Morgunblaðið - 09.02.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
5
Ungirog' aldnir á ísdansleik
Iþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur og útvarpsstöðin
Ljósvakinn stóðu fyrir ísdansleik
á Tjöminni siðastliðinn sunnudag.
Fjöldi skautafólks á öllum aldri
renndi sér á svellinu í takt við
dunandi valsa.
Tónlistarveislan á skautasvellinu
stóð frá tvö til sex eftir hádegi. Að
sögn Jóhannesar Ola Garðarssonar
hjá Iþrótta- og fomstundaráði lá
stöðugur straumur fólks niður á
Tjöm. „Hér komu margar flölskyld-
Fjöldi fólks brá sér á skautabaU
sem Iþrótta- og tómstundaráð hélt
í samvinnu við Ljósvakann sfðasta
sunnudag.
ur, smáböm sem voru að fara á
skauta í fyrsta sinn jafnt sem snill-
ingar á áttræðisaldri." Jóhannes
sagði að stemmningin hefði verið
býsna góð og helst dalað þegar gert
var hlé á léttklassfkinni og leikin
popplög.
Tónlistin sem hljómaði á Tjamar-
svæðinu á sunnudaginn var send
beint út á öldur Ljósvakans um
hljómflutningstæki Reylq'avíkur-
borgar. Jónas R. Jónsson útvarps-
maður sagði að mikið hefði verið
leikið af Straussvölsum en Schubert
hefði einnig komið við sögu. Hann
nefndi að Bolero Ravels hefði vakið
dansgleðina sérstaklega hjá skauta-
fólkinu og að sjálfsögðu hefði ,
Skautavals Waldteufels verið ómiss-
andi.
Töluverð
fjölgun á trú-
félögum ut-
au þjóðkirkju
og fríkirkna
93% tslendinga í
þjóðkirkjunni
LANGFLESTIR íslendingar, eða
93,1%, tilheyra þjóðkirkjunni,
samkvæmt skýrslu Hagstofunn-
ar um mannfjölda eftir trúfélagi
þann 1. desember sl. Tæp 9.000
manns eru skráð í fríkirkjum,
og rúm 5.000 manns teljast til
trúfélaga utan Þjóðkirkjunnar
og fríkirknanna, og hefur þeim
fjölgað um 23% síðan árið 1980.
Alls vom um 17.000 manns skráð
utan þjóðkirkjunnar, en íbúar á Is-
landi vom 247.024 þann 1. desemb-
er 1987. Félögum í þjóðkirkjunni
hefur flölgað um 7,9% frá 1980,
sem er nær jafnri fólksfjölgun á
íslandi á þessu tímabili. Félögum í
fríkirkjunum hefur hins vegar að-
eins Qölgað um 1,0% á þessu tíma-
bili, en flestir em þeir í Fríkirkj-
unni 1 Reykjavík, eða 5.783, en
1.905 em skráðir í Fríkirkjuna í
Hafnarfirði, og 1.101 í Óháða söfn-
uðinn í Reykjavík.
Af öðmm söfnuðum er Kaþólska
kirkjan flölmennust, en til hennar
töldiist 1.933 félagar, oghefur þeim
ijölgað um nær ‘20% síðan 1980.
Þau trúfélög sem á eftir koma em
Hvítasunnusöfnuðurinn með 827
félaga, hefur fjölgað um tæp 20%
síðan 1980; Aðventistar með 673
félaga, hefur §ölgað um 2% síðan
1980; Vottar Jehóva með 413 fé-
laga, hefur Qölgað um 30% síðan
1980; og Baháísamfélagið með 358
félaga, hefur ijölgað um 58% um
síðan 1980. Utan trúfélaga em
skráðir 3.157 íslendingar, eða 1,3%
þjóðarinnar.
Nýfædd böm em talin til trúfé-
lags móður af Hagstofunni, en trú-
félagaskipti em tilkynnt af einstakl-
ingnum sjálfum.
Umhleypingar
áloðnumiðum
BRÆLUR og umhleypingar hafa
hamlað loðnuveiðum að undan-
förnu. Gæftir hafa verið lélegar
og loðnan verrið ósamvinnuþýð
á skilunum út af Austfjörðum.
Afli frá áramótum er orðinn um
230.000 tonn.
Á föstudag fór Víkurberg GK
með 250 tonn til Grindavfkur. Á
laugardag var engin veiði. Á sunnu-
dag fór Pétur Jónsson RE með 220
tonn til Reyðarfjarðar, Rauðsey AK
600 og Albert GK 700 til Eskifjarð-
ar, Hrafn GK til Neskaupstaðar
með 350 og Sighvatur Bjarnason
VE 650 og Kap II VE með 550 til
Vestmannaeyja. Síðdegis á mánu-
dag hafði Hákon ÞH tilkynnt um
900 tonna afla til Neskaupstaðar
og Huginn VE 590 til Reyðarfjarð-
ar.
„. . . Nonni, ég held ég hafi
gleymt að borga rafmagnið. . .
almáttugur allt kjötið
b> í frystikistunni. . .“ jí
„Hafðu engar áhyggjur elskan,
Greiðsluþjónusta Verzlunarbankans
, sér um að borga reikningana“
g*
Eyddu ekki vetrarfriinu
í áhyggjur af gjalddögum!
Greiðsluþjónusta Verzlunarbankans sér um snúningana!
\y(RZlUNRRBRNKINN
Hvað er Greiðsluþjónusta?
Greiðsluþjónustan byggist á því að í stað þess
að þú fáir reikninga senda heim, geturðu búið
svo um hnútana að þeir berist beint til Greiðslu-
þjónustu Verzlunarbankans.
Starfsfólk bankans sér um að greiða þá með
því að skuldfæra greiðslurnar á viðskiptareikning
þinn í bankanum og senda síðan greidda og
stimplaða reikningana heim til þín.
Greiðsluþjónustan tekur að sér tvenns konar
greiðslur:
1. Ýmsir heimilisreikningar s.s. rafmagn
hiti, sími, húsgjöld, fasteignagjöld, áskriftir
o.fl.
2. Fastar greiðslur án reikninga s.s.
húsaleiga, barnagæsla o.fl.
„Frí“ frá snúningum allt árið!
Þótt hagræðið af því að notfæra sér Greiðslu-
þjónustuna sé ótvírætt þegar frí eru annars vegar
er hún áreiðanlega jafn kærkomin á öllum árs-
tímum.
Nú er nefnilega tækifærið að taka sér „frí“ frá
snúningum í kringum reikninga allt árið.
Komdu í næsta Verzlunarbanka og fáðu
nánari upplýsingar eða hringdu
og fáðu sendan bækling.
GREIÐSLUÞJÓNUSTA
- þjónusta sem gengur
greitt fyrir sig!