Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
41
ÞINGBRÉF
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Ungn fólki, 16-25
ára, sem ekki hef-
ur lögfformlega
undanþágu, er
skylt að leggja til hliðar 15%
af launum sínum, í því skyni
að mynda sér sjóð til íbúða-
kaupa eða -bygginga. Féð
er ávaxtað hjá Innlánsdeild
Byggingarsjóðs ríkisins.
I dag er tæplega tveggja
milljarða króna (1.900 rn.kr.)
skyldusparnaður — inni-
stæða ungs fólks — hjá
sjóðnum. Þessir ungu lög-
skylduðu sparendur sæta
3,5% vöxtum. Á sama tima
býður ríkissjóður 8,5% raun-
vexti af ríkisskuldabréfum.
Miðað við inneign þeirra er
vaxtamunur (vaxtatap) um
95 m.kr. á ári. En „ég mun
beita mér fyrir hækkun
vaxta á skyldusparnað,“
sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir, félagsmálaráðherra, á
Alþingi fyrir áramótin.
I
Enginn vafí er á því að skyldu-
spamaður ungs fólks hefur í
Úölmörgum tilfellum gert gæfu-
muninn í frumraun þess í
húsnæðismálum. Löggjafínn
hefur og greitt spamaðargötu
þess að nokkm leyti. Fé það, sem
lagt er til hliðar með þessum
hætti, hefur verið undanþegið
tekjuskatti og útsvari. Sem eign
hefiir það verið, að vöxtum með-
töldum, skattfrjálst en framtals-
skylt.
Þetta Iögskyldaða spamaðar-
form hefúr á hinn bóginn sætt
annarri og mun lakari ávöxtun
en ríkið býður öðmm sparend-
um, samanber það sem sagt er
í upphafí þessa pistils. Lágir
vextir á skylduspamað hafa ver-
ið réttlættir með framangreindu
skattfrelsi.
II
Hinsvegar gerir staðgreiðslu-
kerfí skatta, sem út af fyrir sig
er stórt framfaraskref, ekki ráð
Ungir sjómenn frá Grindavík fylkja liði við Alþingishúsið í sjómannadeilu í janúarmánuði á síðast-
liðnu ári.
SKYLDUSPARNAÐUR
OG VEXTIR
Færri undanþágur — Lægri sparnaðarprósenta
fyrir því að ungt fólk njóti áfram
þessara skattfríðinda. Þess-
vegna var fyrirspum Finns
Ingólfssonar (F/Rvk) tímabær,
sem hann bar fram við Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra, „hvort hún hyggist beita
sér fyrir hækkun vaxta á skyldu-
spamað til íbúðabygginga þegar
staðgreiðslukerfí skatta kemur
til framkvæmda um næstu ára-
mót“ (nú næstliðin áramót).
III
í svari ráðherra kom fram að
ipnstreymi og útstreymi skyldu-
spamaðar hafí nánast jafnast
út á næstliðnum árum, þann
veg, að skylduspamaðurinn hafí
ekki styrkt ij árhagsgrundvöll
Byggingarsjóðs ríkisins að ráði
síðustu árin.
Starfshópur, sem ráðherra
skipaði til að skoða ákveðin at-
riði varðandi skylduspamað,
leggur og til, að undanþágum
frá skylduspamaði verði fækk-
að. „Tillaga hópsins er sú að
einungis verði gerð undanþága
til greiðslu skyldusparnaðar: 1)
vegpia íbúðakaupa, 2) ef um er
að ræða einstæða foreldra sem
njóta mæðra- eða feðralauna hjá
Tryggingastofnun, 3) vegna
andláts. Jafnframt yrði skyldu-
spamaðarprósentan ákveðin
8%“ í stað 15%.
IV
Ráðherra sagði og að þegar
skattahagræðing vegna skyldu-
spamaðar væri úr sögunni
stæðu eftir 3,5% vextir, auk
verðtryggingar. Orðrétt sagði
ráðherra um ávöxtun skyldu-
spamaðar:
„Fyrstu níu mánuði yfirstand-
andi árs (1987) hefur skyldu-
spamaðarreikningur með 3,5%
vöxtum gefíð 23,5% ávöxtun.
