Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUÐAGUR 13. JANÚAR 1988
55
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSBIKARKEPPNIN I SVIÞJOÐ
Slakur sóknarleikur kom í veg
fyrir sigur gegn A-Þjóðverjum
Varnarleikurinn mjög góðuren bæði lið léku undirgetu
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik byrjaði illa í sínum
fyrsta leik í heimsbikarkeppn-
inni. Liðið tapaði fyrir Austur-
Þjóðverjum með tveggja marka
mun í Katerineholm, sem þœtti
yfirleitt ekki slæmt. En það var
slæmt í gærkvöldi, því liðið átti
alla möguleika á sigri. Varnar-
leikurinn var mjög góður, Einar
Þorvarðarson var frábær í
markinu, en sóknarleikurinn
brást. Þar gerðu strákarnir
mistök á mistök ofan og fóru
ilia með dauðafæri. Austur-
Þjóðverjar voru óvenju daprir,
en gerðu færri mistök og
sluppu með skrekkinn á
síðustu sekúndunum.
Reyndar voru Austur-Þjóðverjar
með undirtökin allan leikinn
og náðu mest fímm marka forystu
um miðjan seinni hálfleik. En
íslenska liðið náði
sér á strik undir lok-
in og var í raun
óheppið að ná ekki
jafntefli.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
fráSviþjóð
Slakara ífyrri hálfleik
Fyrri hálfleikur var ótrúlega slakur
á báða bóga hvað sóknarleikinn
varðar. Guðmundur Gizðmundsson
skoraði fyrsta mark íslands eftir
12 mínútur, en þá höfðu Austur-
Þjóðveijar gert þijú. Sóknarleikur-
inn varð betri næstu mínútumar
og liðið náði að jafna, 4:4, þegar
níu mínútur voru til hálfleiks. Svo
virtist sem það væri að ná undirtök-
unum, en í stað þess að halda jöfnu
í hléi, var liðið tveimur mörkum
undir. Strákamir skoruðu aðeins
fimm mörk á 30 mínútum og slíkt
kann yfírleitt ekki góðri lukku að
stýra.
Köflótt eftir hlé
Seinni hálfleikur var hraðari, en
hvorugt liðið sýndi heilsteyptan leik.
Einbeitinguna vantaði lengst af í
sókn beggja liða, en stundum brá
fyrir skemmtilegum leikfléttum hjá
íslenska liðinu, en því miður gengu
þær ekki ávallt upp.
Um miðjan hálfleikinn blasti sigur
við Austur-Þjóðveijum, þeir vora
með fímm marka forskot og þegar
rúmar þijár mínútur vora til leiks-
loka var munurinn fjögur mörk,
17:13. Þá kom besti sóknarkafli
íslenska liðsins, strákamir nýttu
færin, hraðaupphlaupin gengu upp
og þeir söxuðu á forskotið. Þegar
45 sekúndur vora eftir var munur-
inn aðeins eitt mark og Þjóðveijar
hófu sókn. 28 sekúndur á klukk-
unni og dæmd leikleysa. En tæki-
færið rann út í sandinn, Atli missti
knöttinn í hendur mótheija, Winsel-
mann branaði upp og skoraði
örugglega.
Liðin
Vamarleikur íslenska liðsins var til
fyrirmyndar og Einár stóð fyrir sínu
í markinu. Guðmundur Guðmunds-
son, sem kosinn var besti maður
Morgunblaðii/Pressens Bild
Valdlmar Qrfmaaon svífur hér inn úr teignum og skorar eitt marka sinna
gegn Austur Þjóðvetjum í gærkvöldi.
íslands, lék vel í vöm og sókn og
einnig Þorgils Óttar, en sóknarleik-
ur annarra var ekki upp á það
besta. Þorbergur, sem hefur hvorki
æft né leikið með liðinu lengi, lék
nær allan leikinn, en náði sér ekki
á strik, Kristján, Alfreð og Atli
gerðu afdrifarík sóknarmistök.
Austur-Þjóðveijar sýndu heldur
ekki sínar bestu hliðar. Wieland
Schmith, sem virðist aðeins leika
með liðinu á stormótum, sýndi að
hann hefur engu gleymt og varði
mjög vel. Þá vora Winselmann og
Metzke góðir, en sá fyrmefndi var
kosinn besti maður liðsins og fékk
rafmagnsskrúQám eins og Guð-
mundur.
Svíamir Bladem og Johansson vora
alltof flautuglaðir, dæmdu óþarf-
lega oft skref og yfirleitt var ekki
um töf eða leikleysu að ræða, þegar
þeir dæmdu þannig.
ísland - A-Þýskaland
16 - 18
Heimsbikarkeppnin í Svíþjóð. Þriðju-
dagur 12. janúar 1988 í Katrineholm.
Gangnr leiksins: 0:3, 2:3, 4:4, 5:5,
5:7. 5:8, 6:10. 7:11, 9:14, 13:15, 13:17,
16:19, 16:18.
