Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 56
Þjónusta íþínaþágu 4 JW, ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
^SsAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. ^ 91-27233
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Skipverjarnir á Berg-
þóri KE 5 í samtali:
„Lokserbátur-
inn blés út sáum
við lífið koma“
„ÞAÐ var magnað að sjá gúmmí-
björgrinarbátinn springa út, þá
sáum við lífið aftur,“ sagði Einar
Magnússon stýrimaður á Berg-
þóri KE 5 i samtali við Morgun-
blaðið í gær, en hann var einn
þriggja skipveija af fimm sem
komust af þegar Bergþór fórst
út af Garðskaga síðastliðinn
föstudag. Þeir áttu. í mikilli bar-
áttu við að opna gúmmíbjörgun-
arbátinn, en Magnús Þórarinsson
skipstjóri, faðir Einars, og Elvar
Þór Jónsson háseti fórust með
bátnum.
„Ég heyrði hljóð bátsins þegar
hann fór niður," segir Einar í við-
^tali á miðopnu blaðsins í dag, „það
var ægileg tilfínning. Um síðir tókst
mér að draga björgunarbátslínuna
á enda, líklega eina 25 metra, og
þá loksins opnaðist flaskan í björg-
unarbátnum og hann byijaði að
blásast upp. Gleðitilfínningin og
ópið sem fylgdi er ólýsanlegt. Við
vorum vissulega orðnir svartsýnir,
því það gekk svo hægt með bátinn,
en ég vonaði að hinn björgunarbát-
urinn hefði losnað sjálfkrafa eins
og hann átti að gera þótt við næð-
JH^n ekki að opna hann handvirkt
innan úr stýrihúsinu og þá gátu
hugsanlega einhveijir okkar komist
í þann bát.“
Sjá viðtöl við skipveijana þijá
og frétt um sjóprófin á
miðopnu.
Grétar Róbertsson læknir á slysadeild Borgarspítalans gerir að
meiðslum Hildar Björgvinsdóttur i gærkvöldi, en hún hafði dottið á
hálku og brotið úlnliðinn.
Reykjavík:
Hálkan kostar 10-15
úlnliðsbrot á dag
Tillögur vegna sprengihættu frá Áburðarverksmiðjunni:
Ammoníakið kælt eða
verksmiðjan lögð niður
STARFSHÓPURá vegum félagsmálaráðuneytisins, sem gera átti til-
lögur um úrlausn vandamála vegna ammóníaksgeymis Aburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi, kemst að þeirri niðurstöðu i skýrslu, að komi
mikill leki að geyminum eins og hann er nú geti það haft mjög alvar-
legar afleiðingar í för með sér og stefnt lifi starfsmanna og íbúa á
stórum hluta höfuðborgarsvæðisins í hættu. Líkur á slíku óhappi eru
þó taldar litlar en ekki sé hægt að útiloka að það geti orðið. Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra kynnti þessar niðurstöður á ríkis-
stjórnarfundi í gær og lagði auk þess til að byggður verði nýr
kæligeymir og að framfylgt yrði þeim öryggisráðstöfunum sem nauð-
synlegar eru. Að öðrum kosti verði verksmiðjan lögð niður, einkum
vegna þeirrar hættu sem er samfara staðsetningu hennar.
HÁLKAN, sem verið hefur í
Reykjavík undanfarna daga,
veldur nokkru annríki á slysa-
deild Borgarspítalans, þvi
þangað flykkist fólk sem hefur
brotið bein við fall á hálum ís. í
^t£Lcstum tilfellum er um eldra
fólk að ræða og þá aðallega kon-
ur. Á degi hveijum þurfa læknar
á slysadeild að fást við 10-15 úln-
liðsbrot.
