Morgunblaðið - 02.02.1988, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.02.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1988 47 „Saumastofan“ á Hvolsvelli Leikfélag Rangæinga: „Saumastofan" eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri: Ingunn Jensdóttir. Að undanfornu hefur Leikfélag Rangæinga verið að sýna Sauma- stofuna eftir Kjartan Ragnarsson í björtum og skemmtilegum húsa- kynnum þar sem starfrækt var um skeið önnur saumastofa, sem Sunna hét. Það var notalegt að koma úr 15 stiga frosti og heyra þá Helga Hermannsson og Eggert Smára Eggertsson leika létta og notalega músík og gegnir hljóðfæraleikur þeirra þýðingarmiklu hlutverki og setur „sjarma" á þetta ágæta leik- verk, sem er kunnáttusamlega gert. Það fer ekkert á milli mála, að leikstjórinn, hún Ingunn Jensdóttir kann svo sannarlega sitt fag. Heildarsvipurinn á þessu leikriti er með þeim blæ, að betur verður vart gert af fólki, sem flest er ekki sviðsvant og stígur eftir dags- ins önn á fjalimar og skilar þessum manneskjulegu hlutverkum þann- ig, að það er einna líkast að þetta séu allt gamlir kunningjar, eða fólk, sem maður nauðþekkir, enda voru undirtektir þeirra, sem á horfðu, alveg í takt við þessa skemmtilegu sýningu. Annað kas- tið mátti heyra saumnál detta, en þess á milli klöppuðu áhorfendur eins og fyrir fjallkonunni 17.júní. Það eru nú raunar tíu ár síðan Leikfélag Rangæinga var stofnað og hefur það sett upp og sýnt þó nokkur leikrit, en varla tekist nokkum tímann eins vel og nú. Hjálpast þar allt að, fólk með „neistann", skemmtilegt leikverk í umhverfi sem hæfír. Persónur sem allir þekkja og gætu verið að létta á sér við eldhúsborðið okkar. Músíkin er hófstillt og fellur vel að verkinu, en síðast en ekki síst hafa leikendur fengið þá tilsögn og tekið tilsögninni þannig, að það gengur eðlilega um vinnustaðinn sinn og sýnir okkur hið hvers- dagslega líf sitt í gleði og sorg á þann máta og með því innsæi að sönn ánægja er af. Hafi svo allt fólkið, sem lagt hefur hug og hönd að þessari vel- heppnuðu sýningu, hjartans þökk. Sigga í Saumastofunni segir að maður þurfi alltaf að háfa eitthvað til að hlakka til. Já, það er tilhlökkunarefni að sjá sem flesta af þessum ágætu leikurum í næsta verki Leikfélags Rangæinga. Pálmi Eyjólfsson Þessar litlu perlur geta létt af þér míklum áhyggjum! Æ.skilegur <k»gskammiur: 5-6 periur Milljónir Vesturlandabúa hafa á síðustu árum vaknað upp við vondan draum. Þeim hefur orðið ljóst að með „venjulegum“ lífsmáta sínum stefndu þeir heilsunni í voða. Sérstaklega þefur eitt líffæri líkamans verið leikið grátt: HJARTAÐ. Hin almennu ráð til heilsubótar, hreyfing og hollur matur, hafa ein sér ekki reynst fullnægjandi fyrir hjartað. Vísindamenn hafa því lagt hart að sér við að finna ný vopn til að fyrirbyggja hjarta- og krans- æðasjúkdóma. Framlag Lýsis hf. og Háskóla íslands hefur þegar vak- ið heimsathygli. Þáð nefnist OMEGA-3! í OMEGA-3 er mikið af fjölómettuðu fitusýrunum EPA og DHA sem nú er talið fullvíst að dragi verulega úr hættunni á hjarta- og kransæðasjúkdómum. OMEGA-3 er náttúrulegt þykkni, unnið úr þorskalýsi. .< tn co Lýsi hf. Grandavegi42, Reykjavík. OMEGA-3 Hreint og hjartastyrkjandi! Notaðu símann þinn beturl Hringdu í Gulu línuna og fáðu ókeypls upplýsingar um vörur og þjónustu. DÆMI: Arkitekt, arinhieðsiu, antikvörur, ákiæði, áismíði, baðherbergisvörur, baðtækni, barnavörur, bilavarahluti, bilaviðgerðir, bókhaldsþjónustu, blóm, borðbúnaðarleigu, bókbind- ara, bruggefni, byssuviðgerðir, byggingavörur, danshljómsveit, dráttarbeisli, dúklagningamenn, dúkkuviðgerðir, eldhústæki, farsima, fatabreytingar, fiskvinnsluvélar, flisalagnir, frystihólf, förðun, föndur- vörur, gardinur, gardinuhreinsun, gámaþjónusta, ginur, gler, gluggaút- stiUingar, gullsmið, gúmmibát, gúmmifóðrun, húsasmið, húsgagna- smið, hljóðfæraviðgerðir, hótelvör- ur, húsgagnasprautun, innanhúss- arkitekt, innheimtuþjónusta, innflutningsaðstoð, innrömmun, jámsmiði, kennslu, kúnststopp, leð- urhreinsun, lekaviðgerðir, Ijósmynd- un, loftræstikerfi, lögfræðing, markaðsráðgjöf, málverkaviðgerðir, mótorhjólakennslu, múrara, mynd- bandsþjónustu, orgelviðgerðir, oliuúðun, peningaskápa, pianóstill- ingar, pipulagningamenn, plexigler, prentþjónustu, raftækjaviðgerðir, rafvirkja, reykskynjara, rítvinnslu, ryðvörn, ræstingu, samkomusal, saumakonu, silkiprent, sjónvarps- viðgerðir, sjónvörp, skallameðferð, skattaaðstoö, skemmtikraft, skjala- þýðanda, skrífstofuvétar, skrífstofu- húsgögn, skrífstofuþjónustu, skósmið, snjóbræðslukerfi, snyrt- ingu, sorplúguhreinsun, stálvaska- slipun, stiflulosun, svefnherbergis- húsgögn, skerpingar, teikningu, tiskuvörur, tollskýrslugerð, trésmið, tölvuskráningu, úrbeiningu, útgáfu- þjónustu, varahluti, vatnsrúm, veit- ingar, veitingahúsavörur, vetka- menn, verkfærí, vélaþvott, vélrítun, vélsmiðju, vinnugalla, þjófavarnar- kerfi, þúsundþjalasmið, þýðingar, ökukennara. 62 33 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.