Morgunblaðið - 03.02.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
23
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Engan sakaði er bíll fór út af á Gíghæðinni á Grindavíkurveginum á sunnudaginn.
Bílvelta á Grindavíkurvegi
Grindavik.
í HÁLKUNNI sem gerði á Grindavíkurvegi á
sunnudag varð eitt umferðaróhapp. Ökumaður
nýs bíls missti stjóm á bilnum þegar hann brems-
aði í fljúgandi hálku á Gíghæðinni með þeim
afleiðingum að bíllinn fór út af og valt. Engan
sakaði í bílnum en hann er ónýtur.
— Kr.Ben.
Skáksambandið og IMB:
Samstarf umbarna-
og unglingastarf
Upphaf síðara misseris Sinfóníuhljómsveitarinnar:
Tónleikar helgaðir
byggingu tónlistarhúss
FYRSTU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á síðara
misseri verða fimmtudaginn 4.
febrúar í Háskólabíói. A efnis-
skrá eru þrjú verk; Landsýn
eftir Jón leifs, en þetta verk var
síðast flutt 1962, Rapsódía eftir
Rachmaninoff um stef eftir
Paganini og að lokum Sinfónía
nr. 1 eftir Brahms. Stjórnandi
verður Bandaríkjamaðurinn
George Cleve. Einleikari á tón-
leikunum verður píanóleikarinn
Randall Hodgkinson, en hann
er einnig Bandaríkjamaður.
Þessir tónleikar eru helgaðir
byggingu tónlistarhúss. Forsaga
þess máls er sú, að móðuramma
Hodgkinson, Leedice Kissane, var
sendikennari Fulbright-stofnunar-
innar við Háskóla íslands um
tveggja vetra skeið, þar sem hún
kenndi amerískar bókmenntir.
Hún tók miklu ástfóstri við landið
og sérstaklega sýndi hún íslensku
tónlistarlífi mikinn áhuga. Þegar
Ashkenazy gekkst fyrir tónleikum
í Albert Hall í Lundúnum til styrkt-
ar tónlistarhúsi ákvað Kissane að
leggja sitt af mörkum til bygging-
ar tónlistarhússins með því að
bjóða fram dótturson sinn til tón-
leikahaids hér.
Randall Hodgkinson vakti fyrst
alþjóðaathygli 1981, þegar hann
vann fyrstu verðlaun í tónlistar-
keppni fyrir píanista, sem Rocke-
stjómaði hér á tónleikum veturinn
1971—1972. (Fréttatílkynning)
BARNA- og unglingastarf á
vegum IBM á Islandi er nú hafið
í samvinnu við Skáksamband Is-
lands og Taflfélag Reykjavíkur.
Það felst í útgáfu leiðbein-
ingabæklinga og dreifingu þeirra
til barna og unglinga á grunn-
skólaaldri. Ennfremur verður
haldið skákmót fyrir sömu aldurs-
flokka í mars nk.
Pyrsta bæklingnum, sem fjallar
um endatöfl, hefur þegar verið dreift
um landið og hefur Skáksamband
íslands séð um dreifinguna með að-
stoð taflfélaga. Nú í febrúarbyijun
kemur annar bæklingurinn og er
efni hans leikfléttur í skák, sá þriðji
er væntanlegur í marsbyijun og fjall-
ar um áætlun í skák.
Tilgangur bæklinganna er að gefa
væntanlegum þátttakendum í skák-
mótinu í mars kost á aðgengilegum
leiðbeiningum til undirbúnings, auk
þess sem þeir koma að gagni við
almenna skákþjálfun.
Að sögn Gunnars M Hanssonar,
forstjóra IBM á íslandi, var ákvörðun
um þetta starf tekin um líkt leyti og
IBM ofurskákmótið var haldið í
Reykjavík í febrúar 1987 og til-
kynnti hann við setningu þess móts,
að æsku landsins yrði boðið til veg-
legs skákmóts í mars 1988. Nú hefur
tími mótsins verið ákveðinn dagana
11. til 13. mars og verður það haldið
í Reykjavík. Mótinu er skipt í þijá
aldursflokka, 6 til 9 ára, 10 til 12
ára og 13 til 16 ára. Verðlaun verða
vönduð skáksett í yngri flokkunum,
en í þeim elsta verða veitt peninga-
verðlaun.
Til þess að öðlast þátttökurétt í
þessu móti, þarf fyrst að hafa leið-
aKpraucir jlæ
fvrir böm
beiningabæklingana í höndum og
glíma við þrautimar, sem í þeim em.
Síðan skulu væntanlegir þátt-
takendur að hafa samband við
taflfélagið í sínu byggðarlagi eða
umsjónarmann skákstarfs í skólan-
um. Hjá Skáksambandi íslands fást
nánari upplýsingar um tilhögun
mótsins og dreifíngu bæklinganna.
Efni bæklinganna unnu Davíð Ól-
afsson, Jón Þorvaldsson og Ólafur H
Ólafsson. Jóhann Hjartarson, stór-
meistari, ritar ungum skákiðkendum
kveðju á bakhlið fyrsta bæklingsins
og segir þar m.a.: „Hér er fylgt for-
dæmi sterkustu skákþjóða heims,
Sovétmanna og Englendinga, sem
byija á því að kenna endatöfl. Þau
hafa gefist vel til þjálfunar í gmnnat-
riðum skáklistarinnar. Dæmi í
bæklingnum em vandlega valin. Eg
þekki þau öll af eigin reynslu, svipað-
ar stöður hafa komið upp hjá mér í
keppni við alþjóðlega stórmeistara".
Randall Hodg- George Cleve
kinson pianó- stjómandi.
leikari.
feller-stofnunin og Gamegie Hall
gengust fyrir. Síðan hefur hann
hlotið margháttaðar viðurkenn-
ingar og leikið einleik austan hafs
og vestan. Auk þess að leika með
Sinfóníuhljómsveitinni á tónleik-
unum á fímmtudaginn mun
Hodgkinson leika á einleikstón-
leikum í Listasafni íslands föstu-
dagskvöldið 5. febrúar kl. 20.30
og verða þetta fyrstu tónleikarnir,
sem haldnir verða þar.
Stjómandinn á Sinfóníutónleik-
unum verður George Cleve. Hann
á að baki litríkan feril; hann hefur
um áratuga skeið stjómað öllum
helstu sinfóníuhljómsveitum
heims. Hann er snillingur í tónlist
Mozarts og hefur í mörg ár stjóm-
að flestum Mozart-hátíðum í New
York og San Fransisco. Hann
KONUR í STJORNUNARSTORFUM
INNRÍTUNTIL
5.FEB.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
Amerísk
úrvalsvara
LÆKKAÐ VERÐ!
SIMI:
621066
KONUR STEFNA NÚ STÖÐUGT HÆRRA
INNAN FYRIRTÆKJA.
TIL STJÓRNUNARSTARFA HAFA PÆR
ÝMSA EÐLISLÆGA HÆFILEIKA
UMFRAM KARLA. ÞÁ HÆFILEIKA BER
AÐ EFLA OG ÞETTA NÁMSKEIÐ
STUÐLAR BEINLÍNIS AÐ ÞVÍ
EFNISÞÆTTIR: Konur í stjórnun • Stjórnunarferlið / völd og pólitík
• Þróun stjórnunarstíls • Akvarðanataka - lausnir • Hvatar til árangurs
/ myndun vinnuhópa • Að vera leiðtogi • Starfsdeiling • Starfsframi. ■
LEIÐBEINANDI: Dr. Judith Mower frá Syracuse University. Hún er eigandi
ráðgjafarfyrirtækis í Syracuse í New York, en fyrirtækið sérhæfir sig í
stjórnun. Dr. Judith Mower hefur unnið á vegum fjölda þekktra fyrirtækja,
svo sem Chrysler Corporation, Philips Corporation, Project Management
Association of Women Business Owners. Hún er einnig höfundur fjölda
greina um stjórnun og samskipti. - Námskeiðið fer fram á ensku.
TÍMI OG STAÐUR:
8.-9. febrúar kl. 9.00-17.00 að Hótel Loftleiðum, Kristalsal.
ATHUGIÐ! STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKIR FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í PESSU NÁMSKEIÐI.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími 6210 66
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88