Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
23
Skipan aðstoðar-
yfirlögregluþjóns í
Kópavogi:
Veitmgarvald-
ið er í hönd-
um dómsmála-
ráðherra
- segir bæjarfógeti
Bæjarfógetinn í Kópavogi
gerði tillögu til dómsmálaráð-
herra um að Sæmundur Guð-
mundsson, varðstjóri í Kópavogs-
lögreglunni, fengi stöðu aðstoð-
aryfirlögregluþjóns við embætt-
ið. Sæmundur hefur gegnt starf-
inu undanfarið ár. Dómsmála-
ráðherra skipaði hins vegar ann-
an í stöðuna, eins og kom fram
í frétt blaðsins á föstudag.
Mikil óánægja ríkir í röðum lög-
reglumanna í Kópavogi með þessa
ráðningu, þar sem þeim þykir að
gengið hafi verið fram hjá hæfum
umsækjanda úr þeirra röðum.
Morgunblaðið hafði tal af Ásgeiri
Péturssyni, bæjarfógeta í Kópa-
vogi, og spurði hann, hvað hefði
ráðið þessari stöðuveitingu. Ásgeir
vildi ekki tjá sig um annað en stað-
reyndir málsins, sem hann sagði
vera þær að hann gerði tillögu um
hvemig ætti að leysa þetta mál. „Ég
lagði til, að Sæmundur Guðmunds-
son yrði ráðinn. Hann hefur gegnt
störfum lögreglumanns í Kópavogi
í 23 ár og þekkir vel til manna og
aðstæðna hér, auk þess sem hann
hafði gegnt umræddu starfi í ár.
En, veitingarvaldið er hjá ráðherra
og hann kaus að skipa annan mann
í stöðuna, um það er ekkert fleira
að segja“, sagði Asgeir.
Umsækjendur um stöðu aðstoð-
aryfirlögregluþjóns í Kópavogi voru
níu. Sá sem ráiðinn var, Guðmundur
Jónsson, kemur frá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og hafa lögreglumenn
í Kópavogi tekið það fram, að óán-
ægja þeirra beinist ekki að honum,
heldur málsmeðferðinni.
Jón Sigurðsson, dómsmálaráð-
herra, sagði að Sæmundur Guð-
mundsson væri hinn ágætasti mað-
ur, líkt og aðrir umsækjendur. „Ég
tel mig ekki þurfa að skýra ákvörð-
un mína frekar, en ég fullvissaði
mig um að lögreglustjóranum litist
vel á Guðmund Jónsson, sem ég
skipaði í starfið,“ sagði ráðherra.
„Þá vil ég líka taka fram að í des-
ember skipaði ég yfirlögregluþjón
í Kópavogi og var ákvörðun minni
þá fagnað mjög af lögreglumönnum
þar í bæ. Ég tel að það eigi að
vera mögulegt að menn gangi á
milli svæða og stofnana í lögregl-
unni, eins og æskiiegt er að geti
gerst á öllum sviðum í okkar opin-
bera kerfi."
Sambyggðar
trésmíðavélar
íSeoul
Til að ná langt á Olympíuleikunum í Seoul þá þurfa handknattleiksmenn okkar að
leggja hart að sér. Þú getur hjálpað þeim með því að kaupa Boltabrauð. Af hverju
brauði sem keypt er renna 3 krónur til handknattleikslandsliðsins.
bakarameistara
VELDU OTDK
OGHAFÐUALLTÁ HREINU