandi fær það
fólk hærri laun sem ekki drekkur
öl yfír vinnudaginn. Þannig reyna
Þjóðveijar að veijast því sem við enn
erum laus við. Háskólinn I Hamborg
lét í sjö ár rannsaka áfangismagn i
blóði manna sem lentu í vinnuslysum
þar. Af þeim voru 85% með 1,5%
eða meira af áfengi í blóðinu. Gæti
þetta gerst hér eða emm við örugg-
lega öðruvísi en þetta fólk?
Árið 1985 birtu þrír franskir
vísindamenn grein um rannsókn sína
á áfengisneyslu og skorpulifur. Sú
niðurstaða af rannsókn þeirra sem
kom hvað mest á óvart er að öl-
drykkjumenn virðast í meiri hættu
að fá þennan banvæna sjúkdóm en
þeir sem neyta víns og sterkra
drykkja. Erum við örugg að íslend-
ingar séu öðruvísi, að þetta geti
ekki einnig gerst hér?
í Belgíu eru 95% allra drykkju-
Morgunblaðið/Þorkell
Birgir Dýrfjörð
sjúklinga öldrykkjumenn, þ.e. menn
sem drekka helst ekki aðra áfenga
drykki en öl, og 66% í Bretlandi.
Það er nefnilega þannig að það er
uppi sú kenning og búin að vera
lengi að alkóhólismi, áfengissýki,
komi af því að menn drekki sig ofur-
ölvi. Gömlu góðu heiðarlegu íslensku
fylliríin séu svo hættuleg. En stað-
reyndin er sú að það er sídrykkjan,
það er litli daglegi skammturinn sem
er langsamlega varasamastur og
hættulegastur. Þess vegna eru nið-
urstöður Belgíumanna að 95% af
ofdrykkjumönnum þar eru öl-
drykkjumenn. Sama er í Bretlandi.
Þessar staðreyndir frá Belgíu og
Bretlandi eru alvarleg viðvþrun til
okkar. Og ég spyr. Er áfenga ölið
áhættunnar virði? Sala milliöls, sama
öls og við erum að fjalla um hér,
var leyfð í Svíþjóð 1965. Þeir sem
fyrir því börðust þar trúðu því, eins
og hv. flm. þessa frv. hér, að áfengt
öl drægi úr neyslu sterkra drykkja
og breytti drykkjusiðum til batnað-
ar. Reynslan varð þveröfug. Ungl-
inga- og barnadrykkja jókst
gífurlega og sænska þingið bannaði
framleiðslu og sölu milliöls af illri
reynslu. Getum við treyst því að fs-
lendingar séu öðruvísi en Svíar? Ef
ekki, er áfenga ölið þá áhættunnar
virði? Hefur nokkur íslenskur þm.
burði til að axla þá ábyrgð að loka
augunum fyrir þessum staðreyndum
— ekki kenningum, staðreyndum?
Vísindamenn við Karólínsku
stofnunina í Svíþjóð hafa rannsakað
afleiðingar sem ég vil kalla árangur
af milliölsbanni Svía. Drykkja bama
og unglinga i 6.-9. bekk grunn-
skóla minnkaði um 20—39%. Er
okkur ekki skylt að hafa þessa stað-
reynd í huga?
Færeyingar leyfðu sölu áfengs öls
1980 á tveim stöðum í Færeyjum.
Þeirra reynsla var söm og annarra.
Áfengisneysla jókst gífurlega.
Finnar leyfðu 1968 sölu á áfengu
öli, sams konar og við erum að fjalla
um hér. Á sex árum jókst áfengis-
neysla þeirra um 146% á öli og
sterkum dryklqum. Gæti það gerst
hér? Gæti það gerst hér með sam-
þykkt þessa frv.?
Þeim sem börðust fyrir sölu
áfengs öls í Finnlandi gekk það sama.
til og flm. okkar frv., þ.e. að draga
úr hinni miklu neyslu sterkra
drykkja og breyta drykkjusiðum
þjóðarinnar til batnaðar. Uppskeran
varð harmleikur heillar þjóðar. Emm
við öðmvísi en Finnar? Er það ör-
uggt? Er okkur' ekki skylt að hafa
þessa staðreynd í huga þegar við
greiðum atkvæði?
f Noregi er reynslan sú sama og
þaðan höfum við þær skelfílegu stað-
reyndatölur að fjórði hver táningui
sem neytir öls leiðist yfír í neyslu á
harðari vímuefnum, svo sem hassi.
Og I öllum þessum löndum er það
reynsla að það er ölviman sem opnar
öðmm efnum leíð, svo sem hassi,
kók, spitti og hvað það nú er. Yrði
það ömgglega öðmvísi hér? Hvaða
ábyrgð emm við að axla?
