Morgunblaðið - 02.02.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.02.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988 t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR EYGLÓ EYJFÓLFSDÓTTIR, Álfaskeiði 59, Hafnarfirði, andaöist á Vifilsstaðaspitala 1. febrúar. Jóhannes Sœvar Magnússon, Kristinn Arnar Jóhannesson, Björg Leifsdóttir, Ármann Jóhannesson, Gunnvör Karlsdóttir, Anna Kristín Jóhannesdóttir, Þórður Helgason og barnabörn. t Faðir okkar, JÓN GUÐMUNDSSON frá Molastöðum, Háuhlíð 6, Sauðárkróki, andaðist í Sjúkrahúsi Sauðárkróks laugardaginn 30. janúar. Börnin. t Eiginmaður minn, JÓNMUNDUR GUÐMUNDSSON, Reynimel 58, Reykjavík, andaðist á heimili sínu að kvöldi 29. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Ólafsdóttir. t Móðir okkar, JÓNÍNA ALBERTSDÓTTIR frá ísafirði, andaðist í Landspítalanum föstudaginn 29. janúar. Jarðsett verður á ísafirði. Börn hinnar látnu. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR, Skeljagranda 7, áður Snorrabraut 34, lést í Landspítalanum 29. janúar. Alda Andrésdóttir, Þórarinn Árnason, Jóhanna Andrésdóttir, Sigríður Andrésdóttir, Sigurður R. Guðjónsson og barnabörn. t Faðir okkar, BENEDIKT JÓNSSON, Aðalbóli, lést í Sjúkrahúsi Akraness 30. janúar. Útför hans fer fram frá Staðarbakkakirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Rútuferð veröur frá Umferðarmiðstöðinni. Fyrir hönd aðstandenda. Jón Benediktsson, Aðalbjörn Benediktsson. t Katrín Karls-. dóttir - Minning Fædd 10. mars 1935 Dáin 27. febrúar 1988 Katrín Karlsdóttir verður lögð til hinstu hvílu í Fossvogskirkjugarði í dag. Hún andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði 27. janúar, eftir að hafa dvalið þar í 14 ár, lengst af alger- lega háð umönnun hjúkrunarfólks og lækna. Engin von var um bata en allt sem í mannlegu valdi stóð var gert til að henni liði eins vel og hægt var. Það var í febrúar 1970 sem Katrín varð fyrir því áfalli sem skóp henni þessi dapurlegu örlög. Bar- átta hennar var því búin að standa æði lengi. Fyrst á ýmsum sjúkra- húsum í Reykjavík og á heimili sínu, en í desember 1973 kom hún á Sólvang, þar sem hún naut frábærr- ar umönnunar frá fyrsta degi og þar til yfír lauk, undir stjóm Helgu Benediktsdóttur, hjúkrunarkonu. Fyrir það er hér komið á framfæri bestu þökkum. Katrín var fædd í Reykjavík 10. mars 1935, dóttir hjónanna Önnu Bjömsdóttur og Einars Karls Magnússonar, veitingamanns. Þeg- ar Katrín var tveggja ára lést faðir hennar. Anna, móðir Katrínar, gift- ist síðar Pétri A. Maack, stýrimanni á togaranum Max Pemberton og gekk hann Katrínu í föðurstað með- an hans naut við, en hann fórst 1944. Systur Katrínar em Guðrún og María, dætur Péturs og Önnu Maack, og Ester Jónsdóttir, sem er elst þeirra systra. Fljótlega eftir að Katrín lauk skyldunámi fór hún að vinna þau störf sem buðust hér í bænum. Eitt- hvað mun atvinnulífið hafa verið fábreyttara í Reylq'avík þá en síðar varð og tækifæri færri. A Keflavík- urflugvelli var mikil vinna á þessum árum og þar vann Katrín um tíma. Hún var vinsæl og vinamörg og unglingsárin liðu þvf fljótt við störf og leik. En alvara lífsins var á næsta leiti og Katrín var tiltölulega ung er hún festi ráð sitt. Hún giftist Viðari Jónssyni, vélstjóra, 1. október 1955, og hófu þau búskap í húsi foreldra hans á Hverfísgötu 73. Viðar var þá að ljúka námi og þótt byijað væri smátt var mikill hugur í þeim báðum og þau eignuðust fljótt eigið húsnæði. En Katrínu leið vel á Hverfís- götunni og sambúðin við tengda- fólkið var snurðulaus. Það mat mannkosti hennar og milli hennar og tengdamóður hennar, Lilju Helgadóttur, myndaðist vinátta sem aldrei bar skugga á. Katrín og Viðar eignuðust tvö böm sem lifðu, Önnu Ragnhildi, fædda 1957 og Jón Viðar, sem fæddist 1961. Katrín fékk ekki að fylgja þeim til fullorðinsára en hitt er þyngra en tárum taki að Önnu Ragnhildi virðast búin sömu örlög t Móðir okkar og tengdamóðir, INGIGERÐUR LOFTSDÓTTIR, lést laugardaginn 30. janúar á Droplaugarstöðum. Hörður Óskarsson, Þorbjörg Sigtryggsdóttir, Ingveldur Óskarsdóttir, Einar Sveinsson, Jón Óskarsson, Katrín Marteinsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaöir, KRISTJÁN S. HERMANNSSON, Tómasarhaga 32, lést í Borgarspítalanum 31. janúar. Árni Kristjánsson, Lára Clausen, Guðrún Kristjánsdóttir, Kjartan Jónsson, Steinunn Kristjánsdóttir, Sigurjón Einarsson, Hermann Kristjánsson, Rakel Ólafsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SKÚLÍNATH. HARALDSDÓTTIR, Efstasundi 6, lést í öldrunardeild Landspítalans laugardaginn 30. janúar. Fyrir okkar hönd og barnabarnabarna. Börn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG HELGADÓTTIR, Baldursgötu 32, lést í öldrunardeild Borgarspítalans aöfaranótt 31. janúar. Erla Ólafsdóttir, Ólafur Ólafsson, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg móðir okkar og dóttir. ■ DÓRA BJÖRG THEODÓRSDÓTTIR, lést í Landspítalanum 31. janúar. Kristfn Pétursdóttir, Helga Björnsdóttir, Ragna Jónsdóttir, Theodór Jóhannesson. Elsku litla dóttir okkar. t SIGRÚN LÁRA, lést þann 30. janúar. Jarðarförin auglýst síöar. Þórey Danielsdóttir, Sigurður J. Ragnarsson. t Móðir okkar, ÞURÍÐUR EINARSDÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 30. janúar. Sigrfður Guöjónsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Ruth Guðjónsdóttir, Gylfi Guðjónsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR STEFÁN GUTTORMSSON, sem andaöist hinn 22. janúar verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Guðný Benediktsdóttir, Bjarni Sætran, Steinunn Stefánsdóttir, Arndís Guðmundsdóttir, Erlingur Hauksson, Guttormur Guðmundsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Ómar Ólafsson, börn og barnabörn. og móður hennar, en hún liggur nú á Landspítalanum. Katrín Karlsdóttir var mikil mannkostakona eins og þeir vit'a sem þekktu hana. Þegar við minn- umst hennar nú og hugurinn hverfur til þess tíma þegar hún var heilbrigð og allt lék í lyndi, þá er það glaðværðin sem fyrst kemur í hugann. Hún vildi hafa glaðværð þegar fólk hittist og hafði einstakt lag á að vekja slíkt andrúmsloft hvar sem hún var. En úr miklu fleiri þáttum var hin trausta skap- höfn Katrínar ofín. Hún vissi vel af alvöru lífsins og það var þess vegna ákaflega ríkur þáttur í fari hennar hve mikils hún mat gjafir guðs og hve vel hún vildi gæta þeirra og alls þess góða sem lífið gaf. Það var henni mikið alvörumál að með slíkt skyldi fólk fara varlega og gæta þess vel að glutra því ekki niður, heldur hlúa að því. Ekki minnist ég þess að hún hafí rætt um þessa hluti, heldur kom þetta viðhorf fram í verkum hennar og framkomu. Það var þess vegna nokkurs vert að vera bundinn henni skyldleika- eða íjölskyldu- böndum og öðlast vináttu hennar. Hún hlúði að vináttunni eins og öðrum góðum hlutum er henni var trúað fyrir, og við fjölskyldu sína taldi hún sig hafa miklar skyldur. Mestar skyldur taldi hún sig hafa við bömin sín og reyndist þeim þvf frábær móðir. En móðir hennar, fóstri hennar Skúli Árnason, syst- ur, mágar og böm þeirra nutu einnig góðs af þessu viðhorfi henn- ar og umhyggju. Katrín var svo sjálfri sér sam- kvæm að þetta lífsviðhorf kom fram í öllu hennar dagfari. Meðan hún var heilbrigð fannst henni því að hver dagur væri of dýrmætur til þess að hans skyldi ekki notið til hins ítrasta, og síst til að sífra um smáatriði sem engu máli skipta. Hún reis árla úr rekkju hvem dag til að sinna heimili sínu, bömum og áhugamálum. Heimili hennar og böm báru þess líka fagurt vitni. Hún var sjómannskona og þurfti því að axla alla ábyrgð sjálf og reka ýmis erindi um borg og bý. Hún var því oft á ferðinni í bíl sínum. Hún notaði tímann vel og heimsótti vini og ættingja í leið- inni. Oft til 'að létta undir og gera fólki greiða, en það var henni eink- ar ljúft. Hún var því hvarvetna aufúsugestur sem kom með glað- værð og hughreystingu. En hún var líka mjög hreinskilin kona og óhrædd að segja meiningu sína, sérstaklega ef henni fannst eitthvað skorta á hreinskilnina hjá öðrum. Þá vora spumingar hennar beinskeyttar og eins gott að fara ekki undan í flæmingi. Sjálf hafði hún aldrei neitt að fela og þoldi illa ef aðrir komu ekki til dyranna eins og þeir vora klæddir. Þegar Katrín veiktist 1970 var öllum mjög bragðið sem þekktu hana. Óvissan var mikil og óttinn um hvemig henni myndi reiða af. Því miður ekki að ástæðulausu, því aldrei kviknaði von um bata, heldur seig sífellt á ógæfuhliðina. Það má því segja að það hafí orðið sem við óttuðumst mest. En nú hefur þraut- um hennar linnt. Guðrún kona mín og ég þökkum Katrínu, systur og mágkonu, góða vináttu hennar og umhyggju við okkur og bömin okkar. Minningin um hana er björt og fögur. Hún dofnar ekki þó árin líði. Sverrir Sveinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.