Verðtryggður bundinn reikingur
í sex mánuði með 7% vöxtum
hefði gefíð 27,2% heildarávöxt-
un á sama tímabili...
Þar sem bundið er í lögum
um Húsnæðisstofnun að vextir
af innlánum á skylduspamaðar-
reikningi skuli vera þeir sömu
og gilda á hveijum tíma um lán
úr Byggingarsjóði ríkisins þarf
lagabreytingu ef breyta á vöxt-
um um nk. áramót.
Þar sem stefnt er að því að
gera breytingar á fleiri atriðum
skylduspamaðar en einungis
vaxtaprósentunni, eins og fram
hefur komið í mínu máli, og enn
hefur ekki unnist tími til þess
að taka afstöðu til ýmissa til-
lagna í því sambandi, m.a. að
leita samráðs við stjómarflokk-
ana í því efni, þá tel ég ekki
rétt að taka vaxtaprósentuna
eina og sér út. úr og leggja nú
frumvarp fram til breytinga á
henni. Þess í stað steftii ég að
því að leggja fram fmmvarp til
breytinga á skylduspamaðark-
afla húsnæðislaganna fljótlega
eftir áramótin. Þeirri fyrirspum,
sem hér liggur fyrir um hækkun
vaxta og skylduspamaðar, svara
ég því játandi. Ég mun beita
mér fyrir hækkun vaxta á
skylduspamaðinum. Jafnframt
tel ég rétt að stefna að því að
fækka undanþágum í skyldu-
spamaði og lækka skylduspam-
aðarprósentuna sem og að
tryggja skilvísari innheitu
skylduspamaðar, en með til-
komu staðgreiðslukerfís skatta
opnast nýir möguleikar til virk-
ara eftirlits í samvinnu við
skattyfírvöld."
5 ÓSKAH
IANDI OG Wrtl)
GðÐS OG GRrtDUKSÆLS ÁRS
Dagatal Verzlunarbankans.
Tré og skógar á daga-
tali Verzltmarbajikans
STJÓRNUN STARFSMANNAFRÆÐSLU 25./.
INNRfWNTIL
22.JAN.
SÍMI:
621066
STARFSMANNAFRÆÐSLA ER EINN
MIKILVÆGASTI ÞÁTTUR REKSTRAR-
INS OG ÞARF AÐ SKILA HÁMARKS
ÁRANGRI EKKI SÍÐUR EN AÐRIR.
Þess vegna þarf hún að lúta öruggri stjórn.
Aðferðina lærirðu hér.
LEIÐBEINANDI: Randall Fleckenstein M.A. Ed.s.
TlMI OG STAÐUR: 25. og 26. jan. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
DAGATAL Verzlunarbankans er
í ár tileinkað trjám og skógum
landsins. Hverjum mánuði fylgir
ljósmynd af tijátegund sem vex
hérlendis, nákvæm teikning af
grein viðkomandi trés og lýsing
á tegundinni. Myndir og lýsingar
eru gerðar með það í huga að
menn geti lært af þeim að þekkja
trjátegundir í umhverfi sínu.
Hákon Bjarnason fyrrverandi
skógræktarstjóri hefur samið
tegundarlýsingamar en flestar
Ijósmyndimar em eftir Sigurð
. Blöndal skógræktarstjóra. Da-
gatalið er gefið út í 20 þúsund
eintökum.
í fréttatilkynningu segir að auk-
inn áhugi á náttúmvemd hafi hafi
opnað augu manna fyrir mikilvægi
þess að rækta tré og skóga, til að
græða land og prýða - og einnig
til beinna nytja. Verslunarbankinn
vilji leggja sitt af mörkum til að
stuðla að auknum áhuga á náttú-
mnni og að sá áhugi nái að festa
þær rætur í þjóðlífínu að unnt verði
að greiða skuld okkar við landið
og klæða það aftur þeim búningi
sem við höfum svipt það.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Símanámskeið 18.-20. jan.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
Stjórnunarfélag Islands
—- ■ ■ l Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 I T.