Morgunblaðið - 21.01.1988, Side 45
45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
Svart-hvítur draumur:
Afmæliskveðja:
GOÐ minn góður
☆ ☆ ☆ ☆ 1/2
Nú nýveriA kom út platan GOÐ
með hljómsveitinni Svarthvrtum
draumi. Hér er é ferðinni prýðileg
skffa, sem ég hika ekki við að gefa
fjórar og hélfa stjörnu. Það virðist
sem nýbylgjutónlist sé í sókn hér-
lendis — Sykurmolarnir og Bleiku
bastarnir eru prýðiieg dœmi — og
Svarthvítur draumur er einn égæt-
asti fulltrúi þessarar framsóknar.
Hvers vegna þessi þróun á sér
stað nú hefur gagnrýnandi reyndar
ekki glögga hugmynd um; ef til vill
eru menn einfaldlega orðnir þreyttir
á „þægilegri tónlist" sem siglt hefur
í kjölfarið á frelsi í útvarpsmálum.
Erlendis hefur þungarokki vaxið fisk-
ur um hrygg, en síðan Drýsill leið
hefur þess ekki gætt hér (óg hef
reyndar heyrt prufuupptöku með
hljómsveit, sem kallast Exist, sem
er í þyngri kantinum og lofar mjög
góðu og gott betur).
Staðreyndin er þó sú að Svart-
hvítur draumur er búinn að gefa út
plötu og lítið þýðir að fást um hvers-
vegna platan er eins og hún er:
Mögnuð.
Ekki er hægt að segja að sveitin
sé undir áhrifum frá einhverjum sér-
stökum, þetta er þeirra eigin músík.
Rétt er þó að geta þess að tónlistin
á meira skylt við pönkið en nýbylgju
og í þessu samhengi er um hrós að
ræða. Það er feykimikil kraftur á
plötunni og keyrslan taumlaus og
ekki laust við að sum lögin nálgist
brotajárnsrokkið (Thrash). Það er
hins vegar engin regla, því í „Engum
ævintýrum" kemur allt í einu harm-
onikku-kafli til þess að impra á
sjómannslífinu. ( „Zaragoza Pa-
narna" er ekki minni uppákoma
þegar þessi fíni hornaflokkur kemur
eins og skrattinn úr sauðarleggnum.
Bassinn er tvímælalaust hið leið-
andi hljóðfæri sveitarinnar og
Gunnar Hjálmarsson, sem einnig
syngur, höndlar hann mjög
skemmtilega. Það er mikið vanaverk
að láta bassa vera svona framarlega
án þess að glata annað hvort þeim
grunni, sem hann á að vera, eða það
komi niður á rokkelementinu í tón-
listinni. Hvorugt gerist á þessari
plötu og er það vel.
Söngurinn hjá Gunnari er mjög
sérstæður og hæfir músíkinni sem
flís við rass. Textarnir eru svo
sérkapítuli. Einir og sór væru þeir
ekkert sérstakir, en sungnir með
lögunum eru þeir fyrsta flokks.
Eftirminnilegustu lögin á plötunni
er „Mónakó", „Helmút á mótor-
hjóli", „Engin ævintýri", „Ég dansa
við lík" og „Sýrubælið brennur" en
í því segir frá örlögum 10 hippa. Það
er ófögur lýsing.
10 hippar hverfa eins og negrastrákar
(á hæli, 2 hanga á Mokka
3 frömdu sjálfsmorð, 1 skrifar á Mogga .
upprisnir, fundnir í Hollívúdd.
Þessi plata á ekki eftir að heyrast
á tónlistarstöövunum, svo það þarf
að gera sér ferð í næstu plötubúð
eftir henni. Sú ferð er þó vel þess
virði því platan sannar að það er
fleira og betra til á íslandi en Módel
og Qaui.
Andrés Magnússon
Tveir bastar; Hic et ubique?
Ljósmynd/BS
Jassrokkblús
í kvöld gefst mönnum kostur á
að hlýða á blús, framúrstefnujass
eða rokk á Hótel Borg eða í tón-
leikastaðnum nýja Lækjartungl.
í Hótel Borg verða sveitirnar
Súld og Centaur, en jasssveitin
Súld hefur ekki haldið tónleika
síðan sveitin gerði garðinn frægan
í Montreal síðasta sumar. Centaur
hefur aftur á móti staðið fyrir vel-
sóttum blúskvöldum á Borginni í
sumar og haust.
í Lækjartungli verða fyrstu rokk-
tónleikar sem þar hafa verið
haldnir, en Lækjartungl er þar sem
Nýja bíó var. Þar ku vera hljóðkerfi
í sérflokki og tónleikar Bastanna
verða frumraun þess hljóökerfis,
en ætlunin er að halda tónleika í
Lækjartungli sem tíðast.
Kjartan Guðnason
formaðurSÍBS
Vinur minn og samstarfsmaður
um áratugi Kjartan Guðnason
formaður SIBS er 75 ára í dag.
Kjartan er borinn og bamfæddur
Reykvíkingur og því fjölda Reyk-
víkinga að góðu kunnur.
Kynni okkar Kjartans hófust árið
1948, þegar hann varð fyrir því
óláni að veikjast af berklum. Vegna
breyttra meðferðarmöguleika varð
sjúkrahúsvist Kjartans tiltölulega
stutt en þó nógu löng til þess að
vekja áhuga hans á starfsemi SÍBS
og þörfmni fyrir öfluga félagsstarf-
semi til þess að tryggja árangur
af því starfi, sem þá var nýlega
hafíð.
