Morgunblaðið - 09.02.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
~"\ --------------------------------
9
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
I herbex
ILTU
HÆTTA...
að reykja?
AÐVORUN:
Reykingar
geta
valdiö
lungna-
krabba og
dauða!!
ANTMiiHJK kUfc
nW i' ‘nM>wmon „
HERBEX reykingakúrinn gerir þér
það auðvelt!
Hann er settur saman úr jurtaefnum og víta-
mínum, sem hjálpa þér að yfirvinria reykinga-
löngunina. Að tólf dögum liðnum er tóbaks-
löngunin horfin.án óþæginda og fráhvarfs-
einkenna, SVO EINFALT ER ÞAÐ!!
Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu:
___ pk. HERBEX á kr. 1.500 hvern pakka
Nafn:.
Heimili:
Sveitarfélag:
Akveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 13.
apríl nk. til eyjarinnar Lanzarote á heilsu-
gæslustöðina Panorama.
Þeir, sem hafa þörf fyrir slíka ferð, snúi sér
til húðsjúkdómalækna og fái vottorð frá þeim.
Sendið það merkt nafni, heimilisfangi, nafn-
númeri og síma til Tryggingastofnunar ríkis-
ins, Laugavegi 114, 3. hæð.
UMSÓKNIR VERÐA AÐ HAFA B0RIST FYRIR 4. MARS.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
PSORIASISSJÚKLINGAR
: j Sendisttil Póstval, Pósthólf 9133,
1 29 Reykjavík.
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Mikill verðmunur á viðgerð-
um á heimilistælgum, mynd-
[bands- og sjónvarpstækjum
SÍS, Timinn og Kringlan
Lesendum Staksteina þarf ekki að koma á óvart, að í Tímanum
sé hanskinn tekinn upp fyrir SÍS. Áður hefur verið komist þann-
ig að orði hér í dálkinum, að sé stigið á skottið á SÍS þá veini
Tíminn. Má segja að þessi fullyrðing sé staðfest í hvert sinn
sem framsóknarmönnum þykir hallað á SÍS. Af þessari rót er
neikvæð afstaða Tímans í garð hinnar nýju verslanamiðstöðvar
Kringlunnar. Frá því að Kringlan var opnuð í ágúst sl. hefur
Tíminn haft allt á hornum sér vegna hennar. Skín þar í gegn
misskilin umhyggja fyrir velferð SÍS. Þessa fyrirtækja-bundnu
afstöðu Tímans er að jafnaði reynt að færa í hugmyndafræðileg-
an búning, svo sem þann að framsóknarstefnan til stuðnings
SÍS sé einhverskonar millileið á milli sósíalisma og frjálshyggju.
Dýrþjónusta
SIS
Á miðvikudag i síðustu
viku ræðir Garri Tímans
um stöðu frystíhúsanna
og þröngan fjárhag
þeirra iim þessar mundir.
Tilefnið er, að Árni Bene-
diktsson, framkvæmda-
stjóri Félags fiskfram-
leiðenda innan SÍS, ritaði
Tfmagrein þar sem hann
að sögn Garra raktí
„þann gráa leik sem ýms-
ir frammámenn í einka-
geiranum hafa verið að
spila til að reyna að koma
því inn hjá almenningi
að það séu Sambands-
frystihúsin ein sem séu
sífellt að tala um að nú
þurfí að • fella gengið".
Staksteinar ætla ekki að
taka afstöðu til þess,
hvort hér hafí verið um
„gráan leik“ að rseða.
Hitt er ljóst, að afstaða
framsóknarmanna til
gengismála svo að ekki
sé talað um vaxtamálin
sýnist ráðast meira af
þvi, hvemig SÍS vegnar
heldur en almennum við-
horfum tíl þróunar efna-
hagsmála. Er þetta gam-
all og nýr sannleikur.
Þannig hefur afstaðan til
SÍS jafnan verið þar á
bæ og má minna á um-
ræðumar um „höfðatölu-
regluna" og haftatímana,
sem urðu i byijun vetrar.
Þá leitaðist Tíminn við
að sýna fram, að fram-
sóknarmenn hefðu ekld
reynt að hygia SÍS undir
hafta- og skömmtunar-
stjóm.
