Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUÐAGUR 13. JANÚAR 1988 55 HANDKNATTLEIKUR / HEIMSBIKARKEPPNIN I SVIÞJOÐ Slakur sóknarleikur kom í veg fyrir sigur gegn A-Þjóðverjum Varnarleikurinn mjög góðuren bæði lið léku undirgetu ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik byrjaði illa í sínum fyrsta leik í heimsbikarkeppn- inni. Liðið tapaði fyrir Austur- Þjóðverjum með tveggja marka mun í Katerineholm, sem þœtti yfirleitt ekki slæmt. En það var slæmt í gærkvöldi, því liðið átti alla möguleika á sigri. Varnar- leikurinn var mjög góður, Einar Þorvarðarson var frábær í markinu, en sóknarleikurinn brást. Þar gerðu strákarnir mistök á mistök ofan og fóru ilia með dauðafæri. Austur- Þjóðverjar voru óvenju daprir, en gerðu færri mistök og sluppu með skrekkinn á síðustu sekúndunum. Reyndar voru Austur-Þjóðverjar með undirtökin allan leikinn og náðu mest fímm marka forystu um miðjan seinni hálfleik. En íslenska liðið náði sér á strik undir lok- in og var í raun óheppið að ná ekki jafntefli. Steinþór Guðbjartsson skrifar fráSviþjóð Slakara ífyrri hálfleik Fyrri hálfleikur var ótrúlega slakur á báða bóga hvað sóknarleikinn varðar. Guðmundur Gizðmundsson skoraði fyrsta mark íslands eftir 12 mínútur, en þá höfðu Austur- Þjóðveijar gert þijú. Sóknarleikur- inn varð betri næstu mínútumar og liðið náði að jafna, 4:4, þegar níu mínútur voru til hálfleiks. Svo virtist sem það væri að ná undirtök- unum, en í stað þess að halda jöfnu í hléi, var liðið tveimur mörkum undir. Strákamir skoruðu aðeins fimm mörk á 30 mínútum og slíkt kann yfírleitt ekki góðri lukku að stýra. Köflótt eftir hlé Seinni hálfleikur var hraðari, en hvorugt liðið sýndi heilsteyptan leik. Einbeitinguna vantaði lengst af í sókn beggja liða, en stundum brá fyrir skemmtilegum leikfléttum hjá íslenska liðinu, en því miður gengu þær ekki ávallt upp. Um miðjan hálfleikinn blasti sigur við Austur-Þjóðveijum, þeir vora með fímm marka forskot og þegar rúmar þijár mínútur vora til leiks- loka var munurinn fjögur mörk, 17:13. Þá kom besti sóknarkafli íslenska liðsins, strákamir nýttu færin, hraðaupphlaupin gengu upp og þeir söxuðu á forskotið. Þegar 45 sekúndur vora eftir var munur- inn aðeins eitt mark og Þjóðveijar hófu sókn. 28 sekúndur á klukk- unni og dæmd leikleysa. En tæki- færið rann út í sandinn, Atli missti knöttinn í hendur mótheija, Winsel- mann branaði upp og skoraði örugglega. Liðin Vamarleikur íslenska liðsins var til fyrirmyndar og Einár stóð fyrir sínu í markinu. Guðmundur Guðmunds- son, sem kosinn var besti maður Morgunblaðii/Pressens Bild Valdlmar Qrfmaaon svífur hér inn úr teignum og skorar eitt marka sinna gegn Austur Þjóðvetjum í gærkvöldi. íslands, lék vel í vöm og sókn og einnig Þorgils Óttar, en sóknarleik- ur annarra var ekki upp á það besta. Þorbergur, sem hefur hvorki æft né leikið með liðinu lengi, lék nær allan leikinn, en náði sér ekki á strik, Kristján, Alfreð og Atli gerðu afdrifarík sóknarmistök. Austur-Þjóðveijar sýndu heldur ekki sínar bestu hliðar. Wieland Schmith, sem virðist aðeins leika með liðinu á stormótum, sýndi að hann hefur engu gleymt og varði mjög vel. Þá vora Winselmann og Metzke góðir, en sá fyrmefndi var kosinn besti maður liðsins og fékk rafmagnsskrúQám eins og Guð- mundur. Svíamir Bladem og Johansson vora alltof flautuglaðir, dæmdu óþarf- lega oft skref og yfirleitt var ekki um töf eða leikleysu að ræða, þegar þeir dæmdu þannig. ísland - A-Þýskaland 16 - 18 Heimsbikarkeppnin í Svíþjóð. Þriðju- dagur 12. janúar 1988 í Katrineholm. Gangnr leiksins: 0:3, 2:3, 4:4, 5:5, 5:7. 