Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988 t Eiginmaöur minn, EYÞÓR BOLLASON, áðurtii heimilis á Helgamagrastrœti 12, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 16. janúar. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju föstudaginn 22. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Fjórðungssjúkra- hús Akureyrar. Guðrún Stefánsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANSBORG JÓNSDÓTTIR frá Einarslóni, Snæfellsnesi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 19. janúar. Huldis Annelsdóttir, Ásgerður Annelsdóttir, Anna Annelsdóttir, Þorkell Guðmundsson, Guðjón Matthiasson, Björk Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GRÓA HELGADÓTTIR, andaðist í Landakotsspítala 13. þ.m. Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum hlýhug. Guðmundur Guðmundarson, Helga S. Guðmundsdóttir, Guðmundur Steinn Guðmundsson, Sigurður Ingi Guðmundsson. t Faðir okkar, EGGERTBRANDSSON frá Önundarhorni, Eyjafjöllum, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 16. janúar. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, SIGMUNDUR JÓNSSON verkamaður, Hörgatúni 11, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garöakirkju, Garðabæ, föstudaginn 22. janúar kl. 14.00. Álfheiður Björnsdóttir, Gréta Þ. Sigmundsdóttir, Kristján Norðman, Jóhanna S. Sigmundsdóttir, Eirikur Hjaltason, Birna J. Sigmundsdóttir, Kolbrún S. Sigmundsdóttir, Jón Torfason, Kristján P. Sigmundsson, Oddfríður Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Móðir okkar, ÓLÍNA JÓHANNSDÓTTIR, Melabraut 39, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. janúar kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélag íslands. Aðalbjörg Zóphoníasdóttir, Páll Zóphoniasson. t Útför móður okkar, GUÐBJARGAR DAVÍÐSDÓTTUR frá Ytri-Brekkum, Langanesi, v fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 22. janúar kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda. Sæmundur Sæmundsson, Sigrún Davíðs. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÚSSANA KETILSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju, Hellissandi laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Rútuferðir frá Hópferðamiöstöðinni Bildshöfða kl. 8.00 f.h. sama dag. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. þegar knattspymudeildin verður 20 ára á þessu ári og Glímufélagið Armann 100 ára viljum við þakka honum ánægjulegt samstarf og hvatningu gegnum árin. Við strák- amir viljum votta konu hans og öðmm aðstandendum dýpstu samúð okkar. Kveðja, knattspymudeild Armanns, Gunnar Guðjónsson. Það var erfitt fyrir okkur, starfs- fólk Gunnars Eggertssonar hf., að koma í vinnu þann 12. janúar sl. og frétta að forstjóri okkar, Gunnar Eggertsson, væri látinn. Hann var á meðal okkar daginn áður hress og kátur og þegar við kvöddum hann að kvöldi hefði engum okkar dottið í hug að við sæjum hann ekki aftur. Við vissum öll að hann hafði átt við veikindi að stríða á liðnum ámm og meðal annars farið í árangursríka hjartaaðgerð til Bandaríkjanna árið 1984, en hann var búinn að vera svo lífsglaður og ánægður á liðnum vikum að á þessu áttum við síst von. Gunnar Eggertsson var einstak- ur maður og að mörgu leyti sérstak- ur. Flest okkar höfðum unnið hjá honum ámm saman. Ástæðan er einfaldlega sú að betri yfírmann er varla hægt að fá. Yfírmann! Það er varla hægt að ' stoppa þar því hann var miklu meira. Hann var líka góður félagi og tók mikinn þátt í öllu sem starfsfólk hans tók sér fyrir hendur hvort sem var í leik eða starfí. Árshátíðin á síðasta ári er okkur öllum mjög minnisstæð og sýnir vel rausnarskap Gunnars gagnvart starfsfólki sínu, en þá bauð hann okkur öllum ásamt mök- um kvöldverð og gistingu á Hótel Örk í Hveragerði. Þrátt fyrir að Gunnar gengi ekki heill til skógar sl. ár þá var starfs- orka hans og ósérhlífni oft á tíðum ótrúleg. Það var ekki einungis að hann stjómaði Gunnari Eggertssyni hf. með myndarskap heldur tók hann líka stóran þáttí rekstri Ban- ana hf. og Bananasölunnar hf. Hann var einnig