Morgunblaðið - 03.02.1988, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
32
Norræna húsið:
Fyrirlestur um
Arabískt lífsform
HUSSEIN Shehadeh blaðamaður, flytur fyrirlestur um
„Arabískt lífsform og afstöðu og skilning eða misskilning
Vesturlanda á hugarheimi araba“, í Norræna húsinu í kvöld
kl. 20:30.
Norðfjörður:
Hættavartalm
á snjóflóðum
NnrAfSWIi
Hussein Shehadeh er þekktur
blaðamaður og fyrirlesari um
arabísk málefni og er hann hér í
boði Blaðamannafélags íslands.
„ Hann er fæddur í Jerúsalem af
palestínsku foreldri en hefur verið
danskur ríkisborgari síðastliðin 12
ár.
SAMTÖK kvenna á vinnumark-
aði efna til fundar á Hótel Borg
miðvikudagskvöldið 3. febrúar,
kl. 20.30.
Á fundinum verður fjallað um
kjaramál og stöðuna í samninga-
málunum. Ræddir verða þeir
kjarasamningar sem þegar hafa
Seirawan sagði að það væri
greinilegt að Kortsjnoj hefði ekki
misst baráttuviljann með árunum.
„Þegar Jóhann virtist vera að
vinna vorum við allir ánægðir og
sögðum: Guði sé lof að Viktor man
loks eftir því að hann er að verða
sextugur. En hann teflir enn mjög
vel,“ sagði Seirawan.
Þessi endasprettur Kortsjnojs
bandi með fyrirlestrinum í kvöld
og verða umræður að honum lokn-
um. Fyrirlesturinn er opinn
almenningi. Hvetur Blaðamanna-
félagið félagsmenn sína til að
sækja hann og fræðast um stöðu
mála í arabaheiminum.
Sjá grein eftir Hussein She-
hadeh á bls. 20.
verið gerðir og þær kröfur sem
Samtök kvenna á vinnumarkaði
telja að setja þurfi fram og beij-
ast fyrir að ná. Framsögn flytja:
Sigrún Ágústsdóttir, Kristín Frið-
riksdóttir og Bima Þórðardóttir.
Fundarstjóri _ verður Guðlaug
Teitsdóttir. Á eftir framsögum
verða almennar umræður.
hefur vakið mikla athygli hér og
í mótsblaðinu er stór fyrirsögn:
Viktori tekst það aftur! Fáir virð-
ast vita um kvartanir fslending-
anna um framkomu Kortsjnojs í
5. og 6. skákinni og Seirawan
sagðist þannig ekkert hafa heyrt
um þetta og vildi ekkert tala um
það.
Hussein Shehadeh við komuna
til landsins i gærkvöldi.
SEINT á mánudagskvöld var
talið að skapast hefði hættu-
ástand á Norðfirði vegna hugsan-
legra sqjóflóða. Af þeim sökum
var öll umferð bönnuð á svæði
innst í bænum og vinna felld nið-
ur i frystihúsinu og saltfiskverk-
un Síldarvinnslunnar. Snjóflóða-
hættan var á sama svæði og flóðin
miklu féUu árið 1974.
Síðdegis á mánudag barst Al-
mannavamanefnd Neskaupstaðar
aðvörun frá Almannavömum ríkis-
ins um að veðurskilyrði gæfu til
kynna að snjóflóðahætta gæti verið
yfirvofandi. Almannavamanefnd
Neskaupstaðar kom þegar til fundar
og ákvað að loka fyrir alla umferð
um svæðið eins og hægt væri. Af
þeim sökum var vinna felld niður í
frystihúsinu og I saltfiskverkun
Síldarvinnslunnar.
Lögreglan hafði bifreið á staðnum
sem stöðvaði alla umferð inn á svæð-
ið. Að morgni þriðjudags lét al-
mannavamanefnd á staðnum kanna
fyallið ofan við bæinn. Var talið eft-
ir þá könnun að mesta hættan væri
liðin hjá og því var umferðarbanni
aflétt og vinna hófst á ný eftir há-
degi.
Ágúst
Vogar:
Hreppurinn
kaupir húsnæði
V atnsley sustr andarhreppur
hefur keypt húsnæði undir skrif-
stofur og bókasafn í nýju þjón-
ustumiðstöðinni, sem er verið að
byggja að Iðndal 2 í Vogum.
Hreppurinn kaupir alls um 150
fermetra fyrir rúmar 5,8 milljónir
króna. Gerður hefur verið samning-
ur við byggingaraðila hússins,
Lyngholt sf., um að skila húsnæðinu
fullbúnu um mánaðamótin ágúst-
september næstkomandi. í hinu
nýja húsnæði verður almenn af-
greiðsla hreppsskrifstofu, aðstaða
byggingarfulltrúa, fundarherbergi
og bókasafn. E.G.
