Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
43
Otrúlegt en satt
________Bækur_______________
Ævar R. Kvaran
Nigel Blundell & Roger Boar:
Draugar, svipir og dularfull fyr-
irbrigði. Þýðandi: Björn Jónsson.
Útg. Frjálst framtak, Rvk.
Svo ótrúleg eru þau fyrirbæri,
sem sagt er frá í þessari bók, að
hún hefði þess vegna getað haft
að titli fyrirsögn þessarar greinar.
Sá sem þetta hripar kannast við
ýmis þeirra furðulegu fyrirbæra,
sem getið er um í bókinni, en ýms-
ir lesenda mundu kalla sumt af því
yfímáttúruleg fyrirbæri. En það er
sitt af hverju, sem ekki virðist hægt
að skýra, en á sér stað engu að
síður. Hér segir frá mögnuðum
draugagangi bæði til sjós og lands,
undrum og ógnum. Höfundum, sem
leituðu víða fanga um efnisöflun,
kom á óvart hve margt fólk hefur
orðið fyrir reynslu, sem erfitt reyn-
ist að útskýra með nokkrum sanni.
Ég hygg að höfundarnir Blundell
og Boar séu enskir og hafa því
vafalaust fært sér í nyt skýrslur
Breska sálarrannsóknarfélagsins,
sem var stofnað 1682 og hefur alla
tíð verið stjómað af mikilsvirtum
mönnum, oft hálærðum vísinda-
mönnum, og hefur gegnum árin
safnað feiknamagni af frásögnum,
sem rannsakaðar hafa verið af
vönduðustu rannsóknarmönnum
sem til þess fengust á hveijum tíma.
Það er vafalaust skýringin á því,
að sá sem þetta hripar kannast við
sitt af hverju um efni þessarar bók-
ar, því hann hefur margt rannsakað
úr skýrslum þessarar frægu bresku
stofnunar. Þessari bók er skipt í
marga kafla og gefa fyrirsagnir
þeirra góðar upplýsingar um það
efni, sem hér er fjallað um eða sagt
frá. Þessi bók er ekki skrifuð af
rannsóknarmönnum sálvísinda og
því ekki í henni að fínna neinar
skýringar á fyrirbærunum. Hins
vegar er bókin prýdd fjölda góðra
ljósmynda, sem gefa henni mikið
gildi. Þótt undirrituðum þyki sú lé-
legust, sem valin hefur verið
framaná bókina og er af leikaranum
Vincent Price í ótrúlega viðvanings-
legu gerfí úr einhverri hryllings-
myndinni, sem hann hefur svo
miklar mætur á að leika í. Hvað
sem því líður er bókin mjög spenn-
andi aflestrar; þótt sumt kunni
jafnvel að vekja ótta meðal tauga-
veikra. En þótt ekki væri nema
sumt af því sem hér er sagt frá
satt, þá minnir það til dæmis á orð
þau sem Shakespeare leggur í munn
Hamlets, þegar hann er að tala við
vin sinn. Hamlet segir: „Það er
fleira á himni og jörðu, Horas, en
heimspekina þína dreymir um.“
Að lokum vil ég aðeins bæta því
við, að það er vandasamt að þýða
bækur um slíkt efni, en það hefur
Bjöm Jónsson leyst með sóma. Eins
og við var að búast í slíkri bók
koma hér fyrir tilfelli, sem á erlend-
um bókum eru kennd við þýska
orðið Poltergeist, sem ekki fer vel
á íslensku og ég hef þýtt með orð-
inu ærslandi, því polter á þýsku
táknar hávaða en geist þýðir andi.
Björn virðist mér sammála um
þetta, en þýðir orðið poltergeist
öðruvísi en ég, því hann kallar slíka
anda skarkára.
Morgunblaðið/Þorkell
Fjölmenm á átfabrennu-
Fáks á Víðivöllum
ÁLFAKÓNGUR og álfadrottning
ásamt Grýlu, Leppalúða, jólasvein-
um, álfum, tröllum og púkum voru
á ferð við álfabrennu á félagssvæði
Hestamannafélagsins Fáks á Víði-
völlum í Reykjavík á laugardaginn.
Mikill mannfjöldi safnaðist saman
á Víðivöllum og að sögn Fáksmanna
fylgdust yfír þúsund manns með
álfabrennunni. Um helmingur
þeirra kom við í Félagsheimili Fáks
og naut veitinga sem kvennadeild
félagsins bauð upp á.
MS -DOS I 25.1.
INNRITUN TIL
22.JAN.
SÍMI:
621066
INNRITUNTIL
22.JAN.
SÍMI:
621066
ÞU KYNNIST STYRIKERFI EINKATOLV-
UNNAR OG MÖGULEIKUM ÞESS.
Námskeiðið er gagniegt hverjum þeim sem notar einka-
tölvu og mikil þörfer á að a.m.k. einn starfsmaður á
hverjum vinnustað hafi þá þekkingu sem hér er boðin.
EFNI: Hlutverk stýrikerfa • Innbyggðar skipanir og
hjálparforrit • Notkun skipanaskráa • Pípur, síur og té
• Skráarkerfi MS-DOS og greinar þess • Stýriforrit fyrir
jaðartæki • Uppsetning nýrra forrita • Afritataka og daglegur rekstur.
LEIÐBEINANDI: Björn Guðmundsson, kerfisfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 25.-28. jan. kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
ORDSNILLD 25.1.
HÆTTA A STAFSETNINGARVILLUM
OG RITVILLUM HVERFUR NÁNAST
EF ÞÚ BEITIR ORÐSNILLD.
Orðsnilld (Word Perfect) inniheldur m.a. orðabók með
106.000 íslenskum orðum sem auka má við eftir þörfum
notenda. Allar valmyndir og skipanireru á íslensku.
EFNI: Skipanir kerfisins • Æfingar í notkun Orðsnilldar
• Möguleikar orðasafns • Helstu stýrikerfisskipanir
LEIÐBEINANDI: fíagna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari.
TlMI OG STAÐUR: 25.-28. jan. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA f: Multiplan 18.-21. jan. og Word 18.-21. jan._
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
Stjórnunarfélag ls[ands
TÖLVUSKÓLI
i Ánanaustum 15 Simi: 62 10 66 s
FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK
AÐALFUNDUR
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn miðviku-
daginn 13. janúar nk. kl. 21.00 í Átthagasal, Hótel Sögu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ræða: Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra.
3. Önnurmál.
Stjórnin.
flD PIOIVEER
Laugavegi 71 II hæó Simi 10770