Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 38

Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 Canon Ijósritunarvélar Hentugar vélarfyrir minni fyrirtæki, deildir stærri fyrirtækja o.fl. Ljósritar í fjórum litum báðum megin á allan pappír og glærur. Mjög skörp og góð Ijósrit. Viðhaldsfríar vélar. o> VerA aðeins: FC-3 36.900- stgr. FC-5 39.990- stgr. I<rifvélin hf Suðurlandsbraut 12, s: 685277 RÆÐUMENNSKA OG MANNLEG SAMSKIPTI Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.30 á Sogavegi 69. Allir velkomnir. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust. ★ Láta í Ijósi skodanir þínar af meiri sannfæring- arkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Talið er að 85% af velgengni þinni séu kom- in undir því hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri iífskrafti - heima og á vinnustað. ★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 STJÖRI\IUI\IARSKOLIIVI\l c/o Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin* Bryndís Pálma- dóttir - Minning Fædd 1. marz 1897 Dáin 4. janúar 1988 Í dag verður gerð frá Fossvogs- kirkju útför Bryndísar Pálmadóttur, sem andaðist á 91. aldursári í Hjúkrunarheimilinu í Kumbaravogi. Hún var ekkja Steindórs heitins Gunnlaugssonar lögfræðings frá Kiðjabergi, sem var þekktur borg- ari í Reykjavík og andaðist 17. marz 1971. Frú Bryndís var glæsi- leg kona, sem búin var miklum mannkostum. Hún hét fullu nafni Sigríður Bryndís og var fædd á prestssetrinu að Höfða á Höfðaströnd í Skaga- fírði, og voru foreldrar hennar séra Pálmi Þóroddsson og kona hans, Anna Hólmfn'ður Jónsdóttir. Séra Pálmi var fæddur 9. nóvember 1862 að Hvassahraunskoti í Hraunum, dáinn 2. júlí 1955. Foreldrar hans voru Þóroddur Magnússon frá Ey- vindarstöðum á Álftanesi, sem síðar var bóndi í Kothúsum og Skeggja- stöðum í Garði, og kona hans, Anna Guðbrandsdóttir bónda í Kothúsum Þórðarsonar. Ungur að árum þótti séra Pálmi bera af öðrum ungum drengjum sökum góðra hæfíleika. Fyrir atbeina góðra manna var hon- um veittur ríflegur styrkur úr Thorkilli-sjóði, en sá sjóður hafði þann tilgang að veita fátækum og efnilegum piltum styrk til æðra náms. Þessi styrkur gerði Pálma hinum unga kleift að ganga í Lærða skólann og síðan Prestaskólann, og lauk hann prófum úr báðum skólum með lofsamlegum vitnisburði. Hann lauk prófí í guðfræði 21. ágúst 1885, þá 23 ára að aldri. Hann gerðist prestur að Felli í Sléttuhlíð í Skágafírði 1. september 1885 og hlaut vígslu 6. s.m. Síðan varð hann prestur að Höfða 1891 vegna sam- einingar prestakalla og loks varð hann prestur 1908 á Hofsósi og gegndi því embætti til 1. júní 1934, er hann fékk lausn frá embætti. Þá hafði hann verið í prestsþjón- ustu 49 ár. Hann átti sæti í sýslu- nefnd 1900—1928, og fleiri trúnaðarstörf hafði hann á hendi, þótt eigi verði rakin hér. Séra Pálmi var glæsimenni, vel á sig kominn á velli, hár og beinvaxinn, og fríður sýnum og svipgóður. Hann þótti góður ræðumaður og inna prests- verk öll af hendi með sóma. Þess skal getið, að séra Pálmi átti eina systur, Ingibjörgu, sem var gift Lofti Jónssyni bónda á Mýrum í Sléttuhlíð. Meðal barna þessara hjóna voru Jón Loftsson stórkaup- maður í Reykjavík og Pálmi Lofts- son forstjóri Skipaútgerðar ríkisins. Móðir Bryndísar og kona séra Pálma var Anna Hólmfríður, dóttir séra Jóns prófasts Hallssonar í Glaumbæ í Skagafírði og Valgerðar Sveinsdóttur. Hún ólst upp á heim- ili föður síns og Jóhönnu Halls- dóttur konu hans