Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
53
SKÍÐl / HEIMSBIKARKEPPNIN 1 GETRAUNIR
Reuter
Þrfr fyrstu í svigkeppni gærdagsins, frá vinstri: Alberto Tomba, Bemard
Gstrein og Jónas Nilsson.
Gstrein sigradi í
svigi í Austurríki
BERNARD Gstrein frá Aust-
urríki sigraði í svigkeppni
heimsbikarsins á skíðum í Linz
í heimalandi sínu í gœr. Þetta
var fyrsti sigur hans í keppn-
inni — en til þessa hafði Italinn
AlbertoTomba, „sprengjan"
svokallaða, sigrað á öllum
þremur svigmótum keppninnar
í vetur.
omba varð í öðru sæti og Svíinn
Jónas Nilsson þriðji. Tími
Gstrein var 1:35,14 mín., Tomba
var á 1:35,41 mín. og Nilsson á
1:35,48 mín.
Gstrein renndi sér fyrstur í gær og
eftir fyrri ferð var hann með besta
tímann — 1/100 úr sekúndu á und-
an Tomba. „Þegar ég heyrði hvaða
tíma Tomba var með vissi ég að
ég yrði að leggja mig allan fram
til að sigra hann,“ sagði Gstrein
sigri hrósandi, eftir keppnina. „Ég
keyrði bara eins og ég gat, tók
mikla áhættu og er ánægður með
að hafa unnið. Ég varð að vinna
hér í dag til að eiga möguleika á
því að verða valinn á ólympíuleik-
ana.“
Jónas Nilsson hafði níunda besta
tímann eftir fyrri ferðina í gær, en
keyrði mjög vel í þeirri síðari og
tryggði sér þriðja sætið.
„Garnla" sænska kempan Ingemar
Stenmark, sem nú er 31 árs að
aldri, sem sigrað hefur í 40 svigmót-
um heimsbikarkeppnnnar á 14 ára
ferli sínum, datt í neðri hluta braut-
arinnar í síðari ferð eftir að hafa
átt besta millitímann í ferðinni. Þá
má geta þess að Pirmin Zurbrigg-
en, handhafí heimsbikarsins, datt í
fyrri ferðinni — í einu af fyrstu
hliðum brautarinnar.
Tvöfaldur sprengipott-
ur í þessari leikviku
í 19. leikviku getrauna kom
enginn fram með 12 rétta enda
úrslit í ensku bikarkeppninni
mjög óvænt. 5 voru með 11
rétta og fékk hver þeirra
47.961 krónu.
yrsti vinningur gengur því
áfram í næsta vinningspott en
um helgina verður einnig svokölluð
sprengivika hjá getraunum. Hún
er fengin þannig að 2% af heildar-
sölu getrauna á tímabilinu verður
lagt við pottinn. Samtals bætast
því við 1.288.848,72 krónur við
vinningspott 20. leikviku. Má því
búast við mikilli sölu og risapotti á
laugardaginn eftir sölu vikunnar.
Mikil eftirspum hefur verið eftir
seðlum á skrifstofu getrauna og
margir sem ætla að stækka við sig.
Hópleikurinn
Tveir af vinningshöfunum fímm
voru 11 rétta. Það voru C12 og
P.St. Hér að neðan birtast efstu
hópamir af þeim sem verið hafa
með frá upphafi:
Stig
BIS..........................141
Ricki 2001 139
SÆ-2 138
Sörli 137
JHPH29 136
Kiddi Bj 136
Ágúst 135
GH Box258 135
TVB16 135
Portsmouth 134
GRM 134
HGA 134
Valli 133
Babú 133
EinarÓ 133
1X2 l ? Z g Tlmlnn c c I s* 1 o •o ■& 1 £ cc c CM S æ c ! • æ Sunday Mlrror Sunday People ■o ■c o £ ! ■s SAMTALS
1 2 4
Uverpool — Arsanal 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — — — 9 0 0
Luton — Derby 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — — — 9 0 0
Norwlch — Everton 2 2 X X 2 X 2 X 2 — — — 0 4 s
Portsmouth — Oxford X 1 1 1 1 1 1 1 X — — — 7 2 0
QPR-WestHam 1 1 2 1 1 1 1 X 1 — — — 7 1 1
Sheff. Wedn. — Chelsea X 1 1 X 1 X 1 1 X — — — 5 4 0
Tottenham — Coventry 1 1 1 1 1 i 1 1 1 — — — 9 0 0
Wimbledon — Watford 1 1 X 1 1 1 1 1 2 — — — 7 1 1
Aston Villa — Ipswlch 2 1 2 1 1 2 1 1 1 — — — 6 0 3
Blackburn — Hull 1 1 1 2 1 X 2 X 1 — — — B 2 2
Plymouth — Man. City 2 2 2 2 X 1 X 1 2 — — — 2 2 6
Swlndon — Bradford 1 1 1 1 X 1 X 2 1 - - - 6 2 1
Allar v°rur!.-í
eportvali verða a
Sp° útsðlu. ^..
5KS»
HÉR KOMA NOKKUR DÆMI:
Skíði - skór - bindingar - stafir
Úlpur-allargerðir
Skíðasamfestingar
íþróttagallar
Viðleguútbúnaður
Byssur og skotfæri
Golfvörur
Alliræfingaskór
Skautar
Veiðivörur
10% afsláttur
20% afsláttur
10% afsláttur
10-50% afsláttur
10% afsláttur
20% afsláttur
20% afsláttur
10% afsláttur
20% afsláttur
10% afsláttur
SENDUM í PÓSTKRÖFU
KRINGLAN, SÍMI 689520 - V/HLEMM, SÍMI 26690