5:8, 6:10. 7:11, 9:14, 13:15, 13:17, 16:19, 16:18. Mörk íslands: Kristján Arason 3, Guð- mundur Guðmundsson 3, Valdimar Grimsson 3, Alfreð Gislason 2, Þorgils óttar Mathiesen 2, Sigurður Gunnars- son 2/2, Karl Þráinsson 1 og Atli Hilmarsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 13. Mörk A-Þyskalands: Holger Winsel- mann 6, Rudiger Borchardt 4/3, Mikael Furch 2, Ingolf Wiegert 2, Andreas Neitzel 2, Stefan Hauch 1 og Olaf Pleitz 1. Varin skot: Schmith 8 og Hoffmann 1/1. Brottrekstur*. ísland 4. min. og A- Þýskaland 6. mín. Áhorfendun 270. Menn leiksins: Wincelmann, A-Þýska- landi og Guðmundur Guðmundsson, íslandi Hvað sögðu þeir? „Það sem gerðist var einfaldlega að okkar lykilsóknarmenn náðu sér ekki á strik, en hvers vegna er þeirra að svara fyrir. Við gerð- um mörg mistök, vítaköst fóra i súginn og menn fóra Qla. með dauðafæri á línu og úr homum. Vömin var hins vegar í lagi og Einar varði veL Austur-Þjóðver- jamir voru heldur ekki góðir, en gerðu færri mistök. Dómaramir vora misjafnir, Bladem dæmdi vel, en Johansson var slakur. Við áttum skilið að jafna undir lokin, en þegar brotið var á Geir gekk klukkan og því máttum við ekki við. En það vorum við sem töpuð- um leiknum, en ekki dómaramir." Þorgils Óttar Mathlesen „Þetta fór eins og ég óttaðist — að sóknarleikurinn gengi ekki upp hjá okkur og sú varð á raunin. Málið er að við verðum að fá meiri samæfíngu — við höfum ekki verið nógu lengi saman á æfíngum og í leikjum. Árangur byggist á samæfingu, við eram engir sniilingar, en vonandi geng- ur betur næst“ Kristján Arason „Ég er mjög óhress með mína frammistöðu. Við áttum góða möguleika á sigri, sérstaklega þar sem Wahl var ekki með, en við fórum illa með gullið tækifæri. Það gekk ekki upp hjá okkur að spila með tvo Imumenn og ég fékk bara ekki boltann á ferðinnnL Við voram óöraggir í sókninni, en vömin og markvarslan var góð.“ Alfreð Gislason „Það er ekki hægt að ætlast til að við eigum alltaf toppieiki. Við spiluðum iUa og það er eðlilegt miðað við það að við höfum ekki æft saman. Mótheijamir gerðu færri mistök og því fór sem fór, en mótið er ekki búið.“ Elnar Þorvardarson „Það var slæmt að tapa þessum leik, einkum vegna þess að Wahl var ekki með, en hann skorar fímm til sex mörk í leik. Við skor- uðum ekki nógu mörg mörk vegna þess að samæfinguna vantar. Við lékum ekki sem heiid í sókninni, en það jákvæða er að vamarleik- urinn var betri en hann hefur verið lengi.“ Guðmundur Guðmundsson „Sóknarleikur okkar var tilviljun- arkenndur og langt því frá að vera hnitmiðaður. Það gekk ekki upp að leika með tvo á Iinunni, en vandamálið er að samæfínguna vantar. Vamarleikurinn var hins vegar góður, við fengum aðeins á okkur 18 mörk og þriðjung þeirra eftir hraðaupphlaup. En við bæt- um fyrir þetta og sigrum Júgó- slava." ISLAIMD-AUSTUR ÞYSKALAND Einar Þorvarflarson Guflmundur Hrafnkeisson Þorgils öttar Mathiesen Kristján Arason Alfreð Gislason Valdimar Grimsson Sigurflur Gunnarsson Karl Þráinsson Guömundur Guflmundsson Atli Hilmarsson Þorbergur Aflalsteinsson Jakob Sigurösson Qeir Sveinsson 75% 66,6% 33,3% Öruggt hjá V-Þjódverjum V-Þjóðveijar unnu öraggan sig- ur, 23:21, yfir Ungveijum í Váxjö í gærkvöldi. Sigur þeirra var aldrei í hættu. Þeir leiddu allan leik- inn og vora yfír, 11:9, í leikhléi. Styrkleiki v-þýska liðsins var að allir leikmennimir skoraðu og þá PaulTiedemann þjálfari Þjóðverja: Bæði liðin geta betur Leikmenn beggja liða voru taugaóstyrkjr og gerðu þar af leiðandi mörg mistök, einkum