Morgunblaðið - 03.02.1988, Side 27
Bretland
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
27
Feðgar neita
að sitja fyrir
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ANDLITSMYNDASAFNIÐ í Lundúnum, National Portrait Gallery,
sem leitast við að hafa andlitsmyndir af þekktum persónum i þjóðlífi
og sögu Bretlands, fór fram á það við rithöfundinn Kingsley Amis,
að hann sæti fyrir ásamt með syni sfnum, Martin Amis, sem einnig
er rithöfundur. Kingsley Amis hefur harðneitað þessari bón.
Kingsley Amis, sem fyrst varð
frægur fyrir skáldsöguna Lucky
Jim og hlaut Booker-verðlaunin
árið 1986 fyrir söguna Old Devils,
er í hópi bestu og vinsælustu rithöf-
unda Breta, sem nú fást við skriftir.
Hann er mikill meistari ensks máls
og hæðist óspart að ýmsu í fari
persónanna í sögum sínum. Þær eru
gjama miðaldra drykkfelldir karlar
og ráðríkar konur.
Martin Amis, sonur hans, er nú
þegar í hópi bestu og þekktustu
rithöfunda af yngri kynslóð í Bret-
landi. Þekktasta saga hans til þessa
er Money, sem fjallar um rótlaust
fólk, sem hefur peninga sem einu
siðferðisverðmæti. Hann er bók-
menntaritstjóri hjá The Observer
og skrifar reglulega í blaðið, sérs-
taklega um siðleysi kjamorku-
vopna. Kingsley Amis segist eiga í
erfiðleikum með að lesa verk sonar
síns og hefur enga þolinmæði til
að hlusta á „kjamorkublaðrið" í
honum. Þegar þeir hittast, sem
þeir gera reglulega við málsverð á
sunnudögum, láta þeir sér yfirleitt
nægja að ræða um stflfarsleg álita-
efni.
Dr. John Hayes, forstöðumaður
Andlitsmyndasafnsins, fór fram á,
að þeir feðgar sætu fyrir. Kingsley
Amis hafnaði boðinu og sagði í
svarbréfi, að þetta væri eithvert
aulalegasta tilboð, sem honum hefði
borist. Svo hélt hann áfram: „Ef
þessi neitun verður til þess, að lista-
maðurinn hefur rúman tíma, getur
hann gripið til þess að mála „the
two Ronnies". Ronnamir tveir em
alþekktir . gamanleikarar úr sjón-
varpi í Bretlandi.
Martin Amis sagðist styðja skoð-
un föður síns, þótt þetta færi
kannski ekki eins mikið í taugamar
á sér og honum. „Þetta er verra
fyrir hann, því að hann er eldri í
faginu, en þetta er hræðileg hug-
mynd. hvemig áttum við að sitja
fyrir? Kannski átti ég að sitja á
hjám föður míns."
Nafnaleikur
í Moskvuborg
Moskvu. Reuter.
BREZHNEV-hverfi fyrirfinnst ekki lengur í Moskvuborg. f fyrra
var nafni þess breytt aftur í sitt gamla horf, Cheryomishki-
hverfi. Nú eru uppi kröfur um, að nöfnum fleiri hverfa, sem
helguð voru hetjum með vafasaman orðstír, verði breytt. Þar
eru efst á blaði nöfn tveggja af vildarvinum Stalíns: Voroshilovs
marskálks og Mikhails Kalinms.
Voroshilov barðist svo sem
nógu hraustlega í borgarastríðinu
og hlaut herforingjatign fyrir. En
seinna, eftir að Stalín gerði hann
að yfírmanni Sovétheijanna,
leiddi 15 ára embættisganga hans
til ólýsanlegra hörmunga. Eða
eins og bent er á í grein í blaðinu
Moskovskaya Pravda þá var það
Voroshilov, sem stjómaði fjölda-
drápum á yfirmönnum í hemum
í hreinsunum Stalíns á þriðja ára-
tugnum.
Á frægu málverki, sem hékk
uppi á vegg í Kreml, sjást þeir
standa hlið við hlið, Stalín og
Voroshilov. „En í Finnlandsstríð-
inu 1940 kom í ljós, að við áttum
ekki ósigrandi herforingja," segir
í greininni.