með 10 systkinum sínum þar, sem upp komust og eru eftirtalin: Sigurður á Reynisstað, Stefán verzlunarstjóri á Sauðár- króki, Ingveldur átti Stefán stúdent Einarsson í Krossanesi, Jóhanna Lovísa kona Einars B. Guðmunds- sonar alþm. á Hraunum, Sesselja kona séra Isleifs Einarssonar á Stað í Steingrímsfírði, Þorbjörg óg., Sigríður óg., Björg átti Sigurð Pét- ursson á Hofsstöðum, Stefanía óg., María átti Einar stúdent og bók- haldara Stefánsson. Allt var þetta myndarfólk og góðum hæfíleikum gætt. Séra Jón Hallsson var talinn ríkismaður og héraðshöfðingi, enda glæsilegur hæfíleikamaður. Af þessari stuttu frásögn af föð- ur- og móðurætt Bryndísar Pálma- dóttur, sem nú er kvödd hinztu kveðju, er augljóst að hún hefir átt til gagnmerks hæfíleikafólks og höfðingja að telja, enda var svipmót og öli framkoma hennar og þeirra systkina af því mörkuð. Á heimili foreldra sinna ólst Bryndís upp í stórum systkinahópi, en þau séra Pálmi og frú Anna eign- uðust alls 11 böm, sem upp komust, og skulu þau öll talin hér upp í ald- ursröð: Þorbjörg átti Jóhann Möller verzlunarstjóra á Sauðárkróki, Björg Lovísa átti Guðmund Svein- bjömsson ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu, Jón Sigurð- ur bóndi á Þingeyrum átti Huldu Á. Stefánsdóttur húsmæðraskóla- stjóra, Jóhann Marinó verzlunar- maður ókv., Þóranna átti Pétur Pétursson kaupmann á Akureyri, Friðrika Hallfríður átti Vilhelm Er- lendsson kaupmann á Hofsósi, Stefán bústjóri á Korpúlfsstöðum ókv., Jóhanna Lovísa átti Jón H. ísleifsson verkfræðing í Reykjavík, Sigrún átti Jón Sigurðsson óðals- bónda og alþm. á Reynistað, Sigríð- ur Bryndís, sem hér er minnzt, átti Steindór Gunnlaugsson lögfræðing, og Þórður kaupfélagsstjóri síðast í Borgamesi átti Geirlaugu Jóns- dóttur frá Bæ á Höfðaströnd. Hann er nú einn á lífí þeirra systkina. Geta má nærri, að erfitt hefír verið flárhagslega að sjá þessum stóra bamahópi farborða af prests- launum, sem voru lág á þessum árum. En þau séra Pálmi og frú Anna voru hagsýn og dugleg við búskap, meðan þau höfðu jarð- næði, og auk þess var séra Pálmi vanur sjósókn af Suðumesjum og gat því að nokkru leyti stuðzt við sjávarafla. En öll þessi böm kom- ust vel til manns og voru einstak- lega vel af Guði gerð, vel gefín, fjölhæf og dugleg, auk þess sem þau vom rómuð fyrir fríðleik og glæsimennsku. Þau hlutu öll góða skólamenntun, eftir því sem þá tíðkaðist. Þann 24. maí 1918 giftist Bryndís Steindóri Gunnlaugssyni lögfræðingi í Reykjavík, miklum ágætismanni. Foreldrar hans vom Gunnlaugur Jón Halldór hreppstjóri og dbrm. á Kiðjabergi, Þorsteins- sonar sýslumanns og kanselliráðs á Kiðjabergi, Jónssonar administrat- ors á Stóra-Ármóti í Flóa, Jónsson- ar sýslumanns á Móeiðarhvoli. Móðir Steindórs og kona Gunnlaugs á Kiðjabergi var Soffía Skúladóttir prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð Gíslasonar. Þau Bryndis og Steindór eignuð- ust tvö böm, sem em: Anna Soffía, sem átti Pál Sigurðsson yfírverk- fræðing og rafmagnseftirlitsstjóra, sem andaðist fyrir aldur fram 16. desember 1966; þeirra böm em: Sigurður matvæla- og lyfjafræðing- ur og Gunnlaugur Þór kvikmynda- gerðarmaður. Gunnlaugur Pálmi forstjóri Dynjanda sf., Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Haraldsdóttur, og em synir þeirra: Steindór verzl- unarmaður, kvæntur Hrefnu Njáls- dóttur, og eiga þau eina dóttur, að nafni Bryndís Dögg, og Haraldur Páll nemandi. Heimili Bryndísar og Steindórs var alla tíð í