Morgunblaðið - 03.02.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
I EÐVARÐ Þór Eðvarðason
sundmaður tekur þátt í sterku móti
í Austur-Berlín í næstu viku. í gær
tilkynntu mótstjómendur að heims-
meistarinn í flugsundi Pablo
Morales frá Bandaríkjunum mjmdi
taka þátt í mótinu og einnig Rainer
Heinkel einn besti skriðsundmaður
heims. Þá mun Rúmenia senda sitt
'■ sterkasta lið og einnig kemur sterkt
lið frá Ástralíu.
■ MICHAEL Gross, sundkapp-
inn sterki frá V-Þýskalandi, tekur
aftur á móti ekki þátt í sterku sund-
móti f Bonn 12.-14. febrúar.
Eðvarð Þór tekur þátt í mótinu,
en allir sterkustu sundmenn heims
verða í Bonn.
■ WALDOF Mannheim hefur
fengið til liðs við sig Austurríkis-
manninn Alfred Roschner. Hann
leikur með Tirol en félag hans lán-
aði hann út keppnistfmabilið.
■ STEVE King, 29 ára gamall
markvörður utandeildarliðsins
Chalfont St. Peter í Englandi, lést
á laugardaginn eftir að hafa lent f
samstuði við mótheija. Höfuð leik-
mannanna skullu saman með
þessum hörmulegu afleiðingum.
■ JOHAN Cruyff er nú oft
nefndur sem næsti þjálfari Barcel-
ona. Hann var í viðskiptaferð á
Spáni í byijun vikunnar og hitti þá
m.a. Joan Gaspart, varaforseta
Barcelona, en neitaði að þjálfara-
starfíð hefði borið á góma. Áður
hafði hann sagt að hann myndi
íhuga vel tilboð, ef slíkt bærist,
með næsta keppnistímabil f huga.
Cruyff lék með Barcelona á
sfðasta áratug og var maðurinn á
bak við fyrsta meistaratitil félagsins
1974.
I ZOLA Budd og Mary Decker
Slaney eru að hugsa um að taka
þátt í 10 km götuhlaupi í Bali 3.
apríl, en gert er ráð fyrir að kepp-
endur verði um fímm þúsund.
Verðlaunin eru ekki af lakara tag-
inu, meira en milljón dollarar. Keppt
verður í kvenna- og karlaflokki og
verði sett met í flokkunum, fá met-
hafamir hálfa milljón dollara í sinn
hlut, en 10 efstu í hvorum flokki
* fá 145 þúsund dollara. Heimsmet-
hafamir f 10 km götuhlaupi,
Bandaríkjamaðurinn Marc Nenow
og breska stúlkan Liz McColgan
(áður Liz Lynch) verða á meðal
þátttakenda og þá má nefna Franc-
esco Panetta, Ítalíu, og John
Treacy, írlandi.
■ JOHN Drummond,go\fkenn-
ari hjá GR, hefur nú opnað golf-
skóla. Hann er til húsa í nýja
Bílaborgarhúsinu að Fosshálsi
1. Golfskólinn er opinn alla virka
daga frá klukkan 16 og er opið til
klukkan 23. Á laugardögum er opið
frá 11 til 16. Nánari upplýsingar
era veittar á staðnum.
M JOHN Drummond er nú að
vinna að því að fá tvo erienda kenn-
ara til að aðstoða sig við kennslu
hjá GR og hjá öðram klúbbum en
venjan hefur verið að kennarar GR
ferðist á milli klúbba og leiðbeini
kylfíngum.
Mdomaranámskeld í áhalda-
fímleikum kvenna og karla verða
haldin í næstu viku og munu þeir,
sem sækja námskeiðin öðlast lands-
dómararéttindi, en nánarí upplýs-
ingar fást á skrifstofu Fimleika-
sambands íslands.
■ BRUCE Cleland lauk ferlin-
um með Stranraer í Skotlandi á
óskemmtilegan hátt. Hann er að
flytja til Bandaríkjanna og lék sinn
síðasta leik á laugardaginn í bikam-
um gegn Celtic. í sinni síðustu
spymu misnotaði hann viti og hefur
örugglega óskað sér að hann gæti
stokkið beint upp í flugvélina.
HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ
Þorbargur Aöalstalnsson sést hér skora eitt af átta mörkum - eftir að hafa leikið vöm Borlnge grátt.
Þorbergur Aðalsteinsson
skaut neistanum
sem kveikti upp í Saab-liðinu. Hann skoraði átta mörk
ÞORBERGUR Aðalsteinsson
kom, sá og sigraði þegar Saab-
liðið vann sigur, 22:15, yfir
Borlange í 1. deildarkeppninni
í Svíþjóð. Sœnsku blöðin sögðu
að Þorbergur hafi komið með
neista frá Eldfjallaeyjunni -
þegar hann kom að heima úr
jólafrfl. Neista, sem hafði náð
að kveikja upp í Saab-liðinu.
orbergur lék mjög vel og átti
stærstan þátt í að leikmenn
Saab gerðu út um leikinn í upphafí
seinni hálfleiksins. Staðan var, 9:5,
í leikhléi og á augabragði var stað-
an orðin 13:5, fyrir Saab. Þorbergur
fór á kostum og hélt uppi flugelda-
sýningu fyrir hina 490 áhorfendur.
Eftir það var aðeins formsatriði
fyrir Þorberg og félaga að ljúka
leiknum.
KNATTSPYRNA
Hættir England með Wales?
Mikil fundarhöld voru í Wrexham í gær um landslið Wales
Miklar líkur eru á því að Mike
England, landsliðsþjálfari
Wates, verði látinn hœtta störf-
um í dag - eftir átta ára starf
með landslið Wales. Forráða-
menn welska knattspyrnusam-
bandið sátu saman á löngum
fundi í gœr, þar sem þeir
ræddu um farmtíð landslið
Wales.