„Þremur ámm áður hafði Vo-
roshilov — þá orðinn yfírmaður
hersins — látið viðgangast, að
efnt væri til réttarhalda yfír raun-
verulegum herforingjum, sem svo
vom líflátnir, en þessir sömu
menn höfðu verið félagar hans
og undirmenn áratugum saman,“
sagði f Moskovskaya Pravda.
„Herinn varð fyrir alvarlegu
tjóni af þessum sökum og það
hafði hörmulegar afleiðingar í för
með sér á fyrstu stigum stríðsins
(seinni heimsstyijaldarinnar). Við
minnumst þess, að herir okkar á
norðvesturvígstöðvunum — undir
stjóm Voroshilovs — vom við það
að missa Leningrad. Þá fyrst skip-
aði yfírstjóm hersins Georgy
Zhukov í hans stað. Svo hvers
vegna ættum við að vera að nefna
borgarhverfi eftir Voroshilov?"
Breiðgata ein í Moskvu ber
nafn Kalinins, svo og neðanjarðar-
brautarstöð og átta verksmiðjur í
borginni. En eins og lesendur em
minntir á í greininni: „Kalinin var
æðsti maður dómsmála um 30 ára
skeið, en lét sem hann sæi ekki
lögleysumar sem framdar vom
fyrir framan nefíð á honum.“
„Enginn heldur því fram, að
við ættum að gleyma nöfnum
þeirra Brezhnevs, Voroshilovs og
Kalinins .. við megum ekki endur-
taka fyrri mistök okkar og afmá
nöfn úr sögunni. En verðum við
endilega að heiðra minningu
þeirra með því að nefna hverfi,
götur, torg og verksmiðjur eftir
þeim?“ spyr greinarhöfundur.
Það var einkar kaldhæðnislegt
að láta Cheryomushki-hverfíð
bera nafn Brezhnevs, af því að
það var Khrústsjov, sem stóð fyr-
ir uppbyggingu hverfisins. Hann
beitti sér fyrir hönnun og gerð
fleiri stórvirkja í mannvirkjagerð,
svo sem Ráðstefnuhallarinnar,
Luzhniki- íþróttavangsins, Kalin-
in-breiðstrætisins og Ostankino-
sjónvarpstumsins.
SVARI/36 (QUERY/36)06IDDU | 15.2.
INNRITUN TIL
I2.FEB.
SÍMI:
621066
INNRITUN TIL
12. FEB.
SIMI.
621066
ÞÚ VERÐUR ÞINN EIGIN „KERFIS-
FR/EÐINGUR" Á IBM SYSTEM/36
getur notað gagnasöfnin, gert fyrirspurnir og útbúiö
prentlista, svo nokkuð sé nefnt.
IDDU (Interactive Data Definition Utility) er skrásetn-
ingin sem þú notar í Svara 36.
LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen.
TÍMI OG STAÐUR:
15.-17. feb kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
MS-DOS, FRAMHALD I 15.2.
EINKATÖLVAN BÝR YFIR ÓTAL
MÖGULEIKUM EN FÆSTIR NOTENDUR
HENNAR NÝTA ÞÁ TIL FULLNUSTU.
EFNI:
• Flóknari aðgerðir stýrikerfisins • Umsjón umhverfis
• Uppsetning og meðhöndlun skráarkerfa á hörðum
diski • Runuvinnsla • Röðun með íslenskum stöfum.
LEIÐBEINANDI:
Björn Guðmundsson kerfisfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR:
15.-18. feb. kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
RITVINNSLUKERFIÐ
INNRirUNTIL
12. FEB.
SE RITVINNSLA EITTHVAÐ FYRIR ÞIG,
ÁTT ÞÚ ERINDI VIÐ WORD KERFIÐ,
eitt hið öflugasta og mest notaða hérlendis.
SIMI:
621066
Word kerfið inniheldur m.a. sjálfvirkt efnisyfirlit
og atriðaskrá. í því má vinna samtímis
á 7 mismunandi skrár.
EFNI:
• Skipanir kerfisins. • Uppsetning skjala og bréfa.
• íslenskir staðlar. • Æfingar.
LEIÐBEINANDI:
Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari.
TlMI OG STAÐUR:
15.-18. feb. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
152.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Word-framhald, 8.-10. feb. og Alvís vörukerfi 8.-11. feb.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
UÓSRITUNARVÉLAR