Leiðrétting
í frétt á Akureyrarsíðu Morgun-
blaðsins í gær var mishermt að
meint svik læknis beindust gegn
Sjúkrasamlagi Akureyrar. Hér var
um að ræða Sjúkrasamlag Suður-
Múlasýslu á Eskifirði. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Úr umferðinni í Reykjavík 1. febrúar 1988
Árekstrar: 21.
Ökumaður og farþegi voru fluttir í sjúkrabifreið á Slysadeild eftir
árekstur tveggja bfla á mótum Bfldshöfða/Breiðhöfða kl. 11.56.
Radarmælingar leiddu til 11 kæra fyrir of hraðan akstur.
Ökurmaður var sviptur ökuréttindum á staðnum er hann var staðinn
að því að aka vestur Hringbraut með 106 km/klst hraða. Hann var
stöðvaður við Bjarkargötu kl. 22.40. Leyfílegur hámarkshraði þar er
50 km/klst.
Aðrir sem fóru of hratt í Reykjavík á mánudag mældust aka um
Ártúnsbrekku: 81—91 km/klst.
Kleppsveg: 81—98 og 100 km/klst.
Kringlumýrarbraut: 99 og 101 km/klst.
Laugaveg austan Nóatúns: 90 km/klst.
Snorrabraut: 95 km/klst.
Sætún: 81 km/klst.
Lögreglumenn í vegaeftirliti utan Reykjavíkur sendu inn skýrslur fyr-
ir of hraðan akstur.
Reykjanesbraut: 104—111—114—115 og 126 km/klst á tímabilinu
kl. 16.00-17.00.
Klippt var af 16 ökutækjum fyrir vanrækslu á að fara til skoðunar.
Krariabiffeið íjarlægði 7 ökutæki vegna slæmrar stöðu.
Ekið á móti rauðu ljósi á götuvita: 9 ökumenn kærðir.
Stöðvunarskyldubrot: 1 ökumaður kærður.
í mánudagsumferðinni fundust 2 réttindalausir ökumenn og 2 féllu
undir grun um ölvun við akstur.
Samtals 52 kærur fyrir umferðarlagabrot.
Frétt frá lögreghmni í Reykjavík.
Sýndar verða myndir af mynd-
Fundur um kjaramál í kvöld
Kortsjnoj er Kortsjnoj
en Jóhann mannlegur
— segir Yasser Seirawan
St John. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsina.
„Viktor Kortsjnoj sýndi að hann var Viktor Kortsjnoj og Jóhann
_ sýndi að hann er aðeins mannlgur," sagði stórmeistarinnn Yasser
Seirawan í samtali við Morgunblaðið en Seirawan aðstoðaði Kortsj-
noj í einvígjum fyrir nokkrum árum. „Ég vissi svo sem að þetta
var ekki ómögulegt en bjóst þó alls ekki við þvi og hélt að Jó-
hann ynni einvigið eftir að hann vann 4. skákina," sagði Seirawan
ennfremur.
Skákeinvígið að snú-
ast í hreint taugastríð
Tftkn ITnA fíllAmnnJl C.v UnMMfinnnM.nta Uln Ann.nnná ...-H — ?-
St. John. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
SKÁKEINVÍGI þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsj-
nojs er að snúast upp í mikið taugastrið eftir að Friðrik Ólafsson
kvartaði yfir framkomu Kortsjnojs á meðan 5. og 6. einvígisskák-
irnar voru tefldar. Jóhann var ekki sjálfur viðstaddur þegar
dregið var um liti í tveggja skáka einvíginu sem nú er framund-
an, deilt var um við hvaða skákborð keppendurnir sitja og
Swetosar Gligoric yfirdómari einvígjanna mun í dag mælast til
þess við keppendur að þeir gangi ekki um gólf nálægt taflborðun-
um meðan andstæðingar þeirra eru að hugsa.
Það sem Friðrik Ólafsson hefur
gert athugasemdir við er að í
tveimur síðustu skákum hefur
Kortsjnoj verið óvenjumikið á
ferðinni milli leikja og gengið
fram og aftur á sviðinu þar sem
skákborðin eru. Þegar Jóhann var
að hugsa átti Kortsjnoj það til að
ganga meðfram borðinu þannig
að Jóhann sá hann skyndilega
útundan sér. Einnig reykti Kortsj-
noj mikið og kom stundum að
borðinu þegar Jóhann var að
hugsa og drap í sígarettunum í
öskubakka Jóhanns megin við
borðið.
Friðrik kvartaði við Gligoric í
5. skákinni og síðan aftur í 6.
skákinni og sagði Gligoric að
þetta væri á mörkum þess að vera
vítaverð framkoma, en gerði samt
engar athugasemdir við Kortsj-
noj. Jóhann heldur því hins vegar
fram að þetta hafí truflað sig og
hann hafí ekki náð að einbeita sér.