Herra forseti. Okkur fínnst
áfenga ölið ekki áhættunnar virði,
okkur sem þomm ekki að horfa fram
hjá staðreyndum um reynslu þeirra
þjóða sem reynt hafa að breyta
drykkjusiðum til batnaðar með sölu
áfengs öls, okkur er ákaflega oft
borin á brýn forræðishyggja. Alþingi
er löggjafarsamkunda og lög em
forræði. Og ég spyr: Hvenær tapar
einstaklingurinn tfðast forræði sínu
samkvæmt lögum hins háa Alþingis? "
Það er þegar hann neytir þess efnis
sem hér er um fjallað, áfengis.
Ýmsar daglegar athafnir verða sak-
næmar, eiðar hans, vitnisburður og
samningar ógildir.
Ég vék að því í upphafi að ég
styð af heilum hug þann tilgang flm.
frv. að draga úr hinni miklu neyslu
sterkra drykkja og breyta diykkju-
siðum þjóðarinnar tíl batnaðar. Ég
vék einnig að því að þar sem við
hefðum ekki reynslu af sölu á áfengu
öli yrðum við að kynna okkur stað- ,
reyndir um reynslu annarra þjóða,
þeirra þjóða sem hafa aðhyllst þau
rök sem flm. þessa frv. leggja til
gmndvallar fyrir að leyfa sölu
áfengs öls. Eftir að hafa kynnt mér
þær staðreyndir varðar engu hvort
mig langar í bjór eða ekki. Ég rís
ekki undir þeirri ábyrgð að gera tíl-
raun með það að við íslendingar
séum svo mikið öðmvisi en aðrar
þjóðir að við losnum við þær hör-
mungar sem yfír þær hafa gengið
vegna aukins aðgengis að áfengu
öli vegna samþykktar sambærilegs
frv. við það sem hér liggur frammi,
lagt fram í góðri meiningu svo sann-
arlega.
Herra forseti. Þó tilgangurinn sé
talinn góður get ég ekkí greitt þessu
frv. atkvæði mitt. Mér finnst svo
yfírgnæfandi líkur að það fari fyrir
okkur íslendingum á sama veg og
hjá þeim þjóðum sem reynt hafa
bjórinn. Ég þori ekki að treysta því
að við séum öðmvísi en þær og legg
því til að frv. verði felit,
Upphitaður grasvöll-
ur í Borgarnesi
Borgarnesi.
BORGARNESBÆR hefur samið
við Völl hf., sem er nýtt verktaka-
fyrirtæki i Borgamesi, um gerð
tveggja íþróttavalla í fjörunni við
íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
Samningurinn hljóðar upp á tæpar
nítján milljónir sem greiðast með
skuldabréfi til sex ára.
Að sögn Bjama Johansen, bæjar-
tæknifræðings Borgamesbæjar, er
þama um 100 þúsund rúmmetra
verk að ræða. Gerður verður um 400
metra langur og 8 metra breiður
gijótgarður eftir fjömnni í vestur frá
íþróttamiðstöðinni að svokölluðum
„Settutanga". Innan þessa gijót-
garðs verður síðan fyllt upp með
sandi og möl. Annar völlurinn verður
grasyöllur en hinn verður malarvöll-
ur. í grasvöllinn verða lagðar hita-
lagnir og hann hitaður upp með
afrennsli frá Gmnnskóla Borgamess
og íþróttamiðstöðinni. Á þessu svæði
sem þama verður byggt upp verður
einnig gert ráð fyrir að rúmist fleiri
vellir og útisundlaug. Fyrirtækið
Völlur hf. á að skila þessu verki fyr-
ir 1. júlí á þessu ári. Sagði Bjami
Johansen að frágangur hitalagna,
grasþökulagning og gerð áhorfenda-
svæðis, væri fyrir utan þennan
samning við Völl hf. Ennfremur
sagði Bjami að gera mætti ráð fyrir
því að gamli íþróttavöllurinn i „Neðri
Sandvík" yrði lagður niður og það
svæði þá tekið til annarra nota. Sagði
Bjami að þegar uppbyggingu þess-
ara íþróttamannvirkja væri lokið
Verktakafyrirtækið Völlur hf. í
Borgaraesi byijar framkvæmdir
í fjörunni við fþróttamiðstöðina,
en þar eiga að koma tveir útivell-
ir næsta sumar.
Frá undirskrift samnings um
íþróttavallargerð i Borgaraesi,
talið frá vinstri: Eyjólfur Torfi
forseti bæjarstjórnar, Guðmund-
ur Ingi Waage framkvæmda-
sljóri VaUar hf., Óii Jón
Gunnarsson bajarstjóri og
Bjarni Johansen bæjartækni-.
fræðingur.
væri komin góð aðstaða til að halda
landsmót eða stór íþróttamót í Borg-
amesi.
- TKÞ