Mörk íslands: Kristján Arason 3, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Valdimar
Grimsson 3, Alfreð Gislason 2, Þorgils
óttar Mathiesen 2, Sigurður Gunnars-
son 2/2, Karl Þráinsson 1 og Atli
Hilmarsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 13.
Mörk A-Þyskalands: Holger Winsel-
mann 6, Rudiger Borchardt 4/3, Mikael
Furch 2, Ingolf Wiegert 2, Andreas
Neitzel 2, Stefan Hauch 1 og Olaf
Pleitz 1.
Varin skot: Schmith 8 og Hoffmann
1/1.
Brottrekstur*. ísland 4. min. og A-
Þýskaland 6. mín.
Áhorfendun 270.
Menn leiksins: Wincelmann, A-Þýska-
landi og Guðmundur Guðmundsson,
íslandi
Hvað sögðu þeir?
„Það sem gerðist var einfaldlega
að okkar lykilsóknarmenn náðu
sér ekki á strik, en hvers vegna
er þeirra að svara fyrir. Við gerð-
um mörg mistök, vítaköst fóra i
súginn og menn fóra Qla. með
dauðafæri á línu og úr homum.
Vömin var hins vegar í lagi og
Einar varði veL Austur-Þjóðver-
jamir voru heldur ekki góðir, en
gerðu færri mistök. Dómaramir
vora misjafnir, Bladem dæmdi
vel, en Johansson var slakur. Við
áttum skilið að jafna undir lokin,
en þegar brotið var á Geir gekk
klukkan og því máttum við ekki
við. En það vorum við sem töpuð-
um leiknum, en ekki dómaramir."
Þorgils Óttar Mathlesen
„Þetta fór eins og ég óttaðist —
að sóknarleikurinn gengi ekki upp
hjá okkur og sú varð á raunin.
Málið er að við verðum að fá
meiri samæfíngu — við höfum
ekki verið nógu lengi saman á
æfíngum og í leikjum. Árangur
byggist á samæfingu, við eram
engir sniilingar, en vonandi geng-
ur betur næst“
Kristján Arason
„Ég er mjög óhress með mína
frammistöðu. Við áttum góða
möguleika á sigri, sérstaklega þar
sem Wahl var ekki með, en við
fórum illa með gullið tækifæri.
Það gekk ekki upp hjá okkur að
spila með tvo Imumenn og ég fékk
bara ekki boltann á ferðinnnL Við
voram óöraggir í sókninni, en
vömin og markvarslan var góð.“
Alfreð Gislason
„Það er ekki hægt að ætlast til
að við eigum alltaf toppieiki. Við
spiluðum iUa og það er eðlilegt
miðað við það að við höfum ekki
æft saman. Mótheijamir gerðu
færri mistök og því fór sem fór,
en mótið er ekki búið.“
Elnar Þorvardarson
„Það var slæmt að tapa þessum
leik, einkum vegna þess að Wahl
var ekki með, en hann skorar
fímm til sex mörk í leik. Við skor-
uðum ekki nógu mörg mörk vegna
þess að samæfinguna vantar. Við
lékum ekki sem heiid í sókninni,
en það jákvæða er að vamarleik-
urinn var betri en hann hefur
verið lengi.“
Guðmundur Guðmundsson
„Sóknarleikur okkar var tilviljun-
arkenndur og langt því frá að
vera hnitmiðaður. Það gekk ekki
upp að leika með tvo á Iinunni,
en vandamálið er að samæfínguna
vantar. Vamarleikurinn var hins
vegar góður, við fengum aðeins á
okkur 18 mörk og þriðjung þeirra
eftir hraðaupphlaup. En við bæt-
um fyrir þetta og sigrum Júgó-
slava."
ISLAIMD-AUSTUR ÞYSKALAND
Einar Þorvarflarson
Guflmundur Hrafnkeisson
Þorgils öttar Mathiesen
Kristján Arason
Alfreð Gislason
Valdimar Grimsson
Sigurflur Gunnarsson
Karl Þráinsson
Guömundur Guflmundsson
Atli Hilmarsson
Þorbergur Aflalsteinsson
Jakob Sigurösson
Qeir Sveinsson
75%
66,6%
33,3%
Öruggt hjá V-Þjódverjum
V-Þjóðveijar unnu öraggan sig-
ur, 23:21, yfir Ungveijum í
Váxjö í gærkvöldi. Sigur þeirra var
aldrei í hættu. Þeir leiddu allan leik-
inn og vora yfír, 11:9, í leikhléi.