í sókninni," sagði Tiedemann, þjálfari Austur-Þjóðveija, eftir leikinn í gærkvöldi. „Fyrsti leikur í svona móti er oftast erfiðastur og víst er að þessi lið geta leikið mun betur. Við voram til dæmis með fjögurra marka forystu þegar um þijár mínútur vora eftir, en fengum síðan á okkur þijú mörk f röð og hefðum getað misst unn- inn leik niður í jafntefli. Liðin skoraðu ótrúlega fá mörk í fyrri hálfleik, en þess ber að geta að vamimar vora sterkar og mark- verðimir góðir. Dómararnir gerðu mörg mistök, flautuðu of mikið, en hvorugt liðið hagnaðist á þeim,“ sagði Tiedemann. Þorbjöm Jensson WORLD CDP varði Andreas Thiel mjög vel. Mart- in Schwalb, frá Grosswallstadt, skoraði 9/4 mörk fyrir V-Þjóðveija, en homamaðurinn Laszlo Marosi skoraði flest mörk Ungveija, 6/1. Júgóslavar lögðu Dani að velli Bar- lánge, 21:19. 12-17 Jan.1988 I JÓN H. Magnússon, formað- ur HSÍ, kom skemmtilega á óvart í matarboði sem borgarstjóm Katr- ineholm hélt fslendingum og A-Þjóðveijum eftir leik þeirra í gærkvökli. Jón gaf forseta borgar- stjómar og formanni handknatt- leiksliðs Katrineholm, lopapeysu og bók um ísland. Hann sagði að þegar þeir kæmu á HM á íslandi 1994 væri gott fyrir þá að hafa peysuna ef kalt yrði í veðri og bók- ina til að lesa sig til um land og þjóð. Þetta framtak Jóns hlaut rar undirtektir viðstaddra FRANK Wahl, besti leikmað-^ ur A-Þýskalands gat ekld leikið með gegn íslandi í gærkvöldi. Hann tognaði á lærisvöðva á æf- ingu. Paul Tiedemann, landsliðs- þjálfari A-Þýskalands, vonaðist til að Wahl gæti leikið með Dönum í kvöld, en var þó ekki bjartsýnn. ■ ÍSLENDINGAR mæta Jú- góslövum í kvöld. í A-riðlinum leika Svíar og Ungveijar. V- Þjóðverar leika gegn Spánveij- llm I DAVÍÐ Sigurðsson annalQI h fararstjóranna, fór til Borlánge í gær til að taka leik Júgóslava og Dana upp á myndband. Davíð var ekki sérlega spenntur fyrir ferðinni enda þriggja tíma akstur hvora leið. „En þegar landsliðið er ahnars veg- ar verður maður að gera hlutina, hvort sem manni lýkar eða ekki,“ sagði hann. Gísli Felix Bjarnason hvfldi gegn Austur-Þjóðveijum og fór með Davíð. ■ ÞORBJÖRN Jensson, fyrram fyririiði íslenska landsliðsins, var útsendari Bogdans á leik Svia og Spánveija í Malmö í gærkvöldL Þorbjöm tók leikinn upp á mynd- band. ____ ■ BOGDAN, landsliðsþjálfari Gaupi, sem stjómuðu sínum 151. landsleik í gærkvöldi, vora kvefaðir og með í hálsinum á mánudags- kvöldið. Gunnar Þór, læknir, gaf þeim lyf og vora þeir öllu brattari rw Ólafsson lék ekki með iandsliðinu í gær gegn Austur- Þjóðveijum. Hann var meiddur á hné, var einnig kvefaður, og í rú- tunni á leiðinni frá Eskilstuna til Katerineholm, fárveiktist Páll, fékk í magann og svitnaði óskap- lega. Hann lá fyrir meðan leikurinn fór fram. ■ ÚRSLITALEIK URINN í heimsbikarkeppninni fer fram í Stokkhólmi á sunnudaginn og er það í fyrsta sinn, sem úrslitin fara þar fram. 1971, 1974 og 1984 fóra þau fram í Gautaborg, en í Malmö 1979. ■ HEIMSBIKARKEPPNIN var fyrst haldin 1971. Þá átti Gautaborg 350 ára afmæli og var keppninni komið á í því tilefni. ■ JÚGÓSLA VÍA Svíþjóð og Austur-Þýskaland hafa alltaf ver- ið með í keppninni og eru einu þjóðimar, sem því hafa náð. Sovét- menn hafa ávallt verið með þar til nú. Frá upphafí hafa tólf þjóðij^* tekið þátt og er ísland sú þrett- ánda. ■ PETRE Ivanescus, landsliðs- þjálfari V-Þýskalands segir að ekkert annað en sigur kæmi til Beina í heimsbikarkeppninni. V- óðveijar tóku fyrsta skrefíð í rétta átt þegar þeir lögðu Ung- veija í gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.