Stefán Carlsson, læknir á slysa-
deild, sagði að síðastliðna viku hefði
beinbrotum fjölgað mjög í höfuð-
-^rginni, enda hefði þá í fyrsta sinn
komið hálka á þessum vetri. „Það
er yfirleitt um úlnliðsbrot að ræða,
því fólk ber fyrir sig hendur þegar
það dettur f hálkunni," sagði Stef-
án. „Úlnliðsbrot eru algengust hjá
konum á miðjum aldri og þaðan af
eldri. Þá er einnig nokkuð um
ökklabrot, en þau eru ekki jafn
mörg.“
Stefán sagði að annríkið væri
mest hjá þeim á morgnana og aftur
síðdegis, eða þegar fólk fer til og
frá vinnu. Hann hvatti alla til að
fara sér hægt í hálkunni og sagði
mannbrodda undir skó oft koma að
góðum notum.
Vinnueftirlit ríkisins sendi, í des-
ember árið 1985, félagsmálaráðu-
neytinu skýrslu, um mat á hættu
sem stafað gæti frá ammóníaks-
geymi Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi. Áðurnefndur starfshópur
var síðan skipaður 26. febrúar 1986
af þáverandi félagsmálaráðheiTa. í
tillögum starfshópsins er gert ráð
fyrir að tekin verði upp kæling á
ammoníaki í núverandi geymi verk-
smiðjunnar, undirstöður geymisins
verði styrktar og tryggt verði að
undirstöður glati ekki styrkleika
vegna kælingarinnar. Þá er lagt til
að gerð verði neyðaráætlun í tengsl-
um við Almannavamir ríkisins og
að reglubundið eftirlit verði með öll-
um búnaði sem notaður er til að
landa og flytja ammoníak. Er ríkis-
stjómin sammála um að þegar verði
að grípa til nauðsynlegra öryggis-
ráðstafana í Gufunesi.
„Það em mjög litlar líkur á að
mikill ammoníaksleki gæti komið að
geyminum, en þær em engu að síður
fyrir hendi og þvf nauðsynlegt að
gera ákveðnar ráðstafanir," sagði
Jóhanna Sigurðardóttir við Morgun-
NÝ þjóðhagsspá Vinnuveitenda-
sambands Islands verður vænt-
anlega kynnt í dag og samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
þar spáð að viðskiptahallinn á
árinu 1987 verði nær sex millj-
arðar króna. í spánni er enn-
fremur gert ráð fyrir að
viðskiptahallinn á þessu ári, ár-
inu 1988, verði á bilinu 9 til 10
milljarðar króna, þrátt fyrir að
miðað sé við minni kaupmátt en
á árinu 1987.
Hagfræðingar Vinnuveitenda-
blaðið í gær. Hún sagðist leggja
áherslu á að ef tekin verður ákvörð-
un um að kæla núverandi geymi þá
sé nauðsynlegt að grípa til allra
þeirra öryggisráðstafana sem hægt
er til að draga úr þeirri hættu, sem
fylgir núverandi ammoníakgeymi
meðan á breytingu stendur.
Kostnaður vegna kælingar á nú-
verandi geymi, auk byggingu
öryggishúss er áætlaður um 27 millj-
ónir króna en kostnaður við bygg-
ingu á nýjum geymi er áætlaður á
bilinu 70 til 80 milljónir króna.
sambandsins hafa unnið þessa spá.
í spá Þjóðhagsstofnunar í febrúar
á síðasta ári, eða fyrir tæpu ári,
var því spáð að viðskiptahallinn á
árinu 1987 yrði tæpur milljarður
króna. í þjóðhagsáætlun Þjóðhags-
stofnunar sem lögð var fram í
október síðastliðnum var spáð að
viðskiptahallinn yrði 2,4 milljarðar.
Boðað hefur verið til sambands-
stjómarfundar VSÍ á föstudaginn
kemur þar sem verða til umræðu
viðhorfin í efnahags- og launamál-
um.
Ný þjóðhagsspá VSÍ:
ViðskiptahaUinn nær
6 milljarðar 1987