Reykjavík. Það var annálað fyrir myndarskap og mikla gestrisni. Þangað vom ættingjar og aðrir vinir hjónanna ætíð vel- komnir og þeim vel fagnað með rausnarlegum veitingum og sér- stakri alúð húsbændanna. Á jóium og öðmm hátíðum buðu þau jafnan til sín ættingjum og venzlafólki og var þar jafnan gott að vera. Vegna tengsla minna við Bryndísi, þar sem kona mín var systurdóttir hennar, naut ég með henni, móður hennar og systur oft gestrisni á þessu góða heimili, og hefí ég hugljúfar minn- ingar frá þeim tíma. Mér er einnig kunnugt um, að á heimili Bryndísar og Steindórs dvöldu ættingjar þeirra beggja oft lengri og skemmri tíma. Þau hjón vom um þetta og annað einkar samhent, og var hjónaband þeirra með ágætum. Bryndís var fríð kona sýnum, myndarleg og vel á sig komin á allan hátt. Hún var mikil húsmóðir og góð móðir bömum sínum. Hún var góðum gáfum gædd, listfeng, og léku hannyrðir og hússtjóm í höndum hennar. Hún var alla tíð glaðleg og ljúf í viðmóti og ein- kenndist mjög af þeirri framkomu að vilja sýna öðm fólki góðleik og láta gott af sér leiða. Af þessum mannkostum Bryndís- ar leiddi, að hún var hvers manns hugljúfi og öllum, sem kynntust henni, þótti vænt um hana. Minn- ingin um þessa mætu konu mun lifa í hugum og hjörtum okkar, sem þekktum hana. Bömum hennar, bamabömum og tengdadóttur sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Jóhann Salberg Guðmundsson Þegar frú Bryndís Pálmadóttir hefur gengið til hinstu hvílu, á tíræðisaldri, fer ekki hjá því að margs sé að minnast. Hún var ekkja Steindórs Gunnlaugssonar, lög- fræðings, sem var eitt af svokölluð- um Kiðjabergssystkinum, og var hún seinust bama og tengdabama þeirra hjóna, Soffíu og Gunnlaugs Þorsteinssonar, sem yfírgefur þenn- an heim. Milli þessa fólks vom ávallt mjög sterk ijölskyldutengsl, og skar Bryndís sig síður en svo úr í þeim efnum. Vom miklir kærleikar með henni og ömmu minni, Soffíu Skúladóttur, ég tala nú ekki um milli hennar og móður minnar Guð- rúnar Gunnlaugsdóttur. Á seinni ámm leið varla svo dagur, að þær töluðu ekki saman meðan báðar lifðu. Vinátta Bryndísar var ávallt fölskvalaus og einlæg og minnist ég nú sérstaklega jólaboða þeirra hjóna, sem vom heilt ævintýri. Auk mikilla góðgerða var margt sér til gamans gert, spilað á spil eða farið í leiki. Bryndís kunni marga jóla- leiki og dansa, sem húri kenndi okkur, svo sem „að vefa vaðmál" og margt, margt fleira. Nú virðast þessir jólaleikir að mestu fallnir í gleymsku og er það miður, því að þetta var græskulaust fjöískyldu- gaman. Steindór, eiginmaður hennar, var alla tíð mikill hestamaður og átti ávallt afbragðs hesta. Þau hjón vom glæsimenni að vallarsýn, og var til þess tekið í Skagafírði, þeg- ar Steindór var þar settur sýslu- maður á árunum 1918—19, hve sýslumannsfrúin sat vel hest í söðli, og kölluðu Skagfírðingar þó ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Bryndís var mjög listræn í eðli sínu, gerði fallega heimilismuni Og var sérstaklega myndarleg húsmóð- ir. Þar var allt í röð og reglu og lék allt í höndum hennar. Þar var ávallt gestkvæmt og öllum tekið af stakri alúð og rausnarskap. Voru þau hjón mjög samhent í þeim efn- um. Að leiðarlokum er bömum henn- ar, Önnu Soffíu og Gunnlaugi Pálma, og fjölskyldum þeirra vottuð samúð, en lengst og best mun vara minningin um góða og göfuga konu. Gunnlaugur B. Briem ^BROWNING veggjatennisvörur Bikarínn Skólavörðustíg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.