mjög virkur í fé- lagsmálum. Gunnar var tvíkvæntur en fyrri konu sína missti hann árið 1969. Nokkmm ámm síðar giftist hann yndislegri konu, Valdísi Halldórs- dóttur, sem er gjaldkeri hér hjá fyrirtækinu. Þau vom einstaklega samhent hjón og miklir félagar. Það var unun að sjá hversu mikils þau mátu hvort annað. Bæði höfðu þau mikinn áhuga á lax- og siiungsveiði og eyddu stóram hluta af summn- um við þá tómstundaiðju og var oft gaman að hlusta á þau segja frá þessum ferðum enda bæði gædd góðum frásagnarhæfíleika. Gunn- ars verður sárt saknað af öllum sem þekktu hann. Persónuleiki hans var svo sterkur að enginn er eftir ósnortinn. Við samstarfsmenn hans munum minnast hans sem mann- vins og verður erfítt að fylla það skarð sem hann skilur eftir. Við söknum hans öll. Elsku Valdís, Kristján, Georg, Guðrún Edda, Þórdís, Ingibjörg, Linda Bára og aðrir vandamenn. Við óskum þess af öllu hjarta að góður guð gefí ykkur öllum styrk í náinni framtíð. Með þér leið mín lá um liljum skrýdda grund já, þér muna má ég marga glaða stund; Þú ert horfinn heim ég hvorki græt né styn, en aldrei hef ég átt né eignast betri vin. (K.N. Júlíus.) Starfsfólk Gunnars Eggertssonar hf. í Kristilegum skólasamtökum eru starfandi samfélags- og Biblíuleshópar sem hittast vikulega til að fræðast og ræða saman. Þessi mynd er af samfélagshópnum í Menntaskólanum í Reykjavík. 50 manns á námskeiði Kristilegra skólasamtaka HIÐ ÁRLEGA nýjársnámskeið Kristilegra skólasamtaka var haldið í Ölveri í Borgarfirði skömmu eftir áramótin. Komu tæplega 50 manns á mótið, sem má kallast nokkuð gott þar sem frekar fáliðað hefur verið á fundum hjá þeim það sem af er vetrar. Námskeiðið stóð frá föstudegi og fram á sunnudag. Jóhannes Ingibjartsson hönnuð- ur frá Akranesi, Skúli Svavars- son kristniboði og Guðni Gunnarsson skólaprestur voru með fyrirlestra og hugleiðingar fyrir mótsgesti. Þeir sem sóttu mótið voru á aldrinum 16 til 20 ára. Markmiðið með mótshaldi af þessu tagi er að gera félaga Kristi- legra skólasamtaka betur meðvit- aða um innihald og gmndvöll kristinnar trúar til þess að geta komið skilaboðum um kristindóm- inn til félaga sinna í orði og verki. Hvemig Kristur sjálfur umgekkst fólk og vann það fyrir Guð. Þannig ættu þeir, sem hafa sótt námskeið af þessu tagi, að vera betur undirbúnir til að vera í trúar- vöm og jafnframt trúarsókn. Lægð hefur verið í fundasókn í vetur hjá Kristilegum skólasamtök- um. Fundir em haldnir á Amt- mannsstíg 2b í Reykjavík á laugardagskvöldum kl. 20.30. Síðasti fundurinn í janúar, þann 30., Qallar um efnið: „Deyja Kristi- leg skólasamtök út?“ Það er e.t.v. ekki óeðlilegt að þeir, sem em í forsvari fyrir KSS, séu að velta þessu fyrir sér. Á þessum fundi verður spurt hvort það sé púkó að vera í KSS og hvað þurfí að gera til að fá fólk til að koma og hlusta á Guðs orð? Umsjón með þessum fundi hefur samfélagshópurinn úr Menntaskólanum í Reykjavík. Kristileg skólasamtök hafa tvo ' starfsmenn á launum, skólaprest og skrifstofumann, sem jafnframt hefur umsjón með samfélagshópum í KSS. Er í gangi happdrætti til að fjármagna starf þeirra og verður dregið í því 25. janúar. Báðir þess- ir starfsmenn em launaðir af frjáls- , um framlögum félaga í Kristilegum skólasamtökum og Kristilegu stúd- entafélagi. Því er líklegt, að ef stórfelld fækkun verður í KSS, þá þurfí að segja a.m.k. öðmm starfs- manninum upp. Kristileg skólasamtök em fyrir alla þá sem em orðnir 15 ára og eldri og em allir alltaf velkomnir. - pþ. t PÁLL INGIBERGSSON fyrrverandi skipstjóri frá Vestmannaeyjum, síðast búsettur f Hraunbæ 162, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 22. janúar kl. 15.00. Maren Guðjónsdóttir Reynir Pálsson, Sigriður Björnsdóttir og barnabörn. t JÓHANNES JENSSON, Kaplaskjólsvegi 9, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. janúar kl. 13.30. Atli Geir Jóhannesson, Birgir Rafn Jóhannesson, Ellen G. Stefánsdóttir, Berglind Birgisdóttir, Kristín Þór, Arnaldur Þór, Margrét Jensdóttir, Sigfús Örn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.