Þegar dregið var um liti í gær-
morgun var Friðrik Ólafsson
mættur fyrir hönd Jóhanns. Svo
háttar til í skáksalnum að skák-
borðin 7 voru í röð á sviðinu og
voru borð Jóhanns og Kortsjnojs
og Sokolovs og Spraggetts lengst
til hægri. Þar sem öðrum ein-
vígjum er lokið vildu mótshaldarar
færa þessi tvö á miðju sviðsins
svo áhorfendur þyrftu ekki að
sitja í öðrum enda salarins. Þegar
Kortsjnoj var tilkjmnt um þetta
fyrir litardráttinn brást hann hinn
versti við, stóð upp og kallaði að
hann vildi sitja við sama borð og
áður. Þetta féllst Gligoric á þrátt
fyrir mótmæli Friðriks, og sagðist
ekki geta hunsað óskir keppenda.
Campomanes forseta FIDE
líkaði þetta ekki, enda er honum
ekki vel við Kortsjnoj frá því
heimsmeistaraeinvígi þeirra
Kortsjnojs og Karpovs var haldið
á Fiiippseyjum. Hann sagði Glig-
oric að það væri aðaldómarans
en ekki keppenda að ákveða við
hvaða borð væri teflt. Sætaskip-
aninni hafði þó ekki verið breytt
í gærkvöldi.
Gligoric virðist hafa farið úr
sambandi við þetta allt saman.
Við litadráttinn voru keppendur
fyrst kallaðir upp og látnir velja
annað af tveimur umslögum og
innihald þeirra skar úr um hvor
þeirra fengi að velja úr öðrum
tveimur umslögum sem innihéldu
miða með áletrununum hvítt og
svart. Gligoric kallaði Kortsjnoj
upp að sviðinu og bað hann að
draga og sá skyndilega að hann
hafði rétt Kortsjnoj röng umslög.
Kortsjnoj dró þá úr þeim réttu og
kom upp að andstæðingur hans
átti að velja úr hinum umslögun-
um. Þá kallaði Gligoric á Andras
Adoijan, sem var þama fulltrúi
Kevins Spraggetts, og bað hann
draga. Adoijan gerði svo og þá
tilkynnti Gligoric að Kortsjnoj
hefði hvítt í fyrstu skákinni gegn
Spraggett!
Auðvitað þurfti að endurtaka
dráttinn og þá dró Friðrik hvítt
fyrir Jóhann í fyrri skákinni. Sum-
ir voru á því að Jóhanni kæmi
betur að hafa svart í fyrri ská-
kinni; nái hann jafntefli með
svörtu eru meiri möguleikar á að
hann endurheimti sjálfstraustið.
Aðrir töldu að það hefði verið
slæmt fyrir Jóhann að hafa svart
tvær skákir í röð og Jóhann sjálf-
ur var ánægður með að hafa hvítt
í fyrri skákinni.
Friðrik endurtók enn mótmæli'
sín gegn framkomu Kortsjnojs
eftir litadráttinn og í framhaldi
af því ákvað Gligoric að mælast
til þess við keppendur í dag að
þeir virtu ákveðnar umgengnis-
reglur á sviðinu. Hvorki Gligoric
né Campomanes sögðust geta litið
á þessar kvartanir sem formlega
kæru. Hún þyrfti að vera skrifleg
og sagðist Campomanes raunar í
samtali við blaðamenn hafa hvatt
Friðrik til að koma með skriflega
kæru í tíma svo hægt væri að
grípa til aðgerða fyrir skákina í
dag.
Ekki var í gærkvöldi búið að
taka ákvörðun í herbúðum íslend-
inganna hvort slíkt yrði gert, en
Friðrik ætlaði að skoða myndbönd
af skákinni á mánudag. Einnig
eru þeir að bræða með sér hvem-
ig eigi að svara Kortsjnoj í sömu
mynt, haldi hann uppteknum
hætti. Samkvæmt mínum heimild-
um er hugsanlegt að Jóhann taki
ekki í hönd Kortsjnojs þegar skák-
in hefst í dag í mótmælaskyni við
fyrri framkomu Kortsjnojs. Einnig
hefur verið stungið upp á, raunar
meira í gamni en alvöru, að Jó-
hann mauli harðfísk meðan á
skákinni stendur, en Jóhann er
hér vel byrgur af slíkri fæðu.
Þrátt fyrir áföll síðustu daga
bera menn sig vel. Það hefur ver-
ið talið merki um að gæfan sé að
snúast íslendingunum í hag að
Margeir Pétursson fékk tölvuna
sína úr viðgerð í gær. Tölvan hef-
ur verið notuð af þeim Jóhanni
til skákrannsókna en hætti að
starfa þegar kaffi helltist yfír
hana fyrir nokkrum dögum.