í stjóm SÍBS hefur Kjartan verið
samfellt frá 1956 og formaður frá
því að Þórður heitinn Benediktsson
lét af því starfi árið 1974. Þótt
aðalstarf Kjartans nafi lengst af
verið deildarstjórastaða hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, þá átti hann
þó jafnan tíma aflögu fyrir félaga
sína í SÍBS. Þar var líka sannarlega
þörf fyrir mann, sem vissi allt um
réttindi bótaþega og var jafnan
reiðubúinn til þess að upplýsa og
leysa vandamál þess stóra láglauna-
hóps, sem varð að lifa á tryggingun-
um einum saman að hælisvist
lokinni.
Margur er sá sjúklingurinn, sem
hefur komið léttari í skapi frá Kjart-
ani eftir að hafa fengið upplýstan
rétt, sem hann átti en hafði ekki
gert sér grein fyrir. Svo sem verða
hlaut, þá hefur Kjartan gegnt
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
SÍBS. Fyrir utan að vera formaður
samtakanna, þá hefur hann verið
ýmist aðal- eða varamaður í stjóm
Reykjalundar. Hann var stjórnar-
formaður Múlalundar á árunum
1957—1962 og hafði eftirlit með
því merka fyrirtæki um árabil eftir
það. Kjartan er nú stjómarformaður
Múlabæjar, Dagvistunar aldraðra
og öryrkja, sem rekin er af þremur
aðilum, SÍBS, Samtökum aldraðra
og Rauða krossinum. Dagvistunin,
sem er til húsa í húsnæði SÍBS, þar
sem vinnustofa Múlalundar var áð-
ur, hefur getið sér hið besta orð
og fyrir nokkm fært út starfsemina
með opnun Hlíðarbæjar, þar sem
Alzheimerssjúkir era í dagvistun.
Kjartan hefur því lítið slakað á
klónni þótt árin færist yfir hann.
Þó mun hann hafa ætlað að hætta
störfum hjá Tryggingastofnuninni,
en ráðamönnum þar mun hafa þótt
nokkurs virði að njóta enn um sinn
reynslu hans og þekkingar á við-
kvæmum samskiptum einstaklinga
og stofnunar og því samist svo um,
að Kjartan ynni þar hálfan daginn.
Við Kjartan höfum um lengri
tíma verið fulltrúar SÍBS hjá Nor-
rænu berklavamasamtökunum.
Þau samtök vora stofnuð á Reykja-
lundi árið 1948. Þessi samtök hafa
komið saman annaðhvert ár. Skoð-
að stofnanir hver hjá öðram, fræðst
um nýjungar og reynt að hagnýta
þekkingu og reynslu hvers annars.
Því er ekki að neita, að á þessum
vettvangi töldum við okkur gefa
miðlað þeim frændum okkar þekk-
ingu er þeim mætti að haldi koma,
og jafnvíst er það, að við höfum
mikið af þeim lært.
Kjartan hefur alla tíð "Verið ein-
lægur félagshyggjumaður og valið
sér störf í samræmi við þá stað-
reynd. I ávarpi, er hann ritaði í
tímarit SÍBS fyrir löngu síðan, seg-
ir hann m.a.:
„Það vora einmitt þeir berkla-
sjúku sjálfir, sem sáu svo alltof oft
dauðann beija að dyrum að nauð-
synjalausu, þar sem hægt hefði
verið að tefja að minnsta kosti fyr-
ir komu hans, ef lífskjör hefðu verið
betri, vinnuskilyrði betri, með öðr-
um orðum betra samfélag. Við
slíkar aðstæður sprettur óskin um
samhjátp, ekki aðeins samhjálp
hinna berklasjúku, heldur einnig
samhjálp allra sjúkra og samhjálp
samfélagsins."
Kjartan getur nú á 75 ára af-
mælinu litið yfír farinn veg og notið
þeirrar afmælisgjafar, sem betri er
öðrum gjöfum, að starf hans hafí
borið árangur.
Við hjónin þökkum þeim Jónu
og Kjartani fyrir löng og góð kynni,
fyrir íjölmargar ánægjulegar sam-
verastundir og vonum, að þau eigi
góð ár framundan.
Kjartan og Jóna taka á móti
gestum í Dentalia, félagsheimili
tannlækna, Síðumúla 35, kl. 17—19
í dag.
Oddur Ólafsson
MILT FYRIR BARNIÐ
MÝKINGAREFNI
Milt fyrir barnið
mýkingarefni er
. sérstaklega ætlað til mýk-
ingar á barnafatnaði og á
fatnaði annarra sem eru
með viðkvæma húð. Tauið
verður dúnmjúkt og ertir
ekki húðina. Viðkvæm húð
og Milt fyrir barnið eiga svo
sannarlega samleið.
■ ■
Lyngási 1 Garðabæ, sími 651822
SPILOÐU MEÐ
Fylgstu með árangrí og
styrkleika liðanna. @
Þannig stendurðu
velaðvígi.
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturinn
þar sem þekking
margfaldar vinningslíkur.
Hægt eraöspá i leikina simleiðis og greida
fyrir með kreditkorti. Þessi þjónusta er veitt
alla föstudaga frá kl. 900 til 17.00 og laugardaga
frá kl. 9:00 til 13:30. Slminn er688 322.