Styrkleiki v-þýska liðsins var að
allir leikmennimir skoraðu og þá
PaulTiedemann þjálfari Þjóðverja:
Bæði liðin geta betur
Leikmenn beggja liða voru
taugaóstyrkjr og gerðu þar
af leiðandi mörg mistök, einkum
í sókninni," sagði Tiedemann,
þjálfari Austur-Þjóðveija, eftir
leikinn í gærkvöldi. „Fyrsti leikur
í svona móti er oftast erfiðastur
og víst er að þessi lið geta leikið
mun betur. Við voram til dæmis
með fjögurra marka forystu þegar
um þijár mínútur vora eftir, en
fengum síðan á okkur þijú mörk
f röð og hefðum getað misst unn-
inn leik niður í jafntefli. Liðin
skoraðu ótrúlega fá mörk í fyrri
hálfleik, en þess ber að geta að
vamimar vora sterkar og mark-
verðimir góðir. Dómararnir gerðu
mörg mistök, flautuðu of mikið,
en hvorugt liðið hagnaðist á
þeim,“ sagði Tiedemann.
Þorbjöm Jensson
WORLD
CDP
varði Andreas Thiel mjög vel. Mart-
in Schwalb, frá Grosswallstadt,
skoraði 9/4 mörk fyrir V-Þjóðveija,
en homamaðurinn Laszlo Marosi
skoraði flest mörk Ungveija, 6/1.
Júgóslavar lögðu Dani að velli Bar-
lánge, 21:19.
12-17 Jan.1988
I JÓN H. Magnússon, formað-
ur HSÍ, kom skemmtilega á óvart
í matarboði sem borgarstjóm Katr-
ineholm hélt fslendingum og
A-Þjóðveijum eftir leik þeirra í
gærkvökli. Jón gaf forseta borgar-
stjómar og formanni handknatt-
leiksliðs Katrineholm, lopapeysu
og bók um ísland. Hann sagði að
þegar þeir kæmu á HM á íslandi
1994 væri gott fyrir þá að hafa
peysuna ef kalt yrði í veðri og bók-
ina til að lesa sig til um land og
þjóð. Þetta framtak Jóns hlaut
rar undirtektir viðstaddra
FRANK Wahl, besti leikmað-^
ur A-Þýskalands gat ekld leikið
með gegn íslandi í gærkvöldi.
Hann tognaði á lærisvöðva á æf-
ingu. Paul Tiedemann, landsliðs-
þjálfari A-Þýskalands, vonaðist til
að Wahl gæti leikið með Dönum í
kvöld, en var þó ekki bjartsýnn.
■ ÍSLENDINGAR mæta Jú-
góslövum í kvöld. í A-riðlinum
leika Svíar og Ungveijar. V-
Þjóðverar leika gegn Spánveij-
llm
I DAVÍÐ Sigurðsson annalQI h
fararstjóranna, fór til Borlánge í
gær til að taka leik Júgóslava og
Dana upp á myndband. Davíð var
ekki sérlega spenntur fyrir ferðinni
enda þriggja tíma akstur hvora leið.
„En þegar landsliðið er ahnars veg-
ar verður maður að gera hlutina,
hvort sem manni lýkar eða ekki,“
sagði hann. Gísli Felix Bjarnason
hvfldi gegn Austur-Þjóðveijum og
fór með Davíð.
■ ÞORBJÖRN Jensson, fyrram
fyririiði íslenska landsliðsins, var
útsendari Bogdans á leik Svia og
Spánveija í Malmö í gærkvöldL
Þorbjöm tók leikinn upp á mynd-
band. ____
■ BOGDAN, landsliðsþjálfari
Gaupi, sem stjómuðu sínum 151.
landsleik í gærkvöldi, vora kvefaðir
og með í hálsinum á mánudags-
kvöldið. Gunnar Þór, læknir, gaf
þeim lyf og vora þeir öllu brattari
rw Ólafsson lék ekki með
iandsliðinu í gær gegn Austur-
Þjóðveijum. Hann var meiddur á
hné, var einnig kvefaður, og í rú-
tunni á leiðinni frá Eskilstuna til
Katerineholm, fárveiktist Páll,
fékk í magann og svitnaði óskap-
lega. Hann lá fyrir meðan leikurinn
fór fram.
■ ÚRSLITALEIK URINN í
heimsbikarkeppninni fer fram í
Stokkhólmi á sunnudaginn og er
það í fyrsta sinn, sem úrslitin fara
þar fram. 1971, 1974 og 1984 fóra
þau fram í Gautaborg, en í Malmö
1979.
■ HEIMSBIKARKEPPNIN
var fyrst haldin 1971. Þá átti
Gautaborg 350 ára afmæli og var
keppninni komið á í því tilefni.
■ JÚGÓSLA VÍA Svíþjóð og
Austur-Þýskaland hafa alltaf ver-
ið með í keppninni og eru einu
þjóðimar, sem því hafa náð. Sovét-
menn hafa ávallt verið með þar til
nú. Frá upphafí hafa tólf þjóðij^*
tekið þátt og er ísland sú þrett-
ánda.
■ PETRE Ivanescus, landsliðs-
þjálfari V-Þýskalands segir að
ekkert annað en sigur kæmi til
Beina í heimsbikarkeppninni. V-
óðveijar tóku fyrsta skrefíð í
rétta átt þegar þeir lögðu Ung-
veija í gærkvöldi.