Morgunblaðið - 03.02.1988, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
Vaxtalækkun eitt
brýnasta verkefnið
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Björn Jóhannsson og Sighvatur Sveinbjörnsson smurstöðvarstjóri.
Hella:
„Maður vinnur mikið
á liðlegheitunum“
Björn Jóhannsson opnar hjólbarða-
verkstæði og smurstöð í nýju húsnæði
Selfossi.
BJORN Jóhannsson í Lyngási
við Hellu flutti á föstudag, 29.
janúar, hjólbarðaverkstæði sitt
yfir Rangá, í nýtt húsnæði
sunnan Suðurlandsvegar gegnt
Hellu.
í nýja húsnæðinu rekur Bjöm
einnig smurstöð fyrir smáa og
stóra bíla og hefur auk þess rými
til ráðstöfunar fyrir frekari bfla-
þjónustu. Bjöm hefur umboð fyrir
Olís í Rangárvalla- og Vestur
Skaftafellssýslu.
Bjöm hóf rekstur hjólbarða-
verkstæðis fyrir 11 ámm, 12.
janúar, og er þekktur fyrir lipra
þjónustu, afgreiðir menn jafnt á
nóttu sem degi, virkum dögum
sem helgum. „Nei, nei, ég hætti
því ekkert, maður vinnur mikið á
liðlegheitunum,“ sagði Bjöm á
opnunardaginn.
„Það er feikinóg að gera, ég
er með viðskiptavini um allt, líka
í Ámessýslu. Ég kann mjög vel
við þetta starf, það á vel við mig
að tala við menn og maður hittir
marga í þessu. Þetta er auðvitað
erfítt en það er gaman að hitta
hvem kjaft og tala við bændur
og fleiri sem koma og þurfa þjón-
ustu,“ sagði Bjöm Jóhannsson.
Hann er nú með rekstur beggja
vegna Suðurlandsvegarins, sunn-
an megin er smurstöðin og hjól-
barðaverkstæðið og að norðan, á
staðarhlaðinu á Hellu, rekur hann
bensínstöð Olís.
— Sig. Jóns.
Orkuverð — Haildóri
Jónatanssyni svarað
Athugasemd frá Kristínu Einarsdóttur
Morgunblaðinu hafa borist eftir-
farandi ályktanir sem samþykktar
voru á aðalfundi Félags ísl. stór-
kaupmanna fyrir skömmu.
Aðalfundur Félags íslenskra
stórkaupmanna minnist þess að 1.
janúar sl. voru 200 ár liðin frá því
að verslun á íslandi var gefín ftjáls
öllum þegnum Danakonungs.
í kjölfar þessa fyrsta sigurs í
verslunarmálinu fylgdu miklar
framfarir. Heimildir greina frá
miklum verðlækkunum, sérstaklega
sunnan- og vestanlands. Verðlækk-
anir þessar urðu þó ekki strax í
janúarmánuði 1788 heldur smátt
og smátt er á leið og markaðurinn
hafði aðlagast breyttum aðstæðum.
Verslun er ómissandi í nútíma
þjóðfélagi. Hún er órjúfanlegur
hluti framleiðslukeðjunnar og engin
vara getur talist fullframleidd fyrr
en komin í hendur neytenda. Af
þessu leiðir að engin atvinnugrein
getur talist annarri fremri, í raun
eru þær hver annarri háðar.
Nú er tækifæri að nýta legu
_>landsins, menntun og hugvit lands-
manna til stóraukins átaks í al-
þjóðlegri verslun. Engu minni líkur
eru á því að þjóðin nái árangri í
verslun og viðskiptum á alþjóða
mörkuðunum en í uppbyggingu
gæluverkefna innanlands.
Aðalfundur FÍS skorar því á
ríkisstjóm íslands nú á þessum
merku tímamótum í verslunarsögu
þjóðarinnar að ryðja úr vegi síðustu
leifum viðskiptahafta og færa þjóð-
inni nú loks fullt verslunarfrelsi.
Þetta má gera með viðskipta-
samningum við aðrar þjóðir, með
því að veita innflytjendum og er-
lendum seljendum fúllt frelsi til
samninga, með afnámi skatta er
íþyngja versluninni umfram aðrar
atvinnugreinar, með lækkun ytri
tolla sem mun gera innflytjendum
kleift að versla hvar sem er í heim-
inum allt eftir þvf hvar kjörin eru
hagkvæmust hveiju sinni. Reynsla
sögunnar kennir okkur að skrefín
1788 hafí reynst þjóðinni happa-
dijúg. Sagan mun sýna að átak nú
muni reynast þjóðinni ekki síður
farsælt.
Peninga- og verðlagsmál
t Nauðsynlegt er að festa í lög að
HBfn, Horaafirði.
MAGNÚS Jónasson, garðyrlgu-
maður í Blómalandi á Höfn, er
að hefja framleiðslu á hellum
ýmis konar.
Magnús ráðgerir að framleiða
hefðbundnar gangstéttarhellur,
milliveggjaplötur og kantstein ýmis
konar. Þá steypir hann brunna fyr-
verðmyndun verði undantekningar-
laust ftjáls.
Verðbólga og háir vextir hafa
veruleg áhrif til hækkunar vöru-
verðs. Vextir af rekstrarfé verslun-
arinnar eru nú um 50% á ári og
eru því stór kostnaðarliður í rekstri
verslunarfyrirtækja. Eitt brýnasta
verkefnið nú er að þessir vextir
lækki.
Annað stórt hagsmunamál neyt-
enda til lækkunar vöruverðs, er að
lög um afnám bankastimplunar nái
fram að ganga og að vilji Alþingis
í þeim efnum verði virtur. Lækkun
fjármagnskostnaðar sem af þessu
hlýst mun lækka vöruverð til néyt-
enda.
FÍS vekur athygli á því að nýleg-
ar toll- og skattbreytingar hafa
ekki lækkað rekstrarkostnað fyrir-
tækjanna svo neinu nemur en aukin
samkeppni mun á skömmum tíma
færa vöruverð í það horf sem ríkis-
stjómin stefndi að með aðgerðum
sínum. Bendir fundurinn á stór-
hækkaðar gjaldskrár opinberra
fyrirtækja, m.a. Pósts og síma, sem
hefur áhrif til hækkunar rekstrar-
kostnaðar verslunarfyrirtækja og
þar með hækkunar vöruverðs.
Fundurinn hvetur því opinber fyrir-
tæki til hófs í hækkunum á þjónustu
sinni.
Skattamál
Frá miðju síðasta ári hafa skatt-
byrðar almennings og fyrirtækja
stóraukist, ýmist með nýjum skött-
um eða hækkun eldri skatta. Allt
bendir til þess að skatttekjur ríkis-
sjóðs verði meiri á þessu ári en
nokkru sinni fyrr. Löngu er orðið
tímabært að draga úr ofstjómun-
artilhneigingu ríkisvaldsins og
almenningi verði gefínn rýmri um-
ráðaréttur yfír eigin fé.
Aðalfundur FÍS harmar að Al-
þingi skyldi með lögum nr. 2 frá
5. janúar 1988 samþykkja skerta
möguleika fyrirtækja til niður-
færslu á vörubirgðum úr 10% í 0%
á tveimur árum. Þessi skattpíning
kemur í veg fyrir stór og hagkvæm
vöruinnkaup verslunarfyrirtækja.
Lækkun framlaga í fjárfestingar-
sjóð úr 40% í 30% er óskastaða
þeirra sem yilja hafa atvinnurekstur
Qárvana og helst í leiguhúsnæði hjá
ir skólplagnir og fleira. Magnús
hefur á síðustu árum lagt hellur
umhverfis ýmis mannvirki á Höfn
og hefur slík hellulögft ávallt gjör-
breytt umhverfínu til hins betra.
Við framleiðslu þessa munu
starfa tveir eða þrír menn.
- JGG
bönkum og fjárfestingarfélögum.
Enn á ný hefur sérstakur skattur
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
verið framlengdur. Skattur þessi
eykur kostnað verslunarfyrirtækja
og kemur beint inn í verðlag vöru
og þjónustu. Skatturinn mismunar
auk þess atvinnugreinum gróflega.
Skatt þennan þarf að afleggja
strax.
Launaskattur og aðstöðugjald
hefur um nokkurt skeið verið hærri
á versluninni en öðrum atvinnu-
greinum. Aðalfundur FÍS krefst
þess að þessari mismunun verði nú
hætt og að skattar þessir verði
lækkaðir til jafns við aðrar atvinnu-
greinar.
Skattur á erlendar lántökur og
lánasamninga er dæmi um einn af
hinum nýju sköttum. Skattur þessi
er óréttlátur og illframkvæmanleg-
ur eins og reynslan sannar.
Virðisaukaskattur
Félagið telur að fresta beri
ákvörðun um upphæð (prósentu)
virðisaukaskattsins, þar til séð verð-
ur hver áhrif þeirra skattbreytinga,
sem áttu sér stað nú um áramótin,
verða á tekjur ríkissjóðs. Félagið
telur að staðgreiðsla virðisauka-
skattsins í tolli auki lánsfjárþörf
verslunarinnar, hækki vexti og þar
af leiðandi hækki verð á almennum
neysluvörum.
Tollamál
FÍS fagnar mörgum þeim tolla-
breytingum sem áttu sér stað nú
um áramótin. En betur má ef duga
skal. Ennþá eru margar vöruteg-
undir, sem ferðamenn sækjast eftir
erlendis, of hátt tollaðar og sú versl-
un færist ekki sem skyldi inn í
landið. Þessu þarf að breyta.
Útflutningstekna íslendinga er
að mestu aflað í Bandaríkjadollur-
um en ráðstafað í innflutning á
vörum og þjónustu frá löndum með
mun dýrari gjaldmiðil. Þessu má
breyta og um Ieið minnka viðskipta-
hallann með lækkun tollataxta á
innflutning frá löndum utan
EFTA/EBE. Lækkun ytri tolla
hvetur innflytjendur til innkaupa
frá þeim löndum þar sem verð og
gæði er hagkvæmast hveiju sinni
og tryggir besta nýtingu gjaldeyris-
tekna okkar.
Fundurinn minnir á baráttu fé-
lagsins fyrir FOB-tollun, þ.e. að
tollverð vöru verði ákveðið FOB-
verð vörunnar í stað núgildandi
CIF-verðs.
Með þessu móti verða tekjur
ríkissjóðs jafnmiklar af sömu vöru
hver svo sem flutningsmátinn er,
auk þess sem innflytjendum verður
ekki hegnt fyrir að velja einn flutn-
ingsmáta fremur en annan.
Aðalfundur FÍS harmar að áætl-
un fjármálaráðuneytisins um afnám
aðflutningsgjalda á fersku og frystu
grænmeti náði ekki fram að ganga
við umfjöllun Alþingis um breytingu
á tollalögum.
Grænmeti er hollustuvara sem
myndar sífellt stærri hlut í matar-
venjum íslenskra neytenda. Erfitt
er að skilja að þessi vara skuli nú
bera tvöfaldan matarskatt. Vernd-
arsjónarmið þessi þjóna ekki
manneldismarkmiðum íslendinga
og hamla gegn aukinni og jafnari
grænmetisneyslu.
Félagið mótmælir harðlega túlk-
un yfírvalda og misnotkun valds við
skilgreiningu á iðnaðarvöru og
landbúnaðarvöru. Gott dæmi er úr-
skurður landbúnaðarráðherra að
fryst grænmeti teljist nýtt og
ferskt, þrátt fyrir að geymsluþol
frystra matvæla sé á bilinu 12—18
mánuðir.
Augljóst er að frosin og unnin
matvæli eru iðnaðarvara og því
ekki innan verksviðs landbúnaðar-
ráðuneytisins.
Halldór Jónatansson forstjóri
Landsvirkjunar sfyðhæfir enn í
Morgunblaðinu 27. janúar sl. að
sú fullyrðing mín sé ekki rétt að
rafmagnsverð til almennings hér-
lendis sé með því hæsta miðað við
nágrannaþjóðimar.
I fyrstu athugasemd forstjórans
þann 8. desember sl. reyndi hann
að hrekja fullyrðingu mína með
því að taka sem dæmi að Reyk-
víkingar greiddu lægra raforku-
verð í smásölu en höfuðborgarbúar
flestra nágrannalandanna. Ég
benti vinsamlegast á í_ Morgun-
blaðinu 26. janúar sl. að íslending-
ar byggju ekki allir á höfuðborgar-
svæðinu.
Það breytir engu þótt Lands-
virkjun selji sína raforku í heild-
sölu á sömu gjaldskrá um land
allt, almenningur á landsbyggðinni
þarf að greiða hærra raforkuverð
en fólk hér í Reykjavík og ná-
grannalöndunum.
Heldur forstjóri Landsvirkjunar
að fólk á landsbyggðinni taki und-
ir það með honum að rafmagns-
verð til húshitunar sé lágt hér á
landi?
í fyrri athugasemd sinni vitnaði
Halldór í skýrslu Orkustofnunar
frá 1983 um áhrif raforkusamn-
ings við ÍSAL á raforkuverð til
almennings og túlkaði niðurstöður
hennar á þann veg að almenningi
væri ekki gert að greiða hærra
orkuverð en ella vegna rafmagns-
sölu til ÍSAL. Þessi túlkun er ekki
í samræmi við túlkun Jakobs
Bjömssonar forstjóra Orkustofn-
unar og Jóns Vilhjálmssonár sem
samdi skýrsluna.
Ekkert hefur enn komið fram
sem sýnir að raforkusamningurinn
við ÍSAL sé okkur hagstæður þótt
tvöföldun hafi orðið á rafmagns-
verði til ÍSAL. Það er ljóst að mat
okkar Halldórs á áhrifum raforku-
sölu til stóriðju á rafmagnsverð til
almennings er ekki það sama.
Ég læt þetta verða síðustu orð-
in á þessum vettvangi að svo
stöddu vegna þessa máls.
Magnús Jónasson við steypuvélina. Morgunblaíið/Jón G. Gunnarsaon
Höfn:
Helluframleiðsla hafin