Peningaskortur hjá sambandinu
hefur verið mikill. Mike Eng-
land hefur minnstu launin af
landsliðsþjálfuranum á Bretlands-
ggggmil eyjum, eða 650
FráBob þúsund ísl. kr.
Hennessy Stjórnarmennirnir,
i Englandi sem hafa verið
óhressir með að
Wales hafí ekki náð að tryggja sér
rétt til að leika í lokakeppni HM
og EM, hafa boðið England að vera
Mlke England
þjálfari í hlutastarfí - fá vissar
greiðslur fyrir hvem leik. Þær hug-
myndir hafa ekki fengið góðan
hljómgrann hjá England og lands-
liðsmönnum Wales.
„Kevin Ratcliffe, fyrirliði Wales og
Everton, segir að allir leikmenn
Wales vilji hafa England áfram.
„Við höfum verið óheppnir að ná
ekki betri árangri. Það er ekki
England að kenna - hann hefur
gert frábæra hluti með landslið
Wales."
Þeir sem hafa verið orðaðir sem
eftirmenn Englands, er Terry
Yorath, framkvæmdastjóri
Swansea og John Toshack, þjálfari
JReal Sociedad á Spáni. Þeir era
báðir fyrram landsliðsmenn Wales.
Talið er að þeir myndu ekki sætta
sig við minni árslaun heldur en 1.7
I milljón kr.
KNATTSPYRNA
Brasilíumenn kröfuharðir
Fara fram á að fá allar auglýsinga- og sjónvarpstekj-
ur í sambandi við þátttöku sína í móti í Danmörku
DANiR hafa fengiö sig
fullsadda af heimtufrekju og
kröfum Brasiliumanna, sem
þeir hafa boðið til að taka
þátt í 100 ára afmælismóti
danska knattspyrnusam-
bandsins í júní 1989.
Brasilíumenn hafa farið fram
á að Danir borgi þeim 3.6
millj. islenskar kr. fyrir hvem leik,
auk ferðakostnaðar og uppihalds.
Nú heimta þeir að fá allar auglýs-
inga- og sjónvarpstekjur í
sambandi við beinar útsendingar
frá leikjum þeirra í Danmörku -
sem verða sýndir til N- og S-
Ameríku.
„Við sögðum, Nei!,“ sagði Frits
Ahlström, sterfsmaður danska
knattspymusambandsins. „Ef
samningar nást ekki við Brasilíu-
menn - munum við ræða við
heimsmeistarana frá Argentínu.“
Landslið Dana og Svia taka þátt
í keppninni. Hollendingar gefa
ákveðið svar nú næstu daga, hvort
þeir verða með. Það er Thijs Li-
bregts, þjálfari Hojlands, sem
tekur ákvörðun um það. Þess má
geta að hollenska knattspymu-
sambandið á einnig 100 ára
afmæli 1989. Þeir ætla að halda
upp á það með þvf að leika vin-
áttulandsleik gegn Englandingum
í Amsterdam.
KNATTSPYRNA
Sjónvarpað
beint frá EM
IV-Þýskalandi
Mikill áhugi er fyrir Evrópu-
keppni landsliða í knatt-
spymu sem verður í V-Þýskalandi
í sumar. Sjónvarpað verður frá
keppninni um allan heim og hafa
36 þjóðir fyrir utan Evrópu tryggt
sér rétt til að sýna frá keppninni.
„Við verðum með beina útsendingar
frá Evrópukeppninni. Öll sterkustu
landslið Evrópu verða saman komn-
ir í V-Þýskalandi og er keppnin
mjög áhugaverð - sú sterkasta sem
hefur farið fram,“ sagði Bjami Fel-
ixson, íþróttafréttamaður sjón-
varpsins.
Bjami sagði að það mætti fastlega
reiknað með mjög skemmtilegum
leikjum í EM. „Allir leikimir verða
úrslitaleikir."
VIÐURKENNING
Slgmar Þrðstur Óskarsson
Sjgmar Þröstur
íþróttamadur
ársins í
Garðabæ
SIGMAR Þröstur Óskarsson,
markvörður Stjörnunnar í 1.
deildinni í handknattleik, var
um helgina útnefndur íþrótta-
maður ársins 1987 í Garðabæ.
Sigmar er 26 ára, fæddur og
uppalinn í Vestmannaeyjum.
Þar æfði hann með Þór og lék sinn
fyrsta meistaraflokksleik með liðinu
16 ára. Síðan gefur hann leikið með
Fram og KA, en síðustu tvö árin
hefur hann staðið í marki Stjöm-
unnar og átti stóran þátt í að liðið
tryggði sér bikarmeistarartitilinn í
fyrra.
Sigmar hefur leikið 4 A-landsIeiki,
15 U-21 árs landsleiki og 6 U-18
ára landsleiki. Hann var kjörinn
íþróttamaður Vestmannaeyja 1981.
Þess má til gamans geta að bróðir
Sigmars, Sindri Óskarsson, golf-
maður, var kjörinn íþróttamaður
ársins 1987 í Vestmannaeyjum.
ÓlafurViggós-
son íþrótla-
maðurársins
á IMeskaupstað
Olafur Viggósson var kjörinn
íþróttamaður ársins 1987 á
Neskaupstað. Ólafur leikur með
meistaraflokki karla í knattspymu
og blaki og einnig hefur hann verið
fastamaður í unglingalandsliðinu í
knattspymu síðastliðið ár.
Ólafur hlaut sem viðurkenningu
farandbikar, sem gefínn var af Sva-
vari Lárassyni fyrram íþróttakenn-
ara hér á staðnum.
— Ágúst