í framhaldi af þvi að
Gárri visaði tíl orða Áma
Benediktssonar ræddi
hann um „stórar fjárf est-
ingar í verslun", sem
hafí hækkað verðlag og
segir: „Þar til má nefna
byggingar eins og
Kringluna í Reykjavík,
en kostnaðurinn við
smiði hennar lendir að
sjálfsögðu út í verðlagið
og á herihun neytenda í
þessu landi. 1 því efni
hefur það sýnt sig að
marglofuð óheft sam-
keppni ftjálshyggjunnar
dugar ekki.“
Dýrtíðin hér er mikil
og yrði það hin mesta
kjarabót ef unnt yrði að
stemma stígu við henni;
fáir hafa sýnt meiri vilja
til þess f verki en þeir,
sem áttu frumkvæði að
smiði Kringhinnar, þeir
Hagkaupsmenn. Hafa
þeir og verið í hópi öflug-
ustu gagnrýnenda SÍS,
sem ekki kemur nálægt
Kringlunni eins og kunn-
ugt er. Sú staðreynd
breytir á hinn bóginn
ekki þvi, að í verðkönnun
á þjónustu fyrirtælqa
sem annast viðgerðir á
heimilistækjum var þjón-
ustan lijá rafmagnsverk-
stæði SÍS einna dýrust,
tíl dæmis er viðgerð á
heimilistæki sem tekur
eina klukkustiind 74%
dýrari þjá SÍS en þjá
þeim sem býður lægst
verð.
Fjárfestingar
SIS
Á undanfömum árum
hafa fjárfestíngar SfS
verið mjög tíl umræðu.
Er skemmst að minnast
tílrauna SÍS til að eignast
Útvegsbankann, raunar
vom þeir SÍS-menn
þeirrar skoðunar, að með
þvi að bjóða í bankann
hefðu þeir eignast hann.
Á þá frumlegu skoðun
var ekki fallist en að lok-
um komst viðskiptaráð-
herra að þeirri niður-
stöðu að vegna þess
hveijir buðu og hvemig
boðið var í bankann yrði
að endurtaka útboðið. í
miðjum þessum sviptíng-
um ákváðu SÍS-menn að
taka gömlu tilboði rfkis-
sjóðs í Sambandshúsið
við Sölvhólsgötu. Er frá
þvi greint i Alþýðublað-
inu nú um helgina, að
ýmsum SÍS-mönnum hafí
þótt SfS fá 100 miiy. kr.
of iítið fyrir hinar glæsi-
legu höfuðstöðvar sinar
á besta stað í bænum, á
milli fjármálaráðuneytis-
ins og seðlabankans. Um
þetta leytí var einnig
skýrt frá því, að SÍS
hefði fest mikið fé f land-
spildu í lögsagnar-
umdæmi Kópavogs.
Töldu ýmsir, að þangað
ætlaði SfS að flytja höf-
uðstöðvar sínar. Það
stendur þó ekki fyrir
dyrum heldur á að fíytja
þær að Kirkjusandi, þar
sem ráðist verður í að
endurbyggja verksmiðju-
hús.
Það sem hér hefur
verið nefnt snertír aðeins
höfuðstöðvar SÍS og tíl-
raunina til að eignast
banka. Það myndi fylla
marga Staksteinadálka
að rekja aðrar fjárfest-
ingar SÍS eða dótturfyr-
irtækja þess á undan-
förnum misserum eða
þeim tíma, sem það tók
að reisa Kringluna.
Raunar skal dregið f efa,
að nokkur hafi yfirsýn
yfír þessar fjárfestíngar
allar eða yfir þann
vanda, sem steðjar að
SÍS-fyrirtælqum. I fyrr-
nefndri grein í Alþýðu-
blaðinu segir, að vandi
SÍS eigi bæði rætur að
rekja til ytri sldlyrða og
„stjómunarlegs ágrein-
ings“ eins og það er kall-
að. f Alþýðublaðinu seg-
ir;
„Forsvarsmönnum
Sambandsins og forystu
Framsóknarflokksins
hefur orðið tíðrætt um
vaxtabyrðina, sem er að
sliga kaupfélögin og fyr-
irtæki í landinu. Það er
ekki af ástæðulausu að
þeir lýsa áhyggjum
sínurn, því skuldir SÍS
em gífurlegar m.a. tald-
ar nema töluvert á annan
milljarð króna i stærsta
viðskiptabankanum,
Landsbanka íslands."
EFITRLAUNAREIKNINGUR VIB:
II - 11,5%
ávöxtun umfram verðbólpi
Nýtt ár með nýjum og góðurn venjum!
□ Eftirlaunareikningar VIB eni verðbréf í eigu einstaklinga skráð
á nafn hvers eiganda.
□ Eftirlaunareikningar VIB eru alveg óbundnir en þeir eru ávaxt-
aðir eins vel og frekast er unnt án þess að taka of mikla áhættu.
□ Restir greiða mánaðarlega í eftirlaunareikning sinn. VIB sér um
að senda gíróseðla eða minna á reglulegar greiðslur með öðrum
hætti.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður
B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNADARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi68 15 30