Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C
29. tbl. 76. árg.______________________________ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Krístinn Ingvarsson/AP
KA UPIÐ EKKIFISKINN ÞEIRRA
Eins og fram hefur komið hér í blaðinu hafa Greenpeace-samtökin hrund-
ið af stað áróðursherferð gegn íslenskum fiskafurðum á Bretlandi,
Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi í því skyni að knýja íslensk stjóm-
völd til þess að láta af hvaíveiðum í vísindaskyni, en vísindaveiðamar
telja samtökin yfirskyn eitt. í gær var veggspjaldi komið fyrir á fjölföm-
um stað í Lundúnaborg og var meðfylgjandi mynd tekin þegar starfsmenn
Greenpeace unnu að því að setja það upp. Sem sjá má stendur skutul-
byssan nokkuð upp úr veggspjaldinu, en i baksýn er Esjan. Fyrirsögn
veggspjaldsins er: „Kaupið ekki fisk af slátrara," en undir er letrað:
„íslendingar drepa hvali. Kaupið ekki fiskinn þeirra. Greenpeace."
Sjá nánari fregnir á síðu 29.
Holst ræðir sovéska flot-
ann í Bonn og Washington
Bandaríkjaf orseti:
Hyggst hvergi
láta af stuðn-
ingi sínum við
kontrana
Washington og Tegucigalpa, Reuter.
FULLTRÚI Bandarikjaforseta,
veittist í gær harðlega að fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings fyrir að
fella beiðni forsetans um fjár-
hagsaðstoð við kontraskæruliða,
sem beijast gegn stjóm sandínista
í Nicaragua. I sömu yfirlýsingu
var þeim áminningarorðum beint
að sandínistastjóminni i Managua
að hún mætti ekki hvika frá þeim
breytingum i lýðræðisátt sem
kveðið er á um í friðarsamkomu-
lagi Mið-Ameríkuríkja.
í yfírlýsingu Marlins Fitzwater
sagði meðal annars að þessi úrslit í
þinginu „kiþptu undirstöðunni undan
baráttu hinna hugrökku karla og
kvenna [kontraskæruliða] á þessari
viðkvæmu stundu friðarviðleitni í
Mið-Ameríku.“
Fitzwater ítrekaði að kontramir
nytu enn stuðnings forsetans, en vildi
ekki tjá sig um með hvaða hætti
forsetinn hygðist styðja þá. Sagði
hann aðeins að forsetinn hygðist nú
ráðfæra sig við leiðtoga þingsins sem
og leiðtoga Mið-Ameríkuríkja um
„með hvaða hætti mætti best byggja
á hinum mikla árangri Mið-Ameríku-
stefnu okkar undanfarin sex ár“.
Vísaði Fitzwater til þess að þegar
Reagan hefði náð kjöri hefði Costa
Rica verið eina lýðræðisríkið í Mið-
Ameríku, en nú væri Nicaragua eitt
það ekki.
í ríkjum Mið-Ameríku var ákvörð-
un fulltrúadeildarinnar yfírleitt
fagnað, en í Hondúras leyndi stjóm-
in ekki áhyggjum sínum af því að
stjóm sandínista kynni að hætta við
frekari breytingar í lýðræðisátt.
Leiðtogar kontraskæruliða sögðu
að vissulega væru úrslitin þeim von-
brigði, en lýstu því þó jafnframt yfír
að þeir hygðust ekki hætta frelsis-
baráttunni í heimalandi sínu.
Sjá forystugrein á miðopnu og
nánari fregnir af úrslitum at-
kvæðagreiðslunnar á síðu 24:
„Verðum að láta reyna á . . .“
JOHAN Jergen Holst, varnar-
málaráðherra Noregs, heldur i
dag til viðræðna við ráðamenn í
Vestur-Þýskalandi og í Banda-
ríkjunuin. Talsmaður norska
.utanrikisráðuneytisins sagði við
blaðamann Morgunblaðsins að
Holst hygðist meðal annars ræða
breytingar sem Sovétmenn hafa
gert á hluta kafbátaflotans á
Noregshafi, sem skýrt var frá í
Morgunblaðinu f gær.
Johan Jargen Holst sagði í ræðu
er hann flutti á miðvikudag að fram
hefðu komið vísbendingar um að
Sovétmenn hefðu komið stýriflaug-
um fyrir í kafbátum sem áður hefðu
borið langdrægar kjamorkueld-
flaugar. Sagði hann Norðmenn hafa
af því áhyggjur að risaveldin kæmu
til með að leggja meiri áherslu en
áður á langdrægar stýriflaugar í
skipum og kafbátum.
Holst sagði Sovétmenn ráða yfír
langdrægri stýriflaug sem bæri teg-
undarheitið SS-N 21 og svipaði
henni til hinnar bandarísku Toma-
hawk-flaugar. „Margt bendir til þess
að kafbátar, sem áður báru lang-
drægar kjamorkuflaugar, hafí verið
teknir til hafnar og að gerðar hafí
verið á þeim breytingar til þess að
þeir geti borið SS-N 21-flaugar,“
sagði norski vamarmálaráðherrann.
Bætti hann við að þessi þróun gæti
raskað stöðugleika og skapað
spennu á norðurslóðum. Auk þess
kynni ríkjum Evrópu að standa ógn
af nýjum kjamorkuvopnum sem
koma myndu í stað þeirra landeld-
flauga uppræta skal, samkvæmt
afvopnunarsáttmálanum, sem undir-
ritaður var í Washington í desember.
James Webb, flotamálaráðherra
Bandaríkjanna, sem staddur var hér
á landi í gær og í fyrradag, kvaðst
ekki vilja tjá sig um þetta mál er
hann var inntur álits á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær í
Ráðherrabústaðnum. Webb kom
hingað til lands til að kynna sér
starfsemi vamarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, auk þess sem hann átti
viðræður við Þorstein Pálsson, for-
sætisráðherra, og Steingrím
Hermannsson, utanríkisráðherra.
Webb sagði á fundinum að það eftir-
lit sem vamarliðið hefði með ferðum
sovéskra kafbáta væri ákaflega mik-
ilvægt fyrir aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins í ljósi þeirrar ógnar
sem stafaði af kafbátaflota Sovét-
manna á Norðurhöfum.
Sjá viðtal við Webb á síðu 24.
Waldheim-málið:
Júgóslavar
svara nefnd-
inni í dag
Belgrað, AP.
BÚIST er við þvi að í dag svari
júgóslavnesk stjórnvöld beiðni
alþjóðlegrar rannsóknamefnd-
ar um aðstoð við rannsókn á
meintri aðild Kurts Waldheim,
Austurrikisforseta, að stríðs-
glæpum nazista.
Enn er ófundið frumrit sím-
skeytis, sem birt var í Der Spiegel
á dögunum, en það var sagt geta
bent til sektar Waldheims. Sagn-
fræðingurinn Dusan Plenca, sem
sagður er hafa fundið skeytið,
segist hins vegar ætla að birta
það nk. sunnudag.
Israel:
Tveir hermenn
falla í árás PLO
ísrael, Reuter.
ÞRÍR palestínskir hryðjuverkamenn laumuðust i
gær inn fyrir landamæri ísraels og drápu tvo ísra-
elska hermenn í sama mund og ríkin fyrir botni
Miðjarðarhafs bjuggu sig undir komu sérlegs sendi-
manns Bandaríkjaforseta, en vænst er að hann hafi
nýjar tillögur um heimastjórn Palestínuaraba í far-
teskinu.
Talsmaður ísraelshers sagði að einn hryðjuverka-
mannanna hefði verið felldur og annar handtekinn, en
sá þriðji komst óhultur yfír norðurlandamærin á ný.
Hryðjuverkamennimir særðu einn hermann auk hinna
föllnu um það bil U/2 km fyrir innan landamærin.
í borginni Sídon í suðurhluta Líbanons lýsti talsmað-
ur Frelsissamtaka Palestínu (PLO) hryðjuverkinu á
hendur samtaka sinna. Talið er að með árásinni hafí
PLO viljað hvetja til frekari óeirða Palestínuaraba á
hemumdum svæðum ísraels á vesturbakka Jórdanár
og Gaza-svæðinu. Frá því að óeirðimar þar hófust fyrir
tæpum tveimur mánuðum hafa 43 Palestínuarabar látið
lífíð í þeim.
Þá var tilkynnt í gær að ekki yrði af fyrirhugaðri för
grísks skips til ísraels með útlæga Palestínuaraba.
PLO, sem felldur var i hryðjuverkaárás samtak-
anna í gær.