Morgunblaðið - 03.02.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
Reuter
Hríð í Istanbul
Umferðin stöðvaðist í Istanbul í gær vegna fyrstu. snjóa vetrarins þar í
borg í vetur. Á myndinni má sjá gangandi vegfarendur flýja undan
hríðinni meðan verkamaður mokar snjó af gangstéttinni. í baksýn er
Yeni Cami, eða Nýja moskan.
Portúgal:
Do Amaral á
ný formaður
Miðdemókrata
Povoa de Varzim, Portúgal, Reuter.
DIOGO Freitas do Amaral var á
sunnudag kjörinn á ný leiðtogi
Miðdemókrataflokksins (CDS) í
Portúgal. Do Amaral var einn
þriggja stofnenda CDS árið 1975
og stýrði flokknum á fyrstu árum
hans við vaxandi gengi. Hann
sagði síðan af sér öllum trúnað-
arstöðum vegna innanflokks-
ágreinings um hugmyndir og
leiðir. Hann hefur verið prófess-
or í lögum síðan. Hann bauð sig
fram gegn Mario Soares i for-
setakosningunum í Portúgal og
tapaði naumlega.
Miðdemókrataflokkurinn var um
hríð þriðrji stærsti flokkurinn og do
Amaral naut mikils persónufylgis.
Því var það verulegt áfall, þegar
hann sagði sig úr flokknum. Mið-
demókrataflokkurinn hefur upp á
síðkastið lotið forystu Adriano Mo-
reira, og orðið fyrir miklu fylgistapi
í öllum kosningum síðustu árin. I
þeim síðustu fékk hann aðeins fjög-
ur þingsæti.
Það kom flatt upp á marga, að
do Amaral skyldi ákveða að snúa
sér að nýju að stjómmálum. Flest-
um ber ásamt um, að hann sé
líklegur til að stórefla fylgi CDS
og sjálfur gaf hann, að kjöri loknu,
skorinorða yfirlýsingu, sem benti
til að Miðdemókratar myndu nú
taka til hendinni, endurheimta fyrra
fylgi og stefnt skyldi að því að
Freitas do Amaral
hnekkja veldi núverandi stjómar-
flokks, Sósialdemókrata, undir
stjóm Cavaco Silva forsætisráð-
herra.
Vopnasala Bofors til Indlands:
Dagblað greinir frá
leynilegum greiðslum
Nýju Delhi, Reuters.
STÆRSTA dagblað Indlands, The Jadian Express birti í gær nákvæm-
ar upplýsingar um leynilegar greiðslur, sem blaðið segir að séu frá
sænska fyrirtækinu Bofors til að tryggja því mikilvægan vopnasamn-
ing við sænska herinn. Á forsíðu blaðsins er greint frá fjárhæð,
reikningsnúmeri, og viðtakanda einstakra greiðsla, sem nema 50
milljónum dala, eða um 1,8 milljörðum íslenskra króna, sem sagt er
að Bofors hafi greitt gegnum svissneska banka, aðallega í Genf,
árið 1986.
í sænskum fjölmiðlum var því
haldið fram í fyrra að Bofors hefði
greitt indverskum milligöngumönn-
um fé fyrir aðstoð vegna vopna-
samninga sem næmu 1,3 milljörð-
um dala, eða 61jl milljarði íslenskra
króna, við indverska herinn. The
Indian Express hefur gagnrýnt ind-
versku ríkisstjómina mjög eftir
, þessar upplýsingar og sakað Rajiv
Gandhi um að vemda sakboming-
ana með því að láta farast fyrir að
rannsaka málið.
Stjómendur Bofors hafa sagt að
allar greiðslur sem ekki sé getið í
samningnum hafi verið auka-
greiðslur vegna uppsagna umboðs-
manna eftir að Gandhi hafí óskað
eftir því að engir milligöngumenn
verði notaðir í viðskiptunum. Sænsk
lögregluyfírvöld sögðu í janúar að
rannsókn málsins yrði hætt vegna
ónógra sannanna.
Indverska blaðið greinir frá 30
milljón dala greiðslu (1,1 milljarða
íslenskra króna) til fyrirtækis, sem
skráð .sé í Panama, 8 milljóna dala
(296 milljóna íslenskra króna)
greiðslu til annars fyrirtækis og
minni til annarra fyrirtækja. Blaðið
bendir á að stjómendur Bofors,
Gandhi og aðrir ráðherrar hafí sagt
oftar en einsu sinni að engar
greiðslur hafí gengið til milligöngu-
manna. Áætlað er að þingnefnd sem
fjallar um málið skili áliti sínu þeg-
ar indverska þingið hefst að nýju
22. febrúar.
Mótmæli við rúmenska
sendiráðið í Varsjá:
Einn fundarmanna
ennþá í varðhaldi
Varqjá. Reuter.
PÓLSKA lögreglan hefur
sleppt öllum nema einum manni
af um 50 mönnum, sem hand-
teknir voru eftir mótmælafund
við rúmenska sendiráðið i Var-
sjá á mánudag.
Að sögn talsmanns útlægra
samtaka, sem kalla sig Frelsi og
friður (WiP), var efnt til mót-
mælafundar við sendiráið til að
sýna samstöðu með rúmenskum
verkfallsmönnum. Jan Tomasi-
ewicz, félagi í samtökunum, var
meðal hinna handteknu og hafði
hann ekki verið látinn laus í gær.
Hefur hann ekki sinnt kalli um
að koma til herþjónustu. Ellefu
félagsmenn aðrir sitja f pólskum
fangelsum fyrir að neita að gegna
herþjónustu. Kröfðust þeir þess
að fá að vinna borgaralega þegn-
skylduvinnu í stað þess herþjón-
ustu en var synjað og stungið inn.
Mótmælafundurinn var stuttur
því eftir augnablik birtust lög-
reglumenn gráir fyrir jámum og
brutu mótmælin á bak aftur.
Fundurinn var liður í samræmd-
um aðgerðum stjómarandstæð-
inga í Varsjá, Moskvu, Prag og
Búdapest. Munduðu fundarmenn
fána og mótmælaborða með merki
Samstöðu, hinna óháðu og útlægu
verkalýðsfélaga.
Reuter
Pólskir andófsmenn á mótmælafundi, sem haldinn var til stuðn-
ings rúmenskum verkfallsmönnum, við sendiráð Rúmeníu í
Varsjá.
Sprenging- í
N-Kóreu:
Öll hús í 2,5
km fjarlægð
gjörónýt
Hong Kong. Reuter.
BLAÐIÐ Sing Tao Jih Pao í
Hong Kong skýrði frá því í gær
að 120 manns hefðu beðið bana
og um 5.000 slasast þegar
kínversk vopna- og sprengju-
flutningalest sprakk í Norður-
Kóreu, skammt sunnan
kínversku landamæranna, í des-
ember síðastliðnum.
Blaðið hefur eftir Kínveijum, sem
búa í landamærahéruðum, að gífur-
leg sprenging hefði orðið í Jestinni
meðan hún staldraði við í jám-
brautarstöð norður-kóreska hersins
skammt frá kínversku landamæra-
borginni Kanggye. Gjöreyðilögðust
allar byggingar á svæði sem nær
2,5 kílómetra frá stöðinni.
Gjaldþrot fyrrverandi ríkis-
sljóra harmað af Texasbúum
New York Times
GJALDÞROT Johns B. Connallys, fyrrverandi ríkisstjóra Texas, fjár-
málaráðherra og forsetaframbjóðenda, síðastliðið sumar var ekki
aðeins persónulegt áfall fyrir Connally og fjölskyldu hans heldur
allt Texasríki. fbúar þess voru enn einu sinni minntir óþægilega á
efnahagslega hnignun rikisins þegar Connally hjónin héldu uppboð
á eignum sinum í siðustu viku. Eftir fjögurra daga uppboðshald
höfðu fengist 2,7 milþ'ónir dollara (um 100 millj. ísl. kr.) fyrir munina.
„Það hlýtur að vera sárt fyrir rándýr listaverk og dýrmæta fom-
þau að selja þessa hluti," sagði
Betty Stansell, ein þeirra fjölda
Texasbúa sem borguðu fimmtán
dollara til þess að sækja uppboðið.
„Ég veit ekki hvað fólki í Chicago
eða New York finnst um þetta.
Hvort þeim finnist þetta hlægilegt,
sorglegt eða láti sér fátt um fínnast.
Eflaust hlakkar í sumum að sjá
Texas vegna illa. En þrátt fyrir
allt höfum við margt til þess að
vera stolt yfír, og við erum síður
en svo búin að leggja árar í bát.
Connaily-hjónin eiga eftir að rétta
úr kútnum, eins og frú Connally
benti á, og það sama á við um
Texas,“ sagði Betty.
1100 gripir
Þótt að John B. Connally væri í
þann veginn að missa úr eign sinni
gnpi virtist söknuðurinn vera
mestur vegna haglabyssu, sem
hann hafði unnið í skotkeppni í
Oklahoma árið 1977.
„Við vorum með lið frá Texas
sem keppti gegn 30 öðrum liðum
víðsvegar að frá Bandaríkjunum.
Eftir tveggja daga skothríð hreppt-
um við fyrsta sætið,“ sagði
Connally. „Það er dapurlegt að
missa þetta allt saman. Það er saga
á bak við hvem einasta þessara
1100 gripa. Maður er ekki bara
láta af hendi einhveija veraldlega
hluti heldur hluta af lífi manns."
Tapaði á fasteignum
Connally varð gjaldþrota í júlí sl.
eftir að Qárfesting hans og Ben
Bames, fyrrverandi aðstoðarríkis-
stjóra, í fasteignum hætti að bera
arð. Connally er persónulega ábyrg-
ur fyrir stórum hluta af lántökum
þeirra og var uppboðið á eignum
fjölskyldunnar tilraun til þess að
greiða lánadrottnum hluta þeirra
49 milljón Bandaríkjadollara (um
1800 milljónir ísl. kr.) sem hann
skuldar.
Efasemdarmenn halda því reynd-
ar sumir fram að það hafi verið
ofmetnaður og dómgréindarleysi
Connallys sem hafí komið honum á
kné ásamt hinni efnahagslegu lægð
sem hefur verið í Texas eftir hmn
olíuverðsins 1985. Enn aðrir segja
viðskiptavini Connallys koma verr
út úr þessum viðskiptum en hann
sjálfur. Connally er langt frá því
að nálgast fátæktarmörkin þrátt
fyrir gjaldþrotið. Hann fær að halda
persónulegum eignum að andvirði
30.000 Bandaríkjadala (1,1 millj.
ísl. kr.) og 80 hektörum af 1360 í
kringum búgarð sinn fyrir sunnan
San Antonio. Hann á auk þess sæti
í stjómum nokkurra fyrirtækja, er
með góð sambönd í viðskiptalífí
Texas, og fær eftirlaunagreiðslur
frá ríkinu vegna flölmargra opin-
John B. Connally lítur ásamt eig-
inkonu sinni, Nellie, yfir hluta
þeirra muna sem þau þurftu að
selja á uppboði vegna gjaldþrots
Johns.
berra embætta sem hann hefur
gegnt.
Gjaldþrotið í fyrra er óneitanlega
eitt það versta sem fyrir Connally
hefur komið á erilsömum lifsferli
hans. Hann varð fyrir skoti 22.
nóvember 1963 þegar John F.
Kennedy, Bandaríkjaforseti var
myrtur, var sýknaður af mútukæru
þegar hann gegndi embætti fjár-
málaráðherra og eyddi 12 milljón-
um Bandaríkjadala í misheppnaðri
tilraun þess að verða útnefndur
forsetaframbjóðandi Repúblikana